Morgunblaðið - 13.03.1980, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 13.03.1980, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 Egill Jónsson, alþingismaður: Jöfnun húshitunar eða búseturöskun Ekki stafkrókur í fjárlagafrumvarpi EGILL Jónsson (S) mælti s.l. þriðjudag íyrir tillögu, sem hann flytur ásamt Halldóri Blöndal (S) um jöfnun á kostnaði við húshitun i landinu. Benti hann m.a. á að verð á gasoliu hefði hækkað um 170% frá því í árslok 1978. Hér á eftir verður rakinn efnisþráður úr ræðu hans. ósamræmi í kjörum þjóðar Egill Jónsson sagði að í árslok 1978 hefðu 72% af íbúum þjóðarinnar notið hitaveitu. Að viðbættum þeim hita- veitum, sem síðar hafa verið bygKðar eða voru í byKgingu, muni 76% þjóðarinnar njóta jarðvarma og er þá hraunhitaveita í Vestmannaeyjum ekki með talin. Á Reykjavíkur- og Reykjanessvæði njóta nálega allir hitaveitu, 73%. í Norðurlandi eystra, 53% í Norðurlandi vestra, 43%. í Vesturlandskjördæmi, 34%. á Suður- landi, — en aðeins 9%. á Austurlandi og 6% á Vestjförðum. Þegar litið sé til þess mikla munar sem sé á húshitun- arkostnaði með olíu og jarðvarma megi ljóst vera, við hve mikinn mismun í kjörum fólk býr. Jafnframt er auðsætt, sagði Egill, hver kostn- aður getur af hlotizt fyrir þjóðarbúið, ef þessi mismunur leiðir til verulegrar búseturöskunar; þann veg, að tiltæk aðstaða í húsnæði, atvinnutækjum og samfélagslegum verðmætum nýttist ekki á tilteknum landssvæðum vegna fólksflótta, og þyrfti að auki að byggja þessa aðstöðu á þeim svæðum, sem fólkið leitaði til. Hér er því, hvern veg sem á er litið, um sameiginlegt vandaál þjóðarinnar að ræða og við því þarf að bregðast sem slíku. Húshitun þriðjungur orkubúskapar Egill sagði húshitun stærsta lið i orkubúskap íslendinga. Til hennar færu nú 3500 gigawattstundir á ári. Mælt hjá notendum væri það þriðj- ungur allrar orkunotkunar. Þar að auki væri gert ráð fyrir því að orkunotkun til húshitunar myndi aukast verulega á næstu árum. í spá orkustofnunar væri áætlað að rúmmál upphitaðs húsrýmis aukist úr 40 milljónum rúmmetra 1980 í 76 millj- ónir rúmmetra árið 2000, eða tvöfald- ist á 20 árum. í ár er 14.1% orkuþarfarinnar fullnægt með olíu, 14.1%. með raf- magni og 75% með jarðvarma. 1985 er áætlað að hlutur olíu verði kominn niður í 2%, rafhitun verði 18.5% og hlutur heits vatns 79.5%.. 1990 er áætlað að hlutur olíu verði kominn niður í 0,2% alls húsnæðis í landinu. Þá er talið að hlutur rafhitunar verði um 20% og heits vatns um 80%.. Egiil rakti síðan í nákvæmum sundurliðunum hvern veg hitað hús- næði í landinu skiptist í íbúðarhús- næði, atvinnuhúsnæði og þjónustu- stofnanir. Orkuverð eftir byggðarlögum Ef miðað er við meðalfjölskyldu- stærð í landinu (3.4 einstaklingar), 450 rúmmetra íbúð og 13 olíulítra á ári á hvern rúmmetra, að frádregnum olíustyrk, lítur dæmið þannig út. Verð á óniðurgreiddri olíu er kr. 23.88 á kwst, og að frádreginni niðurgreiðslu kr. 17.44. Er það hliðstæð tala og hjá Orkubúi Vestfjarða og RARIK. Aftur á móti kostar hver kwst. hjá Hitaveitu Reykjavíkur kr. 3.45. Þannig er niður- greidd olía rúmlega fimmföld að verði miðað við heitavatnsverð á höfuðborg- arsvæðinu. Samanburður kostnaðar í krónum talið væri þá 634.000 á olíusvæði móti 131.000 á viðskipta- svæði Hitaveitu Reykjavíkur. Egill Jónsson Þrefaldur miðað við hitunarkostnað í Reykjavík Egill sagði margar leiðir til að meta, hver fjárhæð olíustyrks ætti að vera. Hann teldi eðlilega