Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980
Ljósm. Mbl. hrÍKtján
Á þessari mynd má sjá þá hlaupara sem báru
íþróttahátíðareldinn um götur Reykjavíkur koma inn á
LauKardalsvöllinn. Fremstur fer Gunnar Páll Jóakims-
son og næstur honum er Ágúst Ásjjeirsson. Gunnar Páll
tendraði hátíðareldinn og á vellinum en hann mun loga
þar til sumaríþróttahátíðinni verðu slitið.
3 landa keppnin
hefst á mánudag
Á BLAÐA’IANNAFUNDI sem
KSÍ hélt á Akureyri íyrir
skömmu var gerð Krein fyrir
þrigKja landa keppni i knatt-
spyrnu sem haldin verður á
norðurlandi um næstu mánaða-
mót. Keppa þar lið íslands. Fær-
eyja og Grænlands, og verða
þetta fyrstu landsleikir Græn-
lendinga.
Þriggja manna nefnd skipuð
þeim Rafni II jaltalí n. Helga
Danieissyni og Helga Þorvalds-
syni hefur undirbúið þessa
keppni mjög vel og itarleg
dagskrá hefur verið samin.
Fyrsti leikurinn verður á Akur-
eyri mánudaginn 30/6 og leika
þá ísland og Færeyjar. Næsti
leikur verður Ieikur Grænlands
og Færeyja á Sauðárkróki mið-
vikudaginn 2/7 og þriðji og
síðasti leikurinn verður leikur
íslands og Grænlands á Húsavík
föstudaginn 4/7, Keppt verður
um hikar til eignar í keppninni
og er hann gefinn af Fjórðungs-
samhandi Norðurlands.
í ferð sinni hingað mun landslið
Grænlands leika gestaleik við 3.
deildarlið Magna á Grenivík,
sunnudaginn 6/7. Grænlendingar
hafa nýlega stofnað knattspyrnu-
samband og leggja þeir mjög
mikla áherslu á þessa leiki. Þeir
eru nú staddir í Bergen í Noregi
þar sem þeir spila æfingaleiki við
Brann. Grænlendingar ætla að
lýsa báðum leikjum sínum í
keppninni til Grænlands og hefur
fyrrverandi útvarpsstjóri Græn-
lands verið hér á landi að undir-
búa lýsinguna. Áætlaður kostnað-
ur við lýsingarnar er 30—40 þús-
und krónur danskar.
Lítið er vitað um Grænlenska
liðið, en þó er vitað að þeir hafa
mjög ungu liði á að skipa.
Hvað viðvíkur íslenska liðinu þá
kom það fram á fundinum að
notað verður sterkasta liðið sem
völ verður á. Möguleiki er á því að
einhverjir af atvinnumönnunum
verði hér á landi í sumarfríi og
verða þeir þá mjög sennilega
notaðir. Einnig er möguleiki á því
að ungir leikmenn fái að spreyta
sig.
Það kom fram á fundinum að
nauðsynlegt er að fá u.þ.b. 3500—
4000 áhorfendur á þessa leiki
samtals svo KSÍ fari ekki með tapi
frá þessu fyrirtæki. KSÍ borgar
alit uppihald fyrir liðin en þau
greiða flugferðir sínar sjálf. Það
léttir undir bagga hjá KSI að ýmis
fyrirtæki og aðrir aðilar bjóða
liðunum í matar og kaffiboð á
meðan þau dvelja hér.
Þessir landsleikir eru fyrstu
A-landsleikirnir sem fara fram
utan Reykjavíkur og var þeirri
spurningu varpað fram á fundin-
um hvort það væri stefna KSÍ að
færa leiki oftar út á land. Helgi
Daníelsson sagði að því miður
væri það ekki hægt vegna mikils
kostnaðar. Hann sagði ennfremur
að venjulega væri nauðsynlegt að
fá ca. 10.000 áhorfendur á hvern
landsleik til að hann bæri sig.
Ástæðuna fyrir því að þessir leikir
væru á Norðurlandi sagði Helgi
vera þá að vitað hefði verið að
Norðlendingar hefðu haft mikinn
áhuga á því að fá landsleiki
norður og einnig að KSI búist við
því að fleiri áhorfendur komi á
leikina ef þeir verða fyrir norðan
en ef þeir yrðu í Reykjavík. Helgi
sagði það von forráðmanna KSÍ að
Norðlendingar myndu hafa áhuga
á leikjunum og fjölmenna á þá.
—sor
Fjölskylduhátíð á
Laugardalsvellinum
Lokahátíð Íþróttahátíðarinnar
mun hefjast á Laugardalsvellinum
kl. 19.30 á sunnudag. Mun hátíð
þessi verða mjög fjölbreytt og
stefnt að því að þarna verði um
fjölskylduhátíð að ræða. Á hátíð-
inni verða sýningaratriði sem
aldrei áður hafa verið á dagskrá á
Laugardalsvellinum. Hátíðin
hefst með því að Hornaflokkur
Kópavogs leikur undir stjórn
Björns Guðjónssonar. Síðan fer
fram sýning hestaíþróttamanna,
og munu þar koma fram flestir
bestu gæðingar landsins og bestu
knapar. Þá mun fram fara keppni
og sýning vélhjólamanna og er
þetta í fyrsta sinn sem þeir
spreyta sig á Laugardalsvellinum.
