Morgunblaðið - 28.06.1980, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1980
VIEP -
KAFP/N4J \ r *SÖlí
649
Úg þakka mínum sæla fyrir að
það var ekki ég sem ákvað að
velja rétt dagsins!
Það var aldrei að þú hnerraðir!
Þeir hafa þekkt manninn minn
svo lengi, þarna í félagsmála-
stofnuninni, að þeir eru farnir
að bjóða okkur á árshátiðina
sina!
Þjóðaratkvæðagreiðslu um
þjóðaratkvæðagreiðslulöggjöf
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Fátt er skemmtilegra við spila-
borðið en að beita brogðum — og
vera viss um, að þau muni takast.
Slikar stöður koma tiltölulega
sjaldan upp en þó oftar en
margur hyggur.
Suður gaf, allir á hættu.
Norður
S. ÁDG9
H. DG103
T. 43
L. G104
COSPER
Vestur
S. 743
H. 54
T. 9862
L. 7653
Austur
S. K6
H. K2
T. ÁKD105
L. D982
Suður
S. 10852
H. Á9876
T. G7
L. ÁK
Lokasögn 4 hjörtu í suður eftir
M i,
COSPER
Það er betra að við opnum fyrir frænku gömlu, en
að hún komi og bjóði sjálfri sér inn!
Sverrir Runólfsson, ábyrgðar-
maður Valfrelsis, skrifar:
Sautjánda júní sl. sendi ég fyrir
hönd Valfrelsisins eftirfarandi
bréf til ríkisstjórnar íslands:
„Þann 18. okt. 1979 ritaði undir-
ritaður ríkisstjórn íslands, fyrir
hönd hugsjónahreyfingarinnar
Valfrelsis, ósk um að kosið yrði
um almenna þjóðaratkvæða-
greiðslulöggjöf samtímis og kosið
yrði til Alþingis í desember. Þar
sem Valfrelsi hefur eigi fengið
svar við beiðni sinni ítrekar
framkvæmdanefndin þá ósk hér
með og fer fram á að kosið verði
um áðurnefnda löggjöf sem fyrst.
Auðvelt væri að láta fara fram
atkvæðagreiðslu um löggjöfina
um leið og kosið er til forseta þann
29. júní n.k.
Valfrelsi býður sig hér með
fram til að sjá um framkvæmd
atkvæðagreiðslunnar."
Guðlaug
fyrir forseta
Hvers vegna kýs ég Guðlaug.
Vegna þess að ég treysti honum til
að taka réttar ákvarðanir hverju
sinni. Þegar ég frétti að núverandi
forseti, herra Kristján Eldjárn,
hefði ákveðið að hætta, fór ég
strax að hugleiða hver yrði næst-
ur. Kom mér þá fljótlega Guðlaug-
þessar sagnir:
Sudur Vestur Norður Austur
1 II pass 1S 2 T
2 S pass i H pass
pa.ss pass
Út kom tígull og austur tók tvo
fyrstu slagina á drottningu og
kóng. En hverju átti hann að spila
næst? Auk tígulslaganna tveggja
gat hann reiknað með að fá á
spaðakónginn en hjartakóngurinn
gat varla orðið slagur. Suður hlaut
að eiga háspilin, sem ekki voru til
sýnis svo ekki þýddi að treysta á
slag hjá makker.
Flest okkar hefðu eflaust gefist
upp og spilað laufníu í von um að
eitthvert kraftavérk myndi ske.
En ekki okkar maður í austur.
Hann fann bragðið, sem dugði og
spilaði spaðasexi!
Flytjum okkur nú í sæti suðurs.
Engu er líkara en að austur eigi
einspil í spaða, sem þýðir, að spilið
er í hættu ef vestur á trompkóng.
Þá má ekki svína því vestur lætur
þá makker sinn trompa spaða. En
við þessu er til ráð. Vestur á
auðvitað spaðakónginn og svína
má spaðanum eftir að hafa spilað
tvisvar trompi. öruggt, sama hve
mörg tromp vestur á með kóngn-
um!
Sagnhafi tók því spaðasexið
með gosa blinds, og drap tromp-
drottninguna þegar austur lét
iágt. Næst fékk austur á kónginn,
beið síðan rólegur og fékk seinna í
spilinu á spaðakónginn, eins og til
var ætlast — einn niður.
Tvö þúsundasti fundur bæjar-
ráðs Hafnarf jarðar haldinn
HALDINN var tvö þúsund-
asti æjarráðsfundur Hafnar-
fjarðar hinn 19. júní s.l.
Bæjarráð Hafnarfjarðar var
stofnað 1942, en þá samþykkti
bæjarstjórn að gera þá breyt-
ingu á starfsviði bæjarstjórn-
ar að kjósa þrjá menn í
bæjarráð og þrjá til vara til
eins árs í senn. Fyrsti for-
maður bæjarráðsins var Emil
Jónsson. Meginhlutverk bæj-
arráðs er að fara með ásamt
bæjarstjóra framkvæmda-
stjórn á málefnum kaupstað-
arins að því leyti sem hún er
ekki fengin öðrum aðilum.
Auk þess hefur bæjarráð það
hlutverk með höndum að vera
fjárhagsnefnd bæjarins. Það
hefur eftirlit með fjármála-
stjórn bæjarins og undirbýr
fjárhagsáætlun hverju sinni.
Bæjarráð heldur fund að
jafnaði einu sinni í viku, en
stundum oftar. ef ástæða er
F.v. Guðbjörn ólafsson, Árni Grétar Finnsson, Einar Halldórsson, Árni Gunnlaugsson, Ægir
Sigurgeirsson, Hórður Zóphaníasson, Markús A. Einarsson og Björn Árnason.
til. Nú eiga sæti í bæjarráði
Árni Gunnlaugsson, Árni
Grétar Finnsson og Ægir
Sigurgeirsson. Auk þess sitja
fundi ráðsins tveir
áheyrnarfulltrúar minnihlut-
ans í bæjarstjórn, þeir Hörð-
ur Zóphaníasson og Markús
Á. Einarsson, Einar I. Hall-
dórsson bæjarstjóri og Guð-
björn Ólafsson bæjarrritari.
Núverandi formaður bæjar-
ráðs er Árni Gunnlaugsson,
sem hefur átt sæti í ráðinu í
13 ár.