Morgunblaðið - 19.04.1980, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980
Skíðanámskeið
fyrir byrjendur
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
gefa byrjendum í skíða-
íþróttinni kost á námskeiði i
svigi og göngu í Bláfjölium.
Námskeiðin hefjast
þriðjudaginn 22. apríl. Upp-
lýsingar eru gefnar hjá
Bláfjallancfnd, í sima 28544.
í hungur-
verkfall
Bóliviska félagið Indi-
pendiente Potosi skuldar
Íeikmönnum sinum iaun
langt aftur í timann. Svo
langt. að leikmenn liðsins
hafa gripið til þess ráðs að
fara i hungurverkfali...
Víðavangs-
hlaup ÍR
Viðavangshiaup ÍR verð-
ur háð í Vatnsmýrinni og i
miðborg Reykjavíkur á
fimmtudaginn kemur,
sumardaginn fyrsta, að
venju. Hefst hiaupið kl. 14 í
Hijómskáiagarðinum, en
endað verður við Alþingis-
húsið eftir að hlaupinn hef-
ur verið hringur í Vatnsmýr-
inni. Verður hiaupin sama
leið og undanfarin ár.
Hlaupið verður nú háð 65.
árið í röð. Keppt verður um
fjölda bikara í sveitakeppn-
unum, en keppt er í þriggja.
fimm og tíu manna sveitum í
karlaflokki, 3ja drengja
sveit. 3ja kvenna sveit og í
fimm manna sveit 35 ára og
eldri.
Þátttökutiikynningar
þurfa að berast til Guð-
mundar Þórarinssonar hjá
ÍR hið snarasta, en sími
hans er 34812.
Víðavangshlaup
Hafnarfjarðar
Víðavangshiaup Hafnar-
fjarðar fer fram sumardag-
inn fyrsta þann 24. apríl.
Hlaupi hefst við Lækjar
skóla kl. 2 en mæta þarf
timanlega til skráningar.
Keppt verður i eftirtöidum
flokkum:
Karlar fæddir árið 1971
og siðar, árið 1966—1970
bæðiárin meðtaiin, 1963—
1965 bæði árin meðtalin og í
fiokki 1962 og eldri. Konur
fæddar árið 1971 og síðar,
árið 1967 —1970 bæði árin
meðtalin og i flokki 1966 og
eldri.
Viðurkenningar-
skjöl ÍSÍ
íþróttahátiðarnefnd ÍSl
hefur útbúið mjög smekkleg
viðurkenningarskjöl, sem
þeir fá sem taka þátt i
hátiðinni eða starfa við
hana. Þegar, hafa verið af-
hent siík skjöl vegna Vetr-
arhátíðarinnar, sem fram
fór á Akureyri svo og víða i
kaupstöðum iandsins. Fyrir
Reykvikinga hafa verið
haldin mót i Biáfjöilum og
Hveradölum. svoköiiuð
skiðatrimm fyrir almenning
og hafa þátttakendur fengið
í hendur undirrituð viður-
kenningarskjöl vegna þátt-
tökunnar.
Þar sem skjöl þessi eru
vönduð í útiiti og geta verið
góður minjagripur frá há-
tiðinni hefur Myndaútgáfan
Hafnarstræti 11, 2. hæð,
Reykjavík sími 13850 boðist
tii að hafa á boðstóium
fallega álramma, sem sér-
stakiega eru hannaðir fyrir
þessar viðurkenningar.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson formaður stjórnar U.M.S.E. og
Hólmfríður Erlingsdóttir iþróttamaður U.M.S.E. 1979.
Heistu afrek Hólmfríðar árið 1979.
Á meistaramóti íslands innanhúss varð hún íslandsmeistari i
iangstökki án atrennu. Á Héraðsmóti U.M.S.E. varð hún stigahæsj
alira keppenda. Á Kvennamóti U.M.S.E. varð hún stigahæst. Á
Meistaramóti íslands varð hún í 3. sæti í 200 m hlaupi, og 6. í 100 m
hlaupi. I Bikarkeppni U.M.F.Í. og A.A.G. varð hún sigurvegari í 100 m
hlaupi. önnur i bæði 100 m grindahlaupi og 400 m hlaupi. í
Bikarkeppni F.R.Í. 2. deild á Akureyri sigraði hún \ 100 m hlaupi.
varð önnur í 100 m grindahlaupi og 200 m hlaupi. Á Norðurlands-
meistaramóti varð Hólmfríður næststigahæst kvenna á mótinu.
