Morgunblaðið - 19.04.1980, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.04.1980, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980 Framhaldsnám erlendis er sjálfsagður hlutur fyrir íslenzkan námsmann og liggur leiðin þá gjarnan til Norðurlanda. Það þykir heldur ekki annað en sjálfsagt að hjón leggi í langferð og annað eða bæði nemi. Það er hins vegar heldur sjaldgæft að fólk komið á fimmtugsaldur hleypi heimdraganum, fari til annarra landa með fjögur börn sín og húsmóðirin á heimilinu fari að nema. Þetta er þó tilfellið með Sigurjón Jóhannsson og Ernu Þorleifsdóttur, en þau fóru til Noregs í ágústmánuði 1978 með fjögur börn sín. Hún ætlaði að læra félagsráðgjöf, en hann að fá sér vinnu, helzt í sínu fagi, blaðamennsku. Framan af gekk þó hvorki né rak hjá Sigurjóni að fá vinnu hjá norskum f jölmiðlum, hann vann fyrir sér og sínum sem næturvörður á hóteli og við þvotta á stóru sjúkrahúsi, en einn góðan veðurdag skipuðust veður í lofti og hann var orðinn lektor við norska blaðamannaskól- ann í Ósló, sem er inni í háskólakerfinu þar í landi. skólans heima á íslandi, Sogstad heitir hann, og ég leitaði til hans og spurði hvort hann gæti orðið mér innan handar með vinnu. — í framhaldi af þessu sagði , hann mér, að staða væri laus við blaðamannaskólann, einmitt í ljósmyndun og útlitsteiknun. Hann lagði að mér að sækja um stöðuna, en mér fannst það frá- leitt og neitaði öllum slíkum hugmyndum staðfastlega. Knut Sogstad gafst ekki upp og án þess að ég vissi um var hann, kona min og Þorgrímur Gestsson að krunka um þetta á bak við mig, auk þess sem þau notuðu hvert einasta tækifæri til að hvetja mig til að sækja um þessa stöðu. — A endanum lét ég til leiðast í þeirri einlægu von, að ég fengi nei við umsókninni. Við sóttum tveir um, ég og norskur blaðamaður. Ég Rætt við Sigur- jón Jóhannsson og Ernu Þor- leifsdóttur, sem stundar nám í félagsráðgjöf í Ósló, en þau héldu utan fyrir tveimur árum ásamt f jórum börnum sínum um aðstæðum, en sonurinn Jó- hann er sá eini sem ekki stundar nám. Hann er 19 ára, Þórgunnur 16 ára, Katrín 15 ára og Anna 11 ára og þær eru allar í skóla systurnar eins og móðirin meðan karlpeningurinn á bænum vinnur úti. — Mér fannst orðið óþolandi að hjakka alltaf í sama farinu heima án þess að eiga möguleika á nokkru meiru nema að afla sér menntunar, heldur Erna áfram. Mér líkar námið vel núorðið, en fyrsta árið var heldur leiðinlegt, og jafnvel þurrt stagl. Núna er þetta hins vegar orðið líflegt og skemmtilegt. — í Noregi eru sex slíkir skólar og þar af þrír í Ósló. Það hefur verið mikið um, að Islendingar sæktu í þessa skóla og mætt vinsemd Norðmanna eins og ann- ars staðar í menntakerfinu. Það er líka á margan hátt hagstætt fyrir íslendinga að stunda nám í Noregi og yfirleitt að dvelja hér. — Um börnin er það að segja, að þeim hefur gengið vel eftir að þau komu hingað út. Þeirri yngstu á bænum brá þó heldur betur í brún er hún komst að því fyrstu dagana hér, að hún skildi ekkert hvað skólasystkinin sögðu. Hún neitaði alveg að fara út og leika sér og sagðist ekki fara út fyrir dyr fyrr en hún væri búin að læra norskuna. Það lagaðist þó allt og hún er sú okkar, sem talar beztu norskuna, alveg eins og innfædd, finnst mér að minnsta kosti, segir Erna. Tilviljun að ég byrjaði i blaðamennsku Sigurjón Jóhannsson, Katrin. Erna Þorleifsdóttir og Þórgunnur. Blaðamaður Mbl. hitti þau hjón að máli á heimili þeirra í Ósló fyrir nokkru, en þau búa í ágætri íbúð við Sognsveginn á fallegum stað skammt frá stúdentabænum að Kringsjá. Sigurjón var fyrst beðinn að segja frá fyrstu vikun- um í Noregi og aðdraganda þess, að hann varð lektor við blaða- mannaskólann. — Frá því að ég byrjaði í blaðamennsku hef ég mikið unnið við ljósmyndun og útlitsteiknun eða „lay-out“. Ég gerði mér því vonir um að fá starf við mitt hæfi hjá norsku blaði og hugsaði með mér, að þetta hlyti ég að geta, þar sem slíkt starf krefst ekki ýkja mikillar norskukunnáttu. Með góðar kveðjur að heiman í vasan- um var ég bjartsýnn og hélt að þetta yrði ekki erfitt, en annað átti eftir að koma á daginn. — Um þetta leyti skall á verð- og launastöðvun í Noregi og kom þessi ákvörðun stjórnvalda mönnum alveg á óvart. Atvinnu- rekendur héldu að sér höndum fyrst á eftir og frekar var um fækkun að ræða, heldur en að t.d. blöðin fjölguðu mönnum. Konan mín þekkti konu, sem þekkti konu — Við höfðum reyndar verið á götunni þar til fjórum dögum áður en við stigum upp í flugvélina. Þá