Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 250 kr. eintakiö. Úr glerhúsi Alþýðublaðsins Alþýðublaðið er einkennilegt blað. I raun er það ríkisrekið. Yrði skrúfað fyrir fjárstreymi til þess úr ríkissjóði, Ræfi það strax upp andann. Hitt er þó enn einkennilegra, að aðstandendur blaðsins gefa það út í þeim eina tilganjri að koma boðskap sínum á framfæri við þjóðina í gegnum ríkisfjölmiðil. Alþýðublaðið kemur sem sé út á kostnað skattgreiðenda, svo að forystugreinar þess séu lesnar í hljóðvarpinu. Skattféð virðist þó ekki nægja til þess, að unnt sé að halda blaðinu úti alla daga vikunnar. En kratar eru alþekktir fyrir að kunna á kerfið og á laugardögum hefur fjórblöðungur þeirra að geyma tvær forystugreinar. Önnur skal lesin í útvarpið á laugardegi en hin á sunnudegi. Blað hins kerfisflokksins, Þjóðviljinn, hefur að þessu leyti nýlega farið inn á sömu braut og Alþýðublaðið. Frumleiki kommúnista kemur fram í því, að þeir gefa nú út sunnudagsblað sitt á laugardögum. Með þessar forsendur fyrir útgáfu Alþýðublaðsins í huga og þá staðreynd, að flokkurinn, sem að blaðinu stendur, fylgir þeirri stjórnmálastefnu, að ríkishítin eigi að ráðstafa aflafé einstaklinganna, er furðulegt að sjá blaðið býsnast yfir því dag eftir dag, að ríkisafskipti séu af hinu illa. Þá hefur Alþýðublaðið og lagt sig í framkróka um að gera Alþýðubandalagið tortryggilegt fyrir trú þess á sömu grundvallarsjónarmið og ráða hjá Alþýðuflokknum, sem sé, að fyrst skuli ríkið fá sitt og jafnvel meira en það, en síðan geti einstaklingarnir og fyrirtæki þeirra tínt upp molana. Vegna þessa tvískinnungs er Alþýðublaðið stefnulaust rekald og Alþýðuflokkurinn hávaðasamur bramboltsflokk- ur. Alþýðublaðið tekur dýfur og kollhnísa frá degi til dags og Alþýðuflokkurinn fer í heljarstökkum frá hægri til vinstri. A liðnum vetri var mikil áhersla á það lögð í forystugreinum Alþýðublaðsins að skrifa sig og ^lþýðu- flokkinn frá samstarfi við kommúnistana í Alþýðubanda- laginu. En eins og menn muna var það samstarf komma og krata, sem gerði Olafi Jóhannessyni kleift að mynda stjórn sína haustið 1978. í sjálfu sér er skiljanlegt eftir hrakfallasögu þeirrar stjórnar, að kratar vilji skerpa skilin milli sín og kommúnista. Og því má ekki gleyma, að í stjórnmálastarfi sósíaldemókrata hefur alltaf falist þakk- arverð andstaða við kommúnista. Hins vegar er það alls ekki þakkarvert, þegar Alþýðublaðið reynir að villa á sér heimildir með því að saka andstæðing Alþýðuflokksins um að vera „forhertan ríkisafskiptaflokk". Enginn íslenskur stjórnmálaflokkur á líf sitt og málgagns síns undir ríkinu komið nema Alþýðuflokkurinn. Það hefur verið sérstakt kappsmál forystumanna flokksins að koma málum þannig fyrir, að áhyggjur þeirra af fjármálum flokksblaðsins yrðu færðar yfir á ríkissjóð. Og með því að gera Alþýðublaðið ekki að öðru en umgjörð utan um boðskapinn fyrir ríkisútvarpið, þykjast flokksbrodd- arnir hafa himin höndum tekið. Og það er svo sem í samræmi við annað, þegar menn í slíkri aðstöðu þykjast vera færari um það en flestir aðrir að halda þannig á stjórn mála, að hagstæð skilyrði verði sköpuð fyrir atvinnurekstur á vegum einkaaðila. Ekki er nýtt, að grjótkast sé stundað úr glerhúsi á vettvangi íslenskra stjórnmála. En í gegnum tíðina hafa menn verið misjafnlega ósvífnir við þá iðju, og víst er, að hún hefur aldrei gefist vel til lengdar. Til dæmis komst Alþýðuflokkurinn aðeins um stuttan tíma upp með það að hafa baráttuna gegn siðleysi sem sitt aðalmál, og þiggja um leið fé til starfsemi sinnar frá útlöndum. Grjótkastið úr glerhúsi Alþýðublaðsins varir vafalaust enn um nokkra hríð. Hitt væri fróðlegt að athuga, hvort