Morgunblaðið - 19.04.1980, Page 27

Morgunblaðið - 19.04.1980, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRIL 1980 27 Meirihlutinn hækkaði útsvarið um 8%: Hlííiö Reykvíkingum við því að greiða hærri skatta — segirÓlafur B. Thors Á fundi borgarstjórnar sem haldinn var á fimmtu- dagskvöld, fór fram síðari umræða um fjárhagsáætl- un borgarinnar fyrir árið 1980. í upphafi umræðunnar hélt borgarstjórinn í Reykjavík, Egill Skúli Ingibergsson, hina hefð- bundnu framsöguræðu. Borgarstjóri sagði að ekki hefði verið talið rétt að afgreiða frumvarpið, fyrr en fjárlög ríkisins hefðu endanlega verið sett. Hvað útsvörin varðaði sagði hann að í tekjuspá fyrir þetta ár væri gert ráð fyrir 48,5% tekjuhækkun borgarbúa milli ára. Hann sagði að meirihluti borgar- stjórnar hefði lagt fram tillögu um að nýtt verði heimild til útsvarsálagn- ingar að átta prósentum, en heimildin var ákveðin á Alþingi fyrir stuttu. Þetta myndi þýða 1712 milljóna króna tekjuauka fyrir borgarsjóð. Um fasteigna- gjöldin sagði borgarstjóri að áætlað væri að þau skiluðu 6082,4 milljónum í borgarsjóð á þessu ári, en það væri um 79,8% hækk- un frá frumvarpi síðasta árs. Hvað gjaldaliðinn varðaði, sagði borgarstjóri að liðurinn „stjórn borgarinnar" myndi hækka um 20,42% frá fyrri frumvarpstölu. Liðurinn „Heilbrigðis- og hreinlæt- ismál“ myndi lækka um 2% frá þeirri frumvarpstölu, en liðurinn „Önnur útgjöld" myndi hækka um 148% frá þeirri sömu tölu. Þá rakti Egill Skúli nákvæmlega alla gjalda- og tekjuliði borgarsjóðs, en hér er aðeins borið niður á nokkr- um stöðum. I lok máls síns sagði borgarstjóri að hann gerði það að tillögu sinni að frumvarp að fjárhagsáætlun borgarinnar verði samþykkt við þessa umræðu í borgarstjórn, með þeim breytingum sem fram kæmu í fundargerð borgarráðs frá 15. apríl sl. Einnig lagði hann til að frum- varp að fjárhagsáætlun fyrirtækja borgarinnar verði samþykkt eins og það var lagt fyrir borgarstjórn í desember. Lítil áhugi á ráðdeild og sparnaði Að máli borgarstjóra loknu tók til máls Birgir Isl. Gunnarsson (S). Birgir gagnrýndi þann stutta tíma sem minnihlutanum hefði gefist til að athuga frumvarpið, en það hefði aðeins legið fyrir í sinni lokamynd í tvo daga. Þá vék Birgir að frumvarpinu sjálfu og sagði að niðurstöðutölur borgarsjóðs væru Frá borgar- stjórn að þessu sinni tæplega 40 milljarð- ar, en það væri 65% hækkun frá fjárhagsáætlun ársins 1979. Þetta væri gfurleg hækkun, og það annað árið í röð. Þetta sagði Birgir bera vott um aukna eyðslu, aukna þenslu hjá borginni, minnkandi aðhald og lítinn áhuga á ráðdeild og sparnaði. Hann sagði það helsta áhugamál vinstri meirihlutans að hækka stöðugt skatta og seilast lengra og lengra í vasa skattborg- aranna. Hann benti á að skattar hækkuðu nánast daglega og nefndi sem dæmi hækkun söluskatts, hækkun flugvallargjalds, hækkun tekjuskatta o.fl. Hann sagði að hækkanir síðustu vinstri stjórnar og núverandi, næmu 31 milljarði í óbeinum sköttum og 25 milljörðum í beinum. „Og ekki eru vinstri mennirnir betri í borgarstjórn," sagði Birgir. Hann sagði að við fyrri umræðu í borgarstjórn, um fjárhagsáætlunina hefði verið fjallað um álagningu fasteigna- skatta og aðstöðugjalds. Þar hefði verið felld tillaga frá sjálfstæðis- mönnum, um að notaðar yrðu sömu álagningarreglur og árið 1978, — sem notaðar voru fyrir tveimur árum. Hann sagði því aukaálagn- ingu vinstri flokkanna nema 1368 milljónum í