Morgunblaðið - 28.06.1980, Síða 38

Morgunblaðið - 28.06.1980, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980 Minning — Einar Pálsson bankastjóri Fæddur G. júní 1903 Dáinn 19. júni 1980 Hann var fæddur að Hlíð í Gnúpverjahreppi, sonur Páls Lýðssonar bónda þar og konu hans Ragnhildar Einarsdóttur frá Hæli í sömu sveit. í báðum ættum hans var að finna gáfað atorkufólk sem setti mikið mark á framvindu þjóðlífs á Suðurlandi. Einar ólst upp i föðurgarði, en fór ungur í Flensborgarskólan og lauk gagnfræðaprófi vorið 1920. Hann hóf störf við Landsbank- ann á Selfossi 1921, varð útibús- stjóri bankans 1935 og gegndi því starfi þar til hann lét af störfum 1971. Það mun mál allra er til þekkja, að starfi bankastjóra hafi Einar gegnt á þann hátt að trauðla hafi mátt betur fara. Kom þar margt til. Hann var maður prýðilega ger, þaulkunnugur mönnum og málum, mannþekkjari, víðsýnn og góðvilj- aður. Eigi var hann þeirrar gerðar að nokkur freistaði þess að troða honum um tær, og gat verið þykkjuþungur ef honum mislíkaði, en hinsvegar skapstillingarmaður. Einar var kvæntur Laufeyju Lilliendahl, dóttur Carls Lillien- dahl kaupmanns á Akureyri og Ágústu konu hans. Lilliendahl- ættin barst hingað til lands á 18. öld og átti ættfaðirinn íslenska konu, og er margt manna frá þeim komið. Móðir Laufeyjar er af Kjarnaætt í Eyjafirði. Laufey er hin mesta gerðar og ágætiskona eins og hún á kyn til. Einar var mikill áhugamaður um hverskonar ræktun, og þau hjón bæði. Þau keyptu sér stóra og glæsilega lóð á bökkum Ölfusár og reistu íbúðarhús. Þar var brátt plantað fjölda trjáa, sem nú hafa náð miklum þrosta og bera fyrri eigendum fagurt vitni. Þau hjón fluttu til Reykjavikur þegar Einar lét af störfum. Þegar Landsbankinn á Selfossi flutti í nýtt húsnæði árið 1953 var það eitt af fyrstu verkum Einars að hrinda því í framkvæmd að gera skrúðgarð á lóð bankans. Það bar svo til að ég tók að mér hirðingu og umsjón þessa garðs, og hafði af því mikla ánægju, ekki aðeins að sjá groður þar vaxa og dafna, en einnig að finna áhuga og væntumþykju þeirra hjóna á öllu er þroska náði. Þá vil ég þakka frábæra gest- risni og ánægjulegt spjall um alla heima og geima, en þau voru samhent í því að láta öllum líða vel í návist sinni. Einar var ágætlega lesinn, og víða heima, góður skákmaður og bridgespilari enda stærðfræðing- ur að upplagi sem fleiri Hlíðar- menn. Þá vil ég geta þess að Einar var frá fyrstu tíð garðyrkjubændum austan fjalls mjög innanhandar um alla fyrir greiðslu og hafði mikla trú á þessum atvinnuvegi. Er enginn vafi á því að drengi- legur stuðningur hans á frumbýl- isárum garðyrku var þungt lóð á metaskálum og ýtti undir vöxt og viðgang þessarar greinar á Suður- landi. Ein er sú setning úr Njálu, sem + Móöir okkar GUDRÍÐUR GUOJÓNSDÓTTIR, Baröavogi 21, lést í Landspítalanum 26. júní. Systkinin. t Hjartkær sonur okkar og bróöir, PÉTUR THEODÓR JÓNSSON, Hraunbæ 9, er lést 22. þ.m. veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 30. júní kl. 10.30. Vigdía Pétursdóttir, Jón Guðmundason, Kristín Jónsdóttir. Eiginkona mín og móöir, BJARNFRÍDUR JÓHANNESDÓTTIR, Hverfisgötu 104b, Reykjavík lést 25. júní í Borgarspítalanum. Siguröur Pélsson Svala Nielsen. er látinn. t RAGNAR PÉTURSSON, Ellíheimilinu Grund Kristjana Hannesdóttir og systur hins létna. t Útför KRISTÍNAR ÞORKELSDÓTTUR, Furugerði 1, fer fram frá Fossvogskirkju, mánudaginn 30. júní kl. 15.00. Fyrir hönd aöstandenda, Sigríöur Þorkeladóttir. mér hefir orðið öðrum minnis- stæðari: „Hvorki skal eg á þessu níðast, og á engu öðru því, er mér er til trúað.