blaðið sé jafnvel ekki háðara fjárstreymi úr ríkissjóði en sjálft Lögbirtingablaðið, sem dómsmálaráðuneytið gefur út. Og væri mikíu nær fyrir ríkisútvarpið að lesa upp úr Lögbirtingablaðinu en forystugreinum Alþýðublaðsins. Biskup íslands hr. Sijíurbjörn Einarsson ok Friðjón Wröarson dóms- ojj kirkjumálaráöherra ræðast viö fyrir utan Skálholtskirkju. Svipmyndir frá Skálholtshátíð ALLMARGT manna sótti Skál- holtshátið, sem haldin var sl. sunnudag. Meðal gesta voru forsetahjónin frú Halldóra og dr. Kristján Eldjárn, Friðjón Þóröarson dómsmálaráðherra o.fl. Þá var staddur i Skálholti hópur ferðamanna, m.a. frá danska lýðháskólanum i Snog- höj, sem dvelst hér á námskeiði um þessar mundir. Skálholtshátíð hófst að venju með guðsþjónustu og prédikaði dr. theol. Jakob Jónsson. Biskup íslands, hr. Sigurbjörn Einarsson og sr. Guðmundur Óli Ólafsson sóknarprestur þjónuðu fyrir alt- ari, Skáiholtskórinn söng undir stjórn Glúms Gylfasonar við orgelleik Friðriks Donaldssonar. Þá léku Jón Sigurðsson og Lárus Sveinsson á trompet. Að lokinni messu gátu gestir þegið kaffi í húsakynnum skól- ans, aðrir kusu að ganga um staðinn, virða fyrir sér kirkjuna og huga að sögulegum fornminj- um. Blíðuveður var í Skálholti, heitt og sólskin annað veifið, enda urðu bændur margir að hverfa til bústarfa að messu lokinni. Síðdegis var síðan samkoma í kirkjunni. Hófst hún með einsöng Agústu Ágústsdóttur við undir- leik Hauks Guðlaugssonar, dr. Gylfi Þ. Gíslason flutti ræðu og Friðrik Donaldsson lék nokkur orgelverk. Þá endaði sr. Heimir Steinsson rektor samkomunni með ritningarlestri og bæn. Meðal ferðalanga í Skálholti voru sem fyrr segir danskir lýðháskólamenn. Er það hópur á vegum Snoghöj lýðháskólans, sem kom til tveggja vikna ís- landsferðar og greindu farar- stjórar þeirra, Erland Kildegaard og Ole Risak, Mbl. frá förinni: — Við erum hér á eins konar námskeiði til að kynnast náttúru Islands og menningu og eins og segir í námskeiðslýsingunni. sem við sendum út til kynningar, að reyna að skilja hvernig 230 þús- und manns fara að því að búa á lítt frjósamri eldfjallaeyju, 2,5 sinnum stærri en Danmörk og hvernig þjóðin hefur spjarað sig efnahagslega og menningarlega í einangrun Norður Atlantsjiafs- ins, sögðu þeir félagar. Hóparinn telur alls 34 og komust færri að en vildu. Sr. Heimir Steinsson hefur skipulagt ferðina í sam- vinnu við fulltrúa Snoghöj, en þar hafa nokkrir íslendingar verið við nám, einn veturinn 9 alls. — Áður en við komum hingað vorum við á viku námskeiði í Snoghöj þar sem þátttakendur fengu tækifæri til að setja sig inn i íslenzk málefni, haldnir voru fyrirlestrar, starfað í hópum og sýndar kvikmyndir. Þannig hrist- ist hópurinn saman, við kynnt- umst hvert öðru og bjuggum okkur undir ferðina. Dagarnir hér munu síðán verða notaðir til ferðalags um landið, við höfum skoðað söfn, munum heimsækja vinnustaði og hlýða á fyrirlestra um íslenzkar nútímabókmenntir og stjórnmál. Ástæðu þess að Island varð fyrir valinu sögðu þeir vera að landið væri eitt Norðurlandanna, sem þeir töldu sjálfsagt að kynn- ast og vera í sem mestu sambandi við, margir íslendingar hefðu stundað nám í Snoghöj og væru þeir sumir í sambandi við skól- ann æ síðan. —Við höfum þegar upplifað margt skemmtilegt og fróðlegt, þótt aðeins séu liðnir tveir dagar af dvölinni, en við búumst við enn meiru, sögðu Danirnir, sem sögðu veðrið hafa aðeins sýnt góðu hliðina ennþá, en þeir sögðu alla hafa regnfötin meðferðis. Danskir lýðháskólamenn frá vinstri: Lis og Ole Risak. Ruth og Erland Kildegaard. Dr. Gylfi Þ. Gislason flutti ræðu á samkomu á Skálholtshátiðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.