Morgunblaðið - 13.03.1980, Side 48
Lækkar
hitakostnadinn
FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980
PIERPOOT
QUARTZ — úr
Þessi heimsþekktu úr
fást hjá flestum úr-
smiöum.
Loðnufryst-
ingu að Ijúka
LOÐNUFRYSTINGU lýkur
sennilega næstu daga og hafa
nú verið fryst liðlega 2 þúsund
tonn, en hjá frystihúsum SH
hðfðu um helgina verið fryst
12—1300 tonn og um 700 tonn á
vegum íslenzku umboðssölunn-
ar, en fleiri aðilar frysta einnig
loðnu. Ef dæma má af meðfylgj-
andi mynd, sem tekinn er í
frystihúsi Sjöstjörnunnar í
Njarðvíkum í vikunni, þá býður
vinnan við loðnuna einnig upp
á sín skemmtilegu augnablik.
í gær var ágæt loðnuveiði í
Flóanum og einnig sunnan
Reykjaness. í gærkvöldi höfðu
15 skip tilkynnt um 6430 lestir
til Loðnunefndar, en í fyrradag
fengu 12 skip 4920 tonn. Lítið
hefur verið tekið af hrognum til
frystingar og aðeins í Sand-
gerði og Vestmannaeyjum, en
Japanirnir munu ekki vera sér-
Iega ánægðir með hrognin.
(Ljósm. RAX)
Gengissig krón-
unnar haf ið á ný
SEÐLABANKINN ákvað í
gær með samþykki ríkis-
stjórnarinnar að haldið
yrði áfram svipuðu geng-
issigi og var fyrr í vetur,
en að sögn Jóhannesar
Norðdal Seðlabankastjóra
var gengissigið stöðvað
fyrir nokkru meðan beðið
var samþykkis ríkisstjórn-
arinnar. Jóhannes sagði,
að gengissigið fyrr í vetur
hefði verið dálítið breyti-
legt, en yfirleitt á bilinu
1—2% á mánuði. Verð doll-
ars hækkaði í gær um eina
krónu.
Jóhannes Norðdal sagði,
að dollarinn hefði verið að
styrkjast að undanförnu og
því hefði krónan hækkað
gagnvart öðrum gjaldmiðli
meðan verði dollarsins var
haldið óbreyttu.
Vel miðar um samræm-
ingu starfsaldurslista
UNDANFARIÐ hafa verið
daglegir fundir milli fulitrúa
Félags Loftleiðaflugmanna
og Félags íslenzkra atvinnu-
flugmanna, þar sem samein-
ing starfsaldurslista félag-
anna hefur verið til umræðu,
en það er mikilvægur lykill
að gerð kjarasamnings flug-
manna og Flugleiða.
Verðbólgan síðustu 10 ár:
Mest á sl. ári, tæp 61%,
minnst árið 1971, 1,7%
VERÐBÓLGAN frá upp-
hafi árs 1979 til loka þess
varð nálega 61% eða 60,8%,
sem er mesti verðbólgu-
hraði, sem verið hefur á
íslandi frá upphafi. Næst-
mesti verðbólguhraði varð
árið 1974, er verðbólgan frá
upphafi árs til ársloka náði
50,2%. Það ár á síðastliðn-
um 10 árum, sem verðbólg-
an var minnst, var árið
1971, en þá var hraði henn-
ar aðeins 1,7%.
Ef skoðað er yfirlit yfir verð-
bólguhraða síðustu 10 ára, sem
liðin eru, þá hækkaði framfærslu-
kostnaður á árinu 1969 um 13,4%,
á árinu 1970 um 12,9%, á árinu
1971 um 1,7%, á árinu 1972 um
14,1%, á árinu 1973 um 34,9%, á
árinu 1974 um 50,2%, á árinu 1975
„Þeir hafa
varla flotið
undir þessu“
ÞEIR HAFA varla flotið undir
þessu, sagði starfsmaður á
Grandavoginni i Reykjavík í gær,
þegar Morgunblaðið bar undir
hann fréttir um góðan afla smá-
báta frá Reykjavík síðustu daga.
Sagði hann að þeir 5 smábátar
eða trillur, sem nú væru á netum
frá Reykjavík, hefðu aflað mjög vel
síðustu dagana. Bátarnir væru
rúrnlega 10 tonn að stærð, en hefðu
fengið 6 og allt upp í 10 tonn síðustu
daga. Nefndi hann sérstaklega
Reykjaborgina, Agnesi og Bergvík.
Þrír menn eru á hverjum báti og
því nóg að gera hjá þeim í þessari
hrotu, en hluturinn þá sömuleiðis
drjúgur.
um 40,0%, á árinu 1976 um 33,7%,
á árinu 1977 um 35,8%, á árinu
1978 um 38,3% og á árinu 1979 um
60,8%.
