Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 Loftur skoraði tvð gegn Fylki HAUKAR eyifja að nýju von um sæti í 1. deild eftir sigur jjegn Fylki í Laugardal á laugardag. 2—1. Haukar eru nú aðeins tveimur stigum á eftir Þór frá Akureyri eftir ósÍKur Akureyr- arliðsins. Allt getur því gerst í 2. deild og greinilegt að Haukar ætla að leggja allt i sölurnar til að endurheimta sæti sitt i 1. deild. Framan af viðureign Hauka og Fylkis í Laugardal leit ekki út fyrir, að Haukar færu með sigur af hólmi. Fylkir skoraði þegar á fyrstu sekúndum leiksins, — áður en nokkur leikmaður Hauka hafði náð að koma við knöttinn lá hann í netmöskvunum að baki Guð- mundar Hreiðarssonar. Kristinn Guðmundsson skoraði eftir lag- lega sóknarlotu strákanna úr Ár- bænum. Og eftir 17. mínútu leik hefði staðan allt eins getað verið orðin 4—0. Hilmar Sighvatsson komst einn í gegn eftir misheppn- að útspark markvarða Hauka en skaut í hliðarnetið. Á 15. mínútu komst Hilmar aftur inn fyrir en skaut nú framhjá úr ákjósanlegu færi. Og á 17. mínútu skallaði Hilmar knöttinn yfir frá mark- teig. Á 29. mínútu skoraði marka- kóngur Hauka, Loftur Eyjólfsson. Lék laglega á varnarmann í teign- um og skoraði með góðu skoti, 1-1. Staðan í leikhléi var 1—1. Á 20. mínútu síðari hálfleiks meiddist Guðmundur Hreiðarsson, mark- vörður Hauka, svo fara varð með hann á slysavarðstofu, hann fékk spark í hnakkann. Þrátt fyrir þetta létu Haukar ekki deigan síga, Ólafur Jóhannesson átti gott skot, sem Ögmundur Kristinsson, markvörður Fylkis, sló yfir. Á 32. mínútu náðu Haukar svo forystu. Elías Hafsteinsson hugðist gefa til Ögmundar, en í stað þess að gefa varð gott skot, sem Ögmund- ur náði með naumindum að verja. Knötturinn hrökk fyrir fætur Lofts Eyjólfssonar og hann skor- aði örugglega af stuttu færi, 1—2. Fylki tókst ekki að jafna. Fylkir var næst því þegar Örn Bjarnason varamarkvörður varði hörkuskot Kristins Guðmundssonar úr teign- um. Haukar fóru því með bæði stigin til Hafnarfjarðar. Þeir Ólafur Jóhannesson og Björn Svavarsson, ásamt Lofti Eyjólfs- syni, voru beztu menn Hauka. Hjá Fylki var Hilmar Sighvatsson atkvæðamestur en fór illa með upplögð tækifæri. Þá var Ög- mundur Kristinsson öruggur í markinu. Leikinn dæmdi Vil- hjálmur Þór. H. Halls. • Á þessu heimskorti má sjá hvaða þjóðir taka þátt í leikunum i Moskvu og hvaða þjóðir ekki. Þær sem eru merktar með svörtu taka þátt, en hinar ekki, þær eru um 60 og þar á meðal allar bestu íþróttaþjóðir heims. 176 verðlaunamenn f jarverandi frá 01 Ef hliðsjón er tekin af siðustu ólympiuleikum sem haldnir voru. þeirra sem voru í Montreal, kemur í ljós, að dreifing verð- launa nú verður gerólik því sem þar var. Meðal þeirra þjóða sem þar kcpptu, sitja þjóðir heima sem að hrepptu yfir 25% af öllum verð- launum. Eru þar fremst i flokki Bandaríkin sem hrepptu 94 verð- launapeninga, Vestur-Þýskaland sem fékk 39 gripi og Japan sem fékk 25 verðlaunapeninga. Af gullverðlaununum sem útbýtt var i Montreal, fengu þjóðir þessar og nokkrar aðrar, 53 stýkki af 198. í