Morgunblaðið - 13.03.1980, Síða 29

Morgunblaðið - 13.03.1980, Síða 29
Úr kvikmyndinni „Allegro Non Troppo“. ítölsk teikni- mynd hjá Fjalakettinum í KVÖLD, fimmtudag, kl. 21, á laugardaginn kl. 17 og á sunnu- daginn kl. 17, 19.30 og 22 sýnir Fjalakötturinn í Tjarnarbíói teiknimyndina „Allegro Non Troppo" eftir Bruno Bozzetto. Hún er gerð á Ítalíu árið 1976. Bruno Bozzetto er líklega einn besti og þekktasti teikni- myndahöfundur í dag. Allegro Non Troppo er hæðnisleg skopstæling á Fantasíu eftir Walt Disney. Tónlistin er eftir Debussy, Dvorak, Ravel, Sibel- ius, Vivaldi og Stravinsky. Allegro Non Troppo fékk gullverðlaun bæði á Chicago Film Festival 1976 og London Film Festival 1976. AUGLÝSINGASÍMINN EK: 22480 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 29 Stofnuð Samtök áhuga fólks um hvalvernd Samstarfshópur áhuga- fólks um hvalvernd hefur verið stofnaður, en mark- miðið er að kynna ástand hvalastofna og hvetja til þess að farið verði skyn- samlega í nýtingu þeirra og beitt mannúðlegum veiðiað- ferðum. Að sögn Jóns Baldurs Hlíðbergs, sem er aðalhvatamaður stofnunar samtakanna, verður hér ekki um venjubundið félag að ræða, heldur samtök áhugafólks, sem starfa að þessu markmiði. Kvað Jón áætlað að standa fyrir kynningarfundum og málfundum um þessi mál og vekja fólk til umhugsunar um ástand hvala- stofna og afla þeirri skoðun fylgis að hvalastofnarnir verði ekki of- veiddir. Sagði Jón, að nú væru um 159 manns búnir að tilkynna um þátttöku í þessu starfi og væri m.a. búið að skipuleggja ýmsa fundi þar sem baráttumál áhuga- fólks um hvalvernd verða kynnt. Kvaðst Jón álíta að mikill grundvöllur væri hérlendis fyrir samtökum þessum, þau væru á engan hátt tengd Greenpeace, en myndu starfa sjálfstætt og berjast fyrir hvalvernd yfirleitt bæði við ísland og annars staðar. Sigurey með mest heildar- verðmæti Sigluf jarðarskipa Siglufirði 10. marz. TEKIÐ hefur verið saman yfirlit yfir síðasta ár hvað snertir afla- verðmæti skipa og báta sem gerð eru út héðan frá Siglufirði. Þar kemur fram að Sigluvík hefur aflað mest. Var afli hennar 2.682 Fundur hjá félagsfræðingum FÉLAG þjóðfélagsfræðinga gengst fyrir fundi í stofu 102 í Lögbergi klukkan 20.30 í kvöld. Framsögu hefur Stefán Ólafsson, M.A., og fjallar hann um íslenzka verkalýðshreyfingu, átakamátt hennar og árangur kjarabaráttu. tonn, skiptahlutur 500,1 m.kr. og heildaraflaverðmæti 634.4 m.kr. Stálvík aflaði 2.641 tonn, skipta- hlutur 440,1 m.kr. og heildarafla- verðmæti 515,8 m.kr. Dagný aflaði 1.310,4 lestir, skiptahlutur var 292,5 m.kr. og heildaraflaverð- mæti 394,1 m.kr. Sigurey fékk l. 844,1 lest, skiptahlutur var 526,7 m. kr. og heildarverðmæti 745,6 m.kr. Sævík, er var á línu, aflaði fyrir alls 120 milljónir króna og Siglfirðingur fékk 1.236,1 lest og var skiptahlutur 315.1 m.kr. Stálvík fór fjórar söluferðir til útlanda og náði 330 úthaldsdög- um, Sigluvík 334 úthaldsdögum og sigldi 7 sinnum með afla og Sævík sigldi utan 6 sinnum. m.j. Skátarnir við matseld Hraunbúar í Hafn- arfirði 55 ára SKÁTAFÉLAGIÐ Hraunbúáf í Hafnarfirði varð 55 ára hinn 22. febrúar sl., en það var stofnað árið 1925, og eru nú starfandi 2 ylfingasveitir, 2 ljósálfasveitir, 4 áfangaskátasveitir og 2 drótt- skátasveitir. Þá hefur verið starfandi í tengslum við félagið um árabil hjálparsveit og á sl. hausti var haldið flokksforingjanámskeið og farið var í útilegu. Hér fara á eftir nokkrir kaflar úr samantekt frá félaginu um starfsemina: Á starfsári núverandi stjórnar Hraunbúa hefur mikið áunnizt. Hitaveita hefur verið lögð í hús- næði félagsins við Hraunbrún og nú er verið að vinna að endurbót- um á rafkerfi hússins. í fyrra var stofnað foreldrafélag. Unnið er nú að endurnýjun skála félagsins við Kleifarvatn, „Hverahlíðar", og skálinn undir Bæjarfelli í Krísuvík, „Skýjaborgir", er nær fullgerður. Til að fjármagna þess- ar framkvæmdir voru seld jóla- kort á síðustu aðventu og skáta- skeyti sl. vor og að auki fékk félagið styrk frá bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Vormót hefur félagið haldið nær óslitið í 39 ár og síðustu 14 ár á svæði félagsins í Krísuvík. Gestir hafa komið hvaðanæva að af landinu og voru á síðasta móti um 520 skátar. Verður fertugasta vormótið haldið 5.