Morgunblaðið - 20.03.1980, Page 41
fcflk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980
41
+ Þegar þetta er skrifað situr enn allt við hið sama í máli sendiherranna, sem skæruliðahópurinn
M-19 í Colombia i S-Ameriku handtók á dögunum og hefur síðan haft i haldi sem gisla. — Þessari
fréttamynd var dreift um daginn á vegum AP-fréttastofunnar. Hún er af einum sendiherranum,
Ricardo Galan, sendiherra Mexico. — Skæruliðinn, kona, er með grimu fyrir andlitinu merkt
skæruliðahópnum M-19. Hún heilsar með hinu gamla vaffsigurtákni Breta, úr síðustu heimsstyrjöld.
+ Þessi virðulegi aldraði
maður, var eitt sinn einn
helzti maðurinn í heimsfrétt-
unum, ekki aðeins um
skamma hríð heldur í ára-
tugi. — Þetta er einn af
nánustu samstarfsmönnum
Stalíns, sjálfur Vyacheslar
Mikhailovich Molotov. —
Hann var utanríkisráðherra
Sovétríkjanna á árunum
1939—49. — Hann tók t.d.
þátt i samningagerð ekki
árásarsamningsins milli
Stalín og Hitlers. — Og hann
tók þátt í þjóðarleiðtogafund-
inum í Yalta og Potsdam er
sigurvegararnir í heimsstyrj-
öldinni héldu fundi — Nú er
Molotov orðinn háaldraður
maður. Hann varð níræður 9.
marz sl. Hann býr í Moskvu
og gárungarnir höfðu verið
að velta því fyrir sér hvort
hann hefði þá gefið „Molotov-
kokteir (heimatilbúnar
handsprengjur Finna í
finnsk-rússneska stríðinu
fengu þetta nafn). — Það var
Khrutsjov sem tók hann úr
umferð, gerði hann
áhrifalausan með öllu árið
1964. Á stríðsárunum, mun
Molotov hafa komið hingað
til Reykjavíkur. — Væri Mbl.
þökk í að einhver lesandi
blaðsins gæti staðfest þetta.
En ártalið 1941 hefur verið
nefnt í sambandi við komu
hans. Hann er fæddur í Len-
ingrad.
+ Þessi brezka húsmóðir, sem liggur hér á bakinu og verið er að
brjóta steinhellu á hefur vakið athygli fyrir þetta uppátæki. —
Þetta fellur innan iþróttarammans. — Heitir iþróttin Kung-Fo.
Þessi iþrótt er í því fólgin, að iþróttakonan, Pat Keane, 22ja ára
leggst á bakið, en síðan er lögð gangstéttarhella, sem vegur
rúmlega 50 kg á maga konunnar. — Síðan kemur maður með
sleggju, og vegur sleggjuhausinn 7,5 kg. Með sleggjunni er svo
hellan brotin á maga konunnar. — Hún segist ekki verða þess vör
er sleggjan brýtur helluna, — hún einbeiti huganum að
magavöðvunum. — Pat Keane segist hafa byrjað að þjálfa sig í
þessu vegna þess að hún hafi verið heldur heilsuveil. Eftir að hún
byrjaði að iðka þessa óvenjulegu iþrótt, hafi henni ekki orðið
misdægurt. — Nú er upp undir ár frá því hún byrjaði. —
íþróttakonan er þriggja barna móðir.
2. HÆÐ LAUGAVEGI 66
Ennþá er hægt að gera stórkostleg kaup:
Herraföt
frá .......... 39.900
Stakir herrauilar-
jakkar frá ... 23.900
Stakir Blazer jakkar
frá .......... 17.900
Skyrtur
frá ........... 3.900
Buxur allskonar
frá ........... 8.900
Smekkbuxur
frá ........... 8.900
Dömukápur
frá ........... 9.900
Pils frá 'As.. 4.900
Kjólar
frá ........... 7.900
Úlpur
frá .......... 14.900
Blússur
frá ........... 3.900
Vesti
frá ........... 3.900
og margt fleira.
ALLT A AÐ SELJAST
KARNABÆR
PRÚTTMARKAÐUR
PRUTTMARKAÐUR
2. hæð. Laugavegi 66
Síöasti fundur
SUS og Varöar um
húsnæöismál voröur haldinn
í Valhöll í kvöld og
hefst kl. 20.30.
Frummælendur:
Ellert B. Schram, ritstjóri.
Gunnar Björnsson, form. Meistarasambands
byggingarmanna.
Ellert B. Schram
Gunnar Björnsson
Gunnar Helgason
Fundarstjóri:
Gunnar Helgason, formaöur Húsnæðismála-
stjórnar.
VALHÖLL — KL. 20.30
— SUS — VÖRÐUR