Morgunblaðið - 19.04.1980, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980
23
Orlög vesturs-
ins undir f jöl-
miðlum komin
Lundúnum. 18. apríl. AP.
„ÞAÐ er undir hinu nýja stór-
veldi, f jölmiðlunum. komið hver
verða örlög hins vestræna
heims,“ segir Richard Nixon í
bók sinni, „Hið raunverulega
stríð“, sem út kemur á næst-
unni, en brezka tímaritið Now
hefur hafið birtingu kafla úr
bókinni.
Nixon heldur því fram að
bandarískir fjölmiðlar séu
„óheiðarlegir, og ástundi
tvískinnung í umfjöllun," en slík
frammistaða hafi orsakað ósigur
Bandaríkjanna í Víetnam og fall
Iranskeisara og Somoza.
„Sjónvarpið gerir sér far um
að sýna byltingarmenn í róm-
antísku ljósi og elur þannig ljóst
og leynt á því að styrjaldir
byltingarsinna á snærum Sov-
étríkjanna séu háðar í göfugum
tilgangi."
Nixon áfellist m.a. sjónvarpið
í Bandaríkjunum fyrir að aug-
lýsa upp fólk eins og Jane Fonda,
og segir að ef Bandaríkin eigi
eftir að tapa þriðju heimsstyrj-
öldinni þá verði um að kenna
þeirri óverðugu athygli, viður-
kenningu og aðdáun sem alls
konar „tízkuvaðall" njóti í fjöl-
miðlum. Hann telur það skipta
sköpum fyrir þróun alþjóðamála
á næstu áratugum hversu lengi
klofningur verði ríkjandi í sam-
skiptum Kína og Sovétríkjanna,
— segir Nixon
og því betur sem takist að fá
Kínverja til að skilja að hags-
munir þeirra séu fremur þjóð-
ernislegir en kommúnískir þeim
mun jákvæðari verði þróunin í
þágu Kín.verja, Bandaríkjanna
og friðar í heiminum.
Karamanlis í
forsetastól?
Aþenu. 18. april. AP.
KONSTANTÍN Karamanlis, forsætisráðherra Grikklands, verður
líklega eini frambjóðandinn þegar þing kemur saman á miðvikudag-
inn til að kjósa nýjan forseta lýðveldisins í stað Konstantíns Tsatsos,
en fimm ára kjörtimabil hans rennur út 20. júní.
Ymsir hafa getið sér til þess að
Karamanlis hyggist draga sig í hlé
eftir 46 ára stjórnmálaferil, en
enn sem komið er er hann eini
maðurinn sem kemur augljóslega
til greina í forsetaembættið. Aðal-
andstöðuflokkur stjórnarinnar,
PASOK, hefur ekki stungið upp á
frambjóðanda þótt hann sé and-
vígur Karamanlis.
Ef Karamanlis gefur kost á sér
er almennt búizt við að hann sigri
þótt verið geti að kjósa verði
þrisvar.
Karamanlis átti þátt í því að
Tsatsos var kosinn forseti á sínum
tíma en Tsatsos hefur aldrei beitt
öllum völdum sínum sem forseti
þar sem hann hefur ekki viljað
setja sig upp á móti Karamanlis.
Ef Karamanlis verður forseti
mun hann trúlega beita meira
valdi forseta en Tsatsos. Hann
gæti senniléga komið i veg fyrir
allar ráðstafanir nýs forsætisráð-
herra er hann gæti ekki fellt sig
við.
Líklegasti eftirmaður Kara-
manlisar í embætti forsætisráð-
herra er Evanghelos-Averof-Tos-
itsas sem er 72 ára gamall og
hefur verið utanríkisráðherra í
fyrri stjórnum Karamanlisar og
nýtur mikillar virðingar banda-
manna Grikkja.
Annar hugsanlegur eftirmaður
er Georg Rallis, gamall vinur
Karamanlisar.
Begin neitaði
að láta undan
Tel Aviv. 18. apríl. AP.
MENACHEM Begin íorsætisráð-
herra kom til ísraels í dag frá
Washington þar sem hann ræddi
við Carter forseta og sagði að
hann hefði neitað að láta undan i
þremur stórum málum sem
standa í vegi fyrir árangri í
heimastjórnarviðræðunum —
deilunum um Jerúsalem. öryggi á
vesturbakkanum og hvað varðar
Veður
Akureyri 1 hólfskýjað
Amsterdam 14 skýjað
Aþena 23 skýjaö
Barcelona 21 skýjað
Berlfn 13 skýjaö
BrUssel 18 skýjað
Chicago 16 heiöríkt
Feneyjar 15 þokumóöa
Frankfurt 24 skýjað
Genf 15 þoka
Helsinki 5 skýjaö
Jerúsalem 26 heiðríkt
Jóhannesarborg 18 heiöríkt
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Lissabon vantar
London 14 þokumóöa
Los Angeles 30 heiðríkt
Madrid 15 skýjað
Malaga vantar
Mallorca 12 rigning
Miami 24 rigning
Moskva 0 skýjað
New York 16 heiðríkt
Ósló 13 heiðríkt
París 21 skýjað
Reykjavík 1 léttskýjað
Rio de Janeiro 28 skýjað
Rómaborg 17 skýjað
Stokkhólmur 10 heiðríkt
Tel Aviv 26 heiðríkt
Tókýó 17 heiðríkt
Vancouver 12 skýjað
Vínarborg 18 heiðrikt
völd heimastjórnar Palestínu-
Araba.
