Morgunblaðið - 20.03.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980
3
Álögur á borgarbúa 2,6 millj-
arðar kr. umíram verðbólgu
Er nauðsynlegt að hækka enn álögurnar, spyr Davíð Oddsson
VEGNA þeirrar tillögu sem nú
liggur fyrir Alþingi og gerir
ráð fyrir að útsvarsálagning
geti orðið allt að 12,1%, sem
þýðir um 10% hækkun á gjöld-
um, hefur Davíð Oddsson borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
borið fram fyrirspurn í borg-
arstjórn varðandi þessi mál.
Aðeins fryst
upp í brot af
loðnusamn-
ingunum
AÐEINS hefur verið fryst loðna
upp í brot af samningum við
Japani, samkvæmt því sem Hjalti
Einarsson framkvæmdastjóri SH
hefur upplýst Mbl.
Samningar voru gerðir um allt
að 6000 tonn en aðeins hafa verið
fryst 13—1400 tonn hjá frystihús-
um innan Sölumiðstöðvarinnar. í
fyrra voru einnig gerðir samning-
ar um 6000 tonn og var fryst upp í
þá samninga.
Hjalti sagði að helsta ástæðan
fyrir lítilli loðnufrystingu nú væri
sú, að frystihúsin hefðu verið
upptekin í frysta fiskinum vegna
góðra aflabragða að undanförnu.
Einnig hefði loðnan verið smá og
tíðarfar erfitt til loðnuveiða.
Um fyrirspurn Davíðs verður
fjallað á fundi borgarstjórnar
í dag.
Fyrirspurnin er svohljóðandi:
1. Hafa borgaryfirböld í
Reykjavík (meirihluti borgar-
stjórnar) sótzt eftir því, að Al-
þingi setti í lög heimild til sveit-
arfélaga um hækkun útsvars um
10%.
2. Nú er aðeins tæpur mánuður
til lokaafgreiðslu á fjárhagsáætl-
un borgarinnar. Því er spurt,
hvort borgaryfirvöld (meirihluti
borgarstjórnar) stefni að því að
nýta slíka heimild, sem að framan
er nefnd, ef að lögum verður?
3. Er borgarstjórnarmeirihlut-
anum ekki ljóst, að hann hefur
þegar aukið skattheimtu af borg-
arbúum langt umfram verðbólgu
með verulegri hækkun fasteigna-
gjalda, aðstöðugjalda og fleiri
gjalda, þannig að 10% almenn
hækkun útsvara er líkleg til að
ofbjóða greiðsluþoli þeirra?
Davið Oddsson
„Þessi fyrirspurn er flutt vegna
þráfalds orðróms innan borgar-
innar um það að vinstrimeirihlut-
inn í borgarstjórn knýi á í ríkis-
stjórninni um þessar auknu álög-
ur,“ sagði Davíð í viðtali við
Morgunblaðið. „í fyrra reyndi
ákveðinn hluti borgarstjórnar að
fá fram svipaðar breytingar, er
það reyndist ekki unnt á þeim
tíma vegna þess að ekki var
meirihluti fyrir þeirri ráðstöfun
vegna andstöðu eins borgarfull-
trúa Alþýðuflokksins, auk sjálf-
stæðismanna. Þá má og benda á
að forsendur borgarinnar fyrir
hækkun eru ekki þær sömu og
forsendur sveitarstjórnasatfi-
bandsins. Borgin hefur þegar auk-
ið skattaálögur í borginni um 2.6
milljarða umfram verðbólgu, en
það er hærri upphæð en hallast á
borgina vegna innheimtu útsvara
eftir á,“ sagði Davíð.
„Ég tel tímabært að ræða um
fjárhagsstöðu borgarinnar og
óneitanlega vaknar sú spurning,
hvort nauðsynlegt sé fyrir borg-
arsjóð að hækka enn álögur á
borgarbúa eftir aðeins tveggja ára
valdatíma vinstrimeirihlutans í
borgarstjórn."
Reykjavikurhöfn:
Bæta úr að-
stöðu smá-
bátaeigenda
Samþykkt hefur verið í hafnar-
stjórn Reykjavíkur tillaga um
skipulag fyrir trillubátaaðstöðu í
Reykjavikurhöfn.
Lagði hafnarstjóri fram tillögu
á síðasta fundi hafnarstjórnar um
skipulag trillubátaaðstöðu fyrir
austan Ægisgarð, milli Ægisgarðs
og Grófarfyllingar og var hún
samþykkt með 4 atkvæðum. Kem-
ur þetta svæði í stað þess er
trillubátaeigendur höfðu vestan
Ægisgarðs en hefur nú verið tekið
undir uppfyllingu fyrir Slippfélag-
ið.
Lágt verð
fyrir ísf isk
í Bretlandi
TOGARINN Stálvik frá Siglufirði
seldi 118 tonn af þorski i Grimsby i
gærmorgun og fékk fyrir aflann 48
milljónir króna. Meðalverðið er 403
krónur fyrir hvert kíló, sem er
mjög lágt verð, miklu lægra en það
sem togararnir fengu 8.1. haust á
Bretlandsmarkaði.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við fréttaritara sinn í Grimsby,
Þórleif Ólafsson, og innti hann eftir
ástæðunum fyrir lélegum markaði í
Bretlandi.
Þórleifur sagði að í Grímsby væri
sama sagan og annars staðar í
Evrópu núna, allt væri fullt af fiski,
aðaliega þorski. Veturinn hefur ver-
ið með eindæmum mildur og frátafir
nánast engar. Sagði Þórleifur að
aflabrögð hefðu verið sérstaklega
góð í Norðursjó og hrúgast upp
fiskur frá brezkum, belgískum,
frönskum, hollenskum, dönskum,
þýzkum og norskum skipum.
Þá sagði Þórleifur að Þjóðverjar,
Hollendingar og Danir styrktu út-
gerðina mjög mikið og gætu því
þessar þjóðir boðið fisk á mun lægra
verði en Islendingar gætu sætt sig
við. Loks hefðu bankar þrengt að
fyrirtækjum að undanförnu og gætu
fiskkaupendur því ekki birgt sig eins
upp af fiski og þeir áður gerðu.
Vistgjöld hækka
í 100 þúsund kr.
BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam-
þykkti á fundi sínum þann átjánda
mars siðastliðinn að verða við
tilmælum félagsmálastjóra borgar-
innar um að hækka greiðslur
vistgjalda á einkaheimilum.
Hefur því verið ákveðið að vist-
gjöldin verði eitt hundrað þúsund
krónur á mánuði fyrir tímabilið 1.
janúar til 1. mars 1980.
Páskaferöin er uppseld
En þér býöst ekki annað eins
ferðatilboð í ár:
2ia vikna
BEZTU GISTISTAÐIRNIR:
dvöl a Costa del Sol
— því að 26 daga ferðin 13. apríl kostar
jafnt og 2 vikur í sumar.
Hefurðu áttað þig á, að apríl og maí eru einna ákjósan-
legustu og fallegustu mánuöir ársins á Costa del Sol? Sólin er
hátt á lofti, veðráttan hlý og mild og allur gróöur í blóma.
Tamarindos La Nogalera El Remo Hótel Alay
verö frá kr. verö frá kr. verö frá kr. meö hálfu fæöi — verö kr.
269.600 263.000 321.500 421.100