Morgunblaðið - 19.04.1980, Page 1

Morgunblaðið - 19.04.1980, Page 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 89. tbl. 67. árg. LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Bandaríkin: Yextir lækka New York, 18. apríl. AP. NOKKRIR stærstu bankar í Bandaríkjunum lækkuðu í dag viðskiptavexti sína um 14 — lk% og eru vextir til beztu viðskipta- vina bankanna nú ýmist 19,5% eða 19,75%. Vextir voru áður 20% og höfðu aldrei áður verið jafn háir í Bandaríkjunum. Talið er að efnahagssamdráttur og minnk- andi eftirspurn eftir lánsfé hafi valdið vaxtalækkuninni og er búizt við frekari vaxtalækkun vestan hafs á næstu dögum. San José, Costa Rica, 18. apríl. AP KÚBANSKIR flóttamenn. sem komu til Costa Rica í dag, eftir langa og ömurlcga dvöl i sendi- ráði Perú í Havana, sögðu í dag, að versnandi afkoma á Kúbu og frásagnir ættingja í Bandarikjun- um leiddu til sivaxandi óánægju meðal almennings á Kúbu. „Ættingar okkar, sem fengu að koma í heimsókn frá Bandaríkjun- um, fluttu okkur ný viðhorf og opnuðu augu fjölda fólks fyrir eymdinni hér,“ sagði Dario Cura, einn þeirra þúsunda flóttamanna, sem flúði í sendiráð Perú í Havana. „Lífið á Kúbu undir stjórn Kastrós er verra en í helvíti Dantes," sagði Carlos Martinez Baldez, 38 ára málari, í samtali við fréttamenn í Costa Rica. Tvær þotur komu til Costa Rica með flóttamenn úr sendiráði Perú í Havana í dag, en flutningarnir voru stöðvaðir, þegar síðari vélin var lent. Að sögn yfirvalda í Costa Rica voru þeir stöðvaðir að fyrir- mælum Kúbustjórnar, sem hefur ákveðið að flóttamennirnir skuli fluttir annað en til Costa Rica. Þangað hafa nú verið fluttir tæp- lega 700 flóttamenn, en um 10 þúsund eru enn eftir í Havana. Að sögn embættismanna í Costa Rica hafa Kúbumenn átt í miklum erfiðleikum með að útbúa brottfar- arskjöl fyrir alla þá flóttamenn sem heimilað hefur verið að flytj- ast úr landi og þeir flóttamenn, sem fengið hafa að fara á flugvöll- inn hafa orðið fyrir aðkasti frá fólki, sem safnast hefur fyrir þar. Bandaríkin, Spánn og mörg ríki í Suður-Ameríku hafa fallizt á að taka á móti flóttamönnum á Kúbu eftir að þeim hefur verið komið þaðan. FLÚIÐ FRÁ HAVANA — Konu fylgt úr sendiráði Perú í Havana áleiðis til flugvallarins, þaðan sem hún var í dag flutt ásamt hundruðum annarra flóttamanna. Fólk, sem safnast hefur saman fyrir utan sendiráðið, hreytir ókvæðisorðum að flóttakonunni. (Símamynda AP) Zimbabwe: Óeirðir á fyrsta degi sjálfstæðis Salisbury. 18. apríl. AP. NOKKRAR óeirðir voru í Zimb- abwe i nótt og í dag í kjölfar hátíðahaldanna vegna nýfengis sjálfstæðis landsins. Tveimur handsprengjum var varpað á samkomum blökkumanna með þeim afleiðingum að tveir menn biðu bana og 30 særðust. Hópur blökkumanna réðst að styttu Cec- ils Rhodes í Salisbury með grjót- kasti og fangar í fangelsi í borginni yfirbuguðu verði og brutust út. Flestir þeirra skiluðu sér þó aftur, þegar vopnað herlið var sent á vettvang. Norska íþróttasambandið: Stjómin gegn þátttöku á OL í Moskvu Itodö. 18. april. AP. STJÓRN norska íþróttasambands- ins ákvað í dag að mæla með því við landsþing sambandsins, að það bannaði þátttöku Norðmanna í Ól- ympiuleikunum í Moskvu i sumar. Átta stjórnarmenn greiddu þessu atkvæði, en þrir voru á móti. Atkvæði verða greidd um málið á þingi íþróttasambandsins, sem lýkur á sunnudag, og er líklegt talið, að þingið fallist á tilmæli stjórnarinn- ar. Norska ólympíunefndin ákvað 26. marz með 19 atkvæðum gegn 13 að senda lið á leikana í Moskvu, en þing íþróttasambandsins getur breytt þeirri ákvörðun. A þingi íþróttasambandsins eiga sæti fulltrúar allra sérsambanda, héraðssambanda og stjórnarmenn- irnir ellefu. Alls situr 131 fulltrúi á þinginu. Ríkisstjórn norska verkamanna- flokksins hefur ákveðið að hafa engin afskipti af ákvörðun íþrótta- samtakanna, en Nordli forsætisráð- herra kom til Bodö í dag og er búizt við því að hann ávarpi þingið um helgina. Ríkisstjórnir