viðmiðun að húshitun með oliú yrði þreföld að Sinfóníuhljómsveit íslands. Frumvarp um Sinfóníuhljómsveit: Sjálfstæð stofnun með sérstakan f járhag Árið 1956 var horfið að því ráði að tryggja tilvist Sinfóníuhljóm- sveitar Islands með fjárframlög- um ríkissjóðs, borgarsjóðs Reykjavíkur, Ríkisútvarps og Þjóðleikhúss, auk framlags frá Tónlistarfélagi Reykjavíkur. Fjár- hagsstaða hljómsveitarinnar hafði þá verið mjög slæm um árabil og við lá að starf hennar væri lagt niður. Þetta fyrirkomu- lag, sem upp var tekið 1956, stóð svo til óbreytt í 15 ár og gafst vel framan af. Ríkisútvarpið tók að sér rekstur hljómsveitarinnar árið 1961. Voru þá teknir upp fastir áskriftartón- leikar og starfsskipulagi breytt nokkuð. Síðar gerðist Þjóðleikhús- ið rekstraraðili með hljómsveit- inni. Er hér var komið gat hljóm- sveitin ekki með góðu móti sinnt öðrum verkefnum en áskriftartón- leikum, vegna starfs hljómsveit- armanna í þágu leikhússins. Þá bættust erfiðleikar í skipulagn- ingu hljómsveitarstarfsins við fjárhagsóvissuna. Að sögn kunn- ugra kom þetta einkum niður á fj ölskyldutónleikum, skólatónleik- um, barnatónleikum og tónleika- ferðum um landið, sem æskilegt og nauðsynlegt er að séu innan starfssviðs slíkrar hljómsveitar. Þáverandi menntamálaráð- herra, dr. Gylfi Þ. Gíslason, skip- aði 5 manna nefnd árið 1969 til að finna lausn á rekstrarvandamál- um Sinfóníuhljómsveitarinnar. Niðurstöður hennar voru m.a. þær, að nauðsynlegt væri að ríkið yfirtæki framlög Þjóðleikhúss og gerði hljómsveitinni með því kleift að starfa eðlilega. Var svo gert 1971 en þá urðu rekstraraðilar hennar; ríkissjóður 50,6%, borg- arsjóður Reykjavíkur 21,4% og ríkisútvarp 28%. Frá þeim tíma hefur Þjóðleikhúsið samið sér- staklega við hljómsveitina um tónlistarflutning. Nýlega var lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um Sinfóníu- hljómsveit íslands. Er það í þriðja sinn sem frumvarpið er lagt fram. Það felur í sér að hljómsveitin verði sjálfstæð stofnun með sér- stakan fjárhag og lúti sérstakri stjórn — en málefni hennar heyri undir menntamálaráðuneytið. Samkvæmt frumvarpinu skulu eftirtaldir aðilar standa að rekstr- inum: ríkissjóður 50%, Ríkisút- varp 25%, borgarsjóður Reykja- víkur og bæjarsjóðir Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Seltjarnarness 25% (sameigin- lega, greiðsluhlutföll í samræmi við íbúatölu). Stjórn Sinfóníunnar skal vera skipuð 5 mönnum. Einum til- nefndum af viðkomandi sveitar- félögum, einum af starfsmannafé- lagi hljómsveitarinnar, einum af fjármálaráðuneytinu, einum af ríkisútvarpi, en menntamálaráðu- neytið skipi formann — með staðgóða tónlistarmenntun. Menntamálaráðuneytið skipi stjórnina til fjögurra ára í senn. Stjórnin ráði framkvæmdastjóra, einnig til fjögurra ára, en endur- ráðning er heimil. Stjórnin ráði og hljómsveitarstjóra. í frumvarpinu eru ákvæði um starf og tilgang hljómsveitarinn- ar, verkefnaval (verkefnavals- nefnd), starfs- og fjárhagsáætlan- ir, reikningshald o.fl. starfsþætti, sem hér verður ekki farið út í. Heimildir eru til samvinnu við Þjóðleikhús og aðra aðila (ís- lenzka dansflokkinn og íslenzku óperuna) um uppfærslu listdans og söngleikja, sem vonandi eiga eftir að setja svip á íslenzkt menningarlíf í náinni framtíð. Ekki hefur verið umtalsverður ágreiningur um efnisatriði frum- varpsins þá Alþingi hefur rætt það á tveimur fyrri þingum, ef hlaupið er yfir minniháttar at- hugasemdir um greiðsluhlutfall