Morgunblaðið - 13.03.1980, Síða 27

Morgunblaðið - 13.03.1980, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 27 Tæknilegt og f járhagslegt vandamál: Mengunarvarnir í fiskimjölsverksmiðium Loðnan er lítill fiskur en stór í þjóðarbúskapnum. Á sl. ári vóru fluttar út loðnuafurðir fyrir 38 milljarða króna að f.o.b.-verðmæti. Flutt vóru út 160.000 tonn af loðnumjöli fyrir 21,4 milljarða króna, 87.000 tonn af loðnulýsi fyrir 11,1 milljarð króna, 9.000 tonn af frystri loðnu fyrir 2,7 milljarða og 3,600 tonn af frystum loðnuhrognum fyrir 2,8 milljarða. Útflutningsverðmæti frá loðnuverksmiðjum (mjöl og lýsi) var 32,5 milljarðar króna. Hér á landi munu nálægt 30 loðnuverksmiðjur (sem unnið geta úr feitum fiski) og um 20 verk- smiðjur, sem einungis vinna úr fiskúrgangi. Samtals mun hafa verið flutt út frá þessum verk- smiðjum hátt í 200.000 tonn fiski- méls og hátt í 100.000 tonn lýsis 1979. Verksmiðjur þessar vega því þungt í öflun gjaldeyris- og þjóð- artekna. Á síðari árum hafa komið fram háværar kröfur frá íbúum ýmissa sjávarplássa um úrbætur vegna mengunar frá þessum verksmiðj- um. Mengunarvandinn er þríþætt- ur. í fyrsta lagi loftmengun, sem er tíðust. í annan stað sjávar- mengun (grútarmengun). Og loks mengun á vinnustað, m.a. vegna ónógrar loftræstingar, hávaða o.fl. Fram til ársins 1969 vóru af- skipti af mengunarmálum verk- smiðja alfarið í höndum heilbrigð- isnefnda viðkomandi sveitarfé- laga. Þá vóru sett lög sem m.a. fela í sér yfirumsjón Heilbrigðis- eftirlits ríkisins með störfum heil- brigðisnefndanna. Loks var í reglugerð frá 1972 kveðið á um, að rekstur verksmiðja, sem mengun kann að stafa frá, skuli bundinn sérstöku starfsleyfi heilbrigðis- ráðuneytisins. Nær það ákvæði jafnt til eldri verksmiðja sem nýrra. Treglega mun hafa gengið að fá framgengt kröfum heilbrigðis- nefnda um mengunarvarnir í fiskimjölsverksmiðjum. Veldur þar einkum tvennt. Tæknilegur vandi, sem reynzt hefur torleyst- ur, svo ekki sé meira sagt, og kostnaðarhlið mengunarvarn- anna, sem ofvaxin mun fjárhags- getu fyrirtækjanna eins og rekstr- arstaða þeirra er í dag. Helgi F. Seljan og Hjörleifur Guttormsson hafa flutt á Alþingi tillögu til þingsályktunar sem felur í sér að ríkisstjórnin skuli „beita sér fyrir því, að á árinu 1980 verði gert átak til að ráða bót á mengun frá fiskimjölsverk- smiðjum og jafnframt verði gerð Útflutnings- verðmæti loðnuafurða 1979 38 milljarðar króna áætlun um varanlegar úrbætur í mengunarmálum slíkra fyrir- tækja í samvinnu við hlutaðeig- andi eigendur og samtök þeirra, svo og heilbrigðis- og náttúru- verndaryfirvöld. — Áætlunin taki m.a. mið af að lágmarkskröfum um mengunarvarnir allra starf- andi fiskimjölsverksmiðja verði fullnægt innan tveggja ára og að fjármagn sé tryggt til þeirra aðgerða. Verði í senn haft í huga ytra og innra umhverfi verksmiðj- anna og athugaðir möguleikar á bættri nýtingu hráefnis og orku- sparnaði samhliða viðhlítandi mengunarvörunum." Hinn almenni skilningur mun sá að mengun sé spilling á ein- hverju. í þeim skilningi er fram- angreind tillaga víðfeðm í meira lagi. Þrengri skilningur er að mengun sé eitthvað, sem náttúran (umhverfið) ráði ekki við að eyða. I hinum þrengri skilningnum verður umfang tillögunnar minna. Staðbundin aðstaða verksmiðj- anna er mjög mismunandi. Loft- mengun frá verksmiðju í þröng- um, lokuðum firði — í eða við byggð er t.a.m. önnur og meiri en frá verksmiðju á vindasömu ann- esi. Grútarmengun er og mismun- andi eftir sjávarstraumum. Vind- ar og straumar „ráða við“ eyðingu lyktar og grúts í einhverjum tilfellum, öðrum ekki. Hollustu- hættir á vinnustað eru svo kapit- uli út af fyrir sig. Lóftmengun frá fiskimjölsverk- smiðjum er flókið vandamál sem fyrr segir, bæði tæknilega en ekki síður fjárhagslega. í greinargerð frá Heilbrigðiseftirliti (1976) er bent á þessar leiðir: • 1. Tekinn verði upp þvottur útblásturslofts í svonefndum efnahreinsiturnum. • 2. Tekin verði upp brennsla útblásturslofts í eldhólfi þurrkara með svonefndri Hetland-aðferð. • 