Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 18
\ g MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JULÍ1980 íslandsmótid í svifflugi á Hellu: Leifur Magnússon meistari f jórða sinni Leifur MaRnússon varö íslandsmeistari í svifflugi á íslandsmótinu sem Flugmálafélag íslands hélt á Hellu- fluKvelli. og lauk á sunnudagskvöld eftir níu daga törn. Leifur varð fjórða sinni íslandsmeistari. en hann hefur unnið mótið þrisvar í röð. Leifur er vel að sigrinum kominn. því ekki var útlitið sérlega gott hjá honum þegar næstsíðasti keppnisdagurinn rann út. En hann sýndi af sér hörku síðustu tvo dagana, vann bæði „verkefnin“, eins og það heitir á svifflugumáli. og setti lslandsmet í leiðinni, flaug lengsta þríhyrningsflug sem flogið hefur verið hérlendis í svifflugu. Þeir voru frekar brúnaþunKÍr svifflugumennirnir er Morgun- blaðsmenn litu til þeirra á föstu- dag, því þá hafði viðrað illa til svifflugs og aðeins einn keppnis- dagur orðinn gildur. Mótið hófst laugardaginn 12. júlí. Þegar svif- flugmenn, aðstoðarmenn þeirra og fjölskyldur komu til Hellu á föstu- dag leit vel út með veður á laugardag, en þegar til kom varð ekkert úr flugi vegna slæmra skilyrða. Sunnudagurinn gekk svo í garð með rigningu og ekkert varð úr flugi þann daginn. Fyrsti gildi keppnisdagurinn náðist hins vegar á mánudag, 14. júlí, en þá var lögð sú þraut fyrir svifflugmennina að fljúga frá Hellu að Búrfellsvirkjun og til baka, samtals 89,1 km vegalengd. Aðeins tveimur keppendum tókst þó að komast alla leið, þeim Sigurði Benediktssyni og Garðari Gíslasyni, og setti Sigurður nýtt íslandsmet í markflugi þar sem hann kom örlitlu á undan Garðari í mark. Þriðji keppandinn, Krist- ján Sveinbjörnsson, var neyddur til að lenda flugu sinni er hann átti ófarna 10 km að Hellu á bakaleiðinni, en aðrir komust styttra. Þá tók við fjögurra daga tímabil með óhagstæðu veðri sem hamlaði flugi. Rigndi mikið þessa dagana. Þó var reynt að fljúga sl. fimmtu- dag og voru þá iögð fyrir ýmis verkefni er flugmennirnir gátu valið úr. Garðar Gíslason komst þá frá Hellu að Múlakoti í Fljóts- hlíð og til baka, en dagurinn var ógildur þar sem 20 af hundraði flugvélanna verða að ná gildu flugi þ.e. komast ákveðna lág- marksvegalengd í það sinn, til að dagurinn teljist gildur. Þennan dag vildi það slys til að Sigurður Benediktsson var neydd- ur til að lenda flugu sinni skammt innan við Breiðabólstað í Fljóts- hlíð og skemmdist flugvélin í lendingunni. Sigurður varð að lenda á full stuttu túni og til að lenda ekki í skurði eða á moldar- barði varð hann að „sveifla" flug- unni („groundloop") er hún snerti á túninu. Mældist lendingarbrunið aðeins 25 metrar. Það var lán í óláni fyrir Sigurð sem þá var næstefstur í keppn- inni, að á föstudag rigndi eins og hellt væri úr fötu og var þá framkvæmd viðgerð á flugu hans. Það er mikil samheldni meðal svifflugmanna, „allir lögðust á eitt og ekki tók langan tíma að gera við, en potturinn og pannan í öllu saman var þó Gunnar Arthúrsson flugstjóri hjá Flugleiðum, en á mótinu flaug hann einni dráttar- flugvélinni," sagði Björn Björns- son aðstoðarmaður eins keppand- ans, Þorgeirs Arnasonar for- manns Svifflugfélags Islands. Sigurður var tilbúinn í keppnina á ný á laugardag, en honum gekk illa, náði ekki stigi og hafnaði í sjötta sæti í keppninni. Á laugardag komust aðeins Leifur Magnússon og Baldur Jónsson allan þríhyrninginn, þ.e. frá Hellu að Búrfellsstíflu, þaðan í Miðdal og loks að Hellu samtals 139 km vegalengd. Margir komust vel áleiðis og kræktu séf í stig fyrir vikið. Baldur var rúmri mínútu fljótari með þríhyrninginn en Leifur, en fékk færri stig þar sem hinn rennilegi farkostur hans, Speed Astir sviffluga, hefur meira rennigildi, og því minni forgjöf. Það var tilkomumikil