Morgunblaðið - 19.04.1980, Síða 11

Morgunblaðið - 19.04.1980, Síða 11
I MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980 11 ÁLMUR (Ulmus glabra) Álmur er auðþekktur á yddum og æðaberum, tenntum skakkegglaga blöðum, snörpum á éfra borði. Myndar stóra blaðfleti (blaðsamfellur). Börkur dökkgrár, rifnar og verður langrákóttur með aldrinum. Álmur þarf frjósaman fremur djúpan jarðveg því gráð- ugur er hann og sendir rætur sínar langt út. Get- ur orðið hið vöxtulegasta tré með gildan bol og mjög stórri laufkrónu. Þarf því að ætla honum mikið rúm í garðinum. Álmur þolir fremur vel storma og vel þolir hann töluverðan skugga. Blað- lýs sækja talsvert á hann, einkum tegund sem kölluð er álmlús. Hún sýgur safa og veldur því að blöðin Þorvaldur Thoroddsen ár- ið 1888 sunnan við íbúð- arhús sitt á Laufásvegi 5. Mun hann vera 9—10 m hár, þótt stofn sé marg- boginn. Þessi og fleiri álmar bera fræ í góðum árum. Stór hlynur stend- ur við hlið álmsins á Laufásvegi 5. Reynt hefur verið í seinni tíð að fá álmfræ frá stöðum þar sem vaxtarkjör eru svipuð og hér á landi. Skógrækt- in flutti inn álm frá Salt- dal í N-Noregi 1937 og 1939 og virðast þær hrísl- ur vaxa vel . í Múlakoti í Fljótshlíð er beinvaxin og fögur fertug álmhrísla 10 m há og er það góður vöxtur. Álmfræ geymist fremur illa og mun best að sá því strax haustið sem það Elsta álmtréð í Reykjavík stendur við Laufásveg 5, og við hlið þess stórvaxinn hlynur. (Myndin er tekin í sept. 1979) vefjast saman, hringa sig utan um lýsnar, svo erfitt er að ná til þeirra með lyfjum. Þarf að úða til varnar áður en það gerist. Sama lúsategund leggst líka á ribsrunna og verða ribsblöðin þá eins og ból- ótt. í Reykjavík og víðar eru til vænar álmhríslur, sumar þeirra stór fagur- vaxin tré t.d. hríslan á Túngötu 6 í Reykjavík og hrísla í gömlu Gróðrar- stöðinni ((Einarsgarði). Báðar þessar stóru, fögru hríslur munu gróðursett- ar árið 1902. Þessi tré eru 8—9 m há eða vel það og til eru hér allt að 12 m há álmtré. Elsta álmtréð í Reykjavík gróðursetti þroskast. En líka má vel fjölga álmi með sumar- græðlingum og er það nú gert í vaxandi mæli. Bannað er að flytja inn álmplöntur vegna hættu á sveppasýki, sem stór- skemmt hefur eða jafnvel drepið fjölda álmtrjáa erlendis t.d. á Bretlands- eyjum og Niðurlöndum. Hefur hennar og orðið vart í Danmörku og víðar. Margir hafa álm sem tilkomumikið garðtré. En hann er líka hæfur í limgerði og skjólbelti. Limgerðin þarf að klippa oft ef þau eiga að verða þétt og falleg. Álmur í skjólbelti þarf frjósaman jarðveg og góða umhirðu einkum fyrst í stað. I.D. RONALD Reagan hefur þegar tryggt sér helming þeirra fulltrúa, sem hann þarf á að halda til að hljóta útnefningu repúblikana á landsþingi flokksins í Detroit um miðjan júlí. Hvorki George Bush né John Anderson virðast líklegir til að stöðva sigurför hans í forkosningunum úr þessu, og allt bendir því til þess, að Ronald Reagan verði forsetaefni repúblikana í forsetakosningunum í nóvember. Alla tíö, síðan Reagan hóf fyrst afskipti af stjórnmálum í Kaliforníu 1965, hefur verið gert lítið úr möguleikum hans sem frambjóðanda. Ríkisstjóri Kali- forníu, Pat Brown, var í hópi þeirra, sem tóku