Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JUNI 1980
33
Erlingur Jónsson, Keflavík:
Veður öll válynd
Embætti forseta má teljast tví-
þætt, snertir jafnt mál utan lands
sem innan. Kjósendum ber því að
gera sér þess ljósa grein hvor
þessara þátta vegur þyngra á
metum til velferðar hinni íslensku
þjóð.
Innanlands skipta hér tvö mál
mestu, þ.e. afskipti forseta við
myndun ríkisstjórnar og valda
hans til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hér til hafa forsetar ekki neytt
slíks réttar, þótt sumum þyki sem
stundum hafi verið til þess ærin
ástæða. Varðandi myndun ríkis-
stjórnar, þá tei ég að hlutur
forseta reynist stórum minni en
margir hyggja. Stjórnmálaflokkar
mynda einfaldlega ekki ríkisstjórn
fyrir tilmæli forseta eða til að
þóknast honum heldur eingöngu
er þeir sjá sér hag í slíku. Hversu
kjávís og kjassmáll sem forseti
kynni að vera, tel ég hæpið að
hann fengi „lunkað" taumlata
flokksforingja til stjórnarmynd-
unar. Þessari skoðun til staðfestu
blasir við skýrt dæmi frá síðustu
stjórnarmyndun. Mikils metinn
forseti með nær tólf ára þjálfun á
Bessastöðum lagði sig allan fram
og sparaði sig hvergi, setti upp
allar tiltækar uppstillingar milli
flokka, en ekkert bifaðist, uns
Gunnar Thoroddsen fékk mynd-
aða ríkisstjórn — að kalla má án
tilverknaðar forseta. Hér reyndist
hlutverk forseta nánast formið
eitt, þrátt fyrir þrotlaust amstur
um langt skeið. Að vísu hefði
forseti getað skipað utanþings-
stjórn sem eðli sínu samkvæmt
hlyti þá að hafa staðið stutt, enda
bráðabirgðaráðstöfun.
Starf forseta varðandi önnur
ríki tel ég miklu mikilvægari. Þar
kemur hann fram sem fulltrúi
Islands á erlendri grund eða tekur
á móti útlendum gestum heima
fyrir — oftast mönnum er mikið
kveður að á einhverju sviði eða
þeir skipa jafnvel æðsta sess í
heimalandi sínu (valdamiklir
stjórnmálamenn og þjóðarleiðtog-
ar). Varðar þá miklu að forseti
komi vel fyrir andspænis erlend-
um stórmennum. Skiptir þá
stundum eigi litlu að hann sé vel
mæltur á erlendar tungur og hafi
jafnframt sem besta þekkingu á
alþjóðamálum, sögu heimsins og
menningu yfirleitt. Dugar þá lítt
brjóstvitið eitt þótt gott sé. Hér
gildir hins vegar sem víðtækust
menntun áunnin með námi og
reynslu. Kemur þá að góðu haldi
að hafa kynnst siðum og háttum
sem flestra þjóða og þá ekki síst
hinna stærstu og voldugustu. Ef
forseti orkar vel á erlenda valda-
menn með framkomu sinni reyn-
ast þeir fúsari en ella að greiða
fyrir málum íslands, er stundum
geta varðað okkur miklu en skipta
viðkomandi stórveldi ef til vill
sáralitlu.
Með tilliti til ofanritaðs skal nú
reynt að meta hæfni Péturs
Throsteinssonar til embættis for-
seta borið saman við aðra fram-
bjóðendur.
A) Innanríkismál.
Hér tel ég að Pétur hafi nokkra
yfirburði vegna þess að hann
starfaði um sjö ára skeið sem
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu-
neyti Islands. En það ráðuneyti
hefur langmest tengsl allra
stjórnardeilda við embætti for-
seta. Hann hefur því meiri þekk-
ingu á þessu embætti en aðrir
frambjóðendur, er eigi hafa notið
slíkrar aðstöðu.
B) Utanríkismál.
Hér tel ég að Pétur hafi ekki
aðeins „nokkra yfirburði" gagn-
vart öðrum frambjóðendum held-
ur ótvíræða óvéfengjanlega yfir-
burði.
1) Menntun. Hann er þeirra
menntaðastur, hefur háskólapróf í
viðskiptafræði og lögfræði. Þessa
menntun má telja einkar mikil-
væga varðandi embætti forseta.
