Morgunblaðið - 19.04.1980, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980
45
TD
VÉLVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
^ m' u-Mjn&'iiH'íJU
eins og fóstureyðinga? Hvernig
býr íslenzkt þjóðfélag að þeim
þegnum sínum sem ekki ganga
heilir til skógar vegna fæðinga-
galla o.fl. eða að foreldrum slíkra
einstaklinga? Hver er stuðningur-
inn við óhæfa foreldra eða for-
eldra sem eiga fjölda barna fyrir
og þurfa að vinna úti helzt 12 tíma
á sólarhring hverjum til þess að
fæða munnana og hafa þar af
leiðandi ekki tíma til þess að sinna
börnunum sem skyldi sem foreldr-
ar? Eða að börnum sem verða
foreldralaus af einhverjum orsök-
um ung að aldri, — hver tekur við
þeim?
Ég held ekki að þessir menn
geti, að ókönnuðu máli í það
minnsta, staðhæft að konur (for-
eldrar) velji fóstureyðingar þegar
þeim sjálfum þykir henta og þá að
ástæðulausu í fjölda tilvika.
Spurningin um þessa löggjöf ætti
fremur að vera sú hvernig bezt
eftirlit verði með því haft að þessi
heimild laganna verði ekki mis-
notuð heldur en um það að fella
þessa heimild úr lögum. Móðir.
• Hugsanir Teil-
hards
merkilegar
Til Velvakanda.
Nú er Jean Paul Sartre látinn,
og má búast við, að mikið verði um
hann ritað af því tilefni. Það sem
áður hefur verið ritað getur þó
stundum haft fullt svo mikið gildi
sem það er síðar kemur fram.
Fyrsta íslenzka ritgerðin um
Sartre, og um langt skeið hin eina,
birtist í Lesbók Mbl. árið 1947
undir nafninu: „Hin nýja franska
heimspeki og mesta vandamál
vorra tíma“. Var höfundur henn-
ar Helgi Pjeturss, íslenzkur heim-
spekingur.
Um annán franskan heimspek-
ing, Teilhard de Chardin, sem
líklega hefur vakið mun meiri
eftirtekt um alla Evrópu og
Ameríku á árunum 1955—1970,
hefur nær ekkert verið ritað á
islenzkú — nema mig minnir að
dr. Jón Gíslason hafi eihverntíma
minnzt á hann í útvarpsviðtali.
Hugsanir Teilhards eru mjög
merkilegar og verðskulda athygli
enn þann dag í dag.
Þorsteinn Guðjónsson.
• Ómakleg árás
á sjómenn
Kristinn Aadnegard
hringdi:
Vegna skrifa „skattpínds
þjóðfélagsþegns" í Velvakanda sl.
fimmtudag langar mig að gera
eftirfarandi athugasemd:
Okkur sjómönnum finnst það
nokkuð hart að þar sem útsending
á stuttbylgju er m.a. hugsuð okkur
til hagsbóta, því við getum ekki
hlustað á útvarp á Islandi, að
fundið sé að því að við fáum notið
þess sama og aðrir þjóðfélags
þegnar. Við greiðum okkar skatta
og skyldur ekki síður en
„skattpíndur" og teljum okkur
afla verulegs hluta þess gjaldeyris
sem gerir þjóðfélagsþegnum unnt
að eignast umrædd hljómburðar-
tæki.
Það má einnig minna á, að 1978,
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
þegar 3% verðbæturnar voru
gefnar eftir með loforði um félags-
málapakka, þá var þar eitt af
loforðunum að sjómenn skyldu fá
bætta aðstöðu til að njóta sjón-
varps og útvarpsefnis. Nú hafa
allir þegnar þjóðfélagsins sína
„pakka“, nema sjómenn. Við get-
um ekki skroppið, eins og aðrir
þjóðfélagsþegnar, og notið félags-
starfs sem þjóðfélagið býður upp
á, svo það er að okkar matii — og
ekki aðeins okkar — lágmarks-
krafa að við fáum að hlusta á
útvarp.
Málflutningur „skattpínds" er
að mínu mati fyrir neðan virðingu
þess sem notið hefur góðs af okkar
störfum, en hann dæmir sig bezt
sjálfur.
Á alþjóðlega skákmótinu í
Buenos Aires í desember, þar sem
Larsen sigraði með yfirímrðum,
kom þessi staða upp í skák
stórmeistaranna Ivkovs, Júgósla-
víu, sem hafði hvítt og átti leik, og
Gheorghiu, Rúmeníu.
31. HleG! (Hótar 32. Hxg6+ fxg6
33. Df6 og einnig 32. Hxd6) fxe6
32. Df6 og svartur gafst upp.
Úrslit mótsins urðu þessi: 1. Lar-
sen ll v. af 13. 2—5. Anderson,
Miles, Najdorf og Spassky 8 v.
6—7. Gheorghiu og Ivkov 7Vfe v. 8.
Quínteros 6'/2 v. 9—10. Panno og
Petrosjan 6 v. 11—12. Lombardy
og Franco (Paraguay) 5 v. 13.
Tempone 3 v. 14. Rubinetti (báðir
frá Árgentínu) l'Æ v.
HÖGNI HREKKVÍSI
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum
frá klukkan 14.00 til 16.00. Er þar tekið á móti hvers kyns
fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum
boðið aö notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 19. apríl veröa til viðtals Magnús L.
Sveinsson og Bessí Jóhannsdóttir. Magnús er í
atvinnumálanefnd, framkvæmdaráöi, stjórn Inn-
kaupastofnunar sjúkrasamlagsstjórn, umhverfis-
málaráöi. Bessí er í stjórn Borgarbókasafns, félags-
málaráöi, stjórnarnefnd dagvistunarstofnana Reykja-
víkurborgar, æskulýðsráöi.
TILKYNNING
um lóðahreinsun
í Reykjavík,
vorið 1980.
Samkvæmt ákvaBðum heilbrigöisreglugerðar, er
lóðaeigendum skylt að halda lóðum sínum
hreinum og þrifalegum og að sjá um aö lok séu
á sorpílátum.
Umráðamenn lóöa eru hér meö minntir á að
flytja nú þegar brott af lóðum sínum allt sem
veldur óþrifnaði og óprýði og hafa lokið því
eigi síðar en 14. maí n.k.
Að þessum fresti liönum verða lóðirnar skoðaö-
ar og þar sem hreinsun er ábótavant verður hún
framkvæmd á kostnað og ábyrgð húseigenda,
án frekari viövörunar.
Þeir sem kynnu að óska eftir sorptunnum og
lokum, hreinsun, eða brottflutningi á rusli, á sinn
kostnað, tilkynni það í síma 18000 eða 13210.
Úrgang og rusl skal flytja á sorphauga við
Gufunes á þeim tíma sem hér segir:
Alla virka daga frá kl. 8.00—21.00
Á helgidögum frá kl. 10.00—18.00
Rusl sem fiutt er á sorphauga skal vera í
umbúðum eða bundið.
Ekki má kveikja í rusli á sorphaugunum og hafa
ber samráð við starfsmennina um losun.
Sérstök athygli skal vakin á því, að óheimilt er
aö flytja úrgang á aöra staði í borgarlandinu.
Veröa þeir látnir sæta ábyrgð sem gerast
brotlegir í því efni.
Gatnamálastjóri í Reykjavík.
Hreinslunardeild.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480