rekstraraðila og innheimtuatriði þau varðandi, sem auðvelt ætti að vera að leysa úr. Um gildi hljóm- sveitarinnar eða sígildrar tónlist- ar í samfélaginu virðist ekki ágreiningur. Ekki er því útilokað að Alþingi setji Sinfóníunni sjálf- stæðan lagaramma um það bil er náttúra landsins vaknar til lífs og lita að vori. — Allt er þegar þrennt er, segir máltækið, og nú reynir í hið þriðja sinnið á íslenzk- an löggjafa varðandi það menn- ingarvígi, sem Sinfóníuhljóm- sveitin er — og verður vonandi. — sf. kostnaði miðað við heitavatnsverð í Reykjavík. Sú viðmiðun væri skýr og einföld í framkvæmd. Kostnaðarhlut- föll yrðu þá svipuð og þau voru í ársbyrjun 1978, en þá var kostnaður við olíuhitun 2.8 sinnum hærri en varmahitun í Reykjavík. Kostnaður við olíuhitun yrðu þá áþekkur og hjá nýjustu hitaveitunum og tæplega væru rök fyrir að fara niður fyrir þau mörk. Áætlað er hjá Orkustofnun að olíunotkun til húshitunar 1980 verði milli 56 og 57 milljónir lítra. Miðað við núverandi olíuverð kostar þessi olía 8.8 milljarða króna. Samkvæmt fram- angreindri viðmiðun yrði að greiða hvern lítra niður um kr. 13.53 eða 56.7% af olíuverði. Ársniðurgreiðsla yrði þá ca. 5 milljarðar króna og er þá allt húsrými tilgreint. Tillagan Húshitunarmál hafa mikið verið til umræðu á Alþingi og því óþarft að fara hér um fleiri orðum, sagði Egill Jónsson. Tillaga okkar Halldórs Blöndal miðar að því að reyna að ná sem víðtækustu samstarfi og sam- stöðu um leiðir til að draga úr kostnaðarlegu misræmi sem er í þessum þætti framfærslu fjölskyldna í landinu. Misræmi sem getur, ef ekki verður að gert, leitt til búseturöskun- ar í landinu, sem kosti verulega meira en umrædd aðstöðujöfnun. Tillagan gerir ráð fyrir kjöri nefndar, er leiti slíkrar samstöðu á grundvelli fyrir- liggjandi upplýsinga, og ákvörðunar Alþingis í framhaldi af störfum nefndarinnar en samhliða fárlaga- afgreiðslu. Ég sakna þess raunar mjög sagði Egill, að í fjárlagaafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, skuli ekki að finna eitt eða neitt varðandi þetta stóra vandamál og mikla réttlætismál. I stuttu máli: 6 MW- raforkuver í Svartsengi Verðmyndun frjáls þegar samkeppni er næg Eyjólfur Konráð Jónsson (S) mælti í gær fyrir frum- varpi sjálfstæðismanna um frjálsa verðmyndun þegar samkeppni er næg — eða hliðstæða verðlagshætti og tíðkast í flestum vestrænum ríkjum. Miklar umræður urðu um málið, sem nánar verður sagt frá á þingsíðu Mbl. síðar. Raforkuver í Svartsengi Þorvaldur Garðar Krist- jánsson (S) lýsti yfir samþykki þingmanna Sjálfstæðisflokks við frumvarp um heimild til handa Hitaveitu Suðurnesja til að réisa allt að 6 MW raforku- ver í Svartsengi, reisa og reka flutningslínur og tengja orku- verið við dreifikerfi Suður- nesja. Sagði ÞGKr frumvarpið í samræmi við þá stefnu, sem mótuð var í ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar og orkuráð- herratíð Gunnars Thoroddsen um landshlutaorkuver, er störfuðu í vissri samkeppni en þó í samtengdu og samvirku landskerfi. Útflutningsbætur búvöru Frumvarp um 3ja milljarða króna lántöku til að bæta bændum tekjutap vegna óverðtryggðrar búvöru liðið verðlagsár, sem samþykkt var í efri deild fyrir helgi með breyt- ingu um kostnaðarþátt Byggð- asjóðs o.fl. kom til fyrstu umræðu í neðri deild í gær. Héldu þingmenn Alþýðuflokks uppi harðri gagnrýni á frum- varpið og urðu miklar umræð- ur um málið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.