Eins og sjá má af þessum tölum,
er verðbólgan minnst á árinu 1971,
en það er síðasta árið, sem við-
reisnarstjórn var við völd. Á
haustdögum það ár kemur til
valda vinstri stjórn og verðbólgan
stígur ár frá ári og nær hámarki
1974, en á haustdögum það ár fer
vinstri stjórnin frá. Þá tekur við
samstjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks og heldur
sljákkar á verðbólguhraðanum. Á
árinu 1978 kemur aftur vinstri
stjórn og hraðinn eykst og nýtt
verðbólgumet er slegið á síðast-
liðnu ári, en þá fór vinstri stjórn
frá í nóvembermánuði.
Samkvæmt upplýsingum Gunn-
ar G. Schram, sem er sérstaklega
skipaður sáttasemjari í þessari
deilu, hafa samningaviðræður
milli félaganna gengið vel og fer
þeim brátt að ljúka. Inn í málið
fléttast ýmis atriði, er varða
Flugleiði, sem samningsaðila við
flugmennina og verða viðræður
um þau mál senn teknar upp við
Flugleiði.
Tólf dagar eru nú frá því er
Gunnar hóf afskipti af deilunni.
Hefur hann haldið nokkra fundi
með flugmönnum og viðsemjend-
um þeirra, en allmarga með flug-
mönnunum einum, þar sem starfs-
aldurslistinn hefur verið til um-
ræðu.
Kjarni úr Grænlandsjökli sýnir
að gosið mikla í Eldgjá var 935
Rætt við Sigfús Johnsen eðlisfræðing um rannsóknir á jöklinum
NIÐURSTÖÐUR rannsókna, sem
undanfarin 10 ár hafa verið
gerðar á Grænlandsjökli, benda
til þess að hið mikla eldgos i
Eldgjá hafi orðið árið 935. Þessar
rannsóknir byggjast á þvi, að
tekinn hefur verið kjarni úr
jöklinum og hann siðan m.a.
aldursgreindur með svokölluðum
„ísótópamælingum."
Að þessum rannsóknum standa
Kaupmannahafnarháskóli, Há-
skólinn i Bern í Sviss og banda-
ríski Vísindasjóðurinn. Sigfús
Johnsen, eðlisfræðingur, hefur
tekið mikinn þátt í þessum rann-
sóknum, en hann var um árabil
lektor við Hafnarháskóla, en kom
heim síðastliðið haust og er nú
dósent í jarðeðlisfræði við Há-
skóla Islands.
í samtali við Morgunblaðið í
gær sagði Sigfús, að samkvæmt
rannsóknum á kjarnanum færi
varla á milli mála, að eldgosið í
Eldgjá hefði orðið 935. Þessar
rannsóknir væru nokkuð nákvæm-
ar og í þessu tilfelli gæti tæpast
verið um frávik að ræða, þar sem
hægt væri að rekja önnur eldgos í
heiminum og tímasetja með ná-
kvæmri skoðun á þessum kjarna.
Samkvæmt þessu getur þetta gos
varla verið á öðrum tíma en árið
935.
— Þessi niðurstaða kemur heim
og saman við það, sem Jón
Steingrímsson eldprestur skrifaði
á sínum tíma, sagði Sigfús
Johnsen. — Hann hefur það eftir
fróðum mönnum í sinni sveit,
góðum og grandvörum, að Eld-
gjárgosið hafi verið 935. Aðrar
heimildir segja að gosið hafi verið
í kringum landnámið eða um 880,
en ekki fimm árum eftir stofnun
Alþingis á Þingvöllum.
— Þegar reynt hefur verið að
tímasetja eldgos hefur það verið
talsverðum erfiðleikum háð þar
sem geislakolaðferðinni, sem not-
Eldgjá séð frá Gjátindi.
uð hefur verið við aldursgreiningu
á hrauni, getur skeikað um 50 ár
til eða frá. Þessi aðferð getur verið
góð og gild til að staðfesta ein-
hverja tímasetningu, en ekki eins
traust ef engar heimildir eru til
þar um.
— Þetta gos virðist hafa verið
meira en Skaftáreldar 1783 ef
marka má brennisteinssýrur, sem
fundizt hafa í kjarnanum og hafa
borizt með úrkomu. Sá kjarni, sem
sýnir okkur þessa hluti, var tekinn
árið 1974 og greindur af dönskum
eðlisfræðingi, Claus Hammer, að
nafni, en það er stór hópur
vísindamanna í nokkrum löndum,
sem vinnur að því að lesa merka
sögu liðinna alda og árþúsunda
með því að rýna niður í Græn-
landsjökul. Ætli það hafi ekki
verið á um 350 metra dýpi, sem við
fundum gosið í Eldgjá, en þarna
getum við fundið öll meiri háttar
eldgos, sem orðið hafa á jörðinni,
sagði Sigfús Johnsen.
Þess má að lokum geta, að
íslenzkir jarðfræðingar vinna nú
að athugunum á stærð Eldgjár-
hraunanna, en þar er um gífurlegt
flæmi að ræða.