Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JIJNÍ1980 21 Klttpp á Grimsstaðaholti. Selfoss: Hans Christiansen sýnir í Safnahúsinu í dag verður opnuð myndlist- arsýning í Safnahúsi Árnessýslu á Selfossi. Hans Christiansen sýnir þar 34 vatnslitamyndir og teikningar, gerðar á þessu og síðasta ári. Hans Christiansen hefur lagt stund á myndlist um árabil og stundaði nám í Handíða og myndlistaskólanum, Myndlista- skólanum í Reykjavík og Aka- demiet for Fri og Merkantil Kunst í Kaupmannahöfn. Sýningin verður opin um helg- ar kl. 14—22 og virka daga kl. 20—22. Sýningunni lýkur á sunnudagskvöld 6. júlí. Akranes: Tíu Finnar sýna í Bókasafninu UM helgina var opnuð málverkasýning í Bókasafni Akraness á vegum „Nárpes Konstklubb", sem er myndlistafélag í vinabæ Akraness í Finnlandi. Tíu listmálarar frá Nárpes hafa sent um 40 málverk á þessa sýningu, olíumálverk, vatnslitamyndir og grafík. Sýningin stendur fram að 2. júlí og er opin daglega milli kl. 14 og 22. Myndir eftir Elínu Sandstrttm. „Gul Bióm“ og „Hlóðir.“ Utivist: Við refagildru. Ferð á Selatanga Á MORGUN, sunnudaginn 29. júní verður ferð frá Utivist á Selatanga. Selatangar er gamall útróðrastaður á ströndinni miðja vegu milli Grindavíkur og Krísu- víkur. Þar er að finna með merk- ustu fornminjum á Suðvesturlandi t.d. hraunhlaðin fiskabyrgi, refa- gildrur og verbúðarústir. Bygg- ingar minna á írskan byggingar- stíl og telja margir að Papar hafi búið þarna. Ströndin er hraun- strönd þar sem sjá má fallegt brim og seli o.fl. Fararstjóri verður Jón I. Bjarnason. Lagt verður af stað frá Umferðarmiðstöðinni kl. 13.00, i Hafnarfirði við Kirkjugarðinn kl. 13.15. Samhliða Selatangaferð verður fólki gefinn kostur á göngu á Stóra-Hrút. Opið hús að Sólheimum í Grímsnesi: Um átta hundruð manns sóttu staðinn heim í TILEFNI þess að um þessar mundir eru 50 ár liðin frá því Sesselja Sigmundsdóttir hóf rekstur barnaheimilis að Sólheim- um í Grímsnesi var haldið „Opið hús“ á Sólheimum sunnudaginn 22. júní s. 1. til kynningar á starfsemi staðarins. Um átta hundruð manns sóttu Sólheima heim á þessum degi, skoðuðu staðinn og þáðu veitingar. Dagurinn hófst með því að foreldrar og aðrir vandamenn nemenda komu á staðinn snemma morguns og áttu saman ánægju- lega morgunstund í heimilisein- ingu viðkomandi nemanda. í eftir- miðdaginn voru öll heimili og vinnustofur opnaðar almenningi til sýnis og einnig voru munir þeir, sem nemendur hafa unnið, t. d. í dúkkugerð, vefstofu, smíðastofu og kertagerð til sölu. Seldist flest það sem til var upp á skammri stundu. Þá seldist einnig græn- meti þáð, sem ræktað er á Sól- heimum mjög vel. Sundlaug stað- arins, sem félagar í Lionsklúbbn- um Ægi hafa unnið við endurbæt- ur á að undanförnu var óspart notuð af gestum, enda veður hið ákjósanlegasta. Kynnt var í máli og myndum starf Sólheima frá fyrri árum. Þótt hinn eiginlegi afmælisdag- ur sé ekki fyrr en 5. júlí n. k. bárust Sólheimum á þessum degf margar góðar gjafir, t. d. málverk frá Dritvík á Snæfellsnesi, eftir og frá Veturliða Gunnarssyni, bóka- gjöf frá Menntamálanefnd Þjóð- kirkjunnar, íþróttatæki frá For- eldra- og vinafólki Sólheima og frá starfsfólki staðarins garð- yrkjutæki, blóm o. fl. Auðséð var, að dagurinn var gestum og ekki síður nemendum og starfsmönnum til óblandinnar ánægju. 278 kandidatar frá H.Í.: Haraldur Sigurðs- son heiðursdoktor Afhending prófskírteiná til kandídata fer fram við afhöfn í Háskólabíói í dag. Athöfnin hefst með samleik á flautu og sembal, Manúela Wiesler og Helga Ingólfs- dóttir leika. Rektor háskólans, prófessor Guðmundur Magnússon flytur ræðu. Síðan verður lýst kjöri heiðursdoktors og afhent doktors- bréf. Forseti heimspekideildar, dr. Alan Boucher, lýsir kjöri Haralds Sigurðssonar bókavarðar. Deild- arforsetar afhenda prófskírteini. Háskólakórinn syngur nokkur lög, sljórnandi frú Rut Magnússon. Að þessu sinni verða braut- skráðir 278 kandídatar og skiptast þeir þannig: Embættispróf í guð- fræði 6, B.Á.próf í kristnum fræð- um 1, embættispróf í læknisfræði 36, aðstoðarlyfjafræðingspróf 6, B.S.-próf í hjúkrunarfræði 16, B.S-próf í sjúkraþjálfun 15, emb- ættispróf í lögfræði 22, kandí- datspróf í viðskiptafræði 24, kandídatspróf í íslenskum bók- menntum 1, kandídatspróf í sagn- fræði 2, kandídatspróf í ensku 2, B.A.-próf í heimspekideild33, próf í íslensku fyrir erlenda stúdenta 3, lokapróf í rafmagnsverkfræði 11, fyrrihlutapróf í efnaverkfræði 3, B.S.-prófi í raungreinum 49, kandí- datspróf í tannlækningum 6, B.A.-próf í félagsvísindadeild 19. Norræna húsiö: Sumarsýning á verkum íjögurra listamanna SUMARSÝNING Norræna húss- ins 1980 vferður opnuð í dag laugardaginn 26. júní og er þetta fimmta sumarsýning hússins. Að þessu sinni sýna þrír list- málarar og einn myndhöggvari verk sín, Benedikt Gunnarsson, Jóhannes Geir, Sigurður Þórir Sigurðsson og Guðmundur Elías- son. Aðaltilgangur sýningarinnar er að veita þeim fjölmörgu erlendu ferðamönnum, sem leggja leið sína í húsið á sumrin nokkra innsýn í íslenska myndlist, jafn- framt því að vera íslenskum list- unnendum ánægjuauki. Sumarsýningin verður opin daglega frá kl. 14—19 fram til 19. ágúst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.