Morgunblaðið - 13.03.1980, Síða 10

Morgunblaðið - 13.03.1980, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 SINNI VAR— Kvikmyndlr eftir SÆBJÖRN VALDIMARSSON Austurbæjarbíó: VEIÐIFERÐIN Framleiöendur: Gísli Gestsson og Andrés Indriöason. Hljóöupptaka: Jón Kjartansson. Hljóó- setning: Sigfús Guö- mundsson. Kvikmynda- taka: Gísli Gestsson. Handrit, klipping og leik- stjórn: Andrés Indriða- son. Aðalhlutverk: Sig- uröur Karisson, Sigríöur Þorvaldsdóttir, Siguröur Skúlason, Guðmundur Klemenzson, Kristín Björgvinsdóttir, Yrsa Björt Löve, Pétur Einarsson, Árni Ibsen, Halli og Laddi o.fl. Það er vissulega góðra gjalda vert og virðingarverð sú bjart- sýni aðstandenda Veiðiferðarinn- ar. að ráðast í gerð barnamyndar. Einkum þá haft er í huga að hér hefur taepast verið gerð löng, leikin mynd um árabil og barna- myndir álíka fáséðar og hvtir hrafnar nema þá helst frá Disney félaginu. Vægast sagt tvísýn fjár- festing. Og það dylst heldur engum að það er góð meining og andi sem er megin bakhjarl Veiðiferðarinnar. Veiðiferðin gerist á einum fögrum sumardegi, austur á Þingvöllum. Segir frá nokkrum ólíkum persónum, ungum sem gömlum, og athöfnum þeirra á þessum drottins dýrðardegi. Fyrst og fremst segir myndin frá börnum, þeim Bjössa, Stínu og Elísabet, sem koma með for- eldrum sínum árla morguns. Þau fullorðnu hyggjast veiða grimmt eða þá sóla sig, börnin verða fyrir og lenda í mestu ævintýrum, uppá eigin spýtur. Þar loma við sögu margvíslegustu persónur: tveir knáir lögregluþjónar; eldri hjón sem silast austur yfir heiðar á skódanum sínum; hressir Eyja- peyjar (Halli og Laddi), komnir á land í kvenmannsleit; skúrkar tveir sem koma mikið við sögu dagsins, að ógleymdu hundkvik- indinu Bóbó. Og eins og í öllum björtum ævintýrum fer allt vel um síðir, börnin sleppa úr klóm skúrkanna sem lenda á bak við lás og slá. Af þessari upptalningu má ráða að aðalpersónurnar eru all- margar, en ókosturinn við það er aðallega sá að í handritinu bind- ast þær aðeins lauslega saman. Kaflarnir verða því ansi margir og myndin fyrir bragðið nokkuð sundurleit. Eins og í öllum fallegum ævin- týrum er léttur húmor yfir mynd- inni, er börnum sem fullorðnum virtist falla vel. Og það mega áhorfendur gjarnan hafa hugfast að hann er fyrst og fremst ætlaður yngri kynslóðinni, þeir eldri fá nóg. Undir niðri kveður samt við aivarlegri tón, þó að ekki beri mikið á honum; gagnrýni á stöðu barna í nútíma þjóðfélagi hinna fullorðnu. Þetta er málefni sem er Andrési hugstætt, eins og alþjóð er kunnugt af leikritum hans. Hér blasir oft við okkur tillitsleysi og óþolinmæði þeirra fullorðnu, sem jafnvel „kaupa sér frið“ frá börnum sínum og taka gæludýr fram yfir sín eigin af- kvæmi. Hasarsaga myndarinnar er eins og fyrr segir, nokkuð sund- urlaus, og það rýrir heildarsvið Veiðiferðarinnar. Þarna er ágæt hugmynd, sem hefði kannski not- ið sín betur samanþjappaðri á skjánum. Leikurinn er frekar góður, einkum hjá yngri leikurunum, sem mega vel við una í frumraun sinni. Hinir sviðsvönu eru svona upp og ofan. Lögregluþjónarnir standa sig einnig með prýði, ofleika alveg mátulega. Þá eru ótaldir þeir ágætu bræður Halli og Laddi. Mikið skelfing væri fyndni landsmanna grámusku- legri ef þeirra nyti ekki við. Enda liggur við að farið sé að nota meðfædda gamansemi þeirra og leikhæfileika eins og Kínalífsel- ixír. Þeir eru húmorskur burðar- ás myndarinnar og hljóta að launum ómældan hlátur áhorf- enda. Hér hefur hinum ágæta tón- listarmanni, Magnúsi Kjartans- syni, verið fengið nýtt verkefni upp í hendurnar: gerð kvik- myndatónlistar og leysir hann það með miklum ágætum, eins og hans er von og vísa. Tónlist hans fellur vel að efni myndarinnar, er hóflega notuð, stílhrein, og melódískt þema myndarinnar er sterkt. Tæknilega er myndinni nokkuð ábótavant, einkum hvað snertir hijóðupptöku og klippingu. Og áhorfendur, sem velflestir þekkja til á Þingvöllum, rekur sjálfsagt nokkrum sinnum í rogastans, því nokkuð frjálslega er farið með landslagið. Loksins, eftir ára bið frá frum- sýningu barnamyndarinnar Síð- asti bærinn í dalnum, fáum við tækifæri til að bjóða börnum okkar, sem að svo mörgu leyti eru annarsflokks þjóðfélagsþegnar, á alíslenska kvikmynd, gjörða þeim til heiðurs. Og þrátt fyrir þá galla sem drepið hefur verið á, er Veiðiferðin skemmtileg barna- og fjölskyldumynd, með margar góðar hliðar og kafla. Með þetta í huga ber að skoða hið yngsta afkvæmi íslenskrar kvikmynda- gerðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.