Einn þátturinn í lokahátíðinni
verður svo knattspyrnukappleik-
ur, þar sem gamanið mun væntan-
lega sitja í fyrirrúmi, en þátttak-
endur í leik þessum verða m.a.
nokkrir af þekktustu leikurum
landsins. I liði leikaranna verða
m.a. Bessi Bjarnason, Guðmundur
Pálsson, Gísli Halldórsson, Gísli
Alfreðsson, Gísli Rúnar, Randver
Þorláksson og Þórhallur Sigurðs-
son.
Á lokahátíðinni kemur einnig
fram hin vinsæla hljómsveit
Brimkló, ásamt söngvara sínum,
Éjörgvin Halldórssyni og Pálmi
Gunnarsson, söngvari mun einnig
skemmta, svo og karlakórinn
Fóstbræður. Má geta þess að
nokkrir kórfélagar í Fóstbræðrum
munu taka lagið með hljómsveit-
inni Brimkló.
Kynnir á lokahátíðinni verður
Hermann Gunnarsson, fréttamað-
ur.
Að lokinni athöfninni og
skemmtuninni á Laugardalsvell-
inum verður svo dansleikur í
Laugardalshöllinni, þar sem
hljómsveitin Brimkló og Björgvin
Halldorsson skemmta. Stendur
dansleikurinn til kl. 02.00, en þá
verður flugeldasýning.
Væntanlega munu margir
þeirra er leggja leið sína á dans-
leikinn fá áhuga á að fylgjast með
talningu í forsetakjörinu, en
fyrstu tölur úr því kjöri munu
væntanlega berast fljótlega eftir
að kjörfundi lýkur. Fyrirtækið
Heimilistæki h.f. mun leggja til
sjónvarpstæki í Laugardalshöll-
inni, þannig að samkomugestir
hafa tækifæri til þess að fylgjast
með kosningasjónvarpinu, milli
þess sem þeir dansa og skemmta
sér.
• Viö setningu sumaríþróttahátíðar ÍSÍ. Siðasti kyndilberin Gunnar Páll Jóakims-
son býr sig undir að tendra hátíðareldinn á leikvanginum. hjósm. Kristján.
Vítaverð vinnubrögó
Það fer varla framhjá neinum
að nú stendur yfir íþróttahátið
ISÍ og er það vel. Eins og fram
hefur komið hjá iþróttaleiðtogum
er tilgangurinn sá að efla íþrótt-
ir í landinu bæði fyrir íþrótta-
menn og almenning. En misjafn
sauður er í mörgu fé. Það er
keppt í knattspyrnu og eru liðin
frá landshlutunum. og er þá
komið að ástæðu þessa bréfs.
Undirritaðir eru mjög óánægðir
með hvernig staðið var að vali
úrvals fyrir Suður- og Vesturland
í 4. flokki.
Forsaga raálsins er sú að ÍBK
var beðið um að sjá um valið, en
þeir sáu sér ekki fært að gera það
vegna tímaskorts og utanferðar
liðs þeirra og er þar drengilega
fram komið. Þá var leitað til FH
og ÍK og þar fengust betri svör, já,
já. Síðan settust þessi tvö félög
niður og völdu 6 leikmenn frá FH
og 6 frá ÍK og síðan frá Stjörnunni
og Haukum það sem á vantaði í 16
manna hóp, en höfðu ekkert sam-
band eða samráð við þjálfara
annarra liða á svæðinu. En hver
er styrkleiki þessara liða miðað
við UBK, ÍA og ÍBK? Öll félögin
þrjú leika í A-riðli, íslandsmóts 4.
flokks en bæði FH og ÍK leika í
B-riðli, auk þess hafa UBK, IK,
IBK og FH leikið saman í afmæl-
ismóti UBK í maí sl. og fylgja hér
úrslit úr leikjum þessarra félaga
innbyrðis:
ÍBK-FH 4:0, ÍBK-ÍK 7:0,
UBK-ÍK 4:2, UBK-ÍBK 3:1,
UBK—FH 3:1.Auk þess hafa ÍA,
ÍBK og UBK staðið sig með sóma í
A-riðli og er UBK efst þar með 10
stig eftir 5 leiki. Það er skoðun
félaganna ÍA, ÍBK og UBK að hér
sé um vítaverð vinnubrögð að
ræða og ætti mótsstjórn íþrótta-
hátíðar að víta þessi vinnubrögð.
En svo er annað sem gæta þarf
að og hefur einnig sín áhrif
varðandi framangreint val og
varðar framtíð íslenskrar
knattspyrnu. ísland velur árlega
og sendir til keppni, jafnvel á
erlendri grund, lið í þessum ald-
ursflokki. Sá sem velur slíkt lið
fyrir næsta ár hefði átt að hafa
möguleika til að sjá og fylgjast
með þeim bestu í keppni innbyrð-
is, en eins og ljóst má vera af
framansögðu er þess ekki kostur.
Þetta atriði lítum við mjög alvar-
legum augum og teljum að hér sé
um svo alvarlegt mál að ræða að
KSÍ hljóti að sjá sig knúið til að
hafa hér af nokkur afskipti. Að
lokum er rétt að geta þess að mun
fleiri félög en að framan greinir
eru á þessum landshluta og hefðu
þau sjálfsagt getað átt sína full-
trúa í úrvalsliði fyrir Suður- og
Vesturland.
Það er von okkar að það sem að
framan er sagt eigi ekki eftir að
endurtaka sig, því með slíkum
vinnubrögðum, getum við aldrei
vænst þess að knattspyrnan á
íslandi geti orðið það góð að sómi
verði af fyrir land og þjóð.
Virðingafyllst,
Unglingaknattspyrnuráð ÍA
Viðar Einarsson
Unglinganefnd UBK
Kristján G. Þorvaldz