Morgunblaðið - 28.06.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980
13
námsskrá og námsefni hjúkrunar-
fræði við Háskólann, með tilliti til
þekkingar og menntunar þeirra,
sem þaðan útskrifast, svo að þeir
viti hvers má vænta af þeim. Nýju
hjúkrunarfræðingarnir fara út á
vinnumarkaðinn og starfa undir
stjórn þessa fólks, sem þarf þá að
vita til hvers hægt er að ætlast af
þessum starfskrafti til að nýta
þekkingu hans til fulls. Og í þriðja
lagi er þetta dýrmætt tækifæri
fyrir hjúkrunarforstjórana, sem
eru dreifðir um land allt, til að
hittast, kynnast og skiptast á
skoðunum, því stjórnandinn á
hverjum stað er einn.
• Magn hjúkrunar
og gæði
Margaret Hooton segir að upp-
byggingin í hjúkrun sé svipuð hér
og í Kanada, og raunar eins og alls
staðar þar sem um er að ræða
framleiðanda og þyggjanda þjón-
ustu. En vandinn í dag sé hvernig
hægt sé að láta magn og gæði
umönnunar haldast í hendur.
Hvernig hagkvæmast sé að
stjórna fólkinu, sem við þessi störf
er, þannig að sem best nýting fáist
með þetta markmið í huga. Sá er
þó munurinn á þessum stjórnun-
arstörfum og mörgum öðrum, að
hjúkrunarforstjórarnir eru ekki
að nýta tæki heldur mannafla. Og
að jafnvel þótt nægur mannafli sé
fyrir hendi, sé engin trygging
fyrir því að hann framleiði það
sem veita á. Ekkert mælitæki er
hér til. Að vísu megi telja rúmin,
sem búið er um, en það segi ekkert
um hve mikið magn það sé af
hjúkrun. Auk afkastanna verði því
að leggja mikið upp úr gæðum
hjukrunar. En gæðin aukast með
aukinni þekkingu. Auk þess megi
spara í stjórnunarstörfum, ef
menntun hjúkrunarfólksins auk-
ist. Hjúkrunarfræðingarnir geta
þá eytt meiri tíma í hjúkrunina
sjálfa, ef þeir þurfa minna að
stjórna öðru fólki. Nú á tímum
beinist gagnrýnin að því að hjúkr-
un sé alltaf að verða ópersónulegri
og að mikilvægast sé nú í stjórnun
að finna hvernig við getum fengið
mannlegu þættina inn í.
— Það er rétt að kostnaður til
heilbrigðismála er alveg geysileg-
ur, sagði Margaret Hooton. Enda
snýst stjórnunin um það að reyna
að tryggja gæði hjúkrunar og
skipuleggja hana með tilliti til
þess að sem mest magn fáist fyrir
fjármagnið, sem fyrir hendi er.
Vissulega eru mjög mismunandi
aðstæður hjá þeim, sem sækja
þetta námskeið. En hluti af
stjórnun er einmitt að láta tæki og
þekkingu hæfa hverjum stað og í
hverju tilviki.
Á námskeiðinu var fjallað um
hina ýmsu þætti málsins. Flutt
voru erindi um hjúkrun og yfir-
stjórn heilbrigðismála á Islandi,
hinn mikilvæga þátt hjúkrunar í
heilbrigðisþjónustunni, um þátt
hugmyndafræði að baki hjúkrun-
ar, um stjórnun og hlutverk
stjórnandans, um stjórnunarferli.
Rædd var ábyrgðarskylda hjúkr-
unarforstjóra og hjúkrunarfræð-
inga almennt, hvernig og hvers
vegna má gera aðra ábyrga í
starfi, hvernig er verkum úthlutað
til annarra og mat og endurmat á
hjúkrun. Þá var fjallað um gæði
og magn hjúkrunar, hvernig
sjúkradeild er mönnuð, hvað er
lagt til grundvallar, hvort hægt er
að komast af með færri hjúkrun-
arfræðinga, ef þeir eru vel mennf-
aðir og við hvað er miðað, þegar
fundin er ákveðin tala hjúkrunar-
fræðinga og sjúkraliða á sjúkra-
deild eða heilsugæslustöð. Erindi
voru flutt um hjúkrunarþjónustu
samfara öðrum breytingum í þjóð-
félaginu, heilsugæslu og störf á
heilsugæslustöðvum. Og loks var
kynning á násefni hjúkrunarfræði
í Háskólanum og rætt hvort og
hvernig þeir hjúkrunarfræðingar
koma til með að bæta þjónustu
vegna betri menntunar og meiri
þekkingar.
Hrafn
Gunnlauqsson__
STOKKHÓLMUR
Vænst þykir mér um Gamla
stan, borgarhluta sem hefur lítiö
breytzt síðustu aldirnar; þveng-
mjóar götur lagðar höggnum
steinum og húsin líkust leik-
tjöldum: Kon-
ungshöll, kirkjur,
skemmtistaðir.
Um þessar götur
er gott aö reka
lappirnar, líta inn á
Stampinn, sem er
elskuleg lítil
djassbúlla, eöa kíkja niöur í
gamla klausturkjallarann gegnt
Stórkirkjunni sem nefnist Kur-
bits og er einn bezti vísna-
klúbbur borgarinnar. Og vilji
menn harösnúnari sveiflu er Eng-
elen frábær skemmtistaöur, þar
sem allt er í botni strax eftir
sex á kvöldin. Á neöri hæöinni
er svo næturklúbburinn Kollingen
sem opnar á miönætti. Gamla
stan morar í krókum og kim-
um þar sem gaman er aö fá sér
bjórkollu, eöa bara aö labba um
göturnar og skoöa umhverfiö
líkast ævintýri og mannlífið
sem er hvergi skrautlegra.
Eigi ég erindi í íslenzka
sendiráöiö á Östermalm, læt ég
ekki hjá líöa aö fá mér bita á
matstaönum Muntergök í ná-
lægri götu (Grevturegatan),
sem Englendingar reka og er
trúlega ein vinsælasta krá á
Östermalm og mikiö sótt af
útlendingum.
Full ástæöa ertil
aö minna á
Moderna Museet
(NútímalistasafniÖ)
og Dramaten (Þjóö-
leikhúsiö), en per-
sónulega hef ég
mest gaman af aö sjá sýningar
Pistolteatern í Gamla stan.
Rétt hjá Dramaten er veitinga-
staöurinn KB (Kúnstnerabar) þar
sem hægt er aö fá frábæran
mat og barinn inn af salnum
er einn sá skemmtilegasti í
borginni. í næstu götu er lítil
bjórkrá sem nefnist Prinsen og
er hún mjög vinsæl. Varöandi
dansiböll á íslenzka vísu er
Bolaget rétt hjá Stortorget,
pottþétt. Séu krakkar meö í
feröinni eru dýragaröurinn
(Skansen) og Tívolí (Gröna
lund) óvenju fallegir staöir.
Stokkhólmur er falleg og frjálsleg
borg sem minnir á þægilegt
baö, aldrei of heit og
heldur ekki of köld.
FLUGLEIDIR
- E.Pá.
Geé B Bp'TBSor I