Hin mikla kunnátta hans á þess-
um sviðum hefur reynst honum
ærið drjúg á erlendum vettvangi,
við störf hans að erfiðum samn-
ingum fyrir íslands hönd. Auk
þessara háskólaprófa hefur hann
aflað sér miklu meiri þekkingar en
aðrir frambjóðendur á tungum
erlendra ríkja jafnt með sjálfs-
námi sem dvöl á staðnum. Hann
er ágætlega mæltur á frönsku,
þýsku, ensku og rússnesku, (auk
norðurlandamála). Síðastnefnda
tungu talar hann reiprennandi
(eftir tíu ára dvöl í Rússlandi) og
hefur t.d. þýtt á íslensku verk eftir
Chekhov, mesta smásagnahöfund
veraldar. Þá grunar mig að Pétur
búi yfir nokkurri kunnáttu í
spönsku og ítölsku þótt lítið vilji
hann úr því gera. Hygg ég að
enginn annar frambjóðandi hafi
stundað sjálfsnám af slíkri kost-
gæfni. Lumi sumir þeirra að þessu
leyti á einhverjum leyndum kost-
um, er eigi var áður á loft haldið,
bið ég þá forláts.
Pétur hefur lítt slegið um sig
með sinni miklu málakunnáttu.
Má hér til gamans geta þess að þá
er forsetaefni birtust í sjónvarpi
fyrir skemmstu, miðlaði einn
þeirra hlustendum þeim fróðleik
að hann þýddi stundum frönsk og
ítölsk verslunarbréf á íslensku.
Pétur talaði síðar en minntist þó
hvergi á sína málakunnáttu — af
engu minni hæversku. Hér verður
mönnum hugsað til orða Halldórs
Laxness um Pétur. „Hann er of
mikill höfðingi til að berast á„.
2) Störf. Hér gefst ekkert rúm
til að rekja starfsferil Péturs til
hlítar. Hann réðst til starfa í
utanríkisráðuneyti Islands 1944.
Starfaði í Moskvu um tíu ára
skeið, fyrst sem sendifulltrúi
(einnig formaður samninganefnd-
ar um viðskipti) og síðar sem
sendiherra. Þá sendiherra í
Vestur-Þýskalandi, Frakklandi og
Bandaríkjunum. Samtímis var
hann sendiherra í mörgum lönd-
um, svo sem um alla Suður
Ameríku og hjá alþjóðastofnun-
um. Ráðuneytisstjóri í utanríkis-
ráðuneyti 1969—76 og jafnframt
ritari utanríkisnefndar Alþingis.
Síðan 1976 hefur hann verið sendi-
herra í átta löndum með aðsetur í
Reykjavík, svo sem Kína, Japan og
Indlandi. Heimsækir hann þessi
lönd alla jafnan tvisvar á ári.
Af ofangreindu má ljóst vera að
Pétur ber mjög af öðrum fram-
bjóðendum til forsetaembættis
varðandi 1) menntun (skóla,
sjálfsnám og reynslu). 2) Unnin
störf skyld embætti forseta. 3)
Þekkingu á umheiminum (en svo
má heita að hann hafi ferðast um
gjörvalla veröld og dvalist í fjöl-
mörgum þjóðlöndum). Á löngum
starfsferli sínum hefur Pétur
kynnst fyrirmönnum fjölda þjóða
og stofnað til vináttu við marga
þeirra.
Um mannkosti Péturs efast
enginn er þekkir hann. Oddný
kona Péturs er viðskiptafræðingur
að mennt með staðgóða kunnáttu
á erlendum tungum, enda hefur
hún með þekkingu sinni og fram-
komu orðið manni sínum ómetan-
leg stoð á ferðum hans hin síðari
ár um átta lönd sem fyrr segir og
hvarvetna orðið landi sínu til
sóma.
Vafurlogar hins kalda stríðs
brenna nú helsti heitt um lönd
Afgana og Persa, færast óðfluga í
nánd við mestu olíusvæði heims.
Enginn veit hvenær bál þetta
kynni að berast vítt um alla
veröld. Væri íslandi þá gott að
eiga þann foringja í stafni, er
stýra kynni þjóðarskútu vorri í
hamförum slíks hildarleiks. Eng-
inn er líklegri til þess en Pétur
Thorsteinsson með sinni víðtæku
þekkingu og reynslu á sviði heims-
mála.
