Morgunblaðið - 19.04.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980
37
Jón Kr. Olsen, Keflavik:
Kjör sjómanna
á skuttogurum
Trúnaðarmannanámskeið hjá
Verzlunarmannafélagi Ryíkur
Verzlunaríélag Reykjavikur gekkst fyrir trúnað-
armannanámskeiði sem stóð 14.—17. apríl.
Tuttugu manns sóttu námskeiðið sem haldið var
á Hótel Esju. Á þessu námskeiði var farið yfir
helztu verkefni og stöðu trúnaðarmanna, vinnu-
löggjöf, kjarasamninga, tryggingamál og fleira.
Magnús L. Sveinsson formaður VR setti nám-
skeiðið og ræddi um skipulag og starf VR, en
þessi mynd er frá fundi, þar sem Guðmundur H.
Garðarsson, Pétur H. Blöndal og Sigfinnur
Sigurðsson fjölluðu um lífeyrissjóð VR og
sjúkrasjóð.
Tilhögun útivistar á
Kili og í Ódáðahrauni
í MARZMÁNUÐI komu út
tvö af fjölritum Náttúru-
verndarráðs. Fjallar fjölrit
nr. 7 um tilhögun útivistar á
Kili og hefur Jón E. ísdal
unnið það, en f jölrit nr. 8 um
tilhögun útivistar í ódáða-
hrauni og hefur Jón Gauti
Jónsson haft veg og vanda af
því.
í formála að fyrra ritinu
segir Árni Reynisson, fram-
kvæmdastjóri Náttúruvernd-
arráðs, m.a.: „Þessi ritgerð er
innlegg í umræður um það,
hvernig stuðla megi að já-
kvæðum ferðaháttum í
óbyggðum íslands og draga úr
óæskilegum áhrifum aksturs
þar. Náttúruverndarráð,
Vegagerð ríkisins, Landmæl-
ingar íslands og ferðafélög
hafa tekið upp víðtækt sam-
starf um umhverfismál vega-
gerðar og ferðamennsku og
stefna m.a. að samræmingu í
ákvörðun ferðamannaslóða,
merkingu þeirra og viðhaldi. I
skýrslu um ferðamál: Óbyggð-
ir (Jón E. ísda) og Árni
Reynisson) er reynt að skil-
greina orsakir fyrir land-
skemmdum af akstri í óbyggð-
um og benda á leiðir til
úrbóta. Hér er stigið næsta
skref með því að lýsa vanda-
málum á afmörkuðum
óbyggðasvæðum: Kjalvegi.
Tekið er mið af núverandi
ástandi og hugsanlegum
breytingum á ferðaháttum á
svæðinu. í framhaldi verða
væntanlega gerðar hliðstæðar
tillögur um Ódáðahraun,
Sprengisand, svæðið að Fjalla-
baki og Vesturöræfum."
Næsta rit er þegar út komið,
ritið um Ódáðahraun. í loka-
orðum þess segir Jón Gauti
Jónsson m.a.: Með aukinni
fræðslu og góðum vilja allra
þeirra, sem tengjast útivist-
armálum, ætti það markmið
að nást, sem sett var í upphafi,
en það var að nýta sem best
útivistarmöguleika Ódáða-
hrauns. Með tilhögun þeirri, er
hér að framan hefur verið
bent á, ætti slíkt að nást, án
þess að komi til árekstra milli
útivistargreina. Því ferðafólki,
sem vill notfæra sér bifreið-
ina, er gefinn kostur á hring-
akstri um Ódáðahraun eftir
tiltölulega greiðfærum og
merktum slóðum og gistiað-
stöðu, annaðhvort í skála eða á
tjaldsvæði með viðunandi
hreinlætisaðstöðu. Göngufólki
er hins vegar gefinn kostur á
að ferðast um miðbik Ódáða-
hrauns. Er ólíklegt að nokkurn
tíma verði þar svo margir
saman komnir, að hver og einn
megi þar ekki næðis njóta.“
í viðtölum við fjölmiðla setur
formaður L.I.U. Kristján Ragnars-
son fram fyllyrðingar um tekjur
sjómanna á Isafjarðartogurunum, á
þann veg, að fyrir þá sem ekki
þekkja betur til, gætu haldið að
þessi laun sem hann nefnir þar séu
almennt séð laun togarasjómanna.
