Morgunblaðið - 19.04.1980, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980
Ég er að verða móðir — já,
móðir þín, því ég ætla að giftast
honum föður þínum, Siggi
minn!
/|
BRIDGE
Enn um fóst-
ureyðingar
Umsjón: Páll Bergsson
Út af fyrir sig er það ágæt regla
að taka trompin af andstæðingun-
um við fyrsta tækifæri þegar ekki
þarf að nota þau til að trompa
tapslagi. En það er eins með þessa
reglu og margar aðrar. Hana þarf
að meðhöndla með varúð.
Spilið í dag sýnir þetta nokkuð
vel. Látum nægja að líta á spil
norðurs og suðurs, hinir tóku ekki
þátt í sögnunum en suður gaf.
Norður
S. 963
H. KD5
T. ÁK4
L. K942
Suður
S. KG10875
H. G6
T. D52
L. Á8
Suður var sagnhafi í fjórum
spöðum og vestur spilaði út
tígulsjö. Hvernig mundu lesendur
haga úrspilinu?
Þegar spil þetta kom fyrir tók
sagnhafi útspilið í blindum og
spilaði strax trompinu. Nía, lágt,
lágt og vestur fékk á drottning-i
una. Hann hélt áfram með tígul-
inn, í þetta sinn spilaði hann
þristinum og suður tók heima og
spilaði trompfimminu. En vestur
tók strax á ásinn og austur lét
hátt hjarta. Greinilega hafði vest-
ur reiknað með þessu, spilaði
hjarta, sem austur tók með ás og
spilaði tígli, sem vestur trompaði
eins og alltaf stóð til — einn niður.
Eflaust hafa lesendur komið
auga á villu spilarans. Hann
spilaði trompunum of snemma.
Sama var á hvorri hendinni hann
tók útspilið en síðan varð að spila
hjörtunum. Hættan var, að þriðja
tígulspil varnarinnar yrði tromp-
að og því tilvalið að láta tígul af
hendinni í hjartaháspil blinds.
Skiptingin, sem var fyrir hendi,
vestur með tvíspil í tíglinum
ásamt ÁD4 í trompinu og austur
með hjartaásinn var sú eina, sem
skapaði hættu en var jafnframt
hægt að ráða við.
Fóstureyðingar eru ekki sjálf-
sagður þáttur í ferli hins daglega
lífs í nútímaþjóðfélagi, — en hér á
landi voru lög sett um heimildir til
fóstureyðinga að ákveðnum skil-
yrðum fullnægðum fyrir tæpum 5
árum. Niðurstöður umræðna þá
varðandi þetta efni voru þær m.a.
félagslegar ástæður gætu mælt
með fóstureyðingum, — lögin eru
ekki gömul, — eru forsendur
breyttar frá því sem var árið
1975? Einn þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins og nokkrir háskóla-
nemar m.a. hafa nú gerst ákafir
málsvarar breyttrar löggjafar á
þessu sviði, — hvers vegna? Ungur
háskólanemi skrifaði fyrir nokkru
greinar gegn fóstureyðingum í
Mbl. og flutti erindi um sama efni
í útvarpi í þættinum „Um daginn
og veginn og var niðurstaða hans
málsflutnings á þá leið helzt að
allar fóstureyðingar af hvaða or-
sökum sem þær væru fram-
kvæmdar væru í raun manns-
morð. Telja þessir menn að for-'
eldrar velji fóstureyðingu sem
lausn að lítt ígrunduðu máli og þá
sem getnaðarvörn og treysta þeir
ekki þeim yfirvöldum sem hér á
landi eiga að fylgja löggjöfinni um
þetta efni til þess að meta aðstæð-
ur „rétt“ í hverju tilviki? Engar
opinberar skýrslur liggja fyrir um
reynslu fóstureyðingarlöggjafar-
innar hér á landi þessi 5 ár, en í
Bretlandi hefur verið gerð úttekt
af 12 ára reynslu þar í landi hvað
slíka löggjöf snertir og væri eðli
legt að þessir menn öfluðu sér
þeirra upplýsinga sem þar koma
fram, — sem er m.a. að ólöglegum
fóstureyðingum hefur að mun
fækkað frá því sem áður var talið
að væru framkvæmdar þar í landi.
Málflutningur þessara manna
er til lítils annars en að orsaka
enn frekari vanlíðan foreldra sem
af nauðsyn hafa þurft að láta eyða
fóstri sínu.
Hverjar eru líka þær ráðstafan-
ir sem gætu komið í stað lausna
Olía það sem
Rússar girnast
— segir Yamani
Riyadh. Saudi-Arahíu, 17. apríl. AP.
OLIURÁÐHERRA Saudi-Arabíu,
Ahmed Zaki Yamani. telur tilgang
framrásar Rússa i Afganistan og á
austurhorni Afríku þann að
treysta nærveru Rússa í grennd
við olíusvæði Miðausturlanda með
hliðsjón af minnkandi oliufram-
leiðslu Sovétrikjanna að sögn
saudi-arabísku fréttastofunnar.
Yamani sagði þetta í fyrirlestri í
háskólanum í Jidda að sögn
fréttastofunnar. Hann sagði að
Rússar fengju um þessar mundir
40% gjaldeyristekna sinna af olíu
sem þeir seldu til Austur-Evrópu.
En hann sagði að Rússar gætu ekki
haldið áfram að flytia út olíu í
náinni framtíð og yrðu í bezta falli
sjálfum sér nógir með olíu.
Einnig var haft eftir Yamani að
varaolíuforði Saudi-Arabíu væri að
aukast, að olíuverð mundi halda
áfram að hækka og að Súdanir
hefðu fundið nógu mikla olíu til
þess að vera sjálfum sér nógir.
Flugfólk fékk dóm
ÓhIó — 17. apríl — írá Jan Erik I ^auré,
fréttaritara Morgunhlaðsins.
FLUGMAÐUR og tvær flugfreyjur
hafa fengið skilorðsbundna fang-
elsisdóma og sektir fyrir að koma
öivuð til starfa fyrir tæpum tveim-
ur árum. Lögreglunni barst njósn
af ástandi fólksins áður en flugvél-
in lagði af stað frá Tromsö til
Óslóar, þannig að ekkert varð úr
ferðalaginu.
í undirrétti var flugfólkið sýknað,
en hæstiréttur hefur kveðið upp
dóm um sekt þess.
Flugmaðurinn
fékk 36 daga fangelsisdóm, skil-
orðsbundið og 5 þúsund króna sekt,
en flugfreyjurnar voru dæmdar til
24 daga fangelsis, sömuleiðis skil-
orðsbundið, og eiga að greiða þús-
und króna sekt hvor.
Magnús Gottfreðsson heitir ungur Garðbæinjíur sem
er í starfsfræðslu hjá okkur á Morgrunhlaðinu um
þessar mundir og þessa ljósmynd tók hann í
miðbænum í gær af unxri stúlku, Maríu Soffíu, sem
sat á tröppum Stjórnarráðsins og slappaði af í góða
veðrinu við dyr landsfeðranna.