Morgunblaðið - 13.03.1980, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980
47
Valsmenn feti
frá titlinum
VALSMENN standa nú feti frá Islandsmeistaratign i körfuknattleik
en í gærkvöldi báru þeir sigurorð af Njarðvikingum að viðstöddum
liðlega 1200 áhorfendum i Laugardalshöll, 86—84. Það voru
æsispennandi lokamínúturnar, já allt fram á lokasckúndu. Þegar
aðeins 55 sekúndur voru til leiksloka voru Valsmenn með knöttinn og
höfðu yfir, 86—79. Þá var dæmd fimmta villan á Tim Dwyer og leikur
Vals hrundi. Njarðvikingar pressuðu stíft og skoruðu hverja körfuna
á fætur annarri lokasekúndurnar eftir að Valsmenn höfðu misst
knöttinn. Og þegar aðeins átta sekúndur voru til leiksloka fengu
Njarðvikingar þrjú viti og staðan 86—83. Ted Bee tók fyrsta vitið en
hitti ekki — honum gekk hins vegar betur i öðru og minnkaði muninn
í tvö stig. Hins vegar skaut hann i körfuhringinn í þriðja vítinu af
ásettu ráði í von um að Njarðvíkingar ynnu frákastið. Eftir
hörkubaráttu um knöttinn misstu Valsmenn hann út af, áhorfendur
voru risnir úr sætum og stemmningin i hámarki. Þrjár sekúndur til
leiksloka — einmitt sami tími og Valsmenn þurftu til að knýja fram
sigur í Njarðvik á dögunum i Bikarnum. En Njarðvikingar gerðu
furðuleg mistök, þeir sendu knöttinn ekki á Ted Bee, heldur einn af
minni spámönnunum og timinn rann út. Valsmenn fögnuðu innilega
— þeir eru nú aðeins feti frá meistaratign. Þurfa aðeins að sigra KR í
siðasta leik sinum og íslandsbikarinn fer að Hliðarenda i fyrsta sinn.
Það var fögnuður meðal Vals-
manna í lokin og velgengni félags-
ins síðustu daga mikil. Hand-
knattleiksmenn félagsins unnu
það einstæða afrek að komast í
úrslit Evrópukeppni meistaraliða.
En auðvitað ber að geyma ham-
ingjuóskir þar til titillinn er í
höfn, þar til íslandsmeistaratitill-
inn fer að Hlíðarenda. Raunar
geta Valsmenn unnið tvöfalt í ár.
Þeir eru einnig í úrslitum Bikars-
ins.
Slæm byrjun Njarðvíkinga
En snúum okkur að viðureign
Vals og Njarðvíkur — úrslitaleiks
Islandsmótsins í ár. Þrjár fyrstu
sóknir Njarðvíkinga runnu út í
sandinn og dæmd var sóknarvilla
á Ted Bee. Valsmenn skoruðu
fjögur fyrstu stigin og Njarðvík-
ingar tóku leikhlé til að ráða
ráðum sínum. Þeir náðu að jafna
6—6, en aftur sigu Valsmenn fram
úr og komust í 12—7 og síðan
18—16. Þá hins vegar náðu
Njarðvíkingar góðum leikkafla og
skoruðu næstu fimm stig, komust
í 21—18 og í fyrsta sinn voru þeir
yfir í leiknum. En Valsmenn létu
ekki deigan síga og á 12. mínútu
höfðu þeir náð sjö stiga forustu,
35—28. Valsmenn voru nánast
einráðir í fráköstum, hirtu hvert
frákastið á fætur öðru og
Njarðvíkingar hittu illa, jafnvel
ekki úr beztu færum.
Þrátt fyrir það lögðu Njarðvík-
ingar ekki árar í bát og eins og
hendi væri veifað höfðu þeir
jafnað 37—37 og munaði þar
mestu að Ted Bee fataðist vart
skot. Valsmenn voru þó einfald-
lega sterkari og sigu aftur fram
úr, náðu að komast í 45—39.
Staðan í leikhléi var 53—31. Mikið
skorað og fyrri hálfleikur hreint
frábær. Hraðinn gífurlegur —
umfn~86:84
hittni góð þó hún dytti um tíma
niður hjá Njarðvíkingum. Já, fyrri
hálfleikur gaf ekkert eftir stórleik
þessara tveggja liða suður í
Njarðvíkum á dögunum. Það fór
ekki á milli mála að þarna voru
tvö sterkustu liðini í körfunni á
íslandi í dag.
Valsmenn ná
undirtökunum í
síðari hálfleik
Valsmenn byrjuðu síðari hálf-
leik af krafti og enn náðu þeir
góðri forustu, komust í 58—51.
