Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980 DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Dómkórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friöriksson. Sr. Þórir Stephensen. ARB/E J ARPREST AK ALL: Guös- þjónustan fellur niður vegna mál- verkasýningar og kaffisölu Kvenfé- lagsins í Safnaöarheimilinu. Sr. Guömundur Þorsteinsson. ASPRESTAK ALL: Messa kl. 11 árd. að Noröurbrún 1. Sr. Grímur Grímsson. BREIÐHOLTSPREST AK ALL: Ef veöur leyfir, veröur sameiginleg útiguösþjónusta Breiöholts- og Fellaprestakalls í garöinum viö Asparfell og Æsufell kl. 11 árd. Sr. Lárus Halldórsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 11 árd. Organleikari Guöni. Þ. Guö- mundsson. Sr. Ólafur Skúlason. FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL: Guösþjónusta í garöinum viö Asp- ar- og Æsufell kl. 11 f.h. Hljóm- GUÐSPJALL DAGSINS: Lúk. 6.: Verið miskunn- samir. sveitin 1. Kor. 13 leikur og syngur. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Guösþjónusta kl. 11. Organleikari Jón G. Þórar- insson. Almenn samkoma n.k. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Fyrirbænaguösþjónusta þriöjudag kl. 10.30 árd. Beöiö fyrir sjúkum. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. árd. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HATEIGSKIRKJA: Messa kl. 11 árd. Sr. Tómas Sveinsson. Organ- leikari Árni Arinbjarnarson. Sr. Arngrímur Jónsson verður fjarver- andi fram aö 19. júlí. KÓPAVOGSKIRKJA: Guösþjón- usta kl. 11 árd. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA: Guösþjón- usta kl. 11. Organleikari Ólafur Finnsson. Guömundur Jónsson óperusöngvari syngur með kórn- um. Sr. Sig. Haukur Guöjónsson. LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Bænaguösþjónusta þriöjudag 1. júlí kl. 18. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Frank M. Halldórsson. Orgel- tónleikar Reynis Jónassonar kl. 20.30 í kirkjunni. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Messa kl. 2. Organleikari Siguröur ísólfs- son. Prestur sr. Kristján Róberts- son. DÓMKIRKJA Krists konungs Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síód. Alia virka daga er lágmessa kl. 6 síðd. nema á laugardögum þá kl. 2 síöd. FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl. 11 árd. ENSK messa veröur kl. 12 á hádegi í Háskólakapellunni. KAPELLA St. Jósefssystra í Garöabæ: Hámessa kl. 2 síöd. KAPELLA St. Jósefsspítala Hafn.: Messa kl. 10 árd. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. Virka daga er messa kl. 8 árd. KEFLAVÍKUR- OG NJARÐVÍK- URPRESTAKÖLL: Guösþjónusta í Innri-Njarövíkurkirkju kl. 11 árd. Kór Keflavíkurkirkju syngur, organ- isti Siguróli Gelrsson. Sr. Ólafur Oddur Jónsson. GAULVERJABÆJARKIRKJA: Guösþjónusta kl. 2 síöd. Sóknar- prestur. AKRANESKIRKJA: Messa kl. 10.30 árd. Sr. Björn Jónsson. STRANDARKIRKJA í Selvogi: Messa kl. 2 síöd. Sóknarprestur. Hrafn Sæmundsson: Lítilli hugmynd komið á framfæri Sum málefni eru þannig vaxin og það stór í sniðum, að þau verða ekki leyst öðruvísi en með sameig- inlegu átaki eða með almennri samhjálp sem allir taka þátt í. Þetta viðurkennum við í verki í þjóðfélaginu okkar og eyðum verulegum fjármunum til