Fyrsti forseti íslands, Sveinn
Björnsson, hóf störf við slíkar
aðstæður á tímum síðari heims-
styrjaldar. Sú hugsun hvarflaði þá
ekki að nokkrum manni að velja
annan en hann til þess embættis
vegna þekkingar hans á sviði
heimsmála, — einmitt þar sem
Pétur Thorsteinsson er yfirburða-
kostum búinn.
Vonandi er þjóð vor ekki svo
heillum horfin, að hún hafni Pétri
Thorsteinssyni.
Sunnlendingar styðja
Albert Guðmundsson
Undirritaðir stuðningsmenn Alberts Guö-
mundssonar á Suðurlandi heita á Sunnlendinga að
fylkja sér um Albert og Brynhildi til heilla fyrir
íslenzku þjóðina.
Siguröur Siguröarson Skammbeinstöðum,
Aðalbjörn Kjartansson Hvolsvelli,
Eyvindur Ágústsson Skíöbakka,
Tómas Jónsson Skaröshlíö,
Helga Hjaltadóttir Hellu,
Hilmar Jónsson Hellu,
Jón Þóröarson Eyvindarmúla,
Þorsteinn Þórðarson Sléttubóli,
Diörik Sigurösson Kanastöðum,
Eggert Haukdal Bergþórshvoli,
Sigurbjartur Guöjónsson Hávaröarkoti,
Svala Óskarsdóttir Hrútafelli,
Höröur Valdimarsson Akurhóli,
Jónas Helgason Hellu,
Sigríöur Magnúsdóttir Dddsparti,
Gunnar Jónsson Nesi,
Sigurjón Sveinbjörnsson Mió-Mörk,
Ingólfur Jónsson Hellu,
Guöjóna Friöriksdótfir Eyrarlandi,
Eggert Óskarsson Hvolsvelli,
Siguröur Óskarsson Hellu,
Halldóra Magnúsdóttir Hávaróarkoti,
Tómas Kristinsson Grímsstööum,
Guöjón Sigurjónsson Ketilstöðum,
Stefán Kjartansson Hvolsvelli,
Hermann Sigurjónsson Raftholti,
Magnús Eyjólfsson Hrútafelli,
Baldur Ólafsson Fit,
Sveinbjörn Gíslason Mlö-Mörk,
Eysteinn Elnarsson Brú,
Páll Hafliöason Búö,
Guöni Guönason Kirkjulækjarkoti,
Rósa Aöalsteinsdóttir Stóru-Mörk,
Helga Dagbjartsdóttir Stóru-Mörk,
Erla Óskarsdóttir Búö II,
Oddný Benónýsdóttir Eyvindarmúla,
Guöjón Guönason Háarima,
Ársæll Markússon Hákoti,
Hjalti Gunnarsson írafossi,
Sigurbjörg Gústafsdóttir irafossi,
Selfoss:
Þóröur Sigurósson mjólkurbílstjóri,
Valdimar Bragason prentari,
Ingvi R. Sigurósson trésmiöur,
Björn Gíslason rakarameistari,
Róbert Benediktsson húsasmiöur,
Sighvatur Eiríksson tæknifræöingur,
Brynleifur H. Steingrímsson læknir,
Þóra Grétarsdóttir bankastarfsmaöur,
Benedikt Jóhannsson blikksmiöur,
Guömundur Sigurösson trésmiöur,
Kristján Jónsson mjólkurbílstjóri,
Eggert Jóhannsson byggingarfulltrúi,
Hulda Guöbjörnsdóttir hjúkrunarfræöingur,
Auöur Thoroddsen afgreiðslustúlka,
Áslaug Helgadóttir bankastarfsmaöur,
Sigurbjörg Gísladóttir húsmóöir,
Gísli Á. Jónsson trésmiöur,
Páll B. Símonarson vélamaöur,
Bryndís Tryggvadóttir sjúkraliöi,
Árni Brynjólfsson húsvöröur,
Geir Jónsson mjólkurfræöingur,
Kristín Árnadóttir húsmóöir,
Jóhann Þórisson,
Magnús Matthíasson sölumaöur,
Þorbjörg Þorvaröardóttir húsmóöir,
