Morgunblaðið - 13.03.1980, Side 22

Morgunblaðið - 13.03.1980, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 „Eg gefst ekki upp fyrr en sannleikurinn liggur fyrir4* Segir Ólafur Lauf- dal veitingamaður í Hollywood — ÉG gefst ekki upp fyrr en sannleikurinn liggur fyrir í málinu, sagði Ólafur Laufdal veitingamaður í Hollywood í samtali við Morgunblaðið í gær, en hann hefur krafizt opinberrar rannsóknar- á fullyrðingum Borgþórs Kjærnested um vændisstarf- semi í Hollywood. — Ég yrði fyrir miklum vonbrigðum ef Rannsóknar- lögregla ríkisins neitar að rannsaka málið og þá mun ég hiklaust stefna Borgþóri Kjærnested fyrir ummæli og reyna að fá sannleikann fram á þar.n hátt, sagði Ólafur. — Þessar staðhæfingar mannsins eru sVo fáránlegar að engu tali tekur, sagði Ólafur, þegar hann var sj)urður um frétt Borgþórs. A meðan Norðurlandaþingið stóð og þó einkum þrjá fyrstu dagana, mánudag til miðvikudags, komu hingað í Hollywood allmargir þing- fulltrúar, þar á meðal nokkr- ir erlendir ráðherrar. Ég var sjálfur viðstaddur öll kvöldin og get því fullyrt að fram- koma þeirra var með ágæt- um og það er fjarstæða að einhver danskur ráðherra hafi „dáið“ á gólfinu. — I Hollywood eru tvenn sýningarsamtök með sýn- ingar, Karonsamtökin á fimmtudögum og Model 79 á sunnudögum. Það voru því engar tískusýningar þau kvöld sem norrænu gestirnir komu hingað og ég minnist þess ekki að neinar tískusýn- ingarstúlkur hafi verið í Hollywood þessi kvöld. — Ég er sjálfur á staðnum nær öll kvöld ársins þegar opið er og það er algerlega útilokað að einhver vændis- starfsemi geti átt sér stað hér í húsinu án þess að ég yrði þess var. Ég myndi fljótlega verða var við það og uppræta um leið. Frétt Borgþórs er því helber upp- spuni, sagði Ólafur. Ólafur sagði að lokum, að frétt Borgþórs væri versti atvinnurógur, gróf aðdróttun að þeim stúlkum, sem lagt hefðu fyrir sig sýningarstörf. — Ég treysti og er þess reyndar fullviss að fólk tekur ekkert mark á manninum. Ég er því ekkert hræddur við minnkandi aðsókn að Holly- wood þótt svona gróflega sé vegið að staðnum, sagði Ólaf- ur að lokum. „Þetta er svo fáránlegt að ég er nánast orðlaus“ Segir Matthildur Guðmunds- dóttir hjá Model 79 —ÞETTA er svo fáránlegt að ég er nánast orðlaus, sagði Matthildur Guðmundsdóttir talsmaður Model 79 í samtali við Morgunblaðið. — Það er óskiljanlegt hvað fær manninn til þess að senda slíkar fréttir til út- landa og níða þannig mann- orð samlanda sinna, sagði Matthildur. Þetta mun vafa- laust hafa áhrif á starf okkar en það er alvarlegra, að þetta mun eflaust hafa áhrif á fjölskyldur okkar. Ég hef rætt þetta við allmarga í dag og allir hafa fordæmt þessi óþverraskrif. Matthildur sagði að lokum að samtök sýningarfólks hefðu haft samband við Gísla Baldur Garðarsson lögfræðing og væri hann nú að athuga grundvöll fyrir málshöfðun á hendur Borg- þóri Kjærnested. „Hulin ráðgáta hvaða hvat- ir liggja hér að baki“ Segir Hanna Frímannsdóttir hjá Karonsamtökunum — ÞAÐ er mér hulin ráð- gáta hvaða hvatir liggja að baki þessum ógeðsiegu frétt- um, sagði Hanna Frímanns- dóttir hjá Karonsamtökun- um í