Begin kvaðst hafa vísað ein-
dregið á bug tillögum sem miðuðu
að nýrri skiptingu Jerúsalem og
sagðist heldur ekki hafa samþykkt
að Arabar í borginni fengju að
kjósa til heimastjórnar Palestínu-
manna. Hann sagði að Israels-
menn mundu sem fyrr bera áb-
yrgðina á öryggi á vesturbakkan-
um og að völd heimastjórnarráðs
yrðu takmörkuð þannig að það
gæti ekki breytzt í eins konar þing
sem mundi leiða til stofnunar
Palestínuríkis.
Begin og Carter urðu sammála
um nær daglega fundi um heima-
stjórnarviðræður og þær eiga að
hefjast 27. apríl og miða að því að
samkomulag náist um helztu mál
sem varða form sjálfstjórnar
Araba sem búa við ísraelska
stjórn.
Begin neitaði að segja nokkuð
um stjórnarkreppu þá sem er
komin upp í Israel vegna gagnrýni
Ezer Weizman landvarnaráðherra
og áskorunar hans um skjótar
kosningar. Hann kvaðst mundu
kynna sér ummæli ráðherrans og
sagði að ef hann sæi ástæðu til að
svara þeim mundi hann gera það.
Sprenging
í kauphöll
Jóhannesarborg. 18. apríl AP.
SPRENGING varð einum verka-
manni að bana í kauphöllinni í
Jóhannesarborg í dag að sögn
yfirvalda. Fjórir aðrir verka-
menn brenndust, tveir þeirra
alvarlega.
Vinnuslys olli sprengingunni.
Eldur úr logsuðutæki kveikti í
lími sem var notað til að leggja
flísar.
Truflun varð ekki á viðskiptum í
kauphöllinni.
Bush og Kennedy leggja sig
alla fram í Pennsylvaniu
Frá fráttaritara Morgunbladsins
í Washington. Önnu Bjarnadóttur.
FORKOSNINGAR bandarísku
stjórnmálaflokkanna hefjast að
nýju eftir þriggja vikna hlé í
Pennsylvaníu á þriðjudag. Mik-
ið veltur á úrslitunum þar fyrir
þá Edward Kennedy, frambjóð-
anda demokrata og George
Bush, frambjóðanda republik-
ana. Þeir hafa báðir unnið
langtum færri forkosningar
fram til þessa en Jimmy Carter
og Ronald Reagan, keppinautar
þeirra. Sigur Kennedys og Bush
í Pennsylvaníu gæti snúið kosn-
ingabaráttu þeirra við og dreg-
ið úr líkunum á sigri Carters og
Reagans á landsþingum flokk-
anna í sumar.
Þetta verður í fyrsta sinn í
kosningabaráttunni, sem Bush
og Reagan bítast tveir um at-
kvæði reþublikana. John Ander-
son er ekki í kjöri í Pennsyl-
vaníu. Hann hefur tekið sér viku
frí úr kosnigabaráttunni til að
hugleiða, hvort hann eigi að
bjóða sig fram sjálfstætt til
forseta. Ronald Reagan hefur
ekki eytt miklum tíma í Penn-
sylvaníu, en George Bush hefur
lagt nótt við nýtan dag í leit að
stuðningi kjósenda.
Bush hefur eytt miklum fjár-
munum í auglýsingar í sjónvarpi
og öðrum fjölsmiðlum Pennsyl-
vaníu. Þannig hefur hann náð til
mun fleiri kjósenda en hann
getur með fundarhöldum ein-
göngu. Hálftímaþættir, þar sem
hann svarar spurningum kjós-
enda, hafa vakið mesta athygli.
Bush var ásakaður í byrjun
kosningabaráttunnar, eftir að
hann vann prófkosningarnar í
Iowa og hlaut þannig mikla
kynningu, fyrir að forðast mál-
efnalega umræðu. Nú hampar
hann skoðunum sínum í sífellu
og reynir að gera grein fyrir
muninum á skoðunum sínum og
Ronalds Reagan.
Bush gerir mikið úr reynslu
sinni sem sendiherra Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum
og í Kína og sem yfirmaður
Bandarísku leyniþjónustunnar.
Bush er frjálslyndari en Reagan,
en þó ekki svo mjög, að það geti
fælt marga republikana frá hon-
um. Bush segist ætla að halda
kosningabaráttu sinni áfram að
landsþingi republikana, hvernig
sem kosningarnar í Pennsyl-
vaníu fara. En ef honum gengur
illa þar eftir að hafa eytt
miklum tíma og fjármunum í
ríkinu mun barátta hans fyrir
útnefningu flokksins virðast til-
gangslaus.
Edward Kennedy sigraði
Jimmy Carter í forkosningunum
í New York fyrir fjórum vikum.
Síðan hefur hann ferðast vítt og
breitt um Pennsyvaníu og vonar,
að sigurinn endurtaki sig, en
Pennsylvaníu svipar að mörgu
leyti til New York. Skoðana-
kannanir sýna, að Kennedy hef-
ur sigið á Carter undanfarið, en
aðeins skoðanakannanir starfs-
manna Carters hafa sýnt að
Kennedy sé líklegur sigurvegari
í forkosningunum.
Fréttir af yfirvofandi atvinnu-
leysi í bifreiða- og byggingariðn-
aði í vikunni munu líklega
hjálpa Kennedy í kosningunum á
þriðjudag. Hann hefur hlotið
stuðning fjölda verkalýðsfor-
ingja í Pennsylvaníu og borgar-
stjóri Philadelphíu hefur lýst
yfir stuðningi sínum við hann.
185 fulltrúar verða kjörnir í
Pennsylvaníu á þriðjudag á
lansþing demókrata. Þótt
Kennedy takist að vinna meiri
hluta þeirra, á hann samt afar
litla von um að hreppa útnefn-
ingu flokksins í ágúst. Áfram-
haldandi barátta hans mun þó
skiljanlegri, ef hann vinnur í
Pennsylvaníu en ef hann tapar.