Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 30
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1980 Umsjón: St'ra J&n Ihtlbú Hróbjartsson Séra Karl Siyurbjörnsson Siyurfrur Páhson AUDRCmiNSDEGI Biblí ul estur VIKUNA 10.-16. FEBRÚAR Sunnudagur 10. febr. Mark. 4: 3—9 Mánudagur 11. febr. Matt. 13: 10—17 Uriðjudagur 12. febr. Mark. 11:15—19 og 27—33 Miðvikudagur 13. febr. Mark. 6: 1—6 Fimmtudagur 14. febr. Mark. 4: 26—29 Föstudagur 15. febr. I. Kor. 2: 1—5 Laugardagur 16. febr. Hebr. 6: 1—8 I grýtta jörð Bihlíudagurinn. Guðspjall: Mark. 4:3—9. SÁÐMAÐUR GEKK ÚT AÐ SÁ. Þessi dæmisaga er ein hinna þckktari af dæmisögum Jesú. Eins og í flcstum þeirra er sviðið daglegt líf og starf áheyrendanna. Sáðmaður gekk út að sá. Það var ekki allt jafn uppörvandi sem að sáningarstarfinu laut. Sáðkornið komst ekki allt í þá jörð sem veitti þau skilyrði að það hæri ávöxt. Sumt féll í götuna og fuglar komu og átu það upp. sumt féll í grýtta jörð og enn annað kafnaði í illgresi. Það er líklcgt að mörgum af fylgjendum Jesú hafi þótt sáningarstarf hans hera harla lítinn árangur. Það voru ekki stórir skararnir sem snerust til fylgdar við hann þótt margir kæmu til að hlýða á hann. Ekki er ólíklegt að ýmsum hafi fundist gatan hörð. jarðvegurinn grýttur. illgresið gróskumikið og uppskeran rýr. Þannig er því varið enn þann dag í dag. Mörgum finnst sáningarstarf lærisveina Jesú á okkar dögum harla lítinn árangur hera. Mörgum verður á að spyrja með vonlcysishreim í roddinni: Ilver eru eiginlega áhrif hins kristna hoðskapar í samtíðinni? Ilver eru áhrif hins kristna hoðskapar hér á okkar landi í dag? Er ekki stöðugt vorið að sá í grýtta jörð? Er ekki stöðugt verið að sá þar sem illgresið dafnar og kadir sérhvern góðan ávöxt? Hefur hoðun orðsins nokkuð að segja? í dag er hihlíudagur. Einkennismerki þess dags er sáðmaðurinn sem gekk út að sá. Bihlían er metsölubók á íslandi eins og víða annars staðar. En er hún lesin? Og sé hún lesin — hefur hún áhrif? Endir dæmisögunnar er með öðrum hætti en upphafið. — Sumt féll í góða jörð og bar ávöxt. Þrátt fyrir 2000 ára sáningarstarf er uppskerutíminn enn ekki kominn. Fyrst við lok tímanna kemur raunverulega í Ijós hver raunverulegur ávöxtur er af sáningarstarfi því sem unnið hefur verið í aldanna rás. Jesús gefur í þessari dæmisögu fyrirheit um ríkulegan ávöxt. Endir dæmisögunnar hlýtur að hafa vakið furðu þeirra sem á hlýddu. Ávöxturinn varð þritugfaldur — sextugfaldur já hundraðfaldur! Bændur á Gyðinga- landi áttu ekki að venjast slíkri uppskeru. Hún var langt fram yfir það sem raunveruleiki þeirra hafði kennt þeim. En einmitt þess vegna er endir dæmisögunnar sterk predikun um Guðsríki og komu þess. Þegar það birtist í fyllingu tímans fer það fram úr öllu því sem menn getur órað fyrir. Þá mun koma í Ijós að sáningarstarfið hefur ekki verið til einskis. þrátt fyrir troðinn jarðveg og grýttan og þrátt fyrir gróskumikið illgresi. Þess vcgna halda lærisveinar Jesú ótrauðir áfram því verki Jesú Krists að sá hinu góða sæði. fullvissir þess að erfiði þeirra er ekki til einskis. — Sumt frll í kóöh jörd uk khí a/ sér uö þrituxföldu. að sextUKföldu ok aó hundraðföldu. < & t.:: s xí>'t>v> •>v/‘/<'■< m ' ÉPMPl : ■■■'* :;*-■ <■<> V <jw,„ x-V '••> ■■.,..:; £ ■ : ' '-\é‘ é' Hvert er hlut- verk Biblíunnar BIBLIUDAGUR1980 sunnudagur lO.febrúar Sæöiö er Guös Orö