-8. júní og er undirbúningur vel á veg kominn. Náin samvinna verður milli Hjálparsveitarinnar, St. Georgs- gildis og Hraunbúa og hafa marg- ir gamlir skátar og mætir menn úr bæjarlífinu verið fengnir til liðs. Rammi vormótsins verður tréð og er hugmyndin að hver mótsgestur gróðursetji minnst eina trjáplöntu á svæðinu, en stefnt er að því að girða svæðið í vor og verja það ágangi sauðfjár og hesta. smáauglýsingar — smáauglýsingar Tek að mér að leysa út vörur fyrir verzlanir og innflytjendur. Tilboö sendist augld. Mbl. merkt: „Ú — 4822“. Fíladelfía Gúttó Hafnarfirði Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Fjölbreyttur söngur. Samkomu- stjórl Daniel Glad. Aöalfundur Aöalfundur Sunddeildar Ár- manns veröur haldinn fimmtu- daginn 20. marz kl. 20.00 í Snorrabæ. Stjórnin. Grensáskirkja Almenn samkoma veröur í Safn- aöarheimilinu í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Halldór S. Gröndal. smáauglýsingar — smáauglýsingar Fíladelfía Reykjavík Almenn samkoma kl. 20.30. Æskulýöskór syngur. Söngstjóri Clarence Glad. Hjálpræðisherinn Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Séra Frank Halldórsson talar. Undirforingjarnir stjórna. Kristniboðsvikan Samkoma veröur í kvöld kl. 20.30, aö Amtmannsstíg 2B. Nokkur orö: Hrönn Siguröar- dóttir. Kristniboösþáttur: Ingunn Gísla- dóttir. Hugleiðing: Gunnar J. Gunn- arsson. Árni Sigurjónsson syngur. Allir eru velkomnir. ICFUMK IOOF 11 = 161314830 = S.K. IOOF 5 = 1613138 ’/j = 9. II. Frá félagi Snæfellinga og Hnappdæla Næsta spila- og skemmtikvöld veröur föstudaginn 14. marz. n.k. í Domus Medica kl. 20.30. raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Hveragerði og nágrenni Stórbingó veröur haldiö í Hótel Hverageröi, föstudaginn 14. marz kl. 20. Aðalvinningar: Úrvals sólarlandaferð að verömæti kr. 250.000 - Forhitari aö verömæti kr. 150.000,- Vinningar alls kr. 750.000 - Sjálfstæðisfélagiö Ingólfur Hveragerði Jan Mayen málið Carl August Fleischer, prófessor og þjóörétt- arfræöingur frá Noregi, flytur erindi um sjónarmiö Norömanna og þjóðréttarleg atriöi í Jan Mayen málinu á almennum fundi, sem Lögfræöingafélag íslands og lagadeild Há- skóla íslands boöa til í kvöld kl. 20.30 í Lögbergi, húsi lagadeildar, stofu 101. Öllum er heimill aögangur, meðan húsrúm leyfir. Raðfundir um hús- næðismál — bygginga- möguleika ungs fólks Samband ungra sjálfstæöismanna og Landsmálafélagiö Vöröur gangast fyrir þremur raöfundum um húsnæöismál. Sá fyrsti er í kvöld fimmtudagskvöldið 13. marz og hefst kl. 8.30 í Valhöll Háaleitisbraut. í kvöld verður fjallað um húsnæöismál ungs fólks, lánamöguleika og Byggung. Fram- sögumaöur veröur Örn Kærnested fram- kvæmdastjóri Byggung í Garöabæ og Mos- fellssveit. Einnig mæta á fundinn stjórnar- menn úr hinum ýmsu Byggung-félögum á höfuöborgarsvæðinu. S.U.S. og Vöröur. Sjálfstæðisfélagið Trausti í Flóa Árshátíö félagsins veröur haldin í Þjórsárveri föstudaginn 14. mars n.k. Hefst kl. 21 Dagskrá: Kaffidrykkja. Ræöa. Pálmi Jónsson, landbúnaöarráöherra,. Tvísöngur. Jón Ólafsson og Sveinn Auðunsson. Undirleik annast Pálmar Þ. Eyjólfsson. Dans. Velunnarar félagsins eru hvattir til aö mæta. Stjórnin. Njarðvík Aöalfundur Fulltrúaráös Sjálfstæðisfélaganna í Njarövík veröur haldinn í Sjálfstæöishúsinu mánudaginn 17. marz kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf, önnur mál. Stjórnin. húsnæöi óskast Sérhæð eða einbýlishús óskast á leigu frá 1. júní í Sandgerði, Keflavík eöa Njarðvík, fyrirframgreiðsla til áramóta. Tilboö leggist inn á augld. Mbl. fyrir 1. apríl merkt. „S — 6274“. nauöungaruppboö Nauðungaruppboð 2. og síðasta sem auglýst var í 51., 54. og 57. tbl. Lögbirtingarblaðs- ins 1979 á verslunarhúsi í Reykholti, Borgarfjaröarsýslu, þinglesinni eign Steingríms Þórissonar fer fram aö kröfu Verslunarbanka íslands hf. o.fl. á eigninni sjálfri mánudaginn 17. marz n.k. kl. 14.00. Sýslumaður Mýra- og Borgarfjaröarsýslu. Örn Kærnostcd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.