sam- hjálpar. Engu að síður er það svo að þrátt fyrir þessa staðreynd og jafnvel þá að við eyddum enn meiru í þessu skyni, þá nægir það aldrei til fulls. Þetta stafar af því, meðal annars, að opinber forsjá. Hrafn Sæmundsson þó góð sé, getur ekki einhliða komið í staðinn .fyrir ýmsa ann- arskonar samhjálp. Hér á ég við það að ekki er hægt að kaupa mannleg samskipti fyrir peninga eða þvinga þau fram með lagaboði. Það er vegna þessarar stað- reyndar, að ég reifa hér hugmynd, sem lengi hefur verið að veltast í huga mínum. Og ég hef raunar rætt þetta málefni við allmarga aðila sem framkvæmd þess myndi heyra undir. Ég er hér að tala um það, hvernig leysa megi þann félags- lega vanda aldraðs fólks og ör- yrkja, sem eru dæmdir til veru- íegrar einangrunar í samfélaginu vegna elli sinnar og örorku. í Reykjavík einni saman eru milli 10 og 15% allra íbúanna ellilífeyrisþegar eða öryrkjar. Margt af þessu fólki býr við góðar aðstæður. Hinsvegar eru það margir sem búa í meiri og minni einangrun, félagslega séð. Og ég hef rökstuddan grun um að þeir sem búa við slíka einangrun séu miklu fleiri en við vitum um eða gerum okkur grein fyrir. Hugmynd mín er sú að gerð verði tilraun til þess að leysa hinn félagslega vanda þessa fólks að einhverju leyti með því að setja málefni þess á námsskrá fram- haldsskólanna. Þeir skólamenn sem ég hef rætt þessi mál við, hafa ekki talið veruleg tormerki á að framkvæma þetta í skólanum. Þessar línur eru til þess eins að reyna að koma fleiri skólamönnum og stjórnend- um fræðslumála inn í þessar umræður. Það væri til að mynda fróðlegt að heyra álit rektoranna í menntaskólunum og fulltrúa menntamálaráðuneytisins á þess- ari hugmynd. Hugmyndin, sem hér er sett fram óunnin með öllu, er hugsuð sem kveikja að hugsanlegum um- ræðum. I grófum dráttum er hugmyndin sú að það verði metið inn í sálarfræði og félagsfræði- kennslu framhaldsskólanna að nemendur aðstoðuðu aldraða og fatlaða við að halda félagslegum tengslum í samfélaginu. Þetta gæti til að mynda gerst á þann hátt að myndaðir yrðu vinnuhópar í framhaldsskólunum, og þessir hópar ynnu sem hluta af námsefn- inu við að hjálpa áðurnefndu fólki til að komast á almannafæri, í leikhús, á sýningar og samkomur og aðra félagsstarfsemi. Auðvitað væri þetta ófram- kvæmanlegt nema til kæmi einnig skipulögð starfsemi annarsstaðar sem ynni með nemendum að verkefninu. Samtök fatlaðra eru þegar fyrir hendi en aldraðir hafa engin samtök og fáir hugsa um þann hóp á þessu sviði frekar en öðrum. Ef þessi hugmynd yrði fram- kvæmd, held ég að allir myndu græða á henni. Unga fólkið myndi þroskast við að glíma við þetta verkefni og skjólstæðingar þess fengju aukna lífsfyllingu. Og eitt er það ennþá í þessu máli sem snýr að framtíðinni. Flestallir þeir sem síðar meir koma til með að stjórna þjóðfélag- inu, ráðherrarnir, alþingismenn- irnir, embættismennirnir og allir hinir, munu koma að stærstum hluta gegnum framhaldsskólana. Ef sú hugmynd sem ég hef hér drepið á yrði framkvæmd, þá hefðu allir þessir aðilar orðið að þreifa sjálfir með eigin höndum á þessum þætti mannlífsins. Stund- um finnst manni það vafamál að allir þeir sem um málefni þessara minnihlutahópa fjalla, hafi mikla