Skoruðu fimm fyrstu sig síðari
hálfleiks. Gunnar Þorvarðarson
ÍS og KR
mætast
í kvöld í
bikarnum
Undanúrslitaleikur KR og
ÍS í bikarkeppni KKÍ fer í
kvöld fram i iþróttahúsi
Kennaraháskóla íslands og
hefst kl. 20. KR-ingar mega
ekki nota Bandarikjamann-
inn Keith Yow í þessum leik.
Stúdentum var dæmdur sigur
í þessum leik á sinum tíma
þegar KR-ingar mættu ekki
til leiks. Dómstóll KKÍ dæmdi
í málinu i fyrrakvöld og
úrskurðaði að leikurinn
skyldi fara fram.
fékk sína fjórðu villu hjá Val. En
eins og svo oft áður í leiknum þá
söxuðu Njarðvíkingar á forskot
Vals — án þess að ná að brúa bilið
og ávallt vantaði herzlumuninn. Á
6. mínútu skildi aðeins eitt stig,
60—59, og mínútu síðar tvö stig,
64—62. Á níundu mínútu þrjú stig,
69—66. Herzlumuninn vantaði
ávallt hjá Njarðvíkingum. Vals-
menn voru ávallt nógu sterkir til
að halda Njarðvíkingum feti fyrir
aftan sig. Og raunar gott betur því
á næstu mínútum náðu þeir afger-
andi forustu. Drifnir áfram af
stórleik Tim Dwyers skoruðu
Valsmenn næstu sjö stig gegn
engu Njarðvíkinga og náðu tíu
stiga forustu, 77—66. Á þessum
kafla lögðu Valsmenn grunn að
sigri sínum. Og á 12. mínútu höfðu
þeir náð 12 stiga forustu, 80—68.
Valsmenn höfðu töglin og
hagldirnar í leiknum. Voru yfir-
vegaðri, hittu betur og Tim Dwyer
sá um fráköstin auk þess sem
hann var að vanda drjúgur við að
skora. Hins vegar urðu Valsmenn
fyrir áfalli þegar þeir misstu
Torfa Magnússon og Þóri Magn-
ússon út af með fimm villur og það
virtist ekki ætla að koma að sök
því Tim Dwyer var kóngurinn á
vellinum. Hreint ótrúlega sterkur
í fráköstum og fataðist ekki skot.
Þegar tæpar tvær mínútur voru til
leiksloka virtist stefna í öruggan
sigur Valsmanna, þeir leiddu
86—77 og lögðu alla áherzlu á að
halda knettinum.
Dwyer útaf —
og leikur Vals hrundi
Sekúndurnar tifuðu hver af
annarri og Valsmenn einfaldlega
gáfu knöttinn á Tim Dwyer —
hann sá um að halda honum og
draga til sín tvo til þrjá leikmenn.
Þegar 55 sekúndur voru eftir
gerðist hið óvænta — dæmd var
sóknarvilla á Dwyer og voru
Valsmenn ekki sáttir við þann
dóm. Leikur Vals hrundi eins og
spilaborg. Njarðvíkingar skoruðu
á næstu 40 sekúndunum sjö stig
án svars.
Aðeins þrjár sekúndur eftir og
Njarðvíkingar með knöttinn. En
þeir báru ekki gæfu til að nýta sér
þessar lokasekúndur. Tíminn rann
út og áhangendur Vals streymdu
fram á gólfið til að fagna sínum
mönnum — Njarðvíkingar hins
vegar stóðu hnípnir — enn eitt
árið virðist sem þeir ætli að missa
af titli.
Valsmenn verð-
skulduðu sigur
Það var engum blöðum um það
að fletta í gærkvöldi — Valsmenn
Sagt eftir leikinn
„Vonandi vinnum
við þrefalt“
Tim Dwyer, Val.
ÉG er mjög ánægður með leik
Valsliðsins og leikinn í heild
nema 5 síðustu mínúturnar. Ég
tel að það hafi ekki verið sann-
gjarnt hvernig leikurinn þróað-
ist á þessum mínútum og þá kom
berlega í ljós sá veikleiki
íslenzkra dómara að vilja alltaf
jafna leikina.
Þessi sigur í kvöld var mjög
mikilvægur fyrir okkur alla í
liðinu. Við höfum nú verið sam-
an í tvö ár og eigum möguleika á
því að vinna þrefalt, íslandsbik-
arinn, bikarinn og Reykjavík-
urmótið, sem við höfum þegar
unnið. Strákarnir í liðinu hafa
verið hreint frábærir og þeirra
vegna vona ég að við náum
takmarkinu. En ég veit að það
verður erfitt, sérstaklega verður
leikurinn við KR erfiður.
Ég vil einnig að það komi fram
að stjórnendur körfu-
knattleiksdeildarinnar hafa
unnið frábært starf og þeir eiga
ekki sístan þátt í því að
körfuknattleiksdeild Vals er
deild sem talað er um í dag.
