Morgunblaðið - 20.03.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980
23
Ursula Andress
Fæðingum f jölgar
hjá fertugum
ÞÝZKA blaðið Welt am Sonntag
skýrir frá því að sífellt fleiri konur á
fimmtugsaldri ali nú börn. Segir
blaðið að ein kunnasta verðandi
móðir á þessum aldri sé leikkonan
Ursula Andress, en hún er 43 ára.
Hún á von á sínu fyrsta barni í maí,
og faðirinn er 29 ára bandarískur
leikari Herry Hamlin að nafni.
Meðal fertugra mæðra á síðasta
ári var leikkonan Claudia Cardinale
sem er 41 árs.
Talið er að líkurnar á því að
eignast líkamlega eða andlega
skaddað barn séu 1/2000 hjá tvítug-
um mæðrum, en 1/50 hjá 45 ára
konum. Engu að síður fjölgar jafnt
og þétt þeim mæðrum, sem komnar
eru yfir fertugt. Þar á móti kemur að
framfarir í læknavísindum hafa leitt
til þess að strax á þriðja mánuði
meðgöngutímans má ganga úr
skugga um hvort fóstrið er heilbrigt,
og sé svo ekki er unnt að grípa til
fóstureyðingar.
Khomeini:
Gíslamálið ekki for-
gangsmál þingsins
Teheran, 19. marz — AP.
SENDIHERRA írans i Kuwait,
Ali Shams Ardakani, sagði i dag
eftir fund með ayatollah Khom-
eini, trúarleiðtoga írana, að
gíslarnir í bandaríska sendiráð-
inu í Teheran yrðu ekki lausir úr
haldi fyrir 15. maí. Hann hafði
eftir Khomeini, að örlög gislanna
yrðu ekki forgangsverkefni hins
nýkjörna þings i lran.
Bandaríkin ásökuðu írani um
ómannúðlega meðferð gíslanna í
sendiráðinu. Þessa ásökun báru
Bandaríkjamenn fram fyrir Al:
þjóðadómstólnum í Hag í dag. I
einu tilfelli, að sögn Bandaríkja-
manna beindi „námsmaður" byssu
að höfði konu og tók hvað eftir
annað í gikkinn — lék rússneska
rúllettu. Málflutningur fyrir
dómstólnum hófst í gær. Gíslarnir
hafa nú verið í haldi í 137 daga og
að sögn Ardakani, verða þeir að
minnsta kosti í 67 daga til viðbót-
ar í gíslingu. Sadegh Ghotbzadeh,
utanríkisráðherra írans, sagði í
dag, að byltingarráðið myndi
skipa fimm til sjö manna nefnd til
að rannsaka ásakanir um kosn-
ingamisferli í þingkosningunum í
byrjun mánaðarins.
Víetnamar ráðast á
flóttamannabúðir
Non Mark Moon, Thailandi,
19. marz — AP.
VÍETNAMSKIR hermenn gerðu
stórskotaliðsárás á flóttamanna-
búðir, sem stjórnað er af hvítum
Khmerum, við landamæri Thai-
lands og Kambódíu í dag. Að
minnsta kosti 9 manns féllu og
þúsundir flóttamanna flúðu
lengra inn í Thailand. Hvítir
Khmerar sögðu, að að minnsta
kosti 200 víetnamskir hermenn
hefðu ráðist á búðirnar og kveikt
Málaferlum í
Amsterdam frestað
Amsterdam, 19. marz — AP.
Hollenskur dómstóll samþykkti
í dag að fresta málaferlum vegna
kæru Korschnois á hendur Al-
þjóða skáksambandinu, FIDE, um
þrjá mánuði. Korschnoi vill, að
síðasta skák hans í einvíginu við
Anatoly Karpov verði dæmd ógild,
þar sem Vladimir Zhoukar, dá-
leiðslusérfræðingur, hafi haft
truflandi áhrif á hann. Korschnoi
heldur því fram, að ástæðan fyrir
tapinu i síðustu skákinni hafi
einmitt verið dáleiðsluáhrif
Zhoukars. Báðir málsaðilar fóru
fram á frestun.
Jafntefli Hiibners
og Adorjan
Bad Lauterberg, 19. marz AP.
Robert Húbner, V-Þýzkalandi,
og Andras Adorjan, Ungverja-
landi, sömdu um jafntefli eftir
aðeins 19 leiki í annarri ein-
vígisskákinni. Hubner hafði svart.
Fyrri skákinni lauk einnig með
jafntefli.
Ætla ekki að láta
að kröfum skæruliða
Bogota, 19. marz — AP.
Julio Cesar Turbay Ayala, for-
seti Kolombíu, sagði í dag, að
stjórnvöld myndu ekki láta að
kröfum skæruliða, þar sem slíkt
myndi stofna sendiráðsmönnum
víðs vegar um heim í hættu.
