Morgunblaðið - 19.04.1980, Síða 48

Morgunblaðið - 19.04.1980, Síða 48
LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980 PIERPOnT OÚARTZ — úr Þessi heimsþekktu úr fást hjá flestum úr- smiðum. Konan fannst með áverka Krafist gæsluvarðhalds yfir eiginmanninum RANNSÓKNARLÖGREGLA rikisins xcrði í Kærkvöldi kröfu um að hálfsext- UKur IlafnfirðinKur yrði hncpptur i Ka'zluvarðhald á meðan rannsókn færi fram á því mcð hvaða hætti kuna hans hlaut alvarlcK höfuðmciðsl. Dómarinn tók sór frest til klukkan 13 í daK til að kvcða upp úrskurð. Að söKn Þóris Oddssonar vararann- soknarlöKreKlustjóra hrinKdi maður- inn til löKreglunnar s.l. fimmtudags- morgun og bað um aðstoð því kona hans hefði dottið utan í vegg og meitt sig. Þegar á heimili þeirra í Hafnar- firði var komið lá konan meðvitundar- laus á gólfinu með blóð í vitum. Kom síðar í ljós að höfuðkúpan var sprung- in á hnakka og blætt hafði milli höfuðkúpu og heila. Var konan enn rænulaus í gærkvöldi. Við rannsókn á vettvangi vöknuðu grunsemdir um að meiðsli konunnar væru af öðrum toga og maðurinn hefði hugsanlega veitzt að henni. Þessu hefur maðurinn harðneitað. Hann var mjög ölvaður þegar atburðurinn gerð- ist. Stal frá foreldrum sín- um og tengdaforeldrum RANNSÓKNARLÖGREGLA ríkis- ins hcfur handtckið 26 ára gamlan Reykvíking og játaði hann að hafa stoiið miklum verðmætum úr íbúð- um foreldra sinna og tengdafor- eldra um páskana. Innbrotin framdi maðurinn á Ríkið greiddi 100 þúsund í skaðabætur fyrir hundinn DÓMSMÁLA- og fjármála- ráðuneyti hafa sætzt á að greiða 100 þúsund krónur í skaðabætur fyrir hund. sem lögreglan í Keflavík tók fyrir nokkrum vikum og lét skjóta. Hundurinn sem um ræðir, var tík sem hét Perla. Kvart- anir munu hafa borizt til lögreglunnar vegna hennar. Fór lögregian heim til eigand- ans, sem býr í fjölbýlishúsi, og tók tíkina í gangi hússins og hafði hana á brott með sér. Hundagæzlumaður bæjarins tók tíkina í sína vörzlu og aflífaði hana. Eigandinn mótmælti harð- lega aðförum lögreglunnar og kvað hana ekki hafa heimild til að aflífa hundinn jafnvel þótt hann hefði haft hundinn í leyfisleysi. Á þessi sjónarmið féllst ríkið og bauð eigandan- um 100 þúsund krónur í skaða- bætur sem hann samþykkti. skirdag og föstudaginn langa í íbúðum í austurborginni en þá voru íbúarnir ekki í borginni. Maðurinn tók m.a. litsjónvarpstæki, myndseg- ulband, hátalara, ljósmyndavél, gullarmband, fimm gullhringa og gjaldeyri að upphæð 217 þúsund. Verðmæti þýfisins skiptir milljón- um. Fannst megnið af því í fórum mannsins. Rannsóknarlögregla ríkisins gerði í gær kröfu um gæzluvarðhald yfir manninum og var hann í gærkvöldi úrskurðaður í gæzluvarðhald til 30. apríl í sakadómi Reykjavíkur. LjÓHm. RAX Enn árangurslaus sáttafundur ASÍ og VSÍ: Engin ,samstaða inn- an ASI um aðgerðir SÁTTAFUNDUR var í gær haldinn í kjaradeilu Alþýðusambands íslands og Vinnuveitendasambands íslands og stóð hann í tvær klukkustundir. Fundurinn varð árangurslaus og var nýr fundur boðaður mánudaginn 28. apríl. Fundinn sat 43ja manna samninganefnd ASÍ. en samningamenn vinnuveitenda voru 6. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins munu fulltrúar ASÍ hafa lýst því yfir, að þeir hefðu aðeins umboð til þess að ræða 5% grunnkaupshækkunarkröfu ASÍ og verðbótakröfuna, auk sameig- inlegra sérkrafna. Þeir segjast ekki hafa umboð til þess að ræða sérkröfur félaga. Vinnuveitendur hafa aftur á móti lýst því, að ekki þýði að ræða hluta samninganna, heidur vilji þeir ræða þá í heild og vilja þeir að ASI komi með fullt umboð til samninga. Innan ASI mun ekki vera nein samstaða um aðgerðir. 