Morgunblaðið - 19.04.1980, Side 21

Morgunblaðið - 19.04.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980 21 Ferðaskrifstofan Útsýn 25 ára: FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn á 25 ára afmæli um þessar mundir ok efndi af því tilefni til veglegrar afmælishátíðar á Hótel Sögu sl. sunnudagskvöld. Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Utsýnar, ávarpaði gesti í tilefni þessara tímamóta og kvað viðskiptavini fyrirtækisins orðna nærri því eins marga og samanlaKðan ibúðafjölda landsins. í ávarpi sínu sagði Ingólfur Guðbrandsson að viðskiptin við nær allan þennan mikla fjölda hefðu gengið með öllu árekstralaust og vakið mikla ánægju enda kappkostaði Útsýn að hafa færu og hjálpsömu starfsfólki á aö skipa. Útsýn hefði gert ferðalög að almenningseign á íslandi og sparað milljarða útgjöld með hagkvæmum samningum, hagræðingu og há- marksnýtingu. Sagði Ingólfur Guðbrandsson, að ferðalög heyrðu til hins eftirsóknarverðasta í lífi nútímamannsins, enda legðu öll lýðræðisriki og Sameinuðu þjóðirnar áherzlu á eflingu þeirra fyrir betra og fegurra mannlíf. Forstjóri Útsýnar sagði í ávarpi Módelsamtökin sýndu batikkjóla Katrínar Ágústsdóttur. Viðskiptavinir fyrirtækisins nær jafn margir og íbúar landsins — sagði Ingólfur Guðbrandsson á afmælishátíð á Hótel Sögu Litskrúðug vortízka frá Stúdíó. Mikill fjöldi gesta var á afmælishátíð Útsýnar. sínu, að geysileg aðsókn væri að ferðum Utsýnar enda ýmsar ferðir að seljast upp en ferðaúrvalið væri mikið: Spánn, Ítalía, Júgóslavia, gríska eyjan Rhodos, Florida og Kenya auk þess, sem margir starfsmenn Útsýnar störfuðu einungis að skipu- lagningu og útgáfu farseðla fyrir einstaklinga. I lok ávarps síns á afmælishátíðinni saðgi Ingólfur Guðbrandsson, að fyrirtæki hans stefndi að því að hjálpa íslendingum til að vera „sólarmegin í tilverunni" næsta aldarfjórðunginn eins og þann sem væri að baki. Fjölbreytt skemmtiatriði voru á afmælishátíð Útsýnar. Jón Þorsteinsson, sem stundar nám í Bologna á Ítalíu söng íslenzk og erlend lög, Agnes Löve lék á píanó, félagar úr íslenzka dansflokknum sýndu dansa í Broadway-stíl og Ómar Ragnars- son skemmti gestum. Þá voru Módelsamtökin með fjölbreytta tízkusýningu og sýndu það nýjasta í baðfatatízku frá verzluninni Madam og vor- og sumartízku frá Stúdíó. Einnig voru sýndir hatik-kjólar frá KOS, hannaðir af Katrínu Ágústsdóttur. Þá kpmu fram á sviðið 37 J)átttakendur í ljósmyndafyrirsætukeppni Útsýnar. I tilefni af afmælishátíðinni voru anddyri, gangar og salir Hótel Sögu skreyttir blómum og gulum greinum og konur kvöldsins voru skreyttar með þurrkuðum blómum í barminn. Blóm og ávextir önnuðust skreytinguna. Tekið var á móti gestum með freyðandi víni og gómsætum ostum. Franskur matreiðslumaður Hótel Sögu sá um kvöldverðinn. Ingólfur Guðbrandsson. forstjóri Útsýnar, flytur ávarp við upphaf afmælishátiðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.