Morgunblaðið - 19.04.1980, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRIL 1980
33
isstætt, hve eindregið hann tók
upp hanzkann fyrir útgerð togar-
ans Fonts á Þórshöfn, þegar hún
átti í fjárhagserfiðleikum og radd-
ir úr röðum sjálfstæðismanna
gagnrýndu hana hvað mest. Sér-
fræðinga og reiknimeistara svo að
ekki sé talað um tölvuspekinga
lítur Jónas tortryggnisaugum,
þegar þeir ge/a sér forsendur og fá
út glæstar útkomur, þar sem hinn
mannlegi þáttur verður útundan.
Þetta birtist líka í skoðunum
hans á landbúnaði. Landbúnaður
er í augum hans annað og meira
en matvælaframleiðsla. I sveit
eiga menn þess kost að alast upp í
samskiptum við náttúruna við
aðhald hinnar daglegu annar og
þau uppeldisáhrif eru holl. Jónas
mun vera höfundur spakmælisins:
Búskapur er heyskapur. Það hefur
verið sú lífsregla, sem bezt hefur
dugað íslenzkum bændum á öllum
öldum. Sjálfstæði í hugsun er
skýrasta einkenni Jónasar og hon-
um þykir heiður að því að vera
kallaður sérvitur.
Bróðir Jónasar var Jakob Ó.
Pétursson ritstjóri, hagyrðingur
og húmoristi. Ég minnist þess ekki
að kunna vísu eftir Jónas, en
margar hefur hann farið með fyrir
mig, jafnvel hlífðarlausan kveð-
skap um hann sjálfan, sem fluttur
hefur verið á samkomum, svo sem
þorrablótum, og hann hefur kunn-
að vel að meta.
Ég tel, að við þessi tímamót geti
Jónas litið stoltur yfir góðan
vinnudag. Hann hefur náð því
marki, sem er metnaðarmál hvers
heilbrigðs manns,
„að eiga þegar árin líða
eftir spor í tímans sjá“.
Með hlýjum kveðjum frá
brekóttum fóstra.
Mattías Eggertsson
Okkur finnst oft á tíðum, þegar
fólk er orðið sjötugt að þá hafi það
lokið ævistarfi sínu. Einnig ætlast
íslenzk löggjöf til þess í mörgum
tilfellum.
Þegar ég hugsa til nágranna
míns, Jónasar Péturssonar, sem er
sjötugur í dag, þá finnst mér
slíkur hugsunarháttur mjög óeðli-
legur svo ekki sé meira sagt. Jónas
er svo störfum hlaðinn að hann
hefur vart tíma til þess að neyta
matar eða svefns. Þegar ég sé vin
minn koma gangandi heim í morg-
unkaffið um hálftíuleytið á
morgnana, þá búinn að vinna á
skrifstofunni frá því kl. 7, hvarflar
vissulega að manni að bak hans sé
byrjað að bogna og óþarflega
mikið af önnum daganna hvíli á
hans herðum — manni, sem kom-
inn er á þennan aldur.
Því er nú eitt sinn þannig varið
með Jónas að hann er svo mikill
hugsjóna- og starfsmaður að hann
kann ekki við sig öðruvísi en að
hafa nóg að gera og vinna hug-
sjónum sínum allt það gagn, sem
hann kann.
Jónas Pétursson er fæddur 20.
apríl 1910 á Hranastöðum í Eyja-
firði. Foreldrar hans voru: Pétur
Ólafsson, bóndi og kona hans
Þórey Helgadóttir frá Leifs-
stöðum. Jónas stundaði nám í
Bændaskólanum á Hólum og
brautskráðist búfræðingur þaðan
árið 1932. Að því námi loknu lagði
hann stund á verklegt nám í
Gróðrastöðinni á Akureyri um
nokkurt skeið.
Árið 1933 kvæntist hann Önnu
Jósafatsdóttur ættaðri úr Skaga-
firði, hinni mætustu konu, og hófu
þau búskap á Hranastöðum sama
ár. Þau bjuggu þar óslitið til
ársins 1947, en það ár gerðist
Jónas tilraunastjóri við búið á
Hafursá á Völlum. Árið 1949
fluttist tilraunastöðin að Skriðu-
klaustri í Fljótsdal og þar var
hann tilraunastjóri til ársins 1962.
