Morgunblaðið - 20.03.1980, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980
Útsýn 25 ára á þessu ári:
„Ferðalög nú almennings-
eign en í upphafi aðeins
í brýnustu erindagjörðum“
— segir Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri
„ÞEGAR Útsýn hóf starfsemi
sína fyrir aldarfjórðungi voru
ferðalög erlendis einungis fárin
í brýnustu erindagjörðum en nú
eru ferðalög almenningseign á
íslandi og ég fullyrði, að ef ekki
væri fyrir brautryðjendastarf
Útsýnar, þá ætti fólk ekki kost á
að fara erlendis í eins ríkum
mæli og raun ber vitni,“ sagði
Ingólfur Guðbrandsson, for-
stjóri ferðaskrifstofunnar Út-
sýnar á fundi með blaðamönnum
en Útsýn verður 25 ára á þessu
ári og verður þess minnst á
fjölbreytilegan hátt.
Á síðasta ári fóru um 8 þúsund
farþegar erlendis á vegum Útsýn-
ar. „Þjóðfélaginu í heild sparast
milljarðar króna vegna hag-
stæðra viðskiptakjara erlendis
því ef ekki kæmu til ferðaskrif-
stofurnar, sem hafa náð hagstæð-
um samningum, þá væri Islend-
ingum nánast ókleift að ferðast
erlendis. Farþegi með Útsýn
sparar sér 2—3 krónur fyrir
hverja krónu sem greidd er til
okkar vegna hagstæðra við-
skiptakjara sem við höfum náð
vegna rótgróinnar og traustrar
starfsemi," sagði Ingólfur enn-
fremur.
Hér fer á eftir fréttatilkynning
Útsýnar (millifyrirsagnir Mbl.)
Útsýn — stærsta
ferðaskrifstofan
Um þessar mundir eru 25 ár
liðin frá stofnun Útsýnar, sem
smám saman hefur orðið stærsta
ferðaskrifstofa landsins með um-
fangsmikla þjónustu fyrir hópa
og einstaklinga. Á síðasta sumri
flutti Útsýn nærri 80% allra
farþega frá íslandi í sólarlanda-
ferðum. Áætlun Útsýnar um hóp-
ferðir sumarið 1980 er nýkomin
út, fjölbreytt og glæsileg. Útsýn
býður ferðir í 3 heimsálfum.
Almenn farseðlasala og þjón-
usta við einstaklinga er einnig
sívaxandi grein í starfsemi Út-
sýnar, enda hefur verið lögð
áherzla á, að hafa á að skipa
færasta starfsfólki í þessari
vandasömu þjónustugrein. Þó
virðast allmargir ekki gera sér
grein fyrir þvi enn, að Útsýn
selur alla farseðla í áætlunar-
ferðum flugfélaga um allan heim
á lægsta fáanlegu verði.
Útsýn heldur upp á 25 ára
afmæli sitt með ýmsu móti, t.d.
ferðakynningum og skemmtunum
tvisvar í mánuði á Hótel Sögu við
mikla aðsókn og vinsældir, en
aðal afmælishátíðin mun fara
fram 13. apríl n.k.
Jón Guðnason
ráðinn til Útsýnar
Á sl. ári var framboð ferða á
íslenzkum markaði alit of mikið
og nokkuð um svonefnd tilboðs-
verð, þar sem ferðir voru boðnar
undir kostnaðarverði. Nú hefur
dregið verulega úr framboðinu og
munu allar ferðaskrifstofurnar
stefna að því að fullnýta sæta-
magn sitt. Hagsmunir neytand-
ans eru fólgnir í því, að njóta
fyrirgreiðslu trausts, vel rekins
fyrirtækis og notfæra sér þann
sparnað og hagræði, sem ferða-
skrifstofan lætur honum í té með
hagstæðum magnsamningum. Til
þess að slíkir samningar náist og
jafnframt nauðsynleg hagræðing
í rekstri, þurfa fyrirtæki að ná
vissri stærð. Því er það takmark
Útsýnar að halda ekki aðeins hlut
sínum á íslenzkum ferðamarkaði
heldur efla hann og stuðla þar
með að enn betri árangri í að
veita fullkomnustu þjónustu með
beztu kjörum. í því skyni m.a.
hefur Útsýn ráðið Jón Guðnason,
sem starfaði á annan áratug hjá
Sunnu sem sölufulltrúa og mun
hann leggja áherzlu á, að fá
tækifæri til að veita sínum fyrr-
verandi viðskiptavinum bezta
fyrirgreiðslu og halda þannig
áfram tengslum við þá, sem hann
hefur veitt þjónustu árum saman.
