Morgunblaðið - 19.04.1980, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980
+
Móðir mín, dóttir og unnusta,
INGIMUNDA ERLA GUDMUNDSDÓTTIR,
til heimilis sð Hátúni 12, Reykjavík,
andaðist í Borgarspítalanum fimmtudaginn 17. apríl.
Haldís Hauksdóttir,
Guörún Guöjónsdóttir,
Gunnar Sigurjónsson.
Faöir okkar. + BENEDIKT SVEINSSON,
húsasmíðameistari, Austurbrún 2,
er látinn. Börnin.
ÞURÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Hátúní 10A,
veröur jarðsungin fré Fossvogskirkju, mánudaginn 21. apríl kl. 3
e.h.
Harald ísaksen, Ingibjörg Þorgrímsdóttir
og börn.
+
Elsku sonur okkar og bróðir,
ÞÓRIR BALDVINSSON,
Bergstaöastræti 43A,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 21. apríl nk.
kl. 1.30
Baldvin L. Sigurösson, Halldóra Guömundsdóttir
og systkíni hins látna.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför
ÞÓRARINS EINARSSONAR,
Höföa.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki á deild A1
Landakotsspítala.
Dætur, fósturbörn og tengdabörn.
+
Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför föður okkar og stjúpfööur, tengdaföður, afa og
langafa,
BALDVINS JÓHANNSSONAR,
Dæli í Sæmundarhlíó.
Guö blessi ykkur.
Jón Baldvinsson, Stefanía Guömundsdóttir,
Ingibjörg Baldvinsdóttir, Valtýr Guömundsson,
Ásta Baldvinsdóttir, Þorsteinn Hallfreðsson,
Emil Ólafsson, Hanna Pálsdóttir
Guóný Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og útför
móöur okkar, fósturmóöur, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
GUÐMUNDÍNU ÓLAFSDÓTTUR,
frá Hvallátrum,
Þjórsárgötu 11, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkrunarkonum og
starfsfólki Landspítalans fyrir alla umönnun í veikindum hennar.
Margrét Guöbjartsdóttir, Guðjón Guðbjartsson,
Árni Guömundsson, Katrín Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúö og
vinarhug við andlát og útför foreldra okkar, tengdaforeldra, afa og
ömmu,
GUÐBJARGAR SVEINFRÍOAR SIGURDARDÓTTUR,
og
GUDJÓNS GÍSLA GUÐJÓNSSONAR,
frá Hesti, Önundarfirói,
Laugarnesvegi 40.
Þorvaröur Guðjónsson, Sigríður Halldórsdóttír,
Hervör Guðjónsdóttír, Guömundur Egilsson,
Helga Guðjónsdóttir, Pálmar Þorsteinsson,
Svava Guðjónsdóttir, Jón M. Smith,
María Guöjónsdóttir, Hafsteinn Guöjónsson
og barnabörn.
Júlía Árnadóttir
— Minningarorð
Fædd 16. júli 1896.
Dáin 11. apríl 1980.
Haustið 1934 flutti Gagnfræða-
skólinn í Vestmannaeyjum inn í
Breiðablik, sem verið hafði íbúð-
arhús þeirra hjóna Asdísar og
Gísla J. Johnsen en var þá nýlega
komið í eign Iðnaðarmannafélags
Vestmannaeyja. Húsið var stórt,
búið rúmgóðum stofum á tveim
hæðum. Kjallari var vel úr jörðu
og upp undir þak var rishæð. I
þessari risíbúð bjuggu hjónin
Júlía Arnadóttir og Halldór vöru-
bifreiðastjóri Árnason. Önnuðust
þau húsvörslu og ræstingar.
Samtímis því að gagnfræðaskól-
inn flutti í húsið tók kvöldskóli
iðnaðarmanna til starfa í húsa-
kynnunum. Eftir að fjölskylda
sem bjó á efri hæðinni flutti fékk
skólinn allt húsið. í kjallara var
komið fyrir smíðastofu. Eftir að
gagnfræðaskólinn flutti inn á efri
hæðina tók hann að starfrækja
lesstofu síðdegis og skátafélagið
Faxi fékk inni í litlu herbergi. Frá
því kl. 8 árdegis til kl. 20 alla sex
daga vikunnar var í Breiðabliki
starfað að uppeldismálum í hverj-
um krók og kima. Á rúmgóðri lóð
skólans, sem umgirt var háum
múrveggjum var í öllum frímínút-
um farið í leiki og iðkaðar íþróttir.