“ Þessi orð Kolskeggs hygg ég, að hafi verið mjög í anda lífsviðhorfs Einars Pálssonar. Blessuð sé minning hans. Axel V. Magnússon í dag fer fram frá Selfosskirkju útför Einars Pálssonar, fyrrum útibússtjóra Landsbankans á Sel- fossi. Hann lézt í Landakotsspít- ala að kvöldi fimmtudagsins 19. júní eftir 3ja mánaða sjúkrahús- vist, 77 ára að aldri. Einar Pálsson var einn af land- námsmönnum Selfoss. Hann kom þangað í árdögum byggðarinnar, 18 ára gamall, í nóvember 1921 og gerðist starfsmaður hins nýstofn- aða bankaútibús, þess fyrsta aust- anfjalls, sem opnað var 4. okt. 1918 í Tryggvaskála. Það hafði þá aðeins starfað í 2 ár og vart slitið barnsskónum. Framan af var Ein- ar bókari útibúsins en í sept. 1935 varð hann útibússtjóri. Því starfi gegndi hann til 1. des. 1971, er hann lét af störfum og fluttist til Reykjavíkur, þar sem þau hjón bjuggu síðan að Dyngjuvegi 12. Þá hafði Einar starfað samfellt við útibúið í rétt 50 ár og átt drýgstan þátt allra starfsmanna í vexti þess og viðgangi. Ég hef þekkt Einar frá því ég man fyrst eftir mér, vegna nábýlis foreldra minna við þau Laufeyju frá árinu 1931. En þá reistu foreldrar mínir sér hús gegnt húsi þeirra við vegarspottann, sem nú kallast Bankavegur en var þá og lengi síðan lokaður afleggjari norður úr þjóðveginum. Laufey Lilliendahl kom frá Ak- ureyri að Selfossi snemma árs 1931 og giftist Einari. Bjuggu þau fyrsta misserið í Bankahúsinu. Þá var Selfoss ekki til í þeirri mynd, sem við þekkjum í dag. Norðan þjóðvegarins voru þá ekki önnur hús komin, en Tryggvaskáli, Póst- húsið, Bankahúsið og Mjólkurbú- ið. Allt svæðið norðan þjóðvegar- ins, frá Ölfusárbrú og austur að Mjólkurbúi voru þess utan móar og melabörð, sem biðu nýrra landnema. Og þarna riðu hin ungu hjón fyrst á vaðið. Keyptu landspildu af Selfossbændum norður við ána og reistu þar fallegt íbúðarhús úr timbri og nefndu Svalbarð. Örlög- in höguðu því þannig, að það var einmitt faðir minn, Kristinn Vig- fússon, sem hin ungu hjón réðu til þess að reisa húsið. Oft hefur hann minnst þessa sumars með mikilli ánægju — sem eins þess bezta, sem hann hefði lifað. Hann svaf þar í tjaldi og veðráttan var með eindæmum góð. Allan júlímánuð kom ekki skúr úr lofti. Ánnað tjald höfðu þau Einar og Laufey þar á barðinu og þar eldaði hún um sumarið. Lax var oft á borðum, enda auðvelt að afla hans, því laxveiði var þá með ólíkindum í ölfusá, svo að menn mundu ekki annað eins. Minntist faðir minn þess oft síðar, hvað sér hefði liðið þarna vel, við smíðarn- ar og viðurgerning Laufeyjar og þeirra hjóna. Taldi, að þetta hefði ráðið úrslitum, að hann afréð að setjast að á Selfossi og kaus að eiga þau að sínum næstu ná- grönnum. Reisti sitt eigið hús þá um haustið og lauk því um vorið. Þá hófst sú nágrannavinátta, sem ekki varð betri á kosin. Og í skjóli þeirrar vináttu ólumst við bræð- urnir upp. Það átti fyrir