Guömundur Árnason verkstjóri,
Hólmfríöur Kjartansdóttir húsmóöir,
Hallfríður Baldursdóttir húsmóöir,
Hjalti Sigurösson rafvirki,
Þórmundur Bergsson nemi,
Þorsteinn Þorsteinsson, rafvirki,
Aöalheiöur Jónasdóttir húsmóöir,
Gunnar Gunnarsson prentari,
Gústav Sigjónsson framkvæmdastjóri,
Siguröur Guömundsson framkvæmdastjóri,
Þorlákur Björnsson fyrrv, bóndi,
Einar Jónsson knattsp.maöur,
Gísli Steindórsson bílstjóri,
Perla María Jónsdóttir húsmóöir,
Dagbjartur Pálsson,
Valdimar Karlsson vélstjóri,
Haraldur Gestsson,
Jóhannes Erlendsson,
Auöbjörg Einarsdóttir húsmóöir,
Þorsteinn Sigurösson trésmi'öameistari,
Guörún Valdimarsdóttir húsmóöir,
Guölaug Hjaltadóttir afgreiöslumær,
Sr. Siguröur Pálsson vígslubiskup,
Stefanía Gissurardóttir frú,
Siguröur E. Ásbjörnsson kaupmaöur,
Hafdís J. Kristjánsdóttir bankastarfsmaöur,
Ásgeir Guönason rafvirki,
Guömundur Axelsson póstmaöur,
Jóna Sigurlásdóttir húsmóðir,
Sigrún Jónsdóttir húsmóöir,
Þorkell Hólm Gunnarsson bifvélavirki,
Arndís Jónsdóttir frú,
Sr. Siguröur Siguröarson sóknarprestur.
Oddur Einarsson málari,
Slgurbjörg Hermundsdóttir húsmóöir,
Snorri Ólafsson rafvirki,
Friörik Sæmundsson múrarameistari,
Hafsteinn Sörensen mjólkurfræöingur,
Sveinn Á. Sigurösson verkamaöur,
Ingólfur Báröarson kjötiön.maður,
Hafsteinn Steindórsson fangavöröur,
Steinar Stetánsson trésmíöanemi,
Hlín Daníelsdóttir kennari,
Valgeröur Gísladóttir húsmóöir,
Heiöar Engilbertsson mælingamaður,
EmiKa Gránz hárskeranemi,
Arnold Pétursson verslunarmaöur,
Kristjana Guömundsdóttir húsfrú,
Sigurjón Skúlason húsasmíöanemi,
Ásgrímur Kristófersson vélamaöur,
Hilmar Hoffritz trésmiöur,
Þór Sigurösson trésmiöur,
Hveragerði:
Magnea Jóhannsdóttir húsfrú,
Magnús Ágústson læknir,
Siguröur Ingimarsson garðyrkjumaöur,
Guðjón H. Björnsson garðyrkjumaöur,
Ingólfur Pálsson rafvirki,
Siguröur Pálsson sveitarstjóri,
Óiafur Steinsson garöyrkjumaöur.
Unnur Þóröardóttir húsfrú,
Stefán Magnússon forstjóri,
Pétur Þóröarson bifr.stjóri,
Alda Andrésdóttir bankastjóri,
Árni Ásbjarnarson forstjóri,
Ólafur Þorláksson bóndi,
Helga Eysteinsdóttir húsfrú,
Margrét Karlsdóttir kaupmaður,
Indriöi Kristinsson kaupmaöur,
Aage Michelsen bifrm.,
Helgi Þorsteins múrari,
Þorsteinn Matthíasson fyrrv. skólastjóri,
Ingimar Sigurðsson garðyrkjumaður,
Emilía Friðriksdóttir húsfrú,
Jónas Björnsson rafvirki,
Bjarni Snæbjörnsson garöyrkjumaöur,
Pálína Kjartansdóttir matráöskona,
Benný Sigurðardóttir húsfrú,
Hans Gústafsson garöyrkjumaöur,
Sigrún Sigfúsdóttir húsfrú,
Sigurlaug Guömundsdóttir húsfrú,
Sæmundur Guömundsson bóndi,
Guörún Þorláksdóttir húsfrú,
Elín Þórarinsdóttir húsfrú,
Björgvin Pálsson.