Biblían er stórkostlegt bók- menntaverk. Á síðum hennar er að finna dýrustu perlur heimsbók- menntanna. Engin bók hefur haft eins gagnger áhrif á menningu, málfar, siði og háttu milljónanna. Biblían veitir innsýn í heillandi sögu fornra þjóða og menningar- heilda, gefur upplýsingar um trú og lífshætti manna fyrir allt að 3 árþúsundum, er sagnfræðingum og fornleifafræðingum, mannfræð- ingum og þjóðháttafræðingum hreinasta gullnáma. Þó er það svo, að þeir, sem sögu hennar sögðu, rituðu og gengu frá henni eins og hún er nú, höfðu ekkert af þessu i huga við verk sitt né heldur þeir, sem hana lesa mest og unna. I Nehemía-bók er sagt frá því er Esra las upp úr ritningunni og þeir, sem heyrðu skildu ekki aðeins það, sem lesið var, heldur komust við, og grétu, og glöddust síðan og fögnuðu yfir því sem þeir heyrðu og tóku saman höndum um að gjöra það, sem ritningin bauð þeim. Það að heyra og skilja ritninguna snart tilfinningar þeirra, og vakti þá til athafna. Öldum síöar lýsti J.B.Phillips, sem vann að nýþýðingu Biblíunnar á ensku, reynslu sinni við þýð- ingarstarfið. Hann sagði: Þótt ég gerði allt sem í mínu valdi stóð til að umgangast þessa texta á hlut- lausan hátt, fann ég hvað eftir annað, hvernig viðfangsefnið varð eins og lifandi fyrir mér og textinn forni talaði til mín og varpaði nýju ljósi á aðstæður mínar. Þessi viðbrögð endurspegla þær myndir og líkingar, sem ýmisr höfundar Biblíunnar nota er þeir lýsa áhrifum Guðs orðs samkvæmt eigin reynslu. Þeir líkja því við eld, sem vermir, hamar er molar, vatn sem hreinsar og svalar, sverð í bardaga, spegill, sem sýnir mann eins og hann er, Ijós, sem lýsir veginn. Það er að verki í þeim, sem trúir, byggir upp, er lifandi og kröftugt. Markmið Biblíunnar er að gera eitthvað í lífi lesandans, jafnframt því að vekja áhuga hans ög miðla upplýsingum. Það regindjúp, sem aðskilur tíma Biblíusagnanna okk- ar tímum, þar sem menn búa við gjörólíkar félagslegar og menning- arlegar aðstæður, villir okkur oft sýn hvað þetta snertir, og gerir að verkum að okkur finnst, sem hér sé um úrelta hluti að ræða og Biblían eigi því ekkert erindi til nútíma- mannsins í flóknum aðstæðum hans. En Biblían fjallar um þá eigin- leika mannlegs eðlis, sem ekki hafa breyst. Það fólk, sem við lesum um á blöðum Biblíunnár eiga þá drauma og þá galla, sem við könnumst við hjá okkur sjálfum. Það er stórmerkilegt hvað Biblían er raunsæ og trúverðug í mannlýs- ingum sínum. Jafnvel hetjurnar Hið íslenska Biblíufélag dag er hinn árlegi Biblíu- dagur. Þá er vakin sérstök athygli á Ilinu ísl. Biblúíélagi og starfsemi þess. Einnig er reynt að safna peningum á þessum degi til styrktar þýð- ingarmiklu starfi Bihlíufélags- ins. Tekið verður á móti fram- lögum til félagsins í öllum kirkjum og á kristilegum sam- komustöðum. Hið Isl. Biblíufélag var stofn- að 10. júlí 1815 og mun vera eitt elsta félag á Islandi. Herra Sigurbjörn Einarsson biskup er forseti félagsins og hefur hann verið í stjórn þess frá 1948. Framkvæmdastjóri félagsins er Hermann Þorsteinsson. Aðalverkefni Biblíufélagsins er að gangast fyrir útgáfu bibl- íunnar á íslensku og sjá um dreifingu hennar. En til þess að svo geti orðið verður fyrst að sjá um að biblían sé til á skiljanlegu og góðu máli. Öll Biblíufélög leggja því óhemju vinnu í end- urþýðingar á ritningunni. í mörg ár hefur verið unnið að slíku