hinni norðlenzku heimasætu að liggja að dveljast hér á Selfossi næstu 4 áratugina sem mikilsvirt húsmóðir og una hag sínum vel. En oft minntist hún á æskustöðvar sínar, Akur- eyri, sem olli því, að í huga okkar bræðranna í Árnesi var í æsku okkar meiri ljómi yfir Akureyri en nokkrum stað öðrum norðan fjalla. Einar var ljúfur í öllu dagfari, óáleitinn um annarra hagi og sérstaklega umtalsfrómur. Hann var fróður vel, las mikið og fylgdist vel með þjóðmálum. Hann var áhugamaður um ættfræði og skák- og bridgemaður ágætur. Hann hafði skýra og fallega rit- hönd og brýndi fyrir ungum mönnum að vanda rithönd sína og málfar. Einnig hafði hann mikinn áhuga á skógrækt og garðyrkju. Varði hann til þess löngum stund- um og kom upp fögrum skógar- lundi við hús sitt, sem er staðar- prýði. Það er vandasamt verk að stjórna banka með fátækri þjóð á tímum heimskreppu og heims- styrjaldar, þegar tæknilegar framfarir og framkvæmdagleði flæða yfir þjóðlífið. En Einari farnaðist þetta vel. Starfsemi úti- búsins óx ár frá ári, og 1949 var ráðist í byggingu nýs bankahúss, sem tekið var í notkun sumarið 1953. Rúmu ári siðar lágu leiðir okkar Einars aftur saman, er ég hóf störf í útibúinu. Þá urðum við Einar samverkamenn. Reyndist hann þar hinn bezti húsbóndi, umhyggjusamur og umburðar- lyndur við starfsmenn og hafði ríka samúð með þeim, er til hans leituðu og dró ekki kjark úr mönnum. Þegar Einar hætti störfum við útibúið eftir 50 ára farsælt starf, var það meðal hinna stærstu og traustustu peningastofnana landsins utan Reykjavíkur. Ég vil að leiðarlokum þakka Einari frænda ævilanga vináttu, bæði á æskuárunum í hinu góða nágrenni, og skemmtilegt sam- starf í útibúinu í 17 ár. Óska ég honum blessunar í nýjum heim- kynnum og sendi Laufeyju, börn- um hennar og fjölskyldum alúð- arkveðjur. Guðm. Kristinsson. t Innilegar þakkir til allra nær og fjær sem sýnt hafa okkur samúö og vináttu viö andlát og jarðarför, HELGA H. LAXDAL, Löngubrekku 12, Kóp. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á Landspítalanum fólks og lækna á Landspítala og Borgarspítala. Sigurlaug Einarsdóttir, Sigríóur Laxdal, Halldór Laxdal. t Hjartans þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, sonar, fööur okkar, tengdafööur og afa, HEGLA GUÐJÓNSSONAR, Hvammsgerói 3. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á Landsspítalanum og til þeirra fjölmörgu sem styttu honum stundirnar í veikindunum, meö heimsóknum. Borghildur Þóróardóttir, Steinunn Magnúsdóttir, Þóróur Helgason, Jóhanna Hauksdóttír, Guðjón Helgason, Þóra Helgadóttir, Siguröur Sighvatsaon, Sólveig Helgadóttir Pátl R. Pélsson og systkini hins létna. Það mun hafa verið mikill hátíðisdagur á Hæli í Gnúpverja- hreppi 19. júní 1902. Þá giftu hjónin á Hæli, Einar Gestsson og Steinunn Vigfúsdóttir Thoraren- sen, tvær dætur sínar, þær Ing- veldi og Ragnhildi, báðar glæsi- legar stúlkur og vel gefnar til sálar og líkama. Ingveldur giftist Ingimundi Benediktssyni og bjuggu þau lengi í Kaldárholti í Holtum, og er frá þeim komið margt merkra manna og kvenna. Ragnhildur giftist Páli Lýðssyni nágranna sínum í Hlíð í Gnúp- verjahreppi, og þangað fluttist hún þennan dag og bjó þar síðan langa ævi, eða til dauðadags árið 1954 