sjón að sjá Baldur koma á flugu sinni yfir markið á rúmlega 250 kíló- metra hraða og hvinurinn sem myndaðist á þessum mikla hraða minnti helzt á þotuhvin. Á lokadeginum fengu flugmenn- irnir það verkefni að fljúga frá Hellu að Hruna í Þjórsárdal og þaðan að Búrfelli í Grímsnesi og loks til baka á Hellu, samtals 106 km vegalengd. Fjórir komust alla leið, Leifur Magnússon, Garðar Gíslason, Kristján Sveinbjörnsson og Páll Gröndal, en frammistaða Páls á mótinu er athyglisverð, þar sem hann var á flugu er hefur mikið lakara rennigildi en þær Leifur Magnússon með sigur- launin. beztu. Mótinu lauk svo á sunnu- dagskvöldið er Ásbjörn Magnús- son formaður Flugmálafélags ís- lands afhenti verðlaun um kl. 21 en síðustu flugurnar komu í mark um kl. 19. Það var fróðlegt að fylgjast með mótinu á Hellu. Mótið er eins konar fjölskylduhátíð, því þar var hafst við í 10 daga og dvöldu flugmennirnir, aðstoðarmenn þeirra og fjölskyldur í hjólhýsum og tjöldum, sem slegið var upp í borg á einni flugbrautinni og þegar keppendur voru á lofti mátti heyra þá tilkynna aðstoðar- mönnum sínum staðsetningu sína í radíóinu, en fjarskiptin fóru öll fram á dulmáli, sem hvert lið hafði komið sér upp. Var þar ýmist um tölustafi eða bókstafi að ræða og gert í þeim tilgangi að andstæðingarnir geti ekki gert sér grein fyrir framvindu mála. Þá var Guðmundur Hafsteins- son veðurfræðingur á mótsstað allan tímann. Guðmundur hefur sérhæft sig í svifflugveðurfræði og fór hann með viðeigandi mælitæki í flugtúr á hverjum degi. Að því búnu reit hann niðurstöður mæl- inganna á flókin línurit og í framhaldi af því spáði hann svo Flug fyrir flugmennina um veðurfar, heppilegustu flughæðir með tilliti til uppstreymis o.s.frv. Rómuðu svifflugmenn þátt Guðmundar og sagði t.d. Baldur Jónsson er hann hafði lokið þríhyrningsfluginu á laugardag, að spá Guðmundar hefði alveg staðist. íslandsmótið í svifflugi hefur nú um nokkurra ára skeið farið fram á Hellu. Á næsta ári er í bígerð að mótið fari fram á Flúðum í Hrunamannahreppi, en flugvall- argerð þar er langt á veg komin, og skilyrði til svifflugs eru þar betri vegna fjarlægðar frá sjó. Mótinu var slitið, eins og áður segir, á sunnudagskvöld af forseta Flugmálafélags íslands, Ásbirni Magnússyni. Við það tækifæri þakkaði hann mótsstjóra, prófess- or Þorbirni Sigurgeirssyni og mótsstjórnarmönnum, Helga Kol- beinssyni, Herði Hjálmarssyni, Nirði Snæhólm og Sigurði K. Ólafssyni fyrir ágæta framkvæmd mótsins. Flugmenn dráttarflug- vélanna þriggja, sem í upphafi hvers verkefnis drógu svifflugurn- Ljósm. Björn Björnsson. Ásbjörn Magnússon formaður Flugmálafélags íslands afhend- ir verðlaun i mótslok, en ásamt Ásbirni eru keppendur (f.h.): Þórmundur Sigurbjarnason, Þorgeir L. Árnason, Sigurður Benediktsson, Leifur Magnússon, Kristján Sveinbjörnsson, Snæ- björn Sigurbjarni Þórmunds- son, Páll Gröndal, Garðar Gísla- son, Magnús Jónsson, Baldur Jónsson, Þorbjörn Sigurgeirs- son mótsstjóri, og bak við Ásbjörn sér i Njörð Snæhólm, sem átti sæti i mótsstjórn. ar á loft, voru þeir Árni Guð- mundsson í Múlakoti, Gunnar Arthursson flugstjóri og Sig- mundur Andrésson. Til mótsins voru skráðir 12 keppendur, en stigafjöldi fyrstu sex keppenda varð sem hér segir: 1. Leifur Magnússn 2552 stig (sviffluga Ka-65), 2. Garðar Gísla- son 2292 stig (sviffluga LS3-1'7), 3. Kristján Sveinbjörnsson 2175 stig (sviffluga Vasama), 4. Páll Grön- dal 1987 stig (sviffluga K-8B), 5. Baldur Jónsson 1648 stig (svif- fluga Speed Astir IIB), 6. Sigurður Benediktsson 927 stig (sviffluga HP-16). — ágás. Garðar Gislason (th.) og Sigurður Benediktsson. Sigurður fékk blómvönd fyrir íslandsmet i markflugi og Garðar heldur á verðlaunum fyrir annað sætið i keppninni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.