Frakklands, Bandaríkjanna, Italíu og Vestur- Þýzkalands tóku í dag upp stjórn- málasamband við Zimbabwe og ríkið verður á næstúnni 154. aðild- arríki Sameinuðu þjóðanna og 43. ríkið í brezka samveldinu. Stórtækur demanta- þjófur í Tel Aviv STÆRSTA rán í sögu Ísraelsríkis var framið í Tel Aviv i dag. þegar maður nokkur hafði á brott með sér demanta að verðmæti um 4,5 milljónir dollara (tæpir 2 milljarðar ísl. króna) frá demantamarkaðnum í borginni. Lögreglan í borginni handtók síðar í dag þritugan mann, sem grunaður er um að hafa framið ránið, en gimstein- arnir hafa ekki fundizt enn. Laust fyrir hádegi í dag kom maður nokkur á skrifstofu dem- antakaupmanns á 13. hæð í demantamarkaðnum í borginni og hafði með sér byssu og handsprengju. Batt maðurinn starfsmennina þrjá á skrifstof- unni og hvarf síðan á braut með mörg umslög sem í voru demant- ar. Ránið uppgötfáðist stuttu síðar og var byggingunni þegar lokað og leit hafin í húsinu og annars staðar í borginni. Maður- inn, sem handtekinn var síðar í dag hefur neitað sakargiftum. Demantar eru mjög stór þátt- ur í útflutningi Israelsmanna og fer fram óhemjumikil verzlun með þá á degi hverjum á dem- antamarkaðnum í Tel Aviv. Mik- il öryggisgæzla er í markaðshús- inu og hefur ekki áður verið framið þar rán. SJÁLFSTÆÐISLOGINN TENDRAÐUR - Mugabe forsætisráð- herra Zimbabwe kveikir hér eld, sem loga mun um alla framtíð, til heiðurs meirihlutastjórn blökkumanna í Zimbabwe. (Símamynd AP) Líbanon: Gæzluliðar SÞ drepnir Boirut. 18. apríl. — AP. ÍSRAELSKAR hersveitir réð- ust í dag á bækistöðvar Pal- estínuskæruliða í Líbanon í hefndarskyni vegna árásar skæruliða á samyrkjubú í ísrael í gær. Tuttugu og einn maður beið bana í árásinni. Kristnir hægri menn, sem njóta stuðnings ísraela, rændu í dag fimm mönnum úr gæzlu- liði Sameinuðu þjóðanna og tveimur fréttamönnum AP- fréttastofunnar. Fréttamennirnir og þrír her- mannanna úr liði SÞ voru látnir lausir skömmu síðar. Ættingjar tveggja ungra manna úr herliði kristinna hægri manna, sem vegnir voru í gær, rændu í dag tveimur Irum úr gæzluliði SÞ og drápu þá, að því er ísraelskar heimildir hermdu. Talsmaður SÞ í Líbanon sagði aðeins að mann- anna væri saknað. Nokkur átök hafa orðið undan- farnar vikur milli gæzluliða SÞ og kristinna hægri manna og hafa þau færzt í aukana síðustu daga. Danir styðja r§fsi- aðgerðir gegn Iran Kaupmannahöfn. Washington, Tcheran. 18. april — AP. ANKER Jörgensen forsætisráðherra Dana tilkynnti í dag, að stjórn sín væri rciðubúin að taka þátt í viðskiptalegum refsiaðgerðum gegn íran. Jörgensen sagði fréttamönnum að Danir myndu taka þátt i sameiginlegum aðgerðum EBE-landanna, sem væntanlega yrðu ákveðnar í smáatriðum í Luxemborg nk. mánudag. Leiðtogar írans lýstu því yfir í dag, að landið mundi standa af sér allan efnahagslegan þrýsting og að ekki stæði til að semja við Bandaríkin um eitt eða neitt. Carter Bandaríkjaforseti ákvað í gærkvöldi að herða enn aðgerðir Bandaríkjanna gegn íran. Hann bannaði allan innflutning á írönskum vafningi, útilokaði öll fjármálatengsl við aðila í Iran og bannaði öllum Bandáríkja- „Lífið á Kúbu verra en í helvíti Dantes44 mönnum öðrum en blaðamönnum að ferðast til landsins. Carter hótaði jafnframt að grípa til hernaðarlegra aðgerða verði gíslarnir í sendiráði Bandaríkj- anna ekki látnir lausir. Portúgal hætti í dag öllum viðskiptum við Iran og stjórn landsins lýsti því yfir að þau yrðu ekki hafin að nýju fyrr en banda- rísku gíslarnir hefðu verið látnir lausir. Hins vegar var tilkynnt í Prag í dag að nýr viðskiptasamn- ingur Tékkóslóvakíu og Irans yrði undirritaður síðar á þessu ári. Móðir eins gíslanna í sendiráð- inu hélt í dag áleiðis til Teheran til að freista þess að fá aö hitta son sinn, þrátt fyrir bann Banda- ríkjastjórnar við ferðum Banda- ríkjamanna til írans. Ekki er vitað hvort hún og maður hennar fá að heimsækja gíslinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.