persónulega reynslu eða þekkingu á þessu sviði. Allavega benda sumar athafnir þeirra ekki til þess. Jakob V. Hafstein, lögfræðingur: Reykvíkingar svíkja ekki Albert Fjölmennasti útifundur í Reykjavík fyrr og síðar Fyrir þrem dögum var ég stadd- ur á fjölmennum vinnustað í sjávarplássi á norðanverðu Snæ- fellsnesi. Forsetakosningarnar voru þar á dagskrá og mikið ræddar. Sú hættulega skoðun skaut upp kollinum, að sennilega væri hyggilegast að láta atkvæði sitt falla á ákveðinn frambjóð- anda til þess að tryggja að annar frambjóðandi yrði ekki kosinn, sem valda mundi þjóðarharmleik. Þá kvaddi einn verkamaðurinn sér hljóðs, brýndi raustina og sagði hátt og snjallt. Þetta eru mikil firn að heyra. Haldið ykkur fast við ykkar skoðun, sýnið engan bilbug. Reykvikingar munu aldrei svíkja Albert og við gerum það heldur ekki hér. Rúmum sólarhring síðar var ég staddur á Lækjartorgi, ásamt tug- þúsundum Reykvíkinga á útifundi þeirra ágætu hjóna Brynhildar Jóhannsdóttur og Alberts Guð- mundssonar. Sól skein í heiði og Jakob V. Hafstein. veðurguðirnir tjölduðu sínu feg- ursta til að fagna Brynhildi og Albert og þúsundum Reykvíkinga. Og það sérkennilega við þessa geysifjölmennu samkomu var þetta: Þarna voru reykvískir kjósendur, æskan var við önnur hátiðarhöld. Á þessum stórkostlega útifundi, þar sem hver ræðumaður var hinn snjallasti og Albert Guðmundsson fór á kostum, sannfærðist ég um það, að reykvískir kjósendur fylkja sér um Albert, og það, sem verkamaðurinn á vinnustaðnum á Snæfellsnesi sagði, sannaðist á þessum glæéilega útifundi. Ég vil í þessum fáu línum þakka Reykvíkingum fyrir það, hve vel þeir ætla sér að standa vörð um kosningu Alberts til forseta ís- lands. Við stuðningsmenn hans vitum, að fylgi hans fer ört vaxandi úti á landi, því nú vita allir að Albert er og verður „maður fólksins" í landinu. En menn vita líka jafn vel, að úrslit forsetakosninganna verða ráðin hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Fram til sigurs fyrir Albert Reykvíkingar! Nýjar teiknimyndasögur Ldid? Cói+i***** Iðunn hefur sent frá sér fimm nýjar teiknimyndasögur. Fyrst er að telja tvær nýjar bækur í flokknum um hin fjögur fræknu: Hin fjögur fræknu og gullbikarinn og Hin fjögur fræknu og þrumu- gaukurinn. Þetta er sjöunda og áttunda bókin í þessum flokki. Teikningar eru eftir Francois Cra- enhals, en handrit samdi Georges Chaulet. Bækurnar eru gefnar út í samvinnu við Casterman í París, en prentaðar í Belgíu. — Þá er þriðja bókin í flokknum um kalíf- ann í Bagdað, Harún hinn milda og stórvesírinn Fláráð. Þessi nýja bók heitir Fláráður geimfari. Teikningar eru eftir Tabary, en texti eftir Goscinny. Bókin er gefin út í samvinnu við Gutenberg í Kaupmannahöfn. Fjórða bókin um Viggó viðutan heitir Leikið lausum hala. Þær bækur eru eftir franska teiknarann Franquin og gefnar út í samvinnu við Á/S Interpresse. Loks er sjöunda bókin um félag- ana Sval og Val eftir Fournier. Nefnist hún Sprengisveppurinn og segir frá ævintýrum þeirra félaga í Japan. Bókin er gefin út í samvinnu við A/S Interpresse, prentuð í Belgíu. — Jón Gunnars- son þýddi allar þessar teikni- myndasögur. Fréttatilkynning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.