framboð Reag- ans til ríkistjóra 1966 ekki alvar- lega og talaði í niðrandi tón um þennan óreynda fyrrverandi leikara og demókrata, sem vildi verða ríkisstjóri repúblikaná. Reagan sigraði Brown í kosning- unum með milljón atkvæða mun og var endurkjörinn ríkisstjóri fjórum árum seinna, jafnvel þótt demókratar séu í yfirgnæfandi meirihuta í Kaliforníu. I forsetakosningum 1976 þótti Reagan leggja út í vonlausa baráttu um útnefningu Repú- blikanaflokksins á móti Gerald Ford, þáverandi forseta. Barátt- an milli þeirra reyndist þó mjög hörð, og Ford hlaut útnefningu flokksins með naumum meiri- hluta. Enginn spáði Reagan jafn auðveldri baráttu í upphafi kosningabaráttunnar í ár og hefur komið á daginn. Fjöldi álítlegra repúblikana var í fram- boði, en þeir hafa helzt úr lestinni hver á fætur öðrum, og nú eru þeir Reagan, Bush og Anderson einir eftir. Reagan hefur aðeins tapað þremur for- kosningum, Massachusetts, Connecticut og Puerto Rico, fram til þessa, og hann á varla marga ósigra fyrir höndum í forkosningunum. Gerald Ford lét að því liggja um tíma, að hann ætlaði að gefa kost á sér. Hann sagði, að Reagan ætti litla möguleika á að sigra Jimmy Carter í forseta- kosningum, en skoðanakannanir sýndu, að hann sjálfur gæti sigrað Carter. Framboð Fords fékk lítinn hljómgrunn meðal framámanna í repúblikana- flokknum, svo að Ford ákvað að gefa ekki kost á sér að svo stöddu, enda hafði hann gert of lítið úr möguleikum Reagans, eins og svo margir aðrir hafa gert. Nýjustu skoðanakannanir sýna, að kosning milli Reagans og Carters gæti farið á hvorn veginn sem er, og íhaldssamar skoðanir Reagans virðast ekki fæla eins marga kjósendur frá honum og margir hafa haldið fram. Ronald Reagans kemur mjög vel fyrir. Hann nýtur góðs af 20 ára leikferli sínum á árunum 1937—57 á kosningafundum og í sjónvarpi. Hann er mjög skýr í svörum og öll heimsins vanda- mál virðast eiga sér sáraeinfald- ar skýringar og lausnir, þegar hann fjallar um þau. Helztu baráttumál hans í kosningabaráttunni eru efna- hags-, orku- og utanríkismál. Hann vill leysa verðbólguvand- ann með hallalausum fjárlögum, 30% skattalækkunum á þremur árum og minni ríkisafskiptum af viðskiptalífinu. Hann lætur að því liggja í ræðum sínum, að orkuskotur sé ekki fyrir hendi. Hann telur, að skorturinn hverfi um leið og olíuverð verður gefið alveg frjálst og ríkið hættir öllum afskiptum af olíufyrir- tækjum. Reagan er tryggur stuðningsmaður ísrael, en er hlynntur samvinnu við önnur miðausturlönd í baráttu gegn áhrifum Sovétríkjanna á svæð- inu. Honum þykir stjórn Carters hafa svikið keisarann af íran og ekki brugðist rétt við handtöku bandarísku gíslanna í Teheran. Reagan telur Bandaríkin hafa dregizt aftur úr Sovétríkjunum í vopnabúnaði á undanförnum ár- um og segir, að tími sé kominn til að vígbúast að nýju. Hann er orðið forseti Banda- ríkj- anna andvígur Salt II samningnum við Sovétríkin og vildi ekki fá Panamaskurðinn Panamabúum í hendur á sínum tíma. Reagan á flesta aðdáendur í hópi íhaldssamra repúblikana og meðal láglaunafólks og þeirra, sem hafa hlotið litla menntun. Hann höfðar til margra með ákveðinni andstöðu sinni gegn fóstureyðingum og breytingar- tillögu við