Hólmfríóur kjörin
íþróttamaóur UIVIFE
59. þinf Ungmennasambands
Eyjafjarðar var haldið í Þela-
merkurskóla dagana 22. og 23.
marz sl. Rétt til setu á þinginu
áttu 62 fulltrúar frá 13 félögum.
Þingið sátu liðlega 50 fulltrúar
auk gesta. Þingforsetar voru
kjörnir Páll Garðarsson og Gísli
Pálsson. Meðai gesta voru: frá
Í.S.Í. Sveinn Björnsson varafor-
maður og Sigurður Magnússon
útbreiðslustjóri og framkvæmda-
stjóri sumaríþróttahátíðar Í.S.Í.
og frá U.M.F.I. þeir Pálmi Gísla-
son formaður og Sigurður Geir-
dal framkvæmdastjóri.
Fyrir þinginu lágu mörg mál.
Má þar til nefna ýmis mál sem
varða héraðið í heild svo sem
samgöngumál, fjölmiðlun og þjón-
ustu hins opinbera. Þá voru mál
sem vörðuðu fjárhag sambands-
ins. En hæst bar þó íþróttamálin,
en þau snertu aðallega fram-
kvæmdaatriði við mót og keppn-
isíþróttir. Þó var tekin afstaða til
almenningsíþrótta s.s. göngudags
U.M.F.I. o.fl. Fyrri dag þingsins
voru málin reifuð, hlýtt á skýrslur
stjórnar og ávörp gesta. Síðari
daginn störfuðu nefndir þingsins
frá kl. 9—2 en þá hófst þingfundur
með umræðum um álit nefnda.
í áliti allsherjarnefndar bar
hæst: Hvatningu í bindindismál-
um. Áskorun vegna árs trésins.
Mjög harðorða gagnrýni á for-
ráðamenn vegamála í Eyjafirði og
áskorun um að gera átak til
úrbóta í þeim efnum. Áskorun til
alþingismanna og forráðamanna
Pósts og síma um skjótar úrbætur
á hreinu ófremdarástandi í síma-
málum héraðsins. Þá var skorað á
sveitarstjórnamenn í héraðinu og
fjárveitingavaldið í landinu að sjá
til þess að ötullega verði unnið að
uppbyggingu íþróttamannvirkja á
sambandssvæðinu, því að slík
mannvirki eru mjög ófullnægjandi
og standa uppbyggingu íþrótta-
starfs í héraðinu mjög fyrir þrif-
um.
I þinglok voru veittar viður-
kenningar fyrir afrek og vel unnin
störf á árinu 1979. Hólmfríður
Erlingsdóttir hlaut bikar, en hún
var kjörin íþróttamaður U.M.S.E.
1979.
Ungmennafélagið Reynir á
Árskógsströnd hlaut félagsmála-
bikar U.M.S.E. en hann var gefinn
af U.M.S. Skagafjarðar og er
veittur fyrir mest og best störf að
félagsmálum á sambandssvæðinu.
Þá hlaut Reynir einnig Sjóvábik-
arinn. Hann er gefinn af Sjóvá og
veittur fyrir bestan samanlagðan
árangur úr öllum mótum á vegum
sambandsins.
Enginn völlur i
Hörgslandshreppi
AÐALFUNDUR Umf-Armanns í
Hörgslandshreppi og Kirkjubæj-
arhreppi í Vestur-Skaftafeils-
sýslu var haidinn laugardaginn
5. apríl síðastliðinn. Meðal gesta
á fundinum voru Sigurður Geir-
dal framkvæmdastjóri UMFÍ og
Guðni Einarsson formaður
USVS. Fráfarandi stjórn félags-
ins iagði fram á fundinum itar-
lega ársskýrslu fyrir starfsárið
1979. Á fundinum urðu allfjör-
legar umræður um starfsemi fé-
lagsins og um með hvaða hætti
mætti auka virkni félagsmanna
og íhúanna á svæðinu i starfsemi
félagsins.
Einnig urðu á fundinum miklar
umræður um aðstöðu fólks á
svæðinu til íþróttaiðkana. Reynd-
ust fundarmenn sammála í því að
í þeim efnum ríkti algjört hörm-
ungarástand, þar sem engan
íþróttavöll er að finna á svæði
félagsins, þótt félagið eigi að baki
70 ára sögu á svæðinu. í fundarlok
var samþykkt áskorun til sveitar-
stjórna Hörgslandshrepps og
Kirkjubæjarhrepps, þar sem þær
eru hvattar til að hefja nú þegar
framkvæmdir, eða undirbúning að
gerð varanlegs íþróttavallar.
