Morgunblaðið - 22.07.1980, Page 7

Morgunblaðið - 22.07.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 7 Merkileg ræöa Mikil gleði ríkir á síð- ustu forsíðu Sunnudags- blaðs Þjóðvíljans. sem kemur út á laugardögum. Hin fölskvalausa gleði blaðsins stafar af raaðu þeirri, sem Einar Ág- ústsson, sendiherra í Kaupmannahöfn, flutti á kvennaráðstefnunni þar í borg sl. föstudag. Ræða þessí var að meginefni lesin upp í fréttatíma hljóövarpsins á fimmtu- dagskvöldið, daginn áöur en hún var flutt á ráö- stefnunni, enda kemur fram hjá Vilborgu Harðar- dóttur fréttastjóra Þjóð- viljans og fulltrúa íslands á kvennaráðstefnunni á forsíðu Þjóðviljans sl. laugardag, að raaðan sé „afrakstur langrar vinnu íslensku sendinefndar- innar og byggir einkum á svörum ýmissa aðila viö spurningum nefndarinn- ar um árangur í jafnrétt- isbaráttunni (sic) svo og á viöbrögöum við upp- kasti af framkvæmda- áætlun SÞ fyrir næstu fimm árin“. Þá sagöi Vil- borg einnig „að ræðan hefði í raun vakið meiri athyglí fyrir þaö að hún var flutt af karlmanni". Þjóðviljinn fer þessum orðum um Kaupmanna- hafnarræöuna: „Ræöa ís- lensku sendinefndarinn- ar á kvennaráöstefnunni í Kaupmannahöfn, sem flutt var í gær, vakti gífurlega athygli. Hlaut ræðan mikið hrós eink- um fyrir að gagnrýni á ástand í jafnréttismálum var ekki síður beint að Íslandí en öðrum löndum og bent var á að varhuga- vert væri að þrýsta þróunarríkjunum inn í munstur iðnríkjanna því vfða væri þar pottur brot- inn í jafnréttismálum. Síðast en ekki síst vakti það aödáun að í íslensku ræöunni var drepið á nokkur atriði sem eru e.k. „bannorð" á ráðstefnunni s.s. versnandi stöðu kvenna f múhameðstrú- arlöndum og umskurð á afrfkönskum stúlkum". Rétt er að láta þess getið, að þessi frétt frá fréttastjóra Þjóðviljans og fulltrúa f íslensku nefndinni f Kaupmanna- höfn og þar með höfundi hinnar merkilegu ræðu, ber fyrirsögnina: „Ræða íslands á kvennaráð- stefnunni — Djörf og ólík öðrum.“ íþróttir og stjórnmál Alþýöublaðið ræöir við Gísla Halldórsson, for- mann íslensku ólympíu- nefndarinnar á laugar- daginn. Eftir að Gísli hef- ur komist að þeirri niður- stöðu, að afstaða Morg- unblaösins til Ólympíu- leikanna í Moskvu sé „eínfaldlega" stuðningur blaðsins við Carter Bandaríkjaforseta og „ekkert annað“, spyr Al- þýöublaöiö: „Hvað finnst þér að almennt megi segja um íþróttir og póli- tík. Finnst þér að það sé hægt að aðgreina íþróttir og pólitík7“ Og Gísli Halldórsson svarar m.a. með því að segja: „Það er voðalega erfitt, það er mjög erfitt, og sérstaklega eru ein- ræðisríkin alltaf að blanda þessu saman. Aft- ur á móti höfum við reynt það og viljað í hinum frjálsa heimi, að aðskilja þetta tvennt...“ Síðan er Gfsli spurður, hvort hon- um finnist engin mörk fyrir því, hvað unnt sé að ganga langt f því að aðskilja íþróttir og stjórn- mál og þá hvort íslend- ingar séu t.d. tilbúnir til aö taka upp íþróttasam- skipti við ríki eins og t.d. Suöur-Afríku. Ekki stendur á svarinu hjá Gísla. „Jú, f þessu sambandi drögum við ákveðin mörk. Við höfum ekki talið viöeigandi aö eiga samskipti við Suö- ur-Afríku, á sviði íþrótta- mála, á meðan ríkjandi stjórnarstefna er í gildi þar suðurfrá." Undir lok samtalsins segir formað- ur íslensku ólympíu- nefndarinnar: „Auðvitað hörmum við allir innrás- ina í Afganistan og finnst að slíkt eigi ekki að eiga sér stað í heiminum, en heimurinn er bara ekki betri en þetta, því mið- ur.“ Hvað er þaö annað en pólitík, að segja um her- nám Afganistan „heimur- inn er bara ekki betri en þetta" og láta síöan eins og ekkert hafi í skorist gagnvart Sovétríkjunum en neita að hafa sam- band við Suður-Afríku vegna „ríkjandi stjórn- arstefnu“? Er heimurinn þá orðinn eitthvað öðru vfsi? Fáeinir Lada Sport til afgreiðslu fljótlega á sérstaklega hagstæðu verði. Kynnið ykkur greiðsluskilmála. 4 hjóla drif Fjórsídrif 4. cyl. 86 ha. Hátt og lágt drif. 16“ felgur. Þriggja dyra. Lituö framrúöa. Hituö afturrúöa Hliöarlistar. Vindskeiö. Verð aðeins ca. kr. 6.100 þús. jazzBaLLeCCökóLi Búnu líkQm/fcckl J.S.B. Ljósa- stofa J.S.B. Bolholt 6, 4ða hæö ★ sólarbekkir ★ sturtur ★ saurta ★ setustofa Morgun- dag- og kvöldtímar. 7 daga kúrar eöa stakir tímar. Upplýsingar og innritun í síma 36645 nuoa ng>iecp©Tiogzzor N 0 CT CT 0 7V Rimini ein af þeim allra bestu! 24. júli - Örfá sæti laus 28. júli - „auka-auka“ ferð - örfá sæti laus 4. ágúst - uppselt, biðlisti 14. ágúst - uppselt, biölisti 18. ágúst - „auka-auka“ ferð - uppselt, biðlisti 25. ágúst - örfá sæti laus 4. september - uppselt, biðlisti 15. september - uppselt PORTOROZ Friösæl og falleg sölarströnd 24. júlí - Örtá sæti laus 4. ágúst - uppselt, biðlisti 14. ágúst - uppselt, biðlistí 25. ágúst - örfá sæti laus 4. september - uppselt, biölisti 15. september - uppselt. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.