Morgunblaðið - 19.04.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.04.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980 13 innan fjölmiðlunar. Auk þess eru mörg stór fyrirtæki og samtök innan atvinnuveganna með nám- skeið reglulega þar sem kynntar eru nýjungar og framfarir í starfi viðkomandi fyrirtækja og iðn- greina. — Það má gjarnan koma fram í þessu spjalli okkar hversu mjög Norðmenn eru hjálplegir okkur íslendingum í menntamálum. I blaðamannaskólanum hér í Ósló fá íslendingar t.d sömu meðferð og Norðmenn. Ef viðkomandi upp- fyllir sett skilyrði fær einn íslend- ingur a.m.k. inngöngu í blaða- mannaskólann, en á hverju ári sækja um 400 manns um inntöku í skólann, en aðeins 40 eru teknir inn árlega. — Einnig má nefna að Norð- menn hafa boðið Blaðamannafé- lagi íslands þátttöku í blaða- stofnun, sem stendur að könnun- um ýmiss konar og skipuleggur námskeið fyrir blaðamenn, þannig að þeir, sem hafa hug á blaða- mennsku í Noregi hafa mikla möguleika á menntun. Spennandi glíma Sigurjón er lektor við norska blaðamannaskólann eins og áður sagði og lætur vel af starfi sínu við skólann. Nú eru tveir Islend- ingar þar við nám, þeir Jón Einar Guðjónsson og Gunnar Kvaran. Freysteinn Jóhannsson á Morgun- blaðinu reið á vaðið og nam við skólann, þá Sigrún Stefánsdóttir, undirritaður og Þorgrímur Gests- son á Helgarpóstinum. — Ég kom inn á algjörlega nýtt svið þegar ég varð kennari við skólann og sannarlega hefur þetta Sigurjón ásamt tveimur nemendanna i norska blaðamannaskólanum. Gunnari Kvaran og Jóni Einari Guðjónssyni. Texti: Ágúst I. Jónsson mannanámskeiðum á vegum sér- stakrar stofnunar, sem hefur með umfangsmikið námskeiðahald og ýmsar rannsóknir að gera. íslend- ingar fá þarna sömu kjör og norskir blaðamenn, en mér finnst menn heima hafa verið of sofandi fyrir svona möguleikum. — í launamálaumræðu meðal blaðamanna á íslandi um og upp úr 1970 var mikið rætt um það, að blöðin yrðu að vera samkeppnis- fær um háskólamenntað fólk. Síðan þá hefur þetta lagast veru- lega heima með bættum kjörum, en við eigum þó enn langt í land til að ná t.d. Norðmönnum. Umræður um blaðamannaskóla skjóta alltaf upp kollinum annað slagið heima og ég held að við gætum tekið upp kennslu í blaðamennsku við Há- skóla íslands. Fjölmiðlunin gæti þá verið aðalgrein í tengslum við félagsvísindi og málanám. — Blaðamannaskólinn í Ósló byrjaði sem eins árs skóli, en er nú tveggja ára skóli í beinum tengsl- um við háskólann. Einnig er kennd blaðamennska í Volda og verður tekin upp í Bodö á næst- unni, en námið þar er öðru vísi upp byggt. Þá er kennd fjölmiðlun við lýðháskólana og loks er þessi verið spennandi glíma, allt í einu var ég farinn að kenna og var byrjandi í málinu. Ég veit ekki hve lengi ég verð hérna og hvað tekur við hjá okkur, en smátt og smátt hafa hugmyndir verið að mótast í kollinum á mér um hvernig ég vil byggja upp mína kennslu og um það hef ég haft mjög frjálsar hendur. Á næstunni stendur til, að skólinn fái stærra húsnæði til afnota og þá batnar um leið öll aðstaða, en á margan hátt er þessi skóli illa í stakk búinn til að veita fræðslu um ýmsa þætti í blaða- mennsku. Sérstaklega á þetta við um það, sem lýtur að þeim öru tæknibreytingum, sem orðið hafa í fjölmiðlum á síðustu árum og koma meira og minna inn á mitt svið í kennslunni. — Við höfum ekki reynt Norð- menn að neinu öðru en góðu og þeir hafa leyst úr okkar vanda- málum fljótt og vel. Þetta meina ég hjartanlega, þetta er ekki bara eitthvað halelúja um þá. Ég var í rauninni himinlifandi þegar kon- an fór að tala um það af alvöru að hún vildi fara til náms í Noregi. Okkur hefur líkað vel hérna í flesta staði, en hins vegar er enn þá óljóst hversu lengi við verðum hérna. — áij. Erna segir Önnu, yngstu dótturinni, til við heimanámið. Leikritið Er þetta ekki mitt líf? eftir Brian Clark, er sýnt í Iðnó um þessar mundir. Hjalti Rögnvalds- son fer þar með aðalhlut- verkið, hann leikur ungan myndhöggvara, sem bund- inn er við rúmið vegna lömunar. Þetta leikrit hefur víða verið tekið til sýningar, bæði vestan hafs og austan og alls staðar dregið að mikinn fjölda áhorfenda. í upphaflegri sýningu á þessu verki í London fór Tom Conti með aðalhlutverkið, og er áreiðanlega mörgum ógleymanlegur sem sáu. Þótti hann túlka hlutverkið svo vel að hann var fenginn til að taka það að sér þegar leikritið var tekið til sýn- ingar á Broadway í New York á síðasta ári. (Tom Conti lék í breskum sjónvarpsþáttum, sem hér voru sýndir fyrir ekki mjög löngu, þar var hann skóla- piltur í háskóla og gerðist rithöfundur að námi loknu). Mary í hlutverki sínu. Mary Tyler Moore tekur við Það urðu nýlega leikara- skipti í fyrrnefndu leikriti í New York, bandaríska leik- konan Mary Tyler Moore tók við aðalhlutverkinu af Tom Conti. Mary Tyler Moore hefur aðallega fengist við leik í sjónvarpi og það í þáttum af léttara taginu, samanb. þætti þá, sem við fengum á laugardagskvöld- um í langa hríð. Aðalhlutverkið í Er þetta ekki mitt líf? er skrifað fyrir karlmann, eins og þeir vita sem séð hafa leikritið. Höfundur leikritsins þurfti að gera smá breyt- ingar á texta vegna þess arna, og heitir hin unga kona Claire Harrison í stað Ken, og er myndhöggvari, eins og gert var ráð fyrir í upphafi. Mary Tyler Moore þykir túlka þetta erfiða hlutverk á sviði stórvel, eftir því sem lesa má eftir gagn- rýnendur. Mary Tyler Moore Leikritið tekið til sýningar í Álaborg í lok síðasta árs var leik- ritið Er þetta ekki mitt líf? tekið til sýningar í Álaborg. Hlutverk hins unga mynd- höggvara er þar í höndum Erik Wedersöe, en hann mun vera þaulvanur sviðs- leikari. Erik Wedersöe og sam- starfsmenn hans höfðu þann háttinn á, meðan á æfingum stóð, að fá að dvelja innan dyra á sjúkrahúsum til að kynnast þar af eigin raun lífi langlegu sjúklinga. Fannst þeim sem þeir fengju með því aukinn skiln- ing á verkinu. Er þetta ekki mitt líf? Leikarinn Erik Wedersöe.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.