stjórnarskrána, sem áætlað er að tryggja jafnrétti kynjanna. Hann er á móti skrá- setningu skotvopna og vill að kristnar fyrirbænir verði leyfðar í opinberum skólum. Yfirleitt er val varaforseta- efnis fyrsta alvarlega ákvörðun- in, sem forsetaframbjóðandi flokkanna tekur. Það er siður í Bandaríkjunum, að varaforseta- efnið höfði til þeirra kjósenda, sem forsetaefnið sjálft nær ekki til. Þetta er oft erfitt, en getur orðið sérstaklega erfitt fyrir Reagan. I kosningabaráttunni 1976 valdi Reagan varaforsetaefni sitt fyrir landsþing Repú- blikanaflokksins, en vaninn er að frambjóðendur geri það ekki fyrr en þeir hafa hlotið útnefn- inguna. Hann valdi Richard Schweiker, öldungardeildarþing- mann frá Pennsylvaníu sem var í þá daga kunnur fyrir frjáls- lyndar skoðanir sínar og var áætlað að höfða til þeirra kjós- enda í forkosningunum, sem töldu Reagan of íhaldssaman. Schweiker gerði ekki það gagn, sem vonast hafði verið til af honum, og í ár segist Reagan ekki áætla að velja sér varafor- setaefni, fyrr en hann hefur hlotið útnefningu flokksins. Reagan er 69 ára gamall. Ef hann verður kjörinn forseti, verður hann elzti forseti Banda- ríkjanna í sögunni. Dwight Eis- enhower var 66 ára, þegar hann var endurkjörinn 1956 og var elzti forseti aldarinnar. Árið 1841 var W.H. Harrison, sem var 68 ára, kjörinn forseti, en hann lézt mánuði eftir að hann tók við embætti úr lungnabólgu. Reagan verður 73 ára 1984 og þykir mjög líklegt, að hann sæti aðeins eitt kjörtímabil og varaforseti hans fari fram í stað hans. Varafor- setaefni Reagans þarf því að vera einhver, sem talið væri að myndi halda stefnu Reagans áfram. Hann þarf líka að vera nokkur, sem höfðar til frjáls- lyndari kjósenda en Reagan, en þó ekki svo mjög, að hann fæli frá stuðningsmenn hans. Reagan virðist stundum eiga erfitt um heyrn, en það eru einu merkin um háan aldur hans. Hann er þekktur fyrir gott minni og þefur tölur um ótrú- legustu hluti á takteinum. Und- anfarið hefur þó verið bent á í fréttum, að tölur Reagans eigi sér ekki alltaf stoð í raunveru- leikanum. Hann er gjarn á að ýkja, og stundum virðist hann einfaldlega hafa fundið tölurnar upp hjá sjalfum sér. Langflestar ræður Reagans fjalla um, hversu mun betur þjóðin væri sett, ef ríkisvaldið væri ekki að vasast í öllu. Hann notar sem dæmi, að það kosti félagsmálaráðuneytið 3 dollara að koma 1 dollara í hendur þurfandi þegnum, en ráðuneytið segir, að það kosti það aðeins 12 sent. Hann segir einnig, að ríkisbáknið sé ávallt að stækka og 131000 manns hafi komist á jötuna á síðasta ári. 60000 voru ráðnir til ríkisins í fyrra samkvæmt opinberum töl- um. Svo mætti lengi telja. Síðan hann hætti sem ríkis- stjóri Kaliforníu árið 1974, hefur Reagan skrifað greinar og flutt fréttaauka um málefni líðandi stundar. Hann hefur starfað áð þessu einn og því er stundum kennt um, þegar hann fer vit- laust með eða er ekki vel heima á vissum sviðum. Stuðnings- og starfsmenn hans hafa gert sitt bezta til að bæta úr þessu og vafalítið tekst þeim það, svo að Reagan verði jafn vel heima á öllum sviðum og frambjóðandi Demókrataflokksins í forseta- kosningunum. R0NALD REAGAN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.