Við stjórnarkjör báðust tveir
stjórnarmanna undan endurkosn-
ingu, það voru þeir Kjartan Magn-
ússon ritari og Björgvin Harðar-
son gjaldkeri. Stjórn félagsins
skipa nú: formaður Sigmar Helga-
son Hraunkoti, ritari Jón Jónsson
Prestbakka og Hilmar Gunnars-
son Kirkjubæjarklaustri gjald-
keri.
Enn er ógengið
frá samningum
við Valsmenn
- forseti Borussia væntanlegur
til landsins eftir tvær vikur
EINS og fram hefur komið í
fréttum hefur Atli Eðvaldsson
Val undirritað tveggja ára at-
vinnumannasamning við v-þýzka
knattspyrnufélagið Borussia
Dortmund. Samningur sá er Atli
hefur undirritað er hins vegar
aðeins starfssamningur að sögn
Jóns Gunnars Zöega formanns
knattspyrnudeildar Vals. Enn er
ógengið frá öllum samningum á
milli Vais og Borussia og er
forseti félagsins væntanlegur
hingað til lands eftir tvær vikur
til viðræðna um mái Atla og
jafnframt til þess að ræða kröfur
þær sem Valur mun setja Boruss-
ia varðandi greiðslur til Vals.
Það mun ekki vera algengt að
leikmenn skrifi fyrst undir
starfssamning og að félögin
gangi síðan frá sínum málum
eins og nú er upp á teningnum.
Staða Vals er því greinilega
nokkuð sterk í samningaviðræð-
um þeim sem fram munu fara á
næstunni á milii félaganna um
greiðslur þær sem þýska félagið
verður að inna af hendi.
Maður sá er til landsins kom
til að ganga frá samningum við
Atla var fulltrúi félagsins en sá
mun ekki hafa haft nein leyfi til
þess að ganga frá samningum á
milli félaganna og þvi kemur
forseti félagsins til landsins í
þeim erindagjörðum.
- þr.
HSI og Ríkis-
útvarpið í
hár saman
Handknattleiksam-
band íslands og Ríkisút-
varpið eru komin í hár
saman og hefur HSÍ í
samráði við lögfræðing
krafist þess að Sjónvarp-
ið greiði sambandinu 5
milljónir króna fyrir það
að sýna landsleiki í sjón-
varpi án nokkurrar
heimildar frá HSÍ.
Að sögn Júlíusar Haf-
steins formanns HSÍ, hef-
ur sambandið margoft
reynt að koma á fundum
með Sjónvarpinu og setið
2 slíka, en árangur hefur
enginn orðið. „Það er
mjög hvimleitt fyrir fá-
tæk áhugamannasam-
bönd eins og HSÍ að
þurfa að standa í stríði
við ríkisvaldið út af
svona löguðu,“ sagði Júlí-
us í samtali við Mbl. í
gær.
David Peach
til Swindon
• David Peach
Að venju var mikið um félaga-
skipti í ensku knattspyrnunni
siðustu mánuðina og hefur áður
vcrið greint frá mörgum þeirra.
Mörg hafa þó farið fram án
hávaða og iáta. T.d. má nefna að
bakvörðurinn sterki hjá Sout-
hampton, David Peach, gerðist
nýlega leikmaður hjá Swindon í
3. deild. Kom verulega á óvart að
Southampton skyldi láta þcnnan
sterka bakvörð fara frá sér.
Frank McGarvey, sem kost í
fréttirnar í upphafi keppnistíma-
bilsins þegar Liverpool keypti
hann frá Partick Thistle, er farinn
aftur til Skotlands, án þess að
hafa nokkurn tíma komist í aðal-
lið Liverpool. Það var Celtic sem
festi kaup á honum. Tveir kunnir
kappar hjá Leeds Utd hafa verið
seldir úr landi, nánar tiltekið þeir
Ray Hankin miðherji og mark-
vörðurinn David Harway, sem
fóru til Vancouver Whitecaps.
Willy Donachie, bakvörðurinn
snjalli hjá Manchester City, fór
einnig vestur um haf, hann skrif-
aði undir samning hjá Portland
Timbers. Annar leikmaður City
slóst í för með Donachie, Stuart
Lee.
Loks má geta einnar frægrar
kempu, Peter Cormack, sem gerði
garðinn frægan hjá Liverpool
áður en hann var seldur til Bristol
City. Cormack hefur lítið leikið
með Bristol að undanförnu og
fyrir skömmu seldi félagið hann
til skoska liðsins Hibernian.