Morgunblaðið - 19.04.1980, Side 47

Morgunblaðið - 19.04.1980, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980 47 • 2. deildar lið Þróttar sem nú hefur tryggt sér sæti i 1. deild næsta keppnistímabil með því að sigra lið ÍR nokkuð örugglega í tveimur leikjum um sætið. En það kemur nú í hlut IR að leika í 2. deild. Lið bróttar. fremri röð frá vinstri: Einar Sveinsson. Lárus Lárusson, Örn Thors, Sigurður Ragnarsson, Gísli Óskarsson, Páll óiafsson. Snorri Siggeirsson, aftari röð f.v. Magnús óskarsson formaður Þróttar, Gunnar Gunnarsson liðsstjóri. Magnús Margeirsson, Sveinlaugur Kristjánsson. ólafur H. Jónsson fyrirliði og jafnframt þjálfari liðsins, Sigurður Sveinsson markakóngur í 2. deild, Ari Einarsson. Grétar Vilmundarson, Arni Svavarsson aðstoðarþjálfari, Þorsteinn Jónsson formaður handknattleiksdeildar Þróttar. Ljósmynd Kristinn. Leika 20 til 25 landsleiki fram að B-keppninni Norðurlandaþingi handknatt- leikssamhandanna er nýlokið en það fór fram í Helsinki að þessu sinni. Af hálfu íslands sótti Július Hafstein og Gunnar Torfa- son þingið og Mbl. ræddi við formann HSÍ og innti hann eftir því hvað hefði verið efst á baugi. — Á þessu þingi voru ýmis mál varðandi Norðurlöndin rædd og formennirnir báru saman bækur sinar um þau mál sem eru efst á baugi. Það sem var einna merkilegast varðandi sameigin- leg samskipti voru hugmyndir um sameiginlegan þjálfaraskóla fyrir bestu handknattleiksþjálf- arana á Norðurlöndunum sagði Július. „Þá lagði ég fram drög að samningum um landsleiki næstu tvö ár. Við erum búnir að semja við Dani um að leika landsleik hér heima í desember á þessu ári og við sækjum þá heim í febrúar á næsta ári. Þá leikum við á Norður- landameistaramótinu sem fram fer í Noregi í haust, nánar tiltekið dagana 23. til 27. okt. Norður- landamótið mun verða með nýju fyrirkomulagi að þessu sinni. I stað' riðlaskiptingar leika allir við alla. Þá bendir allt til þess að við leikum landsleiki við Frakka í janúar á næsta ári hér heima. Við erum í samningaviðræðum um að leika bæði við Austur- og Vestur- Þjóðverja næsta keppnistímabil, bæði heima g heiman. Þá reiknum við fastlega með að verða boðið á Baltic-keppnina sem fram fer í Rússlandi 6,—12. janúar á næsta ári. Við þurfum að leika í það minnsta 20 til 25 landsleiki áður en við höldum í B-keppnina sem fram fer í Frakklandi í mars þar sem við setjum markið hátt og stefnum að því að komast í A-keppnina. Við getum ekki miðað okkur neitt við aðrar íþróttagrein- ar t.d. knattspyrnuna sem þarf aðeins að leika 4 til .5 landsleiki á ári. Við erum að stefna að því að vera meðal þeirra bestu í okkar íþróttagrein og verðum að leggja mikið á okkur. Fyrir keppnistímabilið, ’81—’82, er verið að stefna að því að koma á þriggja liða keppni hér heima á milli Islendinga, Norðmanna og * hugsanlega Spánverja eða Sviss- lendinga. Þá hafa Svíar sýnt mikinn áhuga á slíkri keppni árið 1982—’83. Norðurlandamót unglinga verð- ur á íslandi árið 1982 og NM stúlkna í haust. Ekki er loku fyrir það skotið að Handknattleikssambandi íslands verði boðin þátttaka í Ólympíu- leikunum í Moskvu í sumar. Hætti Vestur-Þjóðverjar og Japanir við þátttöku er ísland komið inn í myndina og við því verðum við að vera búnir,“ sagði Júlíus. Varðandi landsliðsþjálfaramál- • Kalott-sundkeppnin sem jarðarsvæði Norðurlanda halda árlega fer fram um helgina í Gallevare í Svíþjóð. Þátttökuþjóðir eru Finnar, Svíar, Norðmenn og íslendingar sem nú taka þátt í þessari keppni í annað sinn. I síðustu keppni hafnaði ísland í neðsta sæti. Eftir að Kalott-keppninni lýkur mun sundlandsliðið taka þátt í mcistaramóti Skotlands dagana 23.