Aróður af því tagi sem þarna er
viðhafður kallar að sjálfsögðu á
leiðréttingu.
Laun sjómanna eru árslaun
þeirra, og þá verður myndin nokkdð
önnur. Það er staðreynd að togara-
sjómenn eru verstlaunaða stéttin á
landinu. Þeir sem vinna langan
vinnudag vilja fá laun sín sam-
kvæmt því . Fólk sem vinnur
bónusvinnu í frystihúsum vill fá
laun eftir afköstum. Það fólk getur
margfaldað daglaun sín. Kemur mér
því spánskt fyrir sjónir að lesa orð
Jóhönnu Pálsdóttur frá Vestmanna-
eyjum í Þjóðviljanum í dag, þriðju-
daginn 15. apríl, þar sem hún telur
sjómenn hafa orðið það góð laun að
þau þurfi ekki að bæta meðan aðrir
hafa ekki fengið launahækkanir til
að vega upp þennan s.k. launamun.
Hefur fólk gert sér almennt ljóst
hver vinnan er á sjómanninum á
bak við hver tonn sem hann kemur
með að landi. Ég mun hér á eftir,
upplýsa um tekjur þessara manna á
ársgrundvelli, sem er byggt á
skýrslu L.Í.U. fyrir tímabilið 1/1
1979 til 31/12 1979.
Á svæðinu Vestmannaeyjar-Snæ-
fellsnes voru gerðir út 25 minni
skuttogarar á árinu 1979, þar af
voru 23 með meira en 300 úthalds-
daga. Meðal úthaldsdagafjöldi var
316 dagar. Meðalskiptaverðmæti kr.
462,7 milljónir. Meðal hásetahlutur
kr. 8.886.000,00.
Á Norðurlandi voru gerðir út 18
minni skuttogarar. Meðal úthalds-
dagafjöldi voru 316 dagar. Meðal
skiptaverðmæti 464,7 milljónir.
Meðal hásetahlutur kr. 8.930.000,00.
Á Austurlandi voru gerðir út 11
minni skuttogarar. meðal úthalds-
dagafjöldi 305 dagar. Meðal skipta-
verðmæti 416,0 milljónir króna.
Hásetahlutur kr. 7.986.000,00.
Á Vestfjörðum voru gerðir út 12
minni skuttogararm Meðal úthalds-
dagafjöldi 334 dagar. Meðal háseta-
hlutur kr. 12.700.000,00.
Að fengnum þessum tölum, ætti
að vera auðvelt fyrir fólk að reikna
út hvaða laun þessir menn hafa á
tímann miðað við aðra launahópa í
fiskvinnu. En þá ber að gæta þess
við slíkan útreikning að þessir menn
eru við vinnu allan sólarhringinn —
24 klst. á sólarhring. Það ætti einnig
að taka tillit til þess, að þessir menn
vinna við verstu aðstæður eins og
allir þeir sem hafa eitthvað verið á
sjó geta dæmt um. í sambandi við
laun togarasjómanna á Vestfjörðum
ber þess einnig að gæta að þeir hafa
sennilega lengri vinnutíma en gerist
á öðrum togurum. Fyrir þá sem
kannski nenna ekki að reikna út
tímakaup þessara manna, get ég
upplýst, að það er einhvers staðar á
bilinu tólf hundruð og tvö þúsund og
tvö hundruð, eftir því hvað menn
vilja ætla að vinna þessara manna
sé mikil á hverjum sólarhring, en
skylduvinna þeirra eru 12 klst á
sólarhring. Ekki er það óalgengt, að
frívaktir séu staðnar til að koma
aflanum undan. Og mundi ég eftir
viðtöl við sjómenn þessara skipa
telja að 15 til 18 klst. í sólarhring
væri nær því sanna um meðal
vinnutíma þessara manna. Þá ber
að gæta þess einnig við útreikninga
á launum þessara manna, að ef
unnið er í landi á vöktum, kemur
vaktaálag allt að 33% til 26%. Ég
undrast ekki þó oddviti útgerðar-
manna reyni að slá ryki í augu
landsmanna um tekjur þessara
manna, en þegar fólk úr verkalýðs-
hreyfingunni reynir að gera baráttu
vestfirsku sjómannanna tortryggi-
lega finnst mér mælirinn fullur. Það
er staðreynd, að það er ekki nema
harðgerðustu mennirnir sem geta
stundað vinnu á þessum skipum.