sundinu kveður hvað rammast að þessu. Þar unnu heimasetu- þjóðirnar til 49 verðlaunagripa. I karlagreinunum vann austur- • Blökkumaðurinn Edwin Moses heimsmethafi i 400 metra grinda- hlaupi var einn af fjölmörgum íþróttamönnum sem keppir ekki á Ól-leikunum. blokkin ekki eina einustu grein. Af tölum þessum má glöggt sjá hversu mikil áhrif það hefur í raun og veru að þjóðir eins og Bandaríkin og Vestur-Þýskaland hafa kosið að sitja heima. Þetta undirstrikar, að í mörgum, mjög mörgum tilvikum, eru það ekki bestu menn í hverri grein sem verðlaunin munu hljóta. Stórsigur Rússa SOVÉTMENN reyndust sterkir eins og vænta mátti, er körfu- knattleikurinn hófst á Olympiu- leikunum. Karlalið Rússa hvíldi mesta risann, Vladimir Tkasch- enko, en vann samt yfirburðasig- ur á indverska landsliðinu, 121-65. Kvennalið Rússa, sem hefur ekki tapað leik i rúm 20 ár, sigraði Júgóslava 97—62. I kvennaflokki léku einnig Búlg- aría og Ítalía og sigraði fyrr- nefnda liðið 102—65. Þá sigraði Ungverjaland Ítalíu 76—66. Rússar sterkir s Vilmundurkennir s fr jálsar á Ólafsfirði Vilmundur Vilhjálmsson frjálsíþróttamaðurinn ágæti úr KR heldur á morgun, miðviku- dag. til ólafsfjarðar þar sem hann mun dveljast í tvær vikur og efla frjálsiþróttaáhuga þar i bæ. Vilmundur mun kenna þar á námskeiði fyrir unglinga. og sagði Vilmundur i samtali við Mbl. að hann vonaðist til að allir þeir á ólafsfirði er áhuga hefðu á hlaupum, stökkum og köstum leggðu leið sina á völlinn meðan hann væri nyrðra. Forráðamenn á Ólafsfirði hafa nú fullan hug á að reyna að vekja upp frjálsíþróttaáhuga á staðnum. í kjölfar hins ágæta árangurs sem hlauparinn Guðmundur Sigurðs- son hefur náð, en hann er frá Ólafsfirði og keppir undir merkj- um UMSE. Guðmundur hóf frjáls- íþróttakeppni að einhverju ráði nú í sumar, og hefur þegar náð athyglisverðum árangri, varð t.d. íslandsmeistari í 1500 metra hlaupi á nýafslöðnu íslandsmeist- aramóti. — ágás. Sovétmenn sigruðu Venezuela örugglega með fjórum mörkum gegn engu í fyrsta leiknum í riðlakeppninni í knattspyrnu á Olympíuleikunum í Moskvu. Rúss- arnir höfðu mikla yfirburði í leiknum, en þeir Andreyev, Cher- enkov, Gavrilov og Oganesyan skoruðu mörkin. Nokkru síðar skildu Austur- Þjóðverjar og Spánverjar jafnir, 1—1- Dieter Khun skoraði fyrst fyrir Þjóðverja, en Marcos Alonso jafnaði fyrir Spánverja. ÞEGAR íþróttaiðkendur verða fyrir slysum. tognunum o.þ.h., er mikilvægt að þeir hijóti rétta læknis- og sjúkrameðferð í tæka tið. Páll B. Helgason, orku- og endurhæfingalæknir og Halldór Matthíasson sjúkraþjálfari veita siika þjónustu að Miklubraut 50 og er hún tilkomin að nokkru i samstarfi við Í.S.Í. Nýlega lagði Í.S.