tókst vini okkar að útvega hús- næði nokkuð fyrir utan Ösló og þar vorum við fyrstu mánuðina. Að mörgu leyti var heppilegt að vera þar, börnin fóru í skóla í nágrenninu og meðal annars var gott fyrir þau að vera þarna, þar sem allt var smærra í sniðum en inni í Ósló. — En atvinnumálin voru ekki glæsileg og sannarlega góð ráð dýr. Eftir að hafa gengið á milli blaðanna gafst ég upp og fór að fylgjast náið með atvinnuauglýs- ingum í norsku blöðunum. Einn daginn tók ég eftir auglýsingu í Aftenposten þar sem óskað var eftir næturverði á hóteli. Ég rölti þangað sama dag og fékk vinnuna. Merkilegt nokk, þá hafði ég bara gaman af þessum starfa. Þarna hitti ég mikið af fólki, auk þess, sem mér gafst nægur tími til að hugsa mitt ráð, en þetta starf nægði ekki til að ég gæti fram- fleytt fjölskyldunni. — Síðan gerðist það að konan mín þekkti konú, sem þekkti konu og hún útvegaði mér vinnu í þvottahúsi í stóru sjúkrahúsi. Ég neita því ekki, að þar fékk ég mikið áfall fyrsta daginn, þegar ég fékk það verkefni að moka þvott- inum mismunandi skítugum og illa lyktandi inn í stórar þvotta- maskínurnar. Þegar frá leið vandist þetta eins og annað og mér varð hugsað til Mao formanns og fannst að lokum í fullkomnu lagi að kynnast öðrum hliðum mannlífsins en áður og frá öðrum sjónarhornum í anda við kenningar formannsins. — Meðan ég var í næturvörzl- unni og þvottinum hafði ég augun opin og reyndi hvað ég gat til að fá annað starf. Ég hafði kynnzt einum af kennurum blaðamanna- Vann við nætur- vörzlu og þvotta er hann varð lektor í blaðamennsku var ráðinn í starfið til eins árs sem kennari við skólann. Sá, sem hafði gegnt stöðunni áður, ákvað síðan að vera lengur burtu og ég hef nú verið ráðinn sem lektor í þessum greinum til næstu ára- móta, segir Sigurjón. Óþolandi að hjakka alltaf í sama farinu — I guðanna bænum láttu þetta ekki líta þannig út, að ég hafi grátið yfir eldavélinni og uppþvottinum í 20 ár og syrgt þau örlög mín að komast ekki til náms, segir Erna Þorleifsdóttir þegar blaðamaður snýr máli sínu til hennar og vill fá að vita aðdrag- andan að því, að hún hóf nám í félagsráðgjöf í Noregi. — Ég hafði áhuga á að læra félagsráðgjöf og hafði m.a. unnið á Kleppi í 8 ár sem læknaritari. Félagsráðgjöf er ekki hægt að læra heima og eftir að hafa rætt þessi mál vorum við öll sammála um að reyna eitthvað nýtt og ég hóf svo nám í félagsráðgjöf í „Norges kommunal og sosial hög- skole" haustið 1978. — Mér finnst þetta ekkert merkilegt, alls ekki, þetta var bara eðlilegur hlutúr hjá okkur fyrst Sigurjón var tilbúinn að reyna fyrir sér erlendis, segir Erna og vill eyða spurningum blaðamanns. Hún segir að börnunum hafi gengið vel að aðlaga sig að norsk- Við snúum okkur aftur að Sig- urjóni og blaðamennskunni, en í þeim efnum hefur hann komið víða við. — Það var fyrir algera tilvilj- un, að ég byrjaði í blaðamennsku, segir Sigurjón. — Þannig var, að snemma árs 1958 átti ég leið upp á Þjóðvilja og hitti þar fyrir föður- bróður minn, Ásmund Sigurjóns- son. Ég var þá við nám í Háskól- anum, en er Ásmundur bauð mér blaðamannsstarf sagðist ég vera spenntur fyrir því og daginn eftir var ég byrjaður á Þjóðviljanum. — Frá Þjóðviljanum lá leiðin á blaðið Mynd, sem gefið var út í nokkurn tíma 1962. Þar líkaði mér vistin vel og lærði mikið þó tíminn þar væri stuttur, sérstaklega í útlitsteiknun. Síðan varð ég rit- stjóri Fálkans um tíma, þá var það Alþýðublaðið, Þjóðviljinn aft- ur og loks Vikan, en þar var ég blaðamaður þegar við ákváðum að hleypa heimdraganum og fara hingað til Noregs. — Það má því segja, að ég hafi víða komið við í íslenzka blaða- heiminum og ég hef oftar en einu sinni reynt að hætta í blaða- mennskunni, en bakterían er þrá- lát og alltaf hef ég komið aftur. Ég var t.d. um tíma fulltrúi í Sam- vinnubankanum og einnig á Aug- lýsingastofu Gísla B. Björnssonar, en alltaf togaði blaðamennskan í mig og ég hljóp því ævinlega til þegar mér fannst eitthvað bita- stætt bjóðast. Ólíku saman að jafna í mennt- un blaðamanna Við gætum eflaust haldið lengi áfram að tala um blaðamennsku á íslandi, málið er Sigurjóni hug- stætt og sérstaklega það er snýr að launamálum blaðamanna, að- stöðu og möguleikum á menntun. Hann hefur kynnt sér hvernig Norðmenn búa að sínum mönnum og nefnir sem dæmi, að norska ríkið veitir á þessu ári um 700 milljónir íslenzkra króna til fram- haldsnáms og endurmenntunar blaðamanna og ýmissa rannsókna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.