Margir þessara manna eru að gefast
upp. Launin eru ekki í neinu sam-
ræmi við vinnuálag og áhættu. Laun
þessara manna í krónutölum litið
eru kannski há, en vinnan sem
Iiggur þarna á bak við er ofboðsleg.
Fólk ætti áður en það fer að býsnast
yfir launum þessara manna að
íhuga hvar þjóðin væri stödd ef
þessir menn myndu nú taka upp á
því að vinna aðeins 8 klst. dagvinnu
og kannski tvo tíma í eftirvinnu.
Þetta er ekkert gamanmál. Útgerð-
armenn og reyndar þjóðin öll ættu
að íhuga vel afstöðu sína til sjó-
manna almennt, því þó sjómenn á
skuttogurum séu með þessa háu
krónutekjur eru aðrir sjómenn enn
verr settir. Þessi skip verða ekki
gerð út nema með úrvals mannskap,
og það úrval er nú til staðar. Ef þið
hrekið þessa menn í land, útgerð-
armenn, fyrir vanmat á störfum
þeirra, þá má leggja togaraútgerð á
Islandi niður. Laun þessara manna
á að hækka, eða það sem er kannski
skynsamlegra, að þeir hafi frí á
fullum launum í minnst tvo til þrjá
mánuði á ári.
Að lokum sendi ég öllum sjó-
mönnum baráttukveðjur og árna
þeim allra heilla í baráttu þeirra
fyrir bættum kjörum. Standið sam-
an og sækið ykkar rétt, það eruð þið
sem með vinnu ykkar gerið mögu-
legt að lifa í landi þessu því
mannlífi sem þar er lifað.
Jón Kr. Olsen
Fóbos, annað
tungla Mars
Mars er næsta reikistjarna
utan við braut jarðar og er 227
milljón km frá sólu. Umferð-
artími hennar er 687 dagar.
Um Mars ganga tvö örlítil
tungl. Fóbos og Deimos. Fóbos
er 12 km í þvermál og fjarlægð
hans frá yfirborði Mars er
aðeins 6.100 km, eða nokkru
minna en þvermál Mars, sem er
6.800 km enda gengur Fóbos
með geysihraða og fer eina
hringferð á 7 klst. og 39 mín.
Deimos er enn minni eða 9
km í þvermál. Fjarlægð hans
frá yfirborði Mars er 20.000 km
og umferðartíminn er 30 klst. og
21 mín.
Ymsar kenningar hafa verið
uppi um þessi tvö tungl, m.a.
þær, að þau kunni að hafa verið
gerð af mannahöndum, þ.e. af
hugsanlegum íbúum reiki-
stjörnunnar Mars, áður en súr-
efnisleysi og aðrir erfiðleikar
hafi gert hnöttinn óbyggilegan.
Hafi þeir svo getað hafst við á
eða í þessum gervitunglum
lengur eða skemur.
Nú er fullsannað, að þessar
getgátur hafa ekki við rök að
styðjast, ög séu tunglin af
náttúrlegum rótum runnin.
Ljósmyndir teknar úr geim-
flaugum, t.d. Mariner 9, 1971,
sýna að Fóbos er ekki kúlulaga
hnöttur, heldur óreglulega lag-
aður bergklumpur, með mörg-
um gígum eftir loftsteina á
yfirborði. Lögun hans minnir
þannig á ýmsa smáhnetti, sem
tilheyra smástirnabeltinu milli
Mars og Júpiters, en þar er
mikill fjöldi slíkra „stjarna"
með óreglulegri lögun.
Ingvar Agnarsson
Myndin sýnir lögun Fóbos.