Morgunblaðið - 13.03.1980, Page 19

Morgunblaðið - 13.03.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 19 Vitneskjan um að leiðtogaúr- val Norðurlandanna glímdi við stórvandamál þjóða sinna og drjúgan hluta heimsvandamál- anna hér í Reykjavík í viku, fór vitaskuld ekki framhjá nokkrum manni, jafnvel ekki þeim, sem skorti áhuga á samkomuhaldinu. Hins vegar vefst fyrir okkur sumum, um hvað allt þetta tal snérist, og þegar festa skal hend- ur á tilteknum efnisatriðum hef- ur áhuginn og skilningurinn, hjá mér a.m.k., tilhneigingu til að hlaupa í baklás. Eitt mál þykist ég þó hafa gripið nægilega vel til að geta rætt utan þingfundar, og það sem meira er, lagt fram tillögu Magnús Óskarsson: Færeyinga inn íslendinga út Höggvið á hnút Norðurlandaráðs til lausnar þess, sem ekki er með öllu víst, að sé sú vitlausasta, sem heyrzt hefur í samanlögðum ræðum skandinavískum. Tillagan er á þá leið að veita Færeyingum fulla aðild að Norð- urlandaráði þegar í stað, með þeim hætti að Islendingar gangi þaðan kurteislega út og taki Færeyingar frá samri stundu við öllum réttindum þeirra og skyld- um. Ef Islendingar taka svo skelegga og stórbrotna ákvörðun, ættu formsatriði ekki að þvælast fyrir þeim snillingum stjórnmála og lagasetninga, sem t.d. Svíar telja sig hafa yfir að ráða. Einum fyrirvara vildi ég þó að lokum koma að, Færeyinga vegna, og hann er sá, að ef þeir, að fenginni t.d. 10 ára reynslu, vildu skila þessum Norðurlanda- ráðsréttindum aftur á sama stað, hefðu þeir til þess einhliða rétt. Gætu þá Islendingar ekki undan því skorizt að taka á móti réttindunum og yrði að ráðast hvort þeirri afhendingu fylgdi sérstakt þakklæti Færeyinga fyrir lánið. Leifur Sveinsson lögfræðingur: Sambúðarerfiðleik- ar á Sjálfstæðisheimil- inu og Morgunblaðið Undanfarnar vikur höfum við Sjálfstæðismenn beint þeirri spurningu hvor til annars: „Hvað er að gerast í Sjálfstæðisflokkn- um?“ Mörg svör hafa borizt, en mis- góð. Þó tókst vini mínum Jónasi Guðmundssyni á Tímanum ágæta vel upp í útvarpserindi því, er hann flutti um Sólvelli þann 20. 2. s.l. Þar lýsti hann heimili Jóna- tans heitins Þorsteinssonar og konu hans Huldu, er lengi bjuggu að Sólvallagötu 12 hér í þorg, sem nú er Húsmæðraskóli Reykja- víkur. Heimilið var barnmargt og fylgdi börnum þeirra að vanda nokkur hávaði. Einu sinni keyrir hávaðinn svo úr hófi, að Hulda segir við mann sinn: „Jónatan minn, hvað í ósköp- unum gengur eiginlega á?“ Þá svarar maður hennar: „Þetta eru börnin mín og börnin þín að fljúgast á við börnin okkar" Jónas stýrimaður sigraði því óafvitað spurningakeppni sjálf- stæðismanna. Almenningur í landinu er orð- inn svo þreyttur á stjórnmála- þrasinu, að farið er að flokka stjórnmál undir mengun. Nauðsynlegt er því, að stjórn- málamennirnir heyi hjaðningavíg Leifur Sveinsson sín sem mest afsíðis í eigin málgögnum, en þreyti ekki lesend- ur Morgunblaðsins með því leið- indapexi, sem boðið hefur