„Klúbbur 25“
stofnaður
í tilefni afmælisins mun Útsýn
leggja sérstaka áherzlu á, að
greiða fyrir ferðalögum ungs
fólks. í því tilefni er í undirbún-
ingi stofnun nýs ferðaklúbbs Út-
sýnar, sem nefnist „Klúbbur 25“,
og er ætlaður fólki á aldrinum
16—25 ára, sem vill kynnast
heiminum, skemmta sér, fræðast
og ferðast á menningarlegan
hátt. Auk ákveðinna Útsýnar-
ferða, þar sem meðlimir klúbbs-
ins fá 25 þúsund króna afslátt,
mun klúbburinn hafa forgöngu
um námsferðir og útvegun skóla-
vistar við valda sumarskóla er-
lendis og einnig gangast fyrir
skemmtunum og ferðakynningum
með listrænu ívafi, þar sem ungt
fólk kemur fram.
Fyrsta skemmtunin af þessu
tagi verður næsta Útsýnarkvöld á
Hótel Sögu 30. þ.m., sem haldið
verður í nafni „Klúbbs 25“.
Costa del Sol
vinsælastur
íslendinga í sumarleyfum er enn
Costa del Sol. Um 200 manns fara
þangað á vegum Útsýnar um
páskana, og er ferðin uppseld
með leiguflugvélinni, en sumir
farþeganna fara í áætlunarflugi,
þótt dýrara sé. Vorferðirnar 13.
apríl og 8. maí eru þær ódýrustu.
Þá geta farþegar dvalist í 26 daga
í Torremolinos fyrir sama verð og
í 2ja vikna ferð í sumar og er
verðið frá 269.600 krónum og 3ja
vikna ferð 8. maí fæst á sama
verði.
En Ítalíuferðir Útsýnar fylgja
fast eftir að vinsældum, enda ber
Lignano „Gullna ströndin" langt
af öðrum baðstöðum við Adríahaf
hvað fegurð, fjölbreytni og að-
stöðu farþeganna snertir með
nýtízku gististaði alveg við
ströndina og ótal skemmtilega
ferðamöguleika í nágrenninu.
Meðaltalsnýting í Ítalíuferðum
Útsýnar í fyrra var 98,5 af
hundraði. Það er til aukins hag-
ræðis fyrir farþega Útsýnar til
Italíu og Júgóslavíu að nú verður
lent á flugvellinum við Trieste,
sem styttir mjög leiðina á gisti-
stað, aðeins 40 mínútur til Lign-
ano og klukkustund til Portoroz, í
stað 3—4 klst. ferðar frá Feneyj-
um. Dagflug verður í öllu leigu-
flugi Útsýnar í sumar, og ferðast
nú einungis Útsýnarfarþegar með
vélunum, en eins og kunnugt er
flutti Útsýn í fyrra bæði sólar-
landafarþega Sunnu og Sam-
vinnuferða/Landsýnar.
Júgóslavíuferðir Útsýnar eiga
líka miklum vinsældum að fagna
vegna frábærrar aðstöðu á bezta
gististaðnum í Portoroz, Grand
Hotel Metropol og hagstæðs
verðs, en þar er hálft eða fullt
fæði innifalið í verðinu. Júgó-
slavía er líka sérkennilegt land
með fagurt landslag og fjölbreytt
litríkt þjóðlíf og alúðlegt viðmót
íbúanna vantar ekki. Fararstjór-
ar Útsýnar hafa hér sem annars
staðar unnið sér hylli fyrir vel
unnin störf. Ferðir til Ítalíu og
Júgóslavíu hefjast í lok maí og
verða vikulega, þegar kemur
fram á sumarið og til Costa del
Sol verða þrjár ferðir í mánuði.
Mikið hefur borizt af pöntunum
upp á síðkastið, og eru sumir
gististaðir nú þegar upppantaðir í
mörgum ferðum.
Útsýn hefur einkaumboð á
Islandi fyrir stærsta skipuleggj-
anda hópferða í Evrópu, Tjære-
borg, og efnir í samvinnu við þá
til Rínarlandaferða og einnig
ferðar um Vestur- og Mið-
Evrópu, sem nefnist „Sex landa
sýn“, þar sem m.a. er dvalizt í
París og Nice. Ekki verður haldið
uppi leiguflugi til Grikklands í
sumar, en þó boðið upp á ferðir til
eyjarinnar Rhodos, hinnar vin-
sælustu af grísku eyjunum.