43ja manna samninganefnd ASI kom saman til fundar í húsakynnum sáttasemjara klukkan 14 í gær og hélt fund um stöðu samninganna. Vextir af orlofsfé fara úr 11,5% í 24% -ÞVÍ er ekki að leyna að 24% vextir eru heldur meira en við treystum okkur til að greiða, i raun og veru getum við ekki greitt nema um 18% vexti, ef ekki á að verða halli á starfseminni,“ sagði Birgir Hermannsson for- stöðumaður Póstgíróstofunnar er Mbl. innti hann eftir því hvernie Póstgíróstofan væri í stakk búii til að grciða nú 24% vexti í staó 11.5% áður af orlofsfé, en félags- málaráðuneytið hefur tekið ákvörðun um framangreinda hækkun. „Ef vaxtatekjur okkar hjá Seðlabanka eru teknar og frá þeim dregnar kostnaður við rekstur fyrirtækisins getum við greitt 18% vexti eins og ég sagði. Þessi hækkun í 24% þýðir það einfald- lega að við verðum með 150—180 milljón króna halla á starfsem- inni,“ sagði Birgir. Birgir sagði ennfremur, að sam- kvæmt nýju reglunum myndi Póstgíróstofan þurfa að greiða um 600 milljónir í vaxtagreiðslur, en á síðasta ári greiddi hún um 235 milljónir króna. I sambandi við þá gagnrýni, sem fram hefur komið á Póstgíróstof- una, að hún greiddi lága vexti vildi Birgir geta þess, að samkvæmt þessari nýju reglu þyrfti hún að greiða 24% allt frá því í maí í fyrra en þá voru vextir af venju- legum sparisjóðsbókum í banka 19%, og væri meðaltalið tekið kæmi í ljós að meðaltalið af sparisjóðsbókum væri 26,75% á móti 24% hjá Póstgíróstofunni. Klukkan 16 kom síðan samninga- nefnd vinnuveitenda og ræddust við síðan tveir frá hvorum aðila, frá vinnuveitendum þeir Þor- steinn Pálsson og Páll Sigurjóns- son, en frá ASI þeir Ásmundur Stefánsson og Snorri Jónsson. Fjármálaráðherra: Ekkihlynnt- ur frekari hræringum á skattstiga „ÉG er ekki spenntur fyrir því að hræra meira í skatt- stiganum og þess vegna erum við að velta fyrir okkur oðrum möguleikum til að leiðrétta hlut þeirra hópa, sem virðast fara frekar illa út úr þessari skattkerfisbreytingu, eins og hún er nú sett upp,“ sagði Ragnar Arnalds, fjármáiaráðherra, er Mbl. spurði hann, hvort ríkis- stjórnin myndi grípa til einhverra aðgerða vegna þeirra einhleypinga og ein- stæðra foreldra, sem fá á sig verulegar tekjuskatts- hækkanir samkvæmt frumvarpi ríkisstjórnar- innar um tekjuskatt og eignarskatt. Ragnar sagði, að ljóst hefði verið frá upphafi, að einstaklingar kæmu ekki eins vel frá breytingunum eins og hjón, þótt aldrei hefði verið ætlunin að hafa mikinn mun þar á. „Það var reynt að mæta þessum vanda með því að teygja skattstigann og hækka per- sónuafsláttinn, en slíkar breytingar eru ákaflega erfiðar, þar sem lagfær- ingar á einum stað geta skapað hættu á ágöllum annars staðar," sagði fjár- málaráðherra. Ragnar sagði ýmsar leið- ir mögulegar til leiðrétt- inga án beinna breytinga á skattstiga, en kvaðst enn sem komið er ekki hallast svo að neinni sérstakri, að hann vildi nefna hana á nafn. Mánafoss kyrrsett- ur vegna smyglmáls M.S. MÁNAFOSS var í gær kyrrsettur í Sundahöfn í Reykjavík vegna leitar að smyglvarningi, en skipið átti að leggja úr höfn klukkan 17 í gær. Fimm skipverjar voru í haldi í Síðumúlafangelsinu í gærkvöldi og voru þeir í yfirheyrslu. Að sögn Kristins Ólafssonar tollgæzlustjóra fundust 66 flöskur af vodka og 33 lengjur af vindling- um við leit í skipinu í gær. Sagði Kristinn að frekari leit hefði þótt nauðsynleg og var skipið því kyrrsett. Leit var haldið áfram til klukkan 22 í gærkvöldi en henni var þá hætt. Kristinn sagði að ákveðið hefði verið að bíða með að veita skipinu fararleyfi þar til niðurstaða lægi fyrir úr yfir- heyrslum Rannsóknarlögreglu ríkisins yfir skipverjum. Leit yrði haldið áfram ef yfirheyrslur gæfu tilefni til. Mánafoss í Sundahöfn i gær. Skipið var kyrrsett vegna leitar að smyglvarningi. Ljósm. Mbl. Emilía. Arnar Guðmundsson deildar- stjóri hjá RLR staðfesti í samtali við Mbl. í gærkvöldi að fimm skipverjar væru í haldi vegna málsins og yfirheyrslur yfir þeim hefðu staðið frá klukkan fimm í gærdag þegar RLR var falin rannsókn málsins. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.