Morgunblaðið - 19.04.1980, Page 16

Morgunblaðið - 19.04.1980, Page 16
16 TÓNLISTARFÉLAGIÐ Hörpuleikarínn Osian Ellis á tónleikum IIÖRPULEIKARINN Osian Ellis leikur á tónleikum Tónlistaríé- lagsins í Austurbæjarbíói i dag, laugardag, kl. 14.30. Osian Ellis fæddist í Wales og ólst þar upp við aldagamla tónlist- arhefð. Hann hefur haldið tón- leika víða um heim og leikið inn á hljómplötur flest hin þekktari verk, sem samin hafa verið fyrir hörpu, s.s. eftir Hándel, Mozart, Ravel o.fl. Árið 1970 var Osian Ellis gerður að doktor í tónlist við háskólann í Wales og árið 1971 sæmdi Breta- drottning hann CBE-orðunni fyrir framlag hans til tónlistar. Á dagskrá tónleika hans í dag eru verk Gabriel Fauré’, William Mathias, Benjamin Britten, Hánd- el og Albert Zabel, einnig þjóðlög frá Wales í hans eigin útsetningu o.fl. ASMUNDARSALUR Hannes Lárusson með sýningu, sem lýkur á gerningi HANNES Lárusson heldur sýn- ingu á verkum sínum í Ásmundar- sal um þessar mundir. Sýningin er opin virka daga kl. 16—18 og 20—22, en um helgar frá kl. 14—18 og 20—22. Sýningunni lýkur 25. apríl og þá um kvöldið flytur Hannes gerning í Ásmundarsal kl. 21. Á meðfylgjandi mynd má sjá Hannes í „gerningaformi". Á FJÖLUNUM Leiksýningar Þjóðleikhúsið: í kvöld eru „Sumargestir" sýnd- ir kl. 20, en á morgun sunnudag verður barnaleikritið „Óvitar" sýnt kl. 15. Fáar sýningar eru eftir á því verki. Leikfélag Reykjavíkur: „Er þetta ekki mitt líf?“ er sýnt í næst síðasta sinn í kvöld kl. 20.30. Sjöunda sýning á „Hemrna" er annað kvöld kl. 20.30. Gilda þá hvít áskriftarkort. Þá verða „Klerkar í klípu" sýndir á miðnæt- ursýningu í Austurbæjarbíói í kvöld kl. 23.30. Kópavogsleikhúsið: Leikfélag Kópavogs sýnir „Þor- lák þreytta" bæði í kvöld og annað kvöld kl. 20.30. Ungmennafélag Reykdæla: „Þið munið hann Jörund" er á fjölunum í Logalandi í kvöld. MYNDLIST Árni Garðar opnar sýningu ÁRNI Garðar opnar málverka- sýningu í Nýja Galleríinu, Laugavegi 12, Reykjavík í dag, laugardag kl. 14.00. Árni sýnir nú 45 vatnslita-, pastel- og olíukrítarmyndir, en þetta er fjórða einkasýning hans. Hann er félagi í Myndlist- arklúbbi Seltjarnarness og hefur einnig tekið þátt í samsýningum þeirra. Sýningin stendur til 29. apríl og er opin daglega frá kl. 14—22. Meðfylgjandi mynd tók Ragn- ar Axelsson ljósm. Mbl. af Árna hjá einu af verkum hans á sýningunni í gær. Selkórinn með árlega tónleika SELT J ARN ARNES SELKÓRINN á Seltjarnarnesi heldur hina árlegu opinberu tóni- eika sína fyrir styrktarfélaga og aðra söngunnendur á morgun sunnudaginn 20. apríl kl. 16.30 og fimmtudaginn 24. apríl kl. 20.30 í Félagsheimilinu Seltjarn- arnesi. Á efnisskrá eru bæði innlend og erlend lög. Einsöngvarar með kórnum eru Guðmundur Sigurðsson og Þórður Búason og stjórnandi er Ragn- heiður Guðmundsdóttir söngkona og undirleikari Lára Rafnsdóttir. Þar til fyrir fjórum árum var kórinn kvennakór. Því hefur sú hefð komist á, að konurnar syngi fáein lög sérstaklega. Að loknum tónleikum á Sel- tjarnarnesi er fyrirhugað að syngja í Ytri-Njarðvíkurkirkju og Vogum. Starfsári sínu lýkur kór- inn með vorskemmtun 3. maí og þar bregða kórfélagar á leik með söng, glens og gamanmálum. MYNDLIST í HVERAGERÐI Sýning Softiu — tileinkuð innhverfum bömum I DAG, laugardag, opnar Soffia Þorkelsdóttir málverkasýningu í Eden, Hveragerði. Þar sýnir hún 40 verk, sem flest eru gerð á sl. tveimur árum. Þetta er önnur einkasýning Soffíu,,en áður hef- ur hún sýnt í Ásmundarsal, Reykjavík. Sýningin er tileinkuð innhverf- um börnum og mun heimilisbygg- ingarsjóður þeirra njóta góðs af sýningunni. Hún er opin alla daga frá kl. 9—22 og lýkur 28. þ.m. Meðfylgjandi mynd er af einu verka Soffíu á sýningu hennar í Ásmundarsal á sl. ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.