þýðingarstarfi hér á landi. — Nú er svo komið að öll guðspjöllin og Postulasagan liggja fyrir í nýrri þýðingu, en bréfin eru skemur á veg komin. Stjórn Biblíufélagsins hefur ákveðið að gefa biblíuna út í nýjum búningi svo fljótt sem auðið er. Og þar sem endurþýð- ing tekur langan tíma hefur verið ráðist í að endurskoða gamla textann á öllu því efni sem ekki er búið að full vinna í endurþýðingu svo hægt sé að gefa hana út sem allra fyrst. Nokkrir guðfræðingar vinna að þessari endurskoðun nú og mið- ar verkinu nokkuð vel. Ljóst er að endurútgáfa á svo viðamikilli bók sem biblíunni er mikið og kostnaðarsamt verk. \ ‘ mörg ár hefur biblían verið endurprentuð með sömu setn- ingu. Nú verður hún sett upp á nýtt með nýjum og endurbætt- um texta, sem án efa gerir hana mun aðgengilegri fyrir lesendur. Þetta verk er nú mjög aðkallandi vegna þess að ekki reynist unnt að nota gömlu setninguna öllu lengur, því plöturnar sem hún er á eru orðnar svo slitnar. Einnig má geta þess að biblían okkar hefur ekki fengið nýjan búning þ.e. setningu, réttritun og þýð- ingu, síðan í byrjun þessarar aldar. Biblíufélagið hvetur því alla landsmenn að leggjast á eitt með að styrkja starf félagsins svo ný biblía verði að veruleika sem allra fyrst. mestu eru ekki sýndar sem ein- hverjar undramanneskjur. Sjá til dæmis sögurnar um Davíð konung og Pétur postula. Þeir veikleikar og brestir, sem við sjáum hjá þeim, eru okkur næsta vel kunnir úr eigin aðstæðum okkar. Maðurinn hefur ekki breyst, þótt heimurinn sé annar. Hitt skiptir þó ekki minna máli, að Guð hefur ekki breyst. Hvorki eðli hans né afstaða til mannanna. I Biblíunni lærum við um Guð, hvernig hann er og hvað hann vill. Það er hlutverk þeirrar sögu, sem Biblían geymir að varpa ljósi á þá staðreynd, sem öllu máli skiptir, sem sé, að sá Guð, sem skapar þennan heim, elskar hann og grípur inn í mönnunum til bjargar, á margvíslegan hátt í sögunni, en fyrst og fremst með lífi og dauða og upprisu Jesú Krists. Biblían bendir á Krist. Jóhannes lýkur guðspjalli sínu með því að segja: „En þetta er ritað til þess að þér skulið trúa að Jesús sé Kristur, Guðs sonurinn, og til þess að þér, með því að trúa, öðlist lífið í hans nafni.“ Hann skrifaði bók sína í áróðursskyni, í sama tilgangi og Jesús sjálfur taldi einkenni allrar ritningarinnar, eins og hann sagði: „þér rannsakið ritningarnar ... og þær vitna um mig. Því að ef þér tryðuð Móse, þá tryðuð þér og mér, því að hann hefur ritað um mig.“ Eftir upprisu sína útskýrði hann ritningarnar fyrir lærisveinum sínum: „... byrj- aði á Móse og öllum spámönnunum og útlagði fyrir þeim í öllum ritningunum það, sem hljóðaði um hann.“ „Biblían er vagga Krists,“ sagði Lúther. „Móðirin gengur að vögg- unni til að finna þar barnið, við leitum til Biblíunnar til að finna þar Krist.“ Hlutverk Biblíunnar er að vekja trú á frelsaranum. En ekki það eitt. Hún nærir þá trú og viðheldur henni, að við fáum vaxið og þroskast í samfélagi við Guð. Af Biblíunni fáum við æ meiri innsýn í vilja Guðs og verk — og erum hvött til fylgdar við hann í hlýðni við vilja hans. Jesús sagði: „Hver sem elskar mig, mun varðveita mitt orð, og fáðir minn mun elska hann og til hans munum við koma og gjöra okkur bústað hjá honum ... og það orð, sem þér heyrið, er ekki mitt, heldur föðurins, sem sendi mig.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.