-26. apríl. Á myndinni hér að ofan er íslenska sundlandsliðið en það skipa eftirtaldir sundmenn: Anna F. Gunnarsd. Ægi 3 landsk.. Elín Unnarsd. Ægi 1 landsk.. Katrin L. Sveinsd. Ægi 2 landsk., Magnea Vilhjálmsd. Ægi nýliði ólöf L. Sigurðard. Self. 5 landsk.. Sonja Hreiðarsd. Ægi 7 landsk., Þóranna Héðinsd. Ægi 4 landsk.. Halldór Kristiensen Ægi 3 landsk.. Hugi S. Harðarss. Self. 4 landsk., Ingi b. Jónss. ÍA 3 landsk. Ingólfur Gissurars. IA 3 landsk.. Magni Ragnarss. ÍA nýliði. Þorsteinn Gunnarss. Ægi nýliði, Ljósm. Kristján Elíasson. Forsala EINS og komið hefur fram í fréttum, hafa KR or Haukar tryggt sér rétt til þess að leika til úrslita í bikarkeppni HSÍ. Fer leik- urinn fram í Laugardals- höllinni á miðvikudaginn 23. apríl og hefst hann klukkan 20.00. Forsala aðgönKumiða hefst í dag. Selt verður í Haukahúsinu við Flata- hraun og í KR-húsinu við Frostaskjól. Verður selt á þessum stöðum frá klukk- an 8.00 á morgnana til klukkan 22.00 á kvöldin. Á miðvikudaginn verður selt til klukkan 16.00 og sama dag í Laugardalshöllinni frá klukkan 18.00. Þeir sem á annað borð ætla að sjá leikinn gera sjálfum sér greiða með því að notfæra sér forsölurnar. in sagði Júlíus, að allt miðaði í rétta átt með að Jóhann Ingi yrði áfram landsliðsþjálfari, núna stæðu yfir samningaviðræður um þau mál. , - þr. íþróttir um helgina ÞESSI pistill er rétt til þess að minna á helstu íþróttaviðburði helgarinnar. Velska unglinga- landsliðið í körfuknattleik er mætt til leiks og leikur fyrsta leik sinn af fjórum gegn íslenska unglingalandsliðinu í Ilagaskól- anum í dag og hefst leikurinn klukkan 14.00. Fjögur íslandsmót fatlaðra eru á dagskrá. í gærkvöldi hófst í Sundhöll Reykjavíkur íslandsmót í sundi og í dag klukkan 14.00 hefst íslandsmót í boccia í íþrótta- húsi Álftamýrarskólans. Á morg- un verður síðan keppt bæði í borðtennis og bogfimi, fer það fram í Laugardalshöllinni og hefst klukkan 16.00. Á öðrum stað á síðunni er greint frá leikjum. Litlu bikarkeppninni í knattspyrnu, en einnig fara fram þrír leikir á á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu. Er hér um að ræða viðureign Þróttar og Víkings í dag klukkan 14.00. Á morgun klukkan 16.00 eigast síðan við Frám og Ármann og loks leika á mánu- dagskvpldið Valur og KR. Enn hugað að framkvæmdum hjá Gerplu Á aðalfundi íþróttafélags- ins Gerplu í Kópavogi, sem haldinn var 23. mars sl. urðu stjórnarskipti. Hin nýja stjórn Gerplu er þannig skipuð: Formaður Margrét Bjarnadóttir, ritari Sigríður Pálmadóttir, gjaldkeri ðsk- ar Karlsson, meðstjórnend- ur Tómas Guðmundsson, Ilannes Þorsteinsson, Kol- brún Gestsdóttir og Helgi Gunnarsson. Eins og fram kemur í skýrslu félagsins er fjárhag- ur mjög erfiður um þessar mundir og veldur þar mestu um rekstur íþróttahúss fé- Iagsins að Skemmuvegi og ráðning erlends þjálfara í fullt starf. Félagsmenn hafa þó stað- ið sig vel á mótum sem haldin hafa verið í vetur og má t.d. nefna að Gerplu- stúlkur skipuðu efstu sætin í öllum fimleikamótum vetr- arins og urðu einnig bik- armeistarar. Borðtennis- fólkið hefur heldur ekki lát- ið sitt eftir liggja og hlaut m.a. 2. sæti á Islandsmeist- aramóti í einliðaleik kvenna og í tvenndarkeppni og bad- mintondeildin sigraði í bæj- arkeppni Ilafnarfjörður- Garðabær-Kópavogur og á héraðsmóti UMSK. Tryggir ÍA sér bikarinn? LITLA bikarkeppnin í knattspyrnu verður á fleygi- ferð um helgina. tveir leikir verða á dagskrá. Báðir leik- irnir fara fram í dag. í Kópavogi eigast við Breiða- blik og FH. en á Akranesi leika IA og Keflavík. Stend- ur lið ÍA með pálmann i höndunum, sérstaklega ef liðið vinnur ÍBK, en þá er bikarinn í höfn, einnig næg- ir ÍA iafntefli. Sigri hins vegar ÍBK. verður ÍA að sigra FII í sínum siðasta leik. Báðir leikirnir í dag hef j- ast klukkan 14.00, en strax að þeim Ioknum. eigast við B-lið sömu félaga. Bræður berjast LÖGREGLAN í Mexíkó kom upp um hreint furðu- legt mál fyrir skömmu. Kvíslingur nokkur hringdi og tilkynnti að það ætti að ræna forseta knattspyrnu- félagsins Union de Curtidor- es innan skamms og fór lögreglan þá á stúfana og gómaði ramingjana með hjálp felumannsins. Alla rak í rogastans þegar upp komst hver var höfuðpaur mann- ræningjanna. Það var eng- inn annar en bróðir forset- ans! Ágúst til Göppingen ÁGÚST Svavarsson. hand knattleiksmaðurinn sterki. sem lék á sínum tíma með ÍR. hefur gert samning við vestur þýska liðið Göpping- en. Ágúst hefur verið yfir- burðamaður í liði Spenge í 2. deild í vetur en flyst nú í 1. deild til Göppingen, sem hefur góða reynslu af Islend- ingum. Bæði Geir Hall- steinsson og Gunnar Ein- arsson léku þar við góðan orðstí.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.