verið upp á í blaðinu síðustu vikur. Margir óttast nú, að þingræð- isskipulagið sé að ganga sér til húðar hér á landi. Tvær meginforsendur eru fyrir þvi, að slíkt skipulag fái staðist. Önnur er tveggja flokka kerfi. Hin er víðlesið, ábyrgt, óháð blað, sem leggur hlutlægt mat á gerðir ríkisstjórna og veitir þeim aðhald, án tillits til, hvaða flokkar standa að slíkum stjórnum. Lítil líkindi eru til þess, að tveggja flokka kerfi komist á hér á landi a.m.k. í bili, að óbreyttri kjördæmaskipan. Morgunblaðið hefur aftur á móti margt það til að bera, til að geta orðið slíkt blað, sem lýst er hér að ofan, ef breytt væri þar nokkuð um stefnu. Meðal stjórnenda Árvakurs h.f., útgáfufélags Morgunblaðsins eru nokkuð mismunandi viðhorf til blaðaútgáfu og stjórnmála. Annar hópurinn vill hafa sem nánust tengsl við Sjálfstæðisflokkinn og telur að Morgunblaðið hafi stuðn- ing af flokknum og flokkurinn stuðning af blaðinu. Hinn hópur- inn vill, að Morgunblaðið sé alger- lega frjálst og óháð blað, án tengsla við alla stjórnmálaflokka, víðsýnt menningarblað, byggt á grundvelli frjálshyggju. Sá er þetta ritar er í síðari hópnum. Ég skora á alla sanna Morgunblaðsmenn að styðja þenn- an málstað okkar og stuðla þannig að heilbrigðara þjóðlífi á Islandi. Reykjavík, 11. marz 1980. BULGARIA 1980 Ódýrt — vinsælt ferðamannaland Lærið ensku í Englandi 12 skólar — Bournemouth — London — Poole — Sherbourne — Blandon og Wimborne. Hópferðir á Nova School: 10. maí, 1. júní, 22. júní, 13. júlí, 3. ágúst, 24. ágúst, 14. september í 3 vikur, sem hægt er að framlengja. Verð 387.400. Innifalið: Flug, keyrsla af flugvelli á einkaheimili, hálft fæði virka daga og fullt fæöi um helgar, 18 tíma kennsla á viku. Fullkomin kennslutæki. Urvalskennarar. Lágmarks- aldur 14 ára. Bókiö strax. Bankamanna- og kennaranámskeiö 1. júní. Einstaklings- bókanir allt áriö. Ferðaskrlfstofa KJARTANS HELCASONAR Gnoðavog 44 — 104 Reykjavík. Sími 29211 A 86255. Páskaferöir 31. mars 2, 3 eöa 4 vikur — Nokkur sæti laus. 2ja eða 3ja vikna feröir 28/4,19/5,15/9 og 6/10. Vikulegar ferðir alla mánudaga frá 2. júní — 15. september, 2 eða 3 vikur á baöströndum Drushba eöa Zlatni Piatsatsi. Lúxus hótel Varna og 1. flokks hótelin, Preclav, Shipka, Zlatana-Kotva og Ambassador (endurnýjuð herbergi) að viöbættri einnar vikur ferð um Búlgaríu frá Sofiu eða Varna eftir brottfarardögum. Gist á lúxushótelum New Otani, Sofiu og Novotel á öðrum stöðum, stuttar dagleiöir, loftkældir M. Benz vagnar. Fullt fæöi í ferðinni, hálft fæöi á baöströndinni. Verð frá 320.900 — 2 vikur, 348.200 — 3 vikur. Vikuferöin 80.500 á mann, 50% uppbót á gjaldeyri við skipti á hótelum. Engin vegabréfsáritun né ónæmisaðgerðir. # Byrjaö er aö bóka — ekki missir sá er fyrstur fær. # íslenskir leiösögumenn, eigin skrifstofa. # Skoöunarferöir innanlands og utan. # Sendum bæklinga. Nánari upplýsingar íþeim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.