Þegar kjördæmaskipuninni var
breytt árið 1959 var Jónas kjörinn
alþingismaður fyrir Austur-
landskjördæmi og sat hann á
þingi til ársins 1971. Um svipað
leyti hófust framkvæmdir við
Lagarfossvirkjun og gerðist hann
starfsmaður þar um tíma, en hin
síðustu ár hefur hann verið fram-
kvæmdastjóri Verzlunarfélags
Austurlands. Þegar Jónas tók við
því starfi gekk rekstur félagsins
fremur illa en sökum árvekni hans
og ósérhlífni hefur honum tekist
að bæta hag félagsins, svo það
nýtur nú vaxandi trausts á sviði
viðskipta. Við félagsmennirnir
stöndum því í þakkarskuld við
Jónas fyrir hans óeigingjarna
starf í þágu okkar og félagsins.
Sem þingmaður reyndist Jónas
Austfirðingum með afbrigðum vel
og störf hans á Alþingi sköpuðu
tímamót fyrir Austurland. Má þar
fyrst nefna frumvarp til laga, sem
hann flutti á Alþingi 1970 um
happdrættisskuldabréf ríkissjóðs
til vega- og brúargerðar á Skeið-
arársandi er opni hringveg um
landið. Þetta frumkvæði Jónasar
flýtti þessari framkvæmd um
mörg ár. En svo einkennilega vildi
til við opnun hringvegarins 1974
að þá gleymdist að þakka Jónasi
sem skyldi hans brautryðjanda-
starf í þessu máli. Það voru aðrir,
sem þá stóðu í sviðsljósinu.
Þá voru það að mestu verk
Jónasar að hafist var handa um
Lagarfossvirkjun. Hafði hann sett
sig mjög vel inn í orku- og
virkjunarmál í landinu öllu og
hefur ætíð lagt áherzlu á sjálf-
stæði héraðanna í virkjunarmál-
um.
I þriðja lagi vil ég benda á að
það var Jónas Pétursson, sem lét
gera og vann að vegaáætlun fyrir
Austurland en sú vegaáætlun var
tímamótaverk í samgöngumálum
á Austurlandi. Á þeim tímum
stóðu allar samgöngur i fjórðung-
unum langt að þaki því, sem
gerðist í öðrum landshlutum.
Þá er vert að minnast þess að
Jónas beitti sér fyrir því að hafin
var leit að jarðvarma á Austur-
landi, þrátt fyrir það að sérfræð-
ingar höfðu talið að litlar vonir
væru til þess að þar fyndist heitt
vatn. Við jarðboranir fannst þó
nægilega heitt vatn í Urriðavatni,
sem nú hefur verið virkjað og ber
yl í bæinn hja íbúunum í nágrenni
Egilsstaða.
Þó að Jónas hefði að sjálfsögðu
mestan áhuga á málefnum í sínu
kjördæmi flutti hann mörg mál á
Alþingi, sem vörðuðu landið allt.
Þar má minna á tillöguflutning
hans um þegnskylduvinnu, loð-
dýrarækt og fleira mætti telja, þó
það verði ekki gert hér. Ég tel því
að pólitísk eftirmæli Jónasar séu
góð og væri hver þingmaður full-
sæmdur af þeim.
Þá skal þess getið að Jónas
hefur skrifað margar greinar í
blöð og flutt erindi í útvarp. Mér
er sérstaklega minnisstætt erindi,
sem hann flutti eitt sinn í
útvarpsþættinum „Um daginn og
veginn". Um það leyti var á
dagskrá útvarpsins þáttur um
lögfræðileg efni, sem nefndist
„Hver er réttur þinn?“ í þessum
þáttum var brýnt fyrir fólki, hver
væri réttur þess til samfélagsins,
en ekki minnst á skyldur þegn-
anna við þjóðfélagið. Jónas gagn-
rýndi þennan málflutning mjög í
erindi sínu. Enda er hann maður
með afbrigðum skyldurækinn, og
gerir fyrst og fremst kröfur til
sjálfs sín. Hefur það verið ein-
kennandi fyrir öll hans störf, bæði
fyrr og síðar.
Fyrir nokkru síðan sá ég litla
minningabók hjá Jónasi frá því að
hann var í barnaskóla. Einn leikur
skólabarnanna var í því fólginn að
þau spurðu hvert annað hvað þau
vildu verða þegar þau yrðu full-
orðin. Svar Jónasar var á þá leið
að hann vildi verða gildur bóndi
og alþingismaður. Kannski er
lífsferill hans dæmi um það, hvað
einbeitni og dugnaður fær áorkað.