Forsetinn sagði, að ef stjórnvöld
létu úr haldi 28 fanga, þá myndu
hryðjuverk gegn diplómötum víðs
vegar um heim aukast um allan
helming.
í byggingum.
Rauði krossinn flutti að
minnsta kosti 15 særða menn til
Kahobúðanna, um 12 kílómetra
inn í Thailand. Flutningur mat-
væla stöðvaðist til Non Mark
Moon og ásamt þúsundum flótta-
manna fóru starfsmenn hjálpar-
stofnana til öruggari svæða. Stór-
skotahríðin kom í kjölfar átaka
víetnamskra hermanna og her-
manna Pol Pots, en þeir voru
sagðir um 3 kílómetra frá búðun-
um. í Non Mark Moon eru um 200
þúsund flóttamenn. Búðirnar eru
við landamærin en þau eru fremur
óljós. Hvítir Khmerar undir
stjórn van Sarens ráða þessu
svæði en þeir berjast bæði gegn
skæruliðum Pol Pots og Víetnöm-
um. Síðdegis í dag hættu bardagar
og flóttafólk fór að streyma aftur
til búðanna.
Veður
Akureyri 7 skýjaö
Amsterdam 4 heiðskírt
Aþena 16 skýjað
Barcelona 16 skýjað
Bertín 0 skýjað
BrUssel 10 skýjað
Chicago 10 heiðskýrt
Frankfurt 13 skýjað
Genf 3 heiöskírt
Helsinki -4 heiöskírt
Jerúsalem 13 skýjað
Jóhannesarborg 23 heiðskírt
Kaupmannahöfn 0 snjókoma
Las Palmas 19 skýjað
Lissabon 12 rigning
London 3 rigning
Los Angeles 19 heiðskírt
Madríd 14 rigning
Malaga 15 alskýjað
Mallorca 16 lóttskýjað
Miami 27 skýjað
Moskva -5 heiðskírt
New York 10 heiðskírt
Ósló -2 heiðskírt
París 13 skýjað
Reykjavík 4 skýjað
Rio De Janeiro 34 heiðskírt
Rómaborg 12 heiðskírt
Stokkhólmur -5 heiðskírt
Tel Aviv 16 rigning
Tókýó 6 skýjað
Vancouver 8 skýjað
Vínarborg 9 heiðskírt
Sovétríkin:
Eiturský drap
hundruð manna
ERLENT
Washington, 19. marz. AP.
TALSMAÐUR bandaríska
utanríkisráðuneytisins,
David Passage, skýrði frá
því í gær, að faraldur í
sovéskri borg á síðasta ári
„kunni að hafa stafað af
slysi vegna tilrauna í sýkla-
hernaði“. Þetta var í fyrsta
sinn sem utanríkisráðuneyt-
ið lét frá sér fara ummæli
um fregnir í vestrænum
blöðum undanfarið um stór-
fellt slys í Sovétríkjunum
vegna tilrauna Sovétmanna
í sýklahernaði.
Þetta gerðist
1956 — Frakkar viðurkenna
sjálfstæði Túnis.
1848 — Lúðvík I, konungur
Bæjaralands, leggur niður völd.
1815 — Napoleon Bonaparte
kemur til Fontainebleau og
„Hundrað dagarnir" hefjast.
1602 — Hollenzka Austur-
Indíufélagið stofnað.
1549 — Thomas Seymour, æðsti
maður enska flotans, tekinn af
lífi.
Afmæli. Ovid, rómverskt skáld
(43 f. Kr.—17 e.Kr.) - Henrik
Ibsen, norskur leikritahöfundur
(1828—1906) — Benjamino Gigli,
ítalskur óperusöngvari (1890—
1957).
Andlát. 1413 Hinrik IV Eng-
landskonungur — 1727 Isaac
Newton, vísindamaður — 1894
Fréttir hafa hermt, að hundruð
manna hafi beðið bana nærri
borginni Sverdlovsk í Uralfjöllum
í apríl á síðasta ári. Banvænt
eiturgas hafi komist út í and-
rúmsloftið eftir sprengingu. Einn-
ig hafa verið fréttir um svipað slys
í fyrra nærri Novosibrisk í Síberíu
en ekki eins alvarlegt.
David Passage sagði, að Banda-
ríkjamenn hefðu vakið máls á
þessu á fundum í Genf en þar fer
fram ráðstefna um 5 ára gamlan
sáttmála um bann við sýklahern-
aði. Passage neitaði að skýra
nánar frá slysinu.
20. marz
Lúðvík Kossuth, frelsisleiðtogi
— 1925 Curzon lávarður, stjórn-
málaleiðtogi — 1929 Ferdinand
Foch, hermaður — 1964 Berndan
Behan, leikritahöfundur.