samtali við blaðið í gær. — Ég er búin að tala við allar stúlkurnar í Karon- samtökunum í dag og eins og ég vissi var ekki fótur fyrir þessum aðdróttunum. Stúlk- urnar voru allar miður sín og þær áttu ekki orð yfir þetta, þeim þótti það svo fráleitt. Það voru allir á einu máli um að stefna manninum, það er ekki hægt að láta hann komast upp með þetta. — Ég vona bara að fólk taki ekkert mark á þessum manni. Við verðum með tízkusýningu í Hollywood í kvöld. Við látum engan bil- bug á okkur finna enda allar stúlkurnar með hreina sam- vizku og geta borið höfuðið hátt, sagði Hanna Frímanns- dóttir. Borgþór ekki í Blaðamannafélaginu — BORGÞÓR Kjærnested er ekki meðlimur í Blaðamanna- félagi íslands og málið er því félaginu óviðkomandi, sagði Kári Jónasson formaður fé- lagsins þegar hann var spurður að því í gær hvort siðareglu- nefnd félagsins hefði borizt kæra vegna fréttar Borgþórs. Kári sagði að Borgþór hefði á sínum tíma sótt um inngöngu í Blaðamannafélag Islands en umsókn hans verið hafnað, þar sem hann hefði ekki uppfyllt inntökuskilyrði. „Stúlkurnar og að standendur þeirra í uppnámi“ Segir Unnur Arngrímsdóttir — ÉG er alveg gáttuð á þessum fréttum. Þær hafa ekki við rök að styðjast hvað varðar Modelsamtökin og ég er viss um að það sama á við um hin sýningasamtökin, sagði Unnur Arngrímsdóttir hjá Módelsamtökunum við Mbl. — I fyrstu fréttum sem ég heyrði um þetta mál var talað um Modelsamtökin en það gat ekki staðist, þar sem þau sýna aldrei í Hollywood, sagði Unnur. Hún sagði að 17 stúlkur væru í Modelsamtök- unum og að sjálfsögðu væru þær og aðstandendur þeirra í uppnámi vegna þessa óhróð- urs, sem dreift hefði verið. — Við ætlum að halda fund um málið og ráða ráð- um okkar. Ég hef þegar haft samband við lögfræðing, Helga V. Jónsson. Það er mín skoðun að Borgþór Kjærne- sted verði að svara til saka í málinu og það er númer eitt að saklaust fólk verði hreins- að af svona óhróðri, sagði Unnur. Ákvörðun um rann- sókn væntanlega tekin í dag Segir rannsóknarlögreglustjóri — ÞESSI beiðni verður skoðuð og þá væntanlega í samráði við ríkissaksókn- ara og ég vona að það liggi fyrir ákvörðun um það á fimmtudag hvort opinber rannsókn verði látin fara fram í þessu máli eða ekki, sagði Hallvarður Einvarðsson rannsóknar- lögreglustjóri í samtali við Morgunblaðið í gær. — Mér barst í dag erindi frá fyrirsvarsmanni skemmtistaðarins Holly- wood, þar sem hann fer fram á að opinber rann- sókn fari fram á blaða- fréttum, en þar er stað- hæft að skipulagt vændi eigi sér stað í veitingahús- inu. Telur fyrirsvars- maðurinn að þarna sé aðdróttun um refsiverðan verknað og óskar því eftir fyrrgreindri rannsókn, sagði Hallvarður. Kærur hafa ekki borizt í áratugi KÆRUR vegna vændis- starfsemi hafa ekki borizt í áratugi. Þetta var sam- hljóða álit yfirlögreglu- þjónanna Njarðar Snæ- hólms og Bjarka Elíasson- ar, þegar Mbl. ræddi við þá í gær. Hallvarður Ein- varðsson rannsóknarlög- reglustjóri tók í sama streng og sagði að embætti hans hefði engin slík kæra borizt síðan það tók til starfa um mitt sumar 1977.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.