Svo sannarlega fékk hann þessar
óskir sínar uppfylltar.
Þegar þau Ánna og Jónas flutt-
ust frá Skriðuklaustri, byggðu þau
sér hús á ásnum vestan Lagar-
fljótsbrúar. Það hús nefndu þau
Lagarfell. Þar hafa þau átt heima
síðan. Þau hjónin eiga 3 börn, sem
eru: Hreinn rafmagnstæknifræð-
ingur í Reykjavík, Erla talsíma-
vörður, Egill Egilsstöðum og Pét-
ur búfræðikandidat, nú við fram-
haldsnám í Svíþjóð.
Þessari ágætu fjölskyldu þökk-
um við nágrannarnir, hinum meg-
in götunnar á Lagarfellinu, fyrir
þá samleið, sem við höfum átt á
undanförnum árum og óskum
þeim til hamingju með tímamótin
og framtíðina.
Þráinn Jónsson.
,Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld” — eru einkunnarorð llapparættis UAS. - l.jósm.: Imvnd.
Nýtt happdrættisár hjá DAS-happdrættinu:
Húseign á 35 milljón-
ir, sumarbústaður á 25
og snekkja á 18,2 millj.
NÝTT happdrættisár er nú að
hefjast hjá Happdrætti Dvalar-
heimilis aldraðra sjómanna og
verður sami háttur hafður á og
áður. að dreifa sem mest topp-
vinningum þess, en það gaf mjög
góða raun í fyrra, að sögn forráða-
manna happdrættisins. Mánaðar-
verð miða verður 1.400 krónur,
ársmiða 16.800 krónur. Dregið
verður í 1. flokki 6. maí.
Vinningaskráin að þessu sinni
verður þannig að hæsti vinningur-
inn verður húseign eftir vali fyrir
35 milljónir króna. Síðan verða 9
íbúðarvinningar, sem dregnir verða
út í 1., 2., 5., 6., 7., 8., 10. og 11.
flokki, hver að upphæð 10 milljónir
króna. I 3. flokki verður dregið um
sumarbústað, fullgerðum með öllum
búnaði og er verðmæti hans 25
milljónir króna. í 4. flokki verður
dregið um skemmtisnekkju með
öllum útbúnaði til úthafssiglinga að
verðmæti 18,2 milljónir króna. í 1.
flokki verður dregið um Ford Must-
ang Accent, að verðmæti 7,4 millj-
ónir. í 6. flokki verður dregið um
Peugeot 305 bíl, að verðmæti rúm-
lega 7,2 milljónir.
Til viðbótar þessum vinningum
verða 7 bílavinningar, sem hver er á
3 milljónir og 91 bílavinningur á 2
milljónir króna hver. Þá eru 300
utanlandsferður á 'á milljón hver
og 5.588 húsbúnaðarvinningar á
100, 50 og 35 þúsund krónur hver
vinningur.
Sala í happdrættinu er mjög góð,
og má vænta, að lausir miðar seljist
upp í flestum umboðum nú í fyrsta
flokki og miðalager er að þrjóta.
Eru því þeir, sem hugsa sér að fá
sér miða eða bæta við sig miðum,
hvattir til að gera það sem fyrst.
Einnig er endurnýjun ársmiða og
flokksmiða hafin.
Við Hrafnistu í Hafnarfirði eru
nú hafnar framkvæmdir við hjúkr-
unardeild, er rúma mun 75 vist-
menn. Er hér um afar brýna
framkvæmd að ræða, þar sem
þörfin fyrir hjúkrunarvistrými er
mjög mikil og aðkallandi og þess
vegna mikils um vert, að hægt verði
að flýta fyrir þessari framkvæmd
sem mest.
60% tekna happdrættis DAS
renna til þessarar framkvæmdar,
en 40% til byggingasjóðs aldraðra,
er styrkir byggingar dvalarheimila
út um land. Hver miði í happdrætti
DAS er því dýrmætt framlag til að
búa öldruðum áhyggjulaust ævi-
kvöld, jafnframt því sem hann er
möguleiki til stórvinnings.
Lystisnekkja. sem er vinningur
milljónir króna.
4. flokki að verðmæti 18.2
í sumarbústað DAS. sem er vinningur í 3. flokki að verðmæti
25 milljónir króna.