Innlent. 1770 Landsnefndin
fyrri skipuð — 1813 Castenskiold
skipaður stiftamtmaður — 1815
Tilskipun um peningagildi —
1818 Bær ferst í snjóflóði í
Skutulsfirði — 1850 f. Jón Ól-
afsson — 1877 d. Páll stúdent
Pálsson — 1935 d. Jón Þorláks-
son ráðherra — 1907 „Kong
Trygve" ferst í ís út af Langa-
nesi.
Orð dagsins. Háskóli laðar fram
alla hæfileika og einnig hæfi-
leikaskort — Anton Chekov,
rússneskur rithöfundur (1860—
1904).
Prófkjörin í Bandaríkjunum:
Af drif arík úrslit í Illinois
Jimmy Carter og Ronald
Reagan halda sínu striki
Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Mbl. i Washington.
JIMMY CARTER og Ronald Reagan unnu stóra sigra í forkosningum
bandarisku stjórnmálaflokkanna i Illinois á þriðjudag. Mótherjar
þeirra, þeir Edward Kennedy, frambjóðandi demókrataflokksins og
John Anderson og George Bush, frambjóðendur repúblikanaflokksins.
fullyrtu þó allir, þegar úrslit voru kunn, að þeir myndu halda
kosningabaráttu sinni áfram. Allt bendir þó til þess, að ekkert nema
kraftaverk geti gert þeim kleift að hljóta forsetaútnefningu flokks
sins úr þessu.
Kjósendur í Ulinois velja fram-
bjóðanda og fulltrúa á landsþing
flokka sitt í hvoru lagi. Carter
hlaut 65% atkvæða í vinsælda-
kosningunni, en Kennedy aðeins ■
30%. Talningu fulltrúa á lands-
þingið er ekki lokið, en allt bendir
til að meirihluti þeirra verði
stuðningsmenn Carters. Það er
mikill ósigur fyrir Jane Byrne,
borgarstjóra Chicago, sem lýsti
yfir stuðningi við Kennedy
snemma í haust og lofaði honum
meirihluta fulltrúa frá Chicago og
um leið frá Illinois. Illinois sendir
179 fulltrúa á landsþing demó-
krata.
Stuðningsmenn Carters fögnuðu
úrslitunum. Kennedy og stuðn-
ingsmenn hans voru ekki eins
kampakátir. Kennedy sagði, að
ekki mætti túlka sigur Carters,
sem stuðningsyfirlýsingu kjós-
enda við stefnu hans í efnahags-
og utanríkismálum. Hann sagði,
að forkosningarnar í New York í
næstu viku yrðu prófsteinn á
ánægju kjósenda með stefnu Cart-
ers. Hann gaf enga skýringu á því,
hvers vegna New York frekar en
Illinois er prófsteinn á hana.
Kennedy sagðist þurfa að standa
sig vel í New York til að geta
hlotið útnefningu flokksins, en að
hann hygðist halda baráttunni
áfram, þótt hann tapi í New York.
Reagan hlaut 49% atkvæða í
vinsældakosningu repúblikana, en
Anderson 36% atkvæða og Bush
aðeins 11%. 92 fulltrúar voru
kosnir á landsþing flokksins og er
meirihluti þeirra talinn styðja
Reagan. Skoðanakannanir sýndu
viku fyrir forkosningarnar, að
Anderson hefði meira fylgi í
Illinois en Reagan. Starfsmenn
hans segja, að hann hafi tapað því
niður, þegar mótherjar hans, þeir
Reagan, Bush og Phil Crane,
lögðust allir á eitt í kappræðum sl.
fimmtudag og sögðu að frjálslynd-
ar skoðanir hans ættu miklu
frekar heima í flokki demókrata
en repúblikana. Anderson sagði á
sama fundi, að hann gæti • ekki
stutt Reagan, sem forsetafram-
bjóðanda repúblikanaflokksins.
Þegar úrslit voru kunn í Illinois,
sögðust Anderson og Bush báðir
ætla að halda baráttu sinni áfram.
Anderson á ekki mikla möguleika
fyrst að hann vannn ekki sigur í
heimaríki sínu, Illinois, þar sem
að forkosningar repúblikana voru
opnar öllum. Bush leggur áherzlu
á að vinna kosningarnar í Conn-
ecticut, sem er heimaríki hans,
næsta þriðjudag. Honum hefur
gengið svo illa að undanförnu, að
hann á á hættu að missa styrk úr
kosningasjóði ríkisins. Hann gerir
það um leið og hann hlýtur minna
en 10% atkvæða í einhverri kosn-
ingu.
Reagan og Carter virðast örugg-
ir um útnefningu flokka sinna úr
þessu. Reagan hefur þegar 25—
27% þeirra fulltrúa, sem á þarf að
halda til að hljóta útnefningu
repúblikana og Carter hefur 36%
nauðsynlegra fulltrúa á þingi
demókrata. 30% fulltrúa á lands-
þing flokkanna í sumar hafa verið
kjörnir. — ab