Stokkseyri:
Jón Ármann Sigurjónsson netageröarmaöur,
Steingrímur Jónsson oddviti,
Sigurjón Jónsson húsasmiöur,
Guömundur Einarsson netageröarmeistari,
Elfar Guöni Þóröarson listmálari,
Ásgrímur Pálsson framkvæmdastjóri,
Pálmar Þ. Eyjólfsson organisti,
Hinrik Ingi Árnason trésmíöanemi,
Steindór Guömundsson flokksstjóri,
Magnús Ingi Gíslason varöstjóri,
Kolbeinn Guömannssoa húsgagnasmiöur,
Dagný Hróbjartsdóttir húsfrú,
Anný Jónasdóttir skrifstofumaöur,
Eyjólfur Óskar Eyjólfsson varöstjóri,
Eyrarbakki:
Magnús Öfjörö Markússon,
Þóröur Eiríksson sjómaöur,
Hafþór Gestsson verkstjóri,
Jón Eiríksson verkamaöur,
Loftur Kristinsson vélvirkjameistari,
Erla Sigurjónsdóttir verzlunarmaöur,
Guöbjörg Eiríksdóttir húsfrú,
Magnús Sigurðsson læknir,
Sigurjón Bjarnason flokksstjóri,
Kjartan Guöjónsson oddviti,
Rúnar Eiríksson varaform. Verkalýösfél. Báran,
Bjarnfinnur Sverrisson verkamaöur,
Þorlákshöfn:
Karl Karlsson útgeröarmaöur,
Snorri Sveinsson sjómaöur,
Guöm. Bjarnason bifvélavirki,
Fraklinn Benidiktsson kaupmaöur,
Siguröur Bjarnason skipstjóri,
Guömunur Óskarsson sjómaöur,
Guölaug Sveinsdóttir verkstjóri,
Sverrir Sigurjónsson trésmiöur,
Sigalda:
Sverrir Steindórsson rafvirki,
Örn Sævar Björnsson rennismiöur,
Guöm. Pétur Arnoldsson rafvirki,
Ásgeir Þór Eiríkdsson nemi,
Björn Sverrisson rafvirki,
Þóröur Guömundsson verkfræöingur,
Guömundur Þ. Hafsteinsson málari,
Sigurður Guömundsson mötuneyti,
Heiðmundur Klemensson verkamaöur,
Stefán H. Arnþórsson vélvirki,
Halldór G. Kristjánsson flokksstjóri,
Jón Ingileifsson Svínavatni Grimsnesi,
Brynjólfur Sævar Kragh Grímsnesi,
Ingólfur Árnason.Mosfelli Grímsnesi,
Guömundur Pálmar Kragh Grímsnesi,
Síra Ingólfur Ástmarsson Mosfelli Grímsnesi,
Rósa Björnsdóttir Mosfelli Grfmsnesi,
Þóra Magnússon Grímsnesi,
Örn Ingólfsson Grímsnesi,
Ellen Nína Sveinsdóttir Grímsnesi,
Sigmundur Sigurösson Syöra Langholti Hrun.,
Einar Hallgrímsson Garöi Hrun.,
Emil Gunnlaugsson Laugarlandi Hrun.,
Áslaug Árnadóttir Smárahlíö Hrun.,
Guömundur Sigurðsson Áslandi Hrun.,
Leó Jóhannsson bóndi Ljónsstööum Sandv.hr.,
Guöbjörg Tyrfingsdóttir Ljónsstööum Sandv.hr.,
Lýöur Guömundsson hreppstj. Litlu-Sandvík Sandv.hr.
Jóhann Sveinbjörnsson Snorrastööum Laugardal,
Siguröur Sigurösson Hrísholti Laugarvatni,
Halldór Benjamínsson húsasm. Laugarvatni,
Guömundur Ingólfsson löu III, Bisk.,
Fríöur Pálsdóttir Laugageröi Bisk.,
Páll Halldórsson Hjaröarbóli. Ölf.,
Halldór Guömundsson sláturhússtj. Hjaröarbóli, Ölf.,
Ölafur Jónsson framkvst. Lækjartúni, Ölf.,
Hjalti Þóröarson bóndi Bjarnastööum Ölf„
Guörún Guöfinnsdóttir verzlm. Stóru-Sandvík, Sandv.hr .
Ari Páll Tómasson trésm. Stóru-Sandvík, Sandv.hr.,
Einar Einarsson bóndi,
Elvar Ágústsson Villingaholti Vill.,
Stefán Pálsson Ásólfsstööum Gnúpverjahreppi,
Viktor Björnsson vélstjóri, Búrfelli,
Eyþór Brynjólfsson dýpkunarstjóri Búrfelli,
Sigmundur Sigurjónsson kjötiönm. Gnúpverjahreppi,
Óli Sigurösson dýpkunarstjóri Búrfelli,