Boðið upp á
ferðir til Kenya
Nú býður Útsýn einnig ferðir
til Afríkuríkisins Kenya í sam-
vinnu við British Airways og
Sovereign Holidays í London,
sem Útsýn hefur einnig fengið
umboð fyrir hér á landi. Nýlega
tók Útsýn upp samstarf við Haf-
skip og F.Í.B. um ódýra flutninga
á farþegum og bílum til Kaup-
mannahafnar, sem mælzt hefur
vel fyrir.
Stærsta nýlundan
eru Flórídaferðir
Stærsta nýlundan í áætlun
Útsýnar í ár eru þó Floridaferðir,
sem nú eru kynntar á umfangs-
meiri hátt en áður með úrvali
gististaða bæði í St. Petersburg
og Miami Beach. Útsýn verður
með starfsfólk og þjónustu fyrir
viðskiptavini sína á báðum þess-
um stöðum og vikulegar brottfar-
ir frá 3. maí og fram eftir hausti.
Fjölsóttasti áfangastaður
Mbl. mynd: Ól.K.M.
Örn Steinsen, skrifstofustjóri, Kristin Aðalsteinsdóttir, deildarstjóri hópferða, og Ingólfur
Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar, kynntu ferðaúætlun Útsýnar í tilefni 25 úra afmælis Útsýnar.
Pétur Sigurðsson, formaður ASV:
Krafan um hækkun skipta
prósentu 1V2 % en ekki 3%
„FORMAÐUR Útvegs-
mannafélags Vestfjarða ber í
Morgunblaðinu til baka, það,
sem ég sagði við blaðið í
fyrradag, að Kristján Ragn-
arsson hafi sagt, að ekki
skipti máli, hvort verkfalli
yrði aflétt eða ekki, útvegs-
menn myndu ekki semja.
Segist formaðurinn sjálfur
hafa sagt þetta,“ sagði Pétur
Sigurðsson, formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða í
samtali við Morgunblaðið í
gær. „Þótt Guðmundur hafi
sagt þetta, þá veit ég ekki
hvort hann hafi haft leyfi til
þess frá Kristjáni, en Krist-
ján talaði fyrir þeirra hönd
allan tímann, nema þetta
eina innskot og lýsti hann
þessu þannig yfir, eins og ég
skýrði frá.“
„Þar fyrir utan,“ sagði Pét-
ur, „þá sagði Guðmundur
Guðmundsson aftur í útvarpi,
gegn betri vitund, að krafan
sé enn þriggja prósentustiga
hækkun. Það er rangt, því að
strax á fyrsta fundinum lýst-
um við því yfir, að þessi krafa
væri helmingi lægri, því að
hún væri miðuð við aðra tölu
í olíusjóðnum. Hún er ekki
nema 1V2 %. Þá vil ég gjarnan
leggja fram þá spurningu til
Kristjáns, vegna þess sem
sagt var í sjónvarpinu í gær
um þessar aflatölur. Hvað er
það í raun, sem sjómenn
mega hafa mest í tekjur? Hve
há er sú tala á mánuði? Þá
væri og gott að hann svaraði
því, hvað væri það hæsta, sem
útgerðin ætti að fá. Myndu
sjómenn þá vilja leggja jafnt
af mörkum og útgerðin af
þessum umframtekjum til
annarra stétta, sem minna
hafa.“
Pétur sagði, að í gær hafi
verið haldinn fundur með
þeim sjómönnum, sem verið
hefðu í landi af þremur skip-
um. Þar kom fram, að menn
eru fúsir til þess að falla frá
öllum kröfum, ef Kristján
Ragnarsson vildi aðeins
tryggja þær tekjur, sem hann
tíundaði, út allt árið. Voru
menn sammála um að bjóða
það til lausnar deilunni.
Leiðrétting
í SAMTALI Mbl. við Kristján
Ragnarsson formann L.Í.Ú.,
sem birtist í miðopnu blaðs-
ins í gær, féllu niður setn-
ingahlutar í vinnslu fréttar-
innar. í samtalinu við Mbl.
sagði Kristján, að meðaltekj-
ur háseta á fjórum ísafjarð-
artogurum hefðu verið 2.508
þúsund krónur á mánuði frá
áramótum. Að tekjum yfir-
manna meðtöldum hefðu
meðaltekjurnar verið 3.043
þúsund krónur á mánuði, en
netamenn fá 10% auka,
bátsmenn 20%, matsveinar,
annar vélstjóri og annar
stýrimaður 25%, fyrsti vél-
stjóri og fyrsti stýrimaður
50% og skipstjórinn 100%.
Mbl. biðst afsökunar á
þessum mistökum.