Breiðablik var erilsamur staður og
enn frekar þegar inn í skólalífið
voru færð námskeið fyrir mat-
sveina bátaflotans og að sumar-
lagi starfræktur vinnuskóli.
Innan um allt þetta ferðaðist
Júlía eða Júlla eins og nemendur
kölluðu hana. Umferð margra um
stiga, ganga og stofur færði með
sér aur og ýmsa aðskotahluti en
hvern morgun var allt skólahúsið
hreint og vistlegt. Þetta þótti
öllum sjálfsagt en þeir lögðu fáir
að því hug hvílíkt starf var unnið
hvert síðkvöld, til þess að þessi
árangur næðist. Við daglegan eril
bættust um helgar dansleikir og
fundir. Öllu tók Júlía á móti með
vinsemd og skilningi. Oft hlaut
nám, leikur og félagsstarf að færa
með sér andleg og líkamleg áföll.
Mest voru þetta skeinur á höndum
og fyrir komu stærri áverkar, rifin
föt eða fall á aurugar grasflatir
gerði fatnað forugan. Með öll þessi
áföll var leitað með upp á loft til
hinnar góðhjörtuðu húsmóður
skólans, Júlíu. Hún átti sáravatn,
smyrsl og umbúðir, nál og spotta,
þvottaskál og handklæði, og sköfu
til að skafa for af fati. Hryggð var
sefuð og kjarkur vakinn að nýju í
ungum huga fyrir orð og móður-
legt viðmót velgerðrar konu. Við
Þorsteinn Þ. Víglundsson skóla-
stjóri kynntumst mannkostum
Júlíu hvað best er hún var mat-
ráðskona og húsmóðir vinuskóla
sem við starfræktum í skólahús;
inu mánaðartíma eitt sumarið. í
skólanum var sofið og matast.
Drengirnir ræstu húsið, þvoðu upp
og bjuggu um sig undir stjórn
Júlíu. Þá reyndi oft á stjórnsemi
hennar, dugnað og rósemi. Ekki
veit ég hvort Júlía hafði lært til
matargerðar en hún var frábær
við alla matargerð. Sama má segja
um handavinnu hennar. Hún eins
og mörg íslensk húsmóðir hafði
lagni og alúð til þess að gera mikið
úr litlu. Með hljóðlátu umburðar-
lyndi sínu, samviskusemi og hjálp-
semi, tel ég er ég læt hugann reika
til skólastarfsins og félagsstarfs-
ins á Breiðabliki þau 7 ár sem ég
starfaði þar, að Júlía átti mikil-
vægan þátt í að þar þróaðist góður
skóli á kreppu- og fátæktarárum.
Ég álít að skólastarfið hafi orðið
okkur afdrifaríkara af því að Júlía
bjó í skólahúsinu og gæddi það
vistleika öryggi og alúð. Fyrir
þetta skal henni nú og það of seint
þakkað.
Frá Eyjum flutti Júlía með
manni sínum og sonum þeirra
Árna, Guðna og Sveini til Selfoss.
Þau reistu sér hús utan ár, sem
þau nefndu Breiðablik. Sú nafn-
gift sýndi hug þeirra til gagn-
fræðskólans í Vestmannaeyjum.
Júlía fegraði lóð húss síns með
trjám og blómum. Hið innra
prýddi hún það með listrænu
handbragði sínu.
Sonunum þremur, fjölskyldum
þeirra og öðrum ástvinum votta ég
samúð.
Júlíu Árnadóttur eru þökkuð
heillarík störf sem hún lagði af
mörkum fyrir okkur starfsfólk og
nemendur Gagnfræðaskólans í
Vestmannaeyjum.
Þorsteinn Einarsson
Bridgefélag
Breiðholts
Sl. þriðjudag var spilaður eins
kvölds tvímenningur og var spil-
að í einum 14 para riðli.
Úrsiit:
Georg Sverrisson —
Valgarð Blöndal 196
Ólafur Garðarsson —
Júlíus Guðjónsson 173
Friðjón Margeirsson —
Þorleifur Þórarinsson 169
Meðalskor 156.
Nk. þriðjudag verður einnig
eins kvölds tvímenningur og
verður það næst síðasta spila-
kvöld vetrarins.
Spilað er í húsi Kjöts og fisks
Seljabraut 54 og hefst keppnin
kl. 19.30.
Bridgefélag
Reykjavíkur
Átta umferðum af 13 er lokið í
butler-tvímenningskeppni hjá
félaginu en alls taka 28 pör þátt
í keppninni.
