Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 45 /•*.. VELVAKANDI SVARAR í SÍMA I0100KL. 10— 11 , FRÁ MÁNUDEGI hljómsveitir kæmu og spiluðu á meðan og ljóðahöfundar kæmu t.d. og læsu úr bókum sínum. Þetta yrði áreiðanlega vinsælt hjá mörgum, þ.e.a.s. svo fremi sem sólin skini. R.G. • Útigrillið til fyrirmyndar M.í. skrifar. Mig langar að koma á framfæri þakklæti mínu til þeirra sem sjá um Valhöll á Þingvöllum þetta sumarið. Ég fór þangað um síðustu helgi og snæddi í garðinum. Þar er búið að koma upp útigrilli og aðstaða og umhverfið alveg til fyrirmyndar. Þetta er hægt að kalla spor í rétta átt. Það eina sem hægt væri kannski að fetta fingur út í, er hvað þjónarnir eru allt of fáir. Öðru langar mig að vekja at- hygli á, en það er vegurinn yfir Lyngdalsheiðina. Hann er illur ýfirferðar, og skrítið að svona fjölfarin leið skuli ekki betur lagfærð. • Tívolí minnkar kynslóðabilið Kæri Velvakandi. Er ekki hægt að fá að hafa Tívolíið sem kemur á heimilissýn- inguna í ágúst áfram? Ég er alveg viss um að þetta myndi minnka kynslóðabilið, því bæði ungir og aldnir hefðu gaman af þessu. Ég var tíður gestur í Tívolíinu á meðan það var í Vatnsmýrinni, og ég held að allir hafi harmað þegar það hætti. Þetta þyrfti ekkert að vera svo dýrt fyrirtæki, en myndi skemmta öllum aldurshópum. Gömul kona Þessir hringdu . . . • 111 nauðsyn að eitthvað sé gert • Nýja vikt í Sund- höll Reykja víkur Kona hringdi. Hún sagðist vera búin að stunda Sundhöll Reykjavíkur í mörg ár og viktin, sem væri í kvennadeildinni, hefði verið í ólagi í háa herrans tíð. Það væru margar konur sem væru í megrun og vildu vikta sig þegar þær færu í sund, en viktin væri alltaf biluð. Hún vildi beina þeim fyrirspurnum til forráðamanna Sundlaugarinnar hvort ekki væri möguleiki á að fá nýja vikt. • Næturflugið til Kaupmanna- hafnar Inga hringdi. Okkur hjónin langar að fara til Kaupmanna- hafnar í ágúst. Hvernig stendur á því að Flugleiðir bæta ekki við ferðum til Kaupmannahafnar, þar sem löngu er uppselt í allar næturflugferðir, og að sögn allt upp í hundrað manns á biðlista sumsstaðar. Flugleiðir eru alltaf að kvarta yfir peningaleysi, en þegar fólk vill fara eitthvert þá hafa þeir engar ferðir. Hannes hringdi. Hann vildi taka undir það sem stóð í Velvak- anda sl. laugardag um gangstétt- ina í Bankastrætinu. Það væru orðin æði mörg skiptin sem hann hefði hrasað og dottið þarna. Það væri orðin ill nauðsyn að eitthvað yrði gert í þessu. Að endingu vildi hann ráðleggja þeim sem hafa með þetta að gera, að leggja leið sína upp Bankastrætið vinstra megin og athuga málið. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á kvennaskákmóti í Sovétríkj- unum í ár kom þessi staða upp í viðureign Melisannidi, sem hafði hvítt og átti leik, og Tavasievu. 26. Bh6+! - Kxh6, 27. Df8+ - Kh5, 28. Bf3+ og svartur gafst upp, því að hann getur ekki forðast mát á annan hátt en að bera drottningu sína fyrir skák- ina. HÖGNI HREKKVÍSI 4- T © 1960 McNaught Synd , Inc. E& PKKi )<DMINN TtMi TIL AE> 6HtÍA * HS/ AA..Í1” Hjá Höganás hafa kröfur um gæði alltaf verið settar á oddinn. Úrvalið er fyrir þig ... Hvort sem er á gólf eöa veggi, úti eöa inni þá finnur þú Höganás flísar viö þitt hæfi. Höfum einnig Höganás flísalím, fúgusement og áhöld. Skoðið úrvaliö í sýningarsal verslunar okkar. Nýtt sýningarkerfi. Myndasýning á staðnum. = HÉÐINN = SELJAVEG 2. REYKJAVlK. Nýtt frá RS— 400 Ef þig vantar skýrari hljóm í bílinn, þá er RS—400 hátalararnir lausnin. Þaö er hægt aö smella þeim föstum hvar sem er og eru meö innbyggðum styrkstilli. Nú getur þú hlustað á fréttirnar án þess að æra alla afturí. Gert fyrir: 20 wött (max) Tíönissvið: 450—20.000 rið Verð: 8.700 stykkið Sendum um allt land ísetning á staðnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.