fasteignasköttum, 107,4 milljónum í aðstöðugjöldum og 1.122,2 milljónum í aðstöðu- gjöldum. Því næst vék Birgir máli sínu að Alþýðuflokknum og sagði að skoð- un flokksins á Alþingi væri öll önnur en í bcrgarstjórn. Á Alþingi berðist flokkurinn gegn útsvars- heimild og skattpíningu, en í borg- arstjórn væri hann hlynntur því. Þessu næst rakti Birgir lækkun- artillögur sjálfstæðismanna sem miðuðu að því að komast verði hjá því að leggja nema 11% útsvar á borgarbúa. Tillögurnar voru m.a. byggðar á því að ráða ekki í nýjar stöður hjá borginni, framlög til gatna og holræsagerðar og til ýmissa byggingarframkvæmda lækki um 5%. Framlag til BÚR lækki um 350 milljónir, — niður í 1 milljarð, framlag til SVR lækki um 150 milljónir o.fl. Þá voru ýmsar aðrar tillögur til lækkunar lagðar fram og námu þær samtals um 1500 milljónum króna. Einnig fluttu sjálfstæðismenn tillögur um hækkun nokkurra tekjuliða. Eyðsla á öllum sviðum Næstur á mælendaskrá var Páll Gíslason (S). Hann benti á að í fjárhagsáætluninni kæmi fram að þar væri á ferðinni eyðsla á öllum sviðum. Til að endar næðust saman þá væri gripið til þess ráðs að auka skattheimtuna. Skattar væru lagð- ir á þó svo að kaupmáttur héldist ekki í hendur við verðbólgu og því væri alltaf minna og minna eftir hjá borgurunum til ráðstöfunar. Páll sagði að vinstri meirihlutinn gæfi sér það að tekjur borgarbúa hækkuðu um 48,5% milli ára, en samt ætlaði meirihlutinn að hækka útsvör um 67,5%, fasteignagjöldin um 79,8%, aðstöðugjöldin um 46,4% og gatnagerðargjöld og benzínfé um 58,4%. Hann sagði að svo mætti lengi telja, en heildar- tekjur borgarinnar, skv. frumvarp- inu, ættu að hækka um 65% þó að tekjur fólksins í borginni hefðu ekki hækkað nema um 48,5%. Ekki byggt á raunveruleika Að máli Páls loknu kom í pontu Sigurjón Pétursson, forseti borgar- stjórnar (Abl). Hann sagði að útgjöld borgarinnar hækkuðu mest á sviði félagsmála, en það væri gert til að jafna tekjur borgarbúa. Hann sagðist ekki telja gagnrýnis- vert að nota hluta þeirrar heimild- ar til útsvarshækkunar sem ákveð- in hefði verið á Alþingi. Hann sagði einnig að nú hefði Sjálfstæð- isflokkurinn lagt fram tillögur um það að útgjöld borgarinnar skyldu skorin niður, til að sýna fram á að óþarft væri að leggja þetta aukna útsvar á. í þessum tillögum sjálf- stæðismanna, sagði Sigurjón ekk- ert vera byggt á raunveruleika, heldur aðeins getsökum og gagn- rýndi hann tillögurnar harðlega. Vanþekking meirihlutans Elín Pálmadóttir tók næst til máls. Hún gagnrýndi mjög van- þekkingu borgarfulltrúa meiri hlutans á högum borgarbúa, þegar þeir gera lítið úr síauknum skatta- álögum á þá, eins og Björgvin Guðmundsson hefði m.a. gert þann Birgir ísl. Gunnarsson i ræðustól sama morgun í blaði sínu undir fyrirsögninni „Alögur í algjöru lágmarki". Og Sjöfn Sigurbjörns- dóttir talaði drýgindalega um að ekki hefði í útsvarinu verið lagst alveg eins þungt á borgarbúa eins og heimildir frekast leyfðu. Ekki væru samflokksmenn þeirra borg- arfulltrúanna sammála um greiðsluþol skattgreiðenda, saman- ber Kjartan Jóhannsson á þingi, sem átaldi harðlega að nýjar skattaálögur ríkisstjórnar ætluðu að lenda þyngst á láglaunafólki og einstæðum mæðrum, og lýsti því yfir í sama blaði og Björgvin að „Alþýðuflokkurinn vildi stemma stigu við skattaæðinu". Meðan stjórnvöld boði 4,5% kaupmáttar- skerðingu, víli vinstri stjórn og borgarfulltrúar meirihlutans í borgarstjórn