Staða efstu para:
Viðar Jónsson —
Skafti Jónsson 296
Ásmundur Pálsson —
Hjalti Elíasson 281
Guðmundur Páll Arnarsson —
Sverrir Ármannsson 266
Gestur Jónsson —
Páll Valdimarsson 262
Sigurður Sverrisson —
Valur Sigurðsson 253
Guðmundur Pétursson —
Karl Sigurhjartarson 232
Meðalskor 200.
Næst verður spilað á þriðju-
daginn kl. 19.15 stundvíslega.
Bridgefélag
Akureyrar
Thule-tvímenningi félagsins
lauk þriðjudaginn 8. apríl sl.
Spilað var í þremur 12 para
riðlum í þrjú kvöld.
Röð efstu para varð þessi:
Gunnlaugur Guðmundsson —
Magnús Aðalbjörnsson 415
Brldge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Soffía Guðmundsdóttir —
Þórir Leifsson 406
Einar Sveinbjörnsson —
Sveinbjörn Jónsson 402
Guðmundur V. Gunnlaugsáon —
Stefán Vilhjálmsson 378
Alfreð Pálsson —
Angantýr Jóhannsson 373
Gissur Jónasson —
Jón Friðriksson 369
Meðalskor 330
Nú stendur yfir minningarmót
um Halldór Helgason en það er
sveitakeppni með Board A
Match fyrirkomulagi. Eftir
fyrstu umferðina er sveit Páls
Pálssonar í efsta sæti með 72
stig.
Algjör metþátttaka er í þess-
ari keppni — 18 sveitir.
Úrslitakeppni
íslandsmóts í
sveitakeppni
íslandsmót í sveitakeppni í
bridge verður haldið að Hótel
Loftleiðum dagana 30. apríl til 4.
maí.
1. umferð hefst miðvikudaginn
30. apríl kl. 20.00.
2. umferð hefst fimmtudag 1.
maí kl. 13.15.
3. umferð hefst fimmtudag 1.
maí kl. 20.00.
4. umferð hefst föstudag 2. maí
kl. 20.00.
5. umferð hefst laugardag 3. maí
kl.13.15.
6. umferð hefst laugardag 3. maí
kl. 20.00.
7. umferð hefst sunnudag 4. maí
kl. 13.15.
Einn leikur í hverri umferð
verður sýndur á töflu. 8 sveitir
hafa unnið sér rétt til úrslita-
keppninnar. Dregið hefur verið
um töluröð og er hún þessi:
1. Sv. Jóns Páls Sigurjónssonar.
2. Sv. Hjalta Elíassonar.
3. Sv. Þórarins Sigþórssonar.
4. Sv. Helga Jónssonar.
5. Sv. Sævars Þorbjörnssonar.
6. Sv. Skapta Jónssonar.
7. Sv. Ólafs Lárussonar.
8. Sv. Óðals.
Bridgefélag
kvenna
Yfirstandandi hjá bridgefélagi
kvenna er nú hraðsveitarkeppni,
með þátttöku 15. sveita. Að
lokinni fyrstu umferð er staðan
þessi:
Guðrún Bergsd. 589
Hrafnhildur Skúlad. 553
Aldís Schram 549
Dóra Friðleifsd. 532
Gunnþórunn Erlingsd. 530
Meðalskor eru 504 stig.
Bridgedeild
Breiðfirðinga
minnist 30 ára afmælis deild-
arinnar laugardaginn 26. apríl
n.k. með veglegu hófi á Hótel
Sögu (Lækjarhvammi). Hefst
það með borðhaldi kl. 19.00.
Miðapantanir í símum: 32562
(Ingibjörg) og 31411 ( Erla). Er
þess sérstaklega vænst að eldri
spilafélagar og aðrir velunnarar
láti sig ekki vanta á fagnaðinn.
Bridgedeild Breiðfirðinga var
stofnuð 8. janúar 1950 af 22
félögum Breiðfirðingafélagsins.
Óx deildinni fljótlega fiskur um
hrygg og mun nú ekki vera meiri
þátttaka hjá öðrum bridgefélög-
um í borginni. Spilað er á
fimmtudögum í Hreyfilshúsinu
við Grensásveg.
Stjórn deildarinnar er þannig
skipuð: Óskar Þráinsson formað-
ur, Guðlaugur Karlsson gjald-
keri, Þorvaldur Matthíasson rit-
ari, Sigríður Pálsdóttir og Guð-
jón Kristjánsson meðstjórnend-
ur.