3. Breytt verði um framleiðslu- hætti og tekin upp gufuþurrkun, samfara brennslu lyktarefna und- ir gufukötlum eða eyðingu þeirra í hreinsiturnum. Minna má og á hreinsibúnað, sem Jón Þórðarson hannaði, og verið hefur í tilraunanotkun í Hafnarfirði. Tillaga sú, sem hér um ræðir, er nú flutt í þriðja sinn. Það, hve Alþingi hefur farið sér hægt í málinu, kann að stafa af vand- kvæðum úrlausna, tæknilegum og kostnaðarlegum. En víst er um það að mál þetta skiptir miklu, bæði viðkomandi útflutnings- framleiðslu og fólkið í fiskvinnslu- plássunum. -sf. Þingmaður spyr: Húshitunar- kostnaður og heilsufar í ráðuneyti í UMRÆÐU um tillögu Egils Jónssonar (S) og Halldórs Blöndal (S) um jöfnun húshitdn- ar minnti Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S) á frumvarp um sama efni, sem hann og fleiri þingmenn hafa flutt í efri deild Alþingis. Hefði það frumvarp verið rætt í iðnaðarnefnd deild- arinnar og við formann iðnaðar- nefndar neðri deildar, sem þá var núverandi iðnaðarráðherra, Hjörleifur Guttormsson. Kom mér og núverandi iðnaðarráð- herra saman um, sagði ÞGKr, að málið væri brýnt og að því bæri að hraða sem kostur væri. Var málið því rætt á sameiginlegum fundum beggja deilda, sem m.a. komu sér saman um að fá fram umsögn iðnaðarráðuneytis um málið, þ.e., hver væri stefna ráðherra og ríkisstjórnar í við- fangsefninu. Við lögðum áherzlu á skjót svör. Nú er kominn 11. marz, sagði ÞGKr, og ekkert Hefur heyrst frá ráðuneytinu. Iðnaðarnefnd efri deildar barst orðsending frá iðnaðarráðherra 22. febrúar sl., þar sem sagt var, að umsögn væri í undirbúningi, en hún hafi tafizt vegna veikinda starfs- manns og annríkis í ráðuneyti. Ég spyr nú ráðherra, hvernig Þorvaldur Garðar Kristjánsson er heilsufarsástand í ráðuneyt- inu? Hefur það skánað — og hvað um annríkið? Og ég veit að fólkið á olíuhitunarsvæðunum spyr með mér og væntir svars. Ráðherra svaraði því til að svar gæti enn borizt en spurning væri, eða matsatriði, hvort ráðu- neyti ætti að láta í té umsögn í máli, sem það hugsanlega undir- byggi sjálft tillögu- eða frum- varpsflutning í. Gallar á útfluttu lagmeti: Ekki á ábyrgð Sölustofnunar lagmetis í UMRÆÐU á Alþingi um fyrirspurn frá ólafi Ragnari Grímssyni (Abl) varðandi íslenzkt lagmeti, sagði Lárus Jónsson (S), að hann sem stjórnarformaður hefði fengið greinargerð frá ltígmanni Sölustofnunar lagmetis, Ragnari Aðalsteinssyni hrl., um hugsanlega ábyrgð stjórnar og starfsliðs stofnunarinnar vegna galla sem fram hafa komið á útfluttu lagmeti. Lárus sagði að hann vildi að gefnu tilefni, m.a. vegna aðdróttana i blöðum að starfsliði stofnunarinnar, að fram kæmi á Alþingi þetta álit lögfræðingsins. Hann las greinargerð lögfræðingsins upp en þar segir m.a. orðrétt: „Árið 1976 var sett ítarleg reglugerð um framleiðslu, eftirlit og útflutning á lagmeti nr. 221/1976. Var í rglg. gert ráð fyrir auknu hráefniseftirliti á vegum Framleiðslueftirlits sjávarafurða. Iðnaðarráðuneytið gaf út reglugerð þessa með stoð í lögum nr. 48/1972. Af einhverjum ástæðum tókst ráðuneytinu ekki að koma reglugerðinni í framkvæmd og situr við svo búið ennþá, en ný reglugerð er nú nánast tilbúin til útgáfu í meginatriðum byggð á sömu hugsuninni. í reglugerð þessari er áfram byggt á meira eftirliti framleið- enda og opinberu eftirliti, en eftirlit ekki lagt á söluaðila eins og t.d. SL. Virðast allir aðilar sem um mál þetta hafa fjallað vera sammála um að ekki sé rétt að leggja eftirlit á söluaðilann, SL, heldur auka hið opinbera éftirlit og innra eftirlitið. S1 hefur ítrekað bent stjórnvöldum á þörf aukins eftirlits og ekki síst þörfina á því að koma reglugerðinni frá 1976 í framkvæmd. Niðurstaða mín er sú að allar hugsanlegar hugleiðingar um ábyrgð stjórnar SL eða starfsmanna SL á göllum í útfluttri framleiðslu frá aðildarverksmiðjum eigi sér enga stoð. Stjórnin hefur engar lagaskyldur vanrækt á þessu sviði og jafnan reynt að hafa áhrif á rétta aðila um aukið og bætt eftirlit."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.