Morgunblaðið - 19.04.1980, Page 17
HVAÐ ER AÐ GERAST I RÆNUM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980
17
MYNDLIST í FÍM-SALNUM
Hjörleifur opnar
í dag sýningu d
Lófóten-mgndum
HJÖRLEIFUR Sigurðsson opnar
sýningu á myndum frá Lófóten í
FÍM-salnum í dag. Á sýningunni
eru 39 myndir, flestar unnar úr
vatnslitum, en þó eru nokkrar
olíumyndir og teikningar.
Hjörleifur hefur haldið all-
margar einka- og samsýningar.
Hann var forstjóri Listasafns
A.S.Í. í níu ár og formaður Félags
ísl. myndlistarmanna frá 1974—
1979. Nám stundaði hann í
Svíþjóð, Frakklandi og Noregi frá
1946-1952.
Sýning Hjörleifs stendur til 4.
maí og er opin daglega frá kl.
14-22.
TÓNLIST; REYKJAVÍK
Allar sónötur Beethov-
ens fyrir fiðlu og píanó
GUÐNÝ Guðmundsdóttir fiðlu-
leikari og Philip Jenkins píanó-
leikari efna til tónleika um þesar
mundir í Reykjavík. Hér er um
þrenna tónleika að ræða. en á
efnisskrá eru allar sónötur Beet-
hovens fyrir fiðlu og píanó en
þær eru 10 talsins.
Listamennirnir hefja tónleika-
röðina á morgun, sunnudag kl.
20.30 í Norræna húsinu. Efnis-
skráin er Sónata í A dúr, opus 12,
nr. 2, sónata í F-dúr, opus 23
(Vor-Sónata) og Sónata í C-moll
opus 30, nr. 2.
Aðrir tónleikarnir verða 23.
apríl á sama tíma og stað og þeir
þriðju og síðustu nk. sunnudag, 27.
apríl.
GRINDAVÍK
Gylfi Ægisson opn-
ar sýningu í dag
GYLFI Ægisson opnar mál-
verkasýningu í Grindavík í dag,
laugardag í Sjómannaheimilinu
Grindavík. Sýnir hann þar yfir 20
myndir sem unnar eru úr akrillit-
um, og eru það bæði rammamál-
verk og tunnulokamyndir. Sýning-
in stendur yfir í tvær vikur og er
opin alla daga á opnunartímum
sjómannaheimilisins.
: » -
wí~
SJÓMANNASKÓLINN
Skrúfudagurinn 1980
HINN árlegi kynningar- ojg nem-
endamótsdagur Vélskóla Islands
er i dag og er nú haldinn i
átjánda sinn.
Að skrúfudeginum
standa Vélskóli fslands, Skólafé-
lag Vélskólans, Kvenfélagið
Keðjan og Vélstjórafélag íslands.
Kynningin hefst kl. 13.30 og
stendur yfir til 17.00 í húsnæði
Sjómannaskólans. Nemendur
verða þar við störf í öllum verk-
legum deildum og munu veita
upplýsingar um tæki og skýra
gang þeirra. Kaffiveitingar verða
á vegum Keðjunnar í veitingasal
frá kl. 14.00.
KJARVALSSTAÐIR
Leikbrúðuland sýnir „Sálina hans Jóns míns“
LEIKBRÚÐULAND frumsýnir á
morgun, sunnudag, brúðuleikinn
„Sálina hans Jóns míns" sem
samin er eftir samnefndri þjóð-
sögu og Gullna hliðinu eftir
Davið Stefánsson. Bríet Héðins-
dóttir samdi handritið og stjórn-
ar sýningunni. Þetta er viða-
mesta verkefnið sem Leikbrúðu-
land hefur ráðist i til þessa, og er
sýningin ekki síður ætluð full-
orðnum en börnum.
Frumsýningin er kl. 15, önnur
sýning er einnig á morgun kl. 17.
Ráðgert er að sýna leikinn um
helgar og á tyllidögum fram til 18.
maí.
í Leikbrúðulandi starfa nú Erna
Guðmarsdóttir, Hallveig Thor-
lacius.Helga Steffensen og Þor-
björg Höskuldsdóttir og stjórna
þær brúðunum í sýningunni.
KVIKMYNDIR
Fjalakötturinn sýnir
,$teamboat Bill jr. “
FJALAKÖTTURINN sýnir í dag
kl. 17 og á morgun kl. 17, 19.30
og 22 í Tjarnarbíói kvikmyndina
„Steamboat Bill jr.“ eftir Buster
Keaton.
Mynd þessi er frá árinu 1927.
Hún fjallar um Willie (Buster
Keaton) sem kemur til heimabæj-
ar síns eftir nám við Harvard til
að hjálpa pabba sínum til að halda
yfirráðum yfir ánni Sacramento.
Með önnur aðalhlutverk í mynd-
inni fara Ernest Torrence og
Marion Byron.
1 kvikmynd~írI
Þýzka
stórmyndin
„Clavico“
á vegum
Germaníu
ÞÝSK stórmynd, „Clav-
ico“, byggð á leikriti eftir
Johan Wolfgang Goethe
verður sýnd í Nýja bíói kl.
2 á laugardag á vegum
Germaníu.
Myndin er rúmra
tveggja klukkustunda
löng. Leikgerð er á vegum
Fritz Kortners, en Ham-
burger Schauspielhaus lét
gera myndina árið 1973.
Þessi sýning Germaníu
er einn þátturinn í 60 ára
afmælishátíð félagsins.