„Við vinnum Val
í úrslitaleik“
Guðsteinn Ingimarsson,
Njarðvik:
Ég er auðvitað óánægður með
úrslitin þótt ég sé ekki óánægður
með leik okkar, ef undan er
skilinn slæmur kafli í seinni
hálfleik. Sá kafli gerði út um
leikinn.
Mótið er alls ekki búið þótt við
höfum tapað í kvöld. Valsararnir
tapa fyrir KR í síðustu umferð-
inni og við vinnum þá síðan í
aukaleik.
Leikurinn var í heildina
skemmtilegur og stemmningin
góð en áhorfendur hefðu mátt
hvetja okkur betur í seinni
hálfleik þegar við þurftum virki-
lega á hvatningunni að halda.
„Skemmtilegur leikur“
Torfi Magnússon, Val.
Þetta var virkilega góður leik-
ur og gaman að spila hann. Ég er
ánægður með frammistöðu
Valsliðsins en þetta gekk þó
hálfbrösuglega hjá okkur í lokin.
Við stefnum auðvitað að sigri í
leiknum gegn KR en ef við
töpum fáum við annað tækifæri
gegn Njarðvíkingum. Okkur
munar ekkert um að vinna þá
einu sinni enn. — S.S.
Dæmigert — Tim Dwyer gnæfir yfir leikmenn N jarðvik-
||j*a Mbl.mynd. Kristján
verðksulduðu sigurinn. Þeir voru
betri og léku yfirvegaðar. Tim
Dwyer var yfirburðarmaður í liði
sínu. Hann hirti ótalin fráköst og
var að vanda grimmur við að
skora. Þegar upp var staðið hafði
hann skorað 37 stig. Hann var
hreint ómetanlegur liði sínu. En
fleiri áttu góðan leik en Dwyer —
Torfi Magnússon var mjög drjúg-
ur, skoraði dýrmæt stig og hirti
mikilvæg fráköst. Kristján Ág-
ústsson lét ekki mikið yfir sér, en
skilaði sínu og þegar upp var
staðið hafði hann skorað 15 stig.
Þá var Ríkharður Hrafnkelsson
traustur að vanda. Þessir fjórir
leikmenn báru uppi liðið.
Ted Bee langbeztur
Njarðvíkinga
Ted Bee var allt í öllu hjá
Njarðvíkingum. Hann skoraði
hvorki meira né minna en 44 stig,
en hins vegar var hann ekki eins
harður í fráköstum og Dwyer —
þó hirti hann mörg. Oft hefur
verið talað um að Bee væri liði
sínu ekki nógu mikill styrkur og
hann þá borinn saman við aðra
Bandaríkjamenn. En í gærkvöldi
— sem og síðari hluta vetrar var
hann gífurlega sterkur. í gær-
kvöldi voru það bara aðrir leik-
menn sem brugðust. Þó Guðsteinn
Ingimarsson hafi skorað 20 stig þá
var hann ekki sjálfum sér líkur
miðað við síðustu stórleiki sína.
Þannig skoraði hann fyrstu stig
sín í síðari hálfleik þegar aðeins 4
mínútur voru til leiksloka og
Njarðvíkingar áttu á brattann að
sækja. Leikurinn varð Gunnari
Þorvarðarsyni hreinasta martröð.
Þessi annars áreiðanlegi leik-
maður hitti ekki úr einföldustu
færum og skoraði aðeins sjö stig.
Jónas Jóhannesson var að vanda
sterkur í fráköstum en hann bara
skorar ekki nógu mikið. Og lands-
liðsmaðurinn Júlíus Valgeirsson
sást vart í leiknum.
Stig Vals skoruðu: Tim Dwyer
37, Torfi Magnússon 16, Kristján
Ágústsson 15, Ríkharður Hrafnk-
elsson 10, Jón Steingrímsson 4,
Gústaf Gústafsson og Jóhannes
Magnússon 2.
Stig UMFN: Ted Bee 44, Guð-
steinn Ingimarsson 20, Gunnar
Þorvarðarson 7, Jón Matthíasson
6, Jónas Jóhannesson 4, Brynjar
Sigmundsson 2, Júlíus Valgeirsson
1. Ágætir dómarar voru þeir Jón
Otti Ólafsson og Guðbrandur Sig-
urðsson. Þeir voru í erfiðu hlut-
verki og eins og oft þá mætti
stundum deila um einstaka dóma
en í heildina höfðu þeir góð tök á
leiknum. H Halls.
Jafntefli á
Old Trafford
ÚRSLIT í ensku knattspyrnunni í
gærkvöldi:
1. deild:
Manchester Utd — Everton 0:0
Skotland, úrvalsdeild:
Celtic — St. Mirren 2:2
Dundee Utd — Partick Thistle 0:0
Kilmarnock — Morton 1:1
Rangers — Dundee 1:0
Leikur Manchester og Everton
þótti slakur og var heimaliðið
heppið-að hljóta annað stigið, ef
marka má fréttastofufregnir.