Morgunblaðið - 20.03.1980, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980
45
Breiðholtsbúa vegna iðnaðarsvæð-
anna á Ártúnshöfða og í Hálsa-
hverfi, en það eru þó vafalaust
margir í Árbæjarhverfi sem hafa
erindi að reka í Breiðholt. En það
er með ólíkindum hvað mótmæl-
endur geta fengið fólk til að skrifa
undir, hvort sem það eru mótmæli
við bensínstöðvum, verslunum,
barnaheimilum eða jafnvel
brennivínsbúðum og síðan bagsar
þetta sama fólk langa vegu eftir
þessari þjónustu. Fólk eða bílar
spyr Þórir Einarsson, og margir
hafa spurt á undan honum, en
góðu menn, gáið inn í bílana, þar
situr nefnilega fólk, og kannske
áhlaupsveðrið sem gerði sama
daginn og grein Þóris britist í Mbl.
hafi barið það inn í höfuðið á
einhverjum að bíll er nauðsyn í
dreifðri borg.
Leó S. Ágústsson
Flúðaseli 63, R.
• Sjálfsagður
þegnskapur
Mér finnst ég aldrei hafa
heyrt eins oft kallað í landsbúa og
þeir áminntir um að greiða skuld-
ir sínar fyrir ýmsa þjónustu. Það
er mjög slæmt, ef þjóðin kann ekki
að meta t.d. rafmagn, þennan
undursamlega kraft, sem allar
þjóðir þrá að eiga í ríkum mæli.
Þá er sjálfsagður þegnskapur að
greiða skatta, þó að ýmsum þyki
þeir kannski háir, en þetta á nú að
heita þjóðfélag.
Við erum svo lánsöm að eiga
einhverja beztu náttúruauðlegð
sem fyrirfinnst, þ.e. heita vatnið,
sem landið geymir í skauti sér.
Þetta er eitthvert umfangsmesta
mál, sem þjóðirnar ræða nú á
tímum, þ.e. orkumálin, lönd
skjálfa undir því viðfangsefni.
Sem betur fer höfum við yfir-
leitt næga atvinnu, bæði til lands
og sjávar. Þess vegna finnst mér
að Islendingar ættu að greiða með
glöðu geði þá orku sem þeir nota
og þakka fyrir gæði hennar í
lífsbaráttunni.
Gestur.
Þessir hringdu . . .
• Enn um
málgefið fólk
Kona hringdi:
Ég vil taka undir orð þeirra
sem tjáð hafa sig um málgefið fólk
á áhorfendabekkjum. Mér finnst
oft skorta á að fólk taki tillit til
samborgaranna, sérstaklega í
leikhúsum. Sumir eru haldnir
þeirri áráttu að koma alltof seint,
hvort sem er á fundi, í leikhús eða
kvikmyndahús, þannig að heil röð
fólks þarf að standa upp fyrir
þeim með tilheyrandi hávaða.
Síðan eru það þeir, sem alltaf
þurfa að ræða efni leikritsins við
sessunautinn, eins og nægur tími
sé ekki til þess í lokin, eða hléinu.
Sumir finna alltaf þörf hjá sér til
að hlæja þegar tilefni er fremur''
til að gráta.
I lokin vil ég beina einni ábend-
ingu til þeirra, sem reka leikhús,
kvikmyndahús og aðra staði sem
fólk kemur saman á til að njóta
menningar. Er ekki hægt að sjá til
þess, að sælgæti, sem afgreitt er á
viðkomandi stöðum, sé í umbúð-
um, sem ekki skrjáfar í, þar á ég
við konfekt, brjóstsykur o.þ.h.
Skrjáf í konfektpoka, sem opnaður
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á fyrsta Ólympíumóti kvenna í
bréfskák, sem lauk í fyrra, kom
þessi staða upp í skák þeirra
Jokhelsons og Belavenets, sem
hafði svart og hristi nú fram úr
erminni stórskemmtilega fléttu:
26 ... H8xe6! 26. dxe6 Df3!! og
hvítur gafst upp, því að eftir 27.
gxf3 Hg5+ 28. Khl Bxf3 er hann
mát.
er í miðju þýðingarmiklu atriði,
hljómar oft eins og verið sé að rífa
niður léreftsdúka í akkorði. Á
þessari „plastöld" okkar ætti að
vera hægt að kaupa inn sælgæti
frá aðilum, sem kynnst hafa
þessari nýju tækni, þ.e. mjúku
plasti, sem ekki skrjáfar í.
HÖGNI HREKKVlSI
ÓANHaPISíA '( v/vsctóefX)M ...'
LITAVER — LITAVER
LITAVER — LITAVER —
Málning og
málningarvörur
Afslattur
Kaupir þú fyrir: Kaupir þú umfram
30—50 þús. 50 þús.
veitum við 10% veitum við 15%
afslátt. afslátt.
Þetta er málníngarafsláttur {Litaveri íyrir aila þá. sem eru
að byggja, breyta eða bseta.
Lfttu við í Litaveri,
því það hefur ávallt
borgað *ig.
Gr«n*A$v#gi, Mr«yfö*húainu. Sími 82444.
AÐALFUNDUR
Félags íslenska prentiðnaðarins
veröur haldinn í félagsheimili FÍP, Háaleitisbraut
58—60, föstudaginn 21. mars 1980, kl. 17.00
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál. Stjórnin
-------1
Kökur yðar og brauð verða bragðbetri
og íallegri ef bezta tegund af
lyftidufti er notuð.
Rafstöðvar
á mjög hagstæöu verði
Getum útvegaö 20, 50 og 75 KVA rafstöðvar 220/380
V meö stuttum fyrirvara. Þessar vélar fengu
gullverölaun á kaupstefnunni í Leipzig. Uppl. á
skrifstofunni. XCO HF.
XCOhf.
INN- OG OTFLUTNINGUR
Vesturgötu 53b. Símar 27979 — 27999.