Í. endurhæfingastofnunni til nýtt og fullkomið hljóðbylgjutæki og er myndin frá afhendingu þess. Staðan í 2. deild Andrés Kristiánsson var á skotskónum er IBÍ vann góðan sigur á Þrótti frá Neskaupstað um helgina. er iiðin áttust við í 2. deild á ísafjarðarvelli. Skoraði Andrés tvívegis á fyrsta háiftíma leiksins og lagði þar með grunn- inn að góðum sigri ÍBÍ. Heimaliðið hafði yfirleitt góð tök á leiknum, einkum í fyrri hálfleik, Þróttarar voru heldur meira inni í myndinni í þeim siðari þó ekki tækist þeim að skora mörk. ísfirðingar bættu hins vegar við sig og undir lokin skoraði Haraldur Leifsson þriðja markið. ísfirðingar eiga enn dá- litla möguleika á því að hlanda sér í toppbaráttuna, en staðan í 2. deild er nú þessi: KA 10 8 1 1 34-7 17 Þór 10 7 1 2 20-9 15 Haukar 10 532 21-19 13 ísafjörður 9 432 21-17 11 Fylkir 10 4 1 5 17—11 9 Völsungur 9 324 11—15 8 Þróttur 9 3 24 13-18 8 Selfoss 9 2 2 5 15-23 6 Ármann 10 1 4 5 15—27 6 Austri 10 037 13-36 3 Úrslit í 3. Úrslit í nokkrum leikjum i 3. deild sem fram fóru um helgina. í Fy-riðli sigraði Dagsbrún lið Efl- ingar 6—1, mörkin skoruðu Sóf- anias 3, Björgvin 2, Hafþór 1, mark Eflingar skoraði Þórarinn. Reynir sigraði USAH með 5 mörkum gegn 1. Mörkin fyrir Reyni skoruðu Björn 2, Jens 1, deild Garðar 1, Felix 1, fyrir USAH skoraði Hafþór 1.1 D-riðli sigraði Leiftur Magna 0—3, Hringur skoraði tvö fyrir Leiftur og Sigurður eitt. KS írá Siglufirði sigraði svo Árroðann 3—0, mörk KS skor- uðu Sigurjón 1, Björn S 1 og Hafberg skoraði sjálfsmark. Skotviss Ungverji Karoly Varga frá Ungverja- landi sigraði í fyrstu grein skot- fiminnar á Olympíuleikunum í Moskvu á sunnudaginn. Keppti Varga í minnstu gerð riffli og hiaut hann 599 stig. Árangur Varga er jafn gild- andi heimsmeti. Austur-Þjóðverj- inn Helfried Helfort fékk sama stigafjölda, cn Ungverjanum var dæmdur sigurinn aí tæknilcgum ástæðum. Varga þakkaði sigri sínum. að hann slasaðist á „gikk- handlcgg“ sínum i knattspyrnu á laugardaginn. „Það varð til þess að ég þrýsti ekki eins fast á gikkinn“ sagði kappinn. Watson smeygöi ser í vinningssætið TOM WATSON kom sterkastur manna út úr tveimur síðustu umferðunum á opna breska meistaramótinu í golfi, en það mót er jafnan talið eitt hið sterkasta sem fram fer ár hvert. Að þessu sinni fór það fram á Muirfield i Skotiandi. Eins og skýrt var frá í Mbl. á laugardag- inn, hafði Lee Trevino forystuna þegar tveimur umferðum var lokið. Watson var mjög yfir- vegaður á lokasprettinum og sigraði á 271 höggi, en það er 13 höggum undir pari valiarins. Þetta er í fyrsta skiptið síðan 1977, að Watson sigrar á meiri háttar móti. „Þetta er r.otaleg vin eftir mörg ár í eyðimörkinni,“ sagði Watson eftir að úrslitin voru ljós. Trevino hafði forystu lengst af, en sagði, „ég er ekkert svekktur, það er ekki hægt að vera það þegar maður er i öðru sæti á eftir besta kylfingi heims.“ Þrátt fyrir að Watson hafi ekki unnið mót í þrjú ár, hefur hann jafnan verið í fremstu röð og er einn tekjuhæsti kylfingur stétt- arinnar. Trevino varð sem sé að láta sér lynda annað sætið. Hann lék umferðirnar fjórar á samtals 275 höggum. Ben Crenshwa varð þriðji á 277 höggum og þeir Carl Mason og Jack Nicklaus voru jafnir í fjórða til fimmta sæti með 280 högg. Aukaþing S.K.Í. Aukaþing S.K.Í. á föstudag á Hótel Loftleiðum kl. 20.30 kjör- inn verður nýr formaður og ný stjórn á fundinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.