ekki fyrir sér að taka æ stærri hlut af ráðstöfunarfé heimilanna, sem hefðu ekkert að sækja ábót eins og skattglöðu borgarfulltrúarnir þeirra. Þeir gætu ekki fyrst ákveðið í hvað skuli eytt, og síðan hrifsað þá upphæð í sinn hlut. Það væri röng aðferð við gerð fjárhagsáætlunar á svo erfið- um tímum að miða hana við að geta bara gengið í auknum mæli í vasa skattgreiðenda. Raunhæf fjár- hagsáætlun Næstur tók til máls Björgvin Guðmundsson (A). Hann sagði að með þessum álögum væri raungildi útsvara haldið, og þess gætt að þau rýrnuðu ekki í verðbólgunni. Björgvin sagði að sú fjárhagsáætl- un sem nú hefði verið lögð fram væri sú j-aunhæfasta sem lögð hefði verið fyrir borgarstjórn í hans tíð. Hann sagði um lækkun- artillögur sjálfstæðismanna að það væri greinilegt að „enginn áhugi væri hjá íhaldinu til að byggja upp atvinnulífið í borginni“. Vegna 8% hækkunar á útsvörum væri m.a. hægt að hrinda af stað byggingu á B-álmu Borgarspítalans, ásamt mörgum öðrum þörfum málum. Meirihlutinn skattheimtuglaður- • Næstur tók til máls Davíð Oddsson (S). Hann sagði að Sigurjón væri að vonum óánægður með að sjálfstæð- ismenn skyldu geta sett fram sparnaðartillögur, en rök hans væru léttvæg. Hann sagði það algerlega óraunhæft að ganga til ríkisvaldsins, eins og Sigurjón hefði gert, og biðja um heimild til hækkunar útsvara, þegar sýnt væri að tekjur myndu hrökkva fyrir gjöldum. Davíð sagði að það væri út í bláinn að halda því fram að tillögur sjálfstæðismanna væru óraunhæfar, hins vegar væri það öllum ljóst að einkenni borgar- stjórnarmeirihlutans væri skatt- heimtugleði. Því næst vitnaði Davíð í viðtal Þjóðviljans við borg- arstjóra, sem birtist um áramótin, en í viðtali þessu kom fram að fjárhagsstaða borgarinnar væri betri en um áramótin þar á undan. En samt fyndi meirihlutinn sig knúinn til þess að hækka skatta. Davíð sagði niðurstöðuna þá að núverandi meirihluti treysti sér ekki til að reka borgarsjóð öðruvísi en fá 14% meiri tekjur umfram verðbólgu, en Sjálfstæðisflokkur- inn nokkurntíman gerði. Þá sagði Davíð að sjálfstæðismenn í borgar- stjórn væru sjálfum sér samkvæm- ir, afstaða þeirra í borgarstjórn væri sú sama og fulltrúa þeirra á Alþingi, en það væri annað en hjá fulltrúum rKata. I borgarstjórn- vildu þeir skattahækkun en á Alþingi skattalækkun. Ástæðan væri sú að þeir vildu getað brosað framan í alla. Er Davíð hafði lokið málinu, tók til máls Sigurður Tómasson (Abl). I ræðu hans kom það m.a. fram að hann teldi enga von fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að vinna meirihlut- ann í borgarstjórn aftur á næst- unni. Ekki tímabært að hækka skatta Þá kom í ræðustól Ólafur B. Thors (S). Hann sagði að það væru óvenju skýrar línur í því sem í borgarstjórn væri að gerast. Þar væru tvær stefnur ráðandi. Annars vegar væri sú stefna sem byggði á óhóflegri skattheimtu, en hins veg- ar væri sú stefna að skattleggja borgarana í hófi og taka mið af þvi sem væri að gerast í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Hann sagði að sjálfstæðismenn teldu ekki tíma- bært að hækka skatta á borgarbúa. Menn yrðu að gera sér grein fyrir því að borgin hefði ekki ráð á að framkvæma ýmislegt það sem æskilegt væri. Borgarbúar yrðu að meta það hvort þeir vildu fá hærri skatta vinstriflokkanna, eða lægri skatta, ef Sjálfstæðisflokkurinn væri við völd. Þá gat Ólafur þess að hann teldi að samneyslustefnan hefði verið allt of lengi ráðandi í borginni. Afleiðing þess væri sú að nú geysaði óðaverðbólga í landinu. Þá vék hann orðum sínum að meirihluta borgarstjórnar og sagði: „Reykvíkingar eru ykkur ekki þakklátir fyrir stefnu ykkar í borgarmálum. Það er ekki viturlegt að ganga svo nærri Reykvíkingum í skattheimtu, eins og þið ætlið að gera. Innan fjárhagsáætlunarinnar er mikið svigrúm til að velja og hafna, og hlífið þið Reykvíkingum við því að greiða hærri skatta.