þá 75 ára að aldri, en mann sinn missti hún árið 1943 eftir einstaklega farsæia sambúð. Heimili þeirra Páls og Ragn- hildar varð óvenju hlýlegt og gott, þar heyrðust aldrei deilur manna á milli og missátt þekktist engin, en glaðværð og vinahót réðu þar ríkjum. Ragnhildur átti ríkan þátt í því að setja þennan góðleika og gleðibrag á heimilið, en í Hlíð var þegar í tíð tengdaforeldra hennar, Lýðs Guðmundssonar og Aldísar Pálsdóttir þar gagnmerkt menn- ingarheimili, sem rómað var af öllum er til þekktu. Páll Lýðsson var því sprottinn úr góðum jarð- vegi, fluggáfaður og drakk í sig allan fróðleik, sem hann náði í. Það var því mikið jafnræði með þeim hjónum og það er ekki ofmælt, að það var á við besta skóla að dvelja í Hlíð á heimili þeirra Páls og Ragnhildar, og sennilega miklu meira en það, því að þar lærðist mönnum að lifa lífinu í sátt við allt og alla og um leið auka þroska sinn á heilbrigð- an hátt. Þeim Páli og Ragnhildi varð 6 barna auðið, fjögurra sona og tveggja dætra. Élstur barn- anna var Einar, sem fæddur var 6. júní 1903, bankaútibússtjóri á Selfossi um áratuga skeið, dáinn 19. júní 1980, á giftingardegi foreldra sinna, nýlega orðinn 77 ára að aldri. Hin börn þeirra Hlíðarhjóna eru þessi: Aldís, hús- freyja í Litlu Sandvík, Lýður, bóndi og hreppsstjóri í Hlíð, þar til hann brá búskap af heilsufars- ástæðum fyrir nokkrum árum, Steinar, bóndi og hreppstjóri í Hlíð, Bjarni, iðnskólastjóri á Sel- fossi um áratuga skeið, nú bygg- ingafulltrúi á Selfossi og Ragn- heiður, starfsstúlka hjá Kaupfé- lagi Árnesinga, gift Valdimar Pálssyni gjaldkera Kaupfélags Árnesinga. Öll eru þessi systkini góðir og merkir samfélagsborgar- ar og bera augljós einkenni þess góða heimilis sem þau ólust upp á. Einar bankastjóri, sem lengst af var nefndur svo hlaut þá skóla- göngu að verða gagnfræðingur frá Flensborgarskóla, en ekki varð úr lengra skólanámi, því að öll voru systkinin námfús og fengu öll nokkurn skólaundirbúning, en þá fyrir um og 1920 voru flestu ungu fólki í sveitum öll sund lokuð til langskólanáms. Það var svo árið 1921, þegar Einar var 18 ára, að hann réðist að hinu þá nýlega stofnaða útibúi Landsbankans á Selfossi sem bankaritari. Hann vann sér svo almennt traust í Landsbankanum, að þegar Hilmar Stefánsson lét af stöfrum sem útibússtjóri Landsbankans á Sel- fossi árið 1935, þá var Einar Pálsson ráðinn þar bankastjóri, og gegndi hann því starfi til 1971 eða samfleytt í 36 ár, en þá hafði hann kennt nokkurs heilsubrests og flutti til Reykjavíkur og bjó þar 9 síðustu æviár sín. Einar var nokkuð lengi ein- hleypur og var þá jafnan haukur í horni æskuheimilinu í Hlíð og dvaldi þar eins oft og hann hafði ástæðu til. En árið 1931 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni, Lauf- eyju K. Lilliendahl, dóttur Carls Lilliendahl kaupmanns á Akur- eyri og Ágústu konu hans. Þau byggðu sér íbúðarhús skammt frá gamla bankahúsinu, sem þau nefndu Svalbarð. Húsið var á stórri lóð, sem náði alveg norður að ánni og Einar ræktaði þessa lóð og girti hana þroskamiklum trjágróðri, en hann var einn af þeim merku forgöngumönnum um að gera fallega garða umhverfis íbúðarhúsin, sem flestir Selfoss-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.