“ U ppby ggingarstef na meirihlutans Er Ólafur hafði fokið máli sínu, tók til máls Kristján Benediktsson (F). Hann sagðist telja meirihlut- ann sýna ábyrgð í störfum sínum, og hann myndi verja þeim pening- um vel, sem fengjust við útsvars- hækkunina. Hann sagði að sjálf- stæðismenn hefðu lítið minnst á það í hvað meirihlutinn ætlaði að verja þessum peningum, og forðuð- ust að nefna það hvar þeir ætluðu að skera niður. Þá vék hann orðum sínum að Ólafi B. Thors. Hvað varðaði orð Ólafs um stefnurnar tvær sem tækjust á í borginni, sagði Kristján að það væru sam- dráttarstefna Sjálfstæðisflokksins og uppbyggingarstefna meirihlut- ans, en sú stefna kæmi öllum til góða, ekki síst skólafólki. Hann sagði að með fjárhagsáætluninni væri reynt að mæta þeim kostnað- arhækkunum sem von væri á á árinu. Nú væri það gert í fyrsta sinn að framkvæmdir væru færðar upp til verðlags ársins, þ.e. áætl- aðrar meðalbyggingarvísitölu árs- ins. Hann sagði að ekki mætti draga Reykjavík niður í svaðið, þó að ríkisvaldið hækki skatta. Krist- ján sagði skattheimtu ríkisins mikla og tæpast hægt að halda lengur áfram á þeirri braut. Þá sagði hann að sjálfstæðismenn öfunduðu meirihlutann af fjár- hagsáætluninni og væri hún að þeirra skapi. Hins vegar reyndu þeir að telja fólki trú um að meirihlutinn væri skattpíningar- meirihluti, en það væri hann ekki. Næst talaði Adda Bára Sigfús- dóttir (Abl). Hún sagði að það hefði ekki verið henni ánægjuefni fyrr en nú að afgreiða fjárhagsáætlun borgarinnar. Það væri fyrst nú sem hún gæti komið áhugamálum sínum að. Hún sagði að þeirra stefna miðaði að því að taka af opinberu fé til að auka félagslega samhjálp, samvinnu og félagslega þjónustu. Ekki seilast of langt í vasa skattborgaranna Síðastur talaði Markús Örn Ant- onsson (S). Hann sagði að Adda hefði sagt að nú fyrst væri henni ánægjuefni að afgreiða fjárhags- áætlun, og ástæðan væri sú að fyrr hefði henni ekki tekist að koma fram áhugamálum sínum. Inntakið í þeim áhugamálum væri það að áhersla skyldi lögð á samvinnu og samhjálp í borginni. Síðan nefndi Markús ýmis dæmi af sviði félags- mála, þar sem þessu er þveröfugt farið, og slík mál skorin niður á ýmsum sviðum. Hann sagði það tilefni til athugana hvort hér fylgdi hugur máli, þegar svo væri komið. Hann sagði að dæmin sýndu ljós- lega að meirihlutinn hefði vikið í veigamiklum atriðum frá yfirlýstri stefnu sinni, a.m.k. þeirri stefnu sem boðuð var kjósendum. Síðan sagði Markús: „Sjónarmið okkar er það að seilast ekki of langt í vasa skattborgaranna, en vera ekki með sífelldar yfirboðs tillögur, eins og fyrrverandi meirihluti var svo iðinn við.“ Er hér var komið sögu var umræðum lokið. Þá voru bornar upp tillögur meirihlutans og breyt- ingartilögur sjálfstæðismanna. Er ekki að orðlengja það að allar tillögur sjálfstæðismanna voru felldar, en fjárhagsáætlunin í heild var samþykkt með átta samhljóða atkvæðum. Sjálfstæðismenn sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.