Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiöslunni er 83033 2flor0imWaÍ>il> ’ dHawt NYR MATSEÐILL FRÖNSK NAUTASTEIK Opið alla daga frá kl. 11-24 f-y ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 Ungur maður stór- slasaðist þegar sviffluga hrapaði ÞAÐ slys varrt við Sandskeið fyrir ofan Reykjavík klukkan rúmlega hálfellefu í xærkvoldi að sviffluga hrapaði til jarðar ok hrotlenti. Einn maður var í svif- flugunni, 21 árs Kamall og stór- slasaðist hann. hryxxbrotnaði. Vann 6 skákir / .. v i roð MARGEIR Pétursson hefur staðið si({ fáda-ma vel á alþjóða skákmótinu í New York. Hefur Marifeir unnið sex síðustu skákirnar ok skotizt upp í 2. sætið. f siðustu umferðinni tefl- ir hann við cfsta mann mótsins, Handaríkjamanninn Watson oj? ef Marjreir vinnur þá skák verður hann siirurvejfari móts- ins. Margeir byrjaði mjög illa í mótinu, hlaut aðeins einn og hálfan vinning í fyrstu fjórum umferðunum. En þá snérist gæfuhjólið honum í hag og hann hefur nú unnið sex skákir í röð og er með sjö og hálfan vinning eftir 10 umferðir. í mótinu taka þátt 60 skák- menn, þar af þrír stórmeistarar og fjórir alþjóðlegir meistarar. Jóhann Hjartarson byrjaði vel í mótinu en hefur tapað tveimur skákum í röð og er með sex vinninga. Arni Arnason hefur þrjá vinninga. skarst mikið á andliti auk þess sem óttast var að um meiri meiðsli væri að ræða en þau voru ekki fullkönnuð, þegar Mbl. hafði siðast fregnir um klukkan hálfeitt. Að sögn sjónarvotta hrapaði vélin úr mikilli hæð. Er hún kom til jarðar stakkst hún í hæð nokkur hundruð metrum norðan við Vésturlandsveg á móts við Bláfjallaveg. Flugvél kom boðum til flugturnsins í Reykjavík, sem gerði lögreglu og sjúkraliði aðvart. Sjúkrabíll var þegar sendur á slysstaðinn og skömmu síðar ann- ar sjúkrabíll með lækni. Var hinn slasaði fluttur á slysadeild Borg- arspítalans til aðgerðar. Hann mun vera vanur svifflugmaður. Svifflugan er stórskemmd ef ekki ónýt. FRÁ SLYSSTAÐ — Myndin var tekin á slysstaðnum við Sandskeið um miðnættið. Svifflugan er stórskemmd eins og sjá má. Ljósm. Mbl. Emilía. Spá Þjóðhagsstofnunar gerir ekki ráð fyrir efnahagsaðgerðum: Kaupmáttur kauptaxta mun minnka um 5—6% á þessu ári Stefnir í 40 milljarða halla á viðskiptajöfnuði á árinu 1980 „SAMKVÆMT útreikningum okkar mun kaupmáttur kaup- taxta rýrna um 5—6% á árinu 1980 og er þá ekki gert ráð fyrir neinum grunnkaupshækkunum og gert er ráð fyrir óbreyttu vísitölukerfi. Kaupmáttur ráð- stöfunartekna mun rýrna um 3—5%,“ sagði Bolli Bollason, Stálu skartgripum fyrir um 50 millj. UM helgina var hrotizt inn í skartgripaverzlun Jóhannesar Norðfjörð að Laugavegi 5, Reykjavík og þaðan stolið geysi- miklu af úrum. skartgripum og öðrum verðmætum. Ekki er húið að reikna út söluverðmæti þess sem stolið var, en talið er að það sé ekki undir 50 milljónum króna að því er lögreglan hefur tjáð hlaðinu. Er þetta því eitt stærsta þjófnaðarmál seinni ára hérlend- is. Lögreglunni var tilkynnt um þjófnaðinn í gærmorgun. Starfs- fólk verzlunarinnar yfirgaf hana eftir lokun á föstudagskvöld og kom ekki í verzlunina aftur fyrr en í gærmorgun. Tók það þá eftir því að þjófar höfðu látið þar greipar sópa um helgina. Rann- sókn þessa máls er á frumstigi. hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofn- un, er Morgunblaðið hafði sam- band við hann i gær, en á næstunni mun koma út spá Þjóð- hagsstofnunar um þróun efna- hagsmála. „Búist er við 40 milljarða halla á viðskiptajöfnuði, en það mun vera um 3% af þjóðarframleiðslu. Þarna er um að ræða talsvert meiri halla en á síðasta ári. Við þessar spár er ekki gert ráð fyrir neinum aðgerð- um af ríkisstjórnarinnar hálfu það sem eftir er ársins. Það kom fram hjá Bolla að halli á viðskiptajöfnuðinum mun einkum stafa af halla á þjónustujöfnuði, en aðal hækkanir þar eru stórauknar vaxtagreiðslur vegna erlendra skulda og ennfremur vega útgjöld vegna samgangna verulega þungt, s.s. rekstur Flugleiða. Gert er ráð fyrir sama olíuverði og gildir í dag. Þjóðarframleiðslan mun aukast um 1% á þessu ári, en vegna versnandi viðskiptakjara munu þjóðartekjur rýrna um 0,5—1%. Þjóðartekjur á mann munu minnka um 1,5—2% vegna fólksfjölgunar, en þjóðarframleiðsla á mann mun standa í stað. Við spá um þjóðar- framleiðslu er reiknað með þeim breytingum sem verða á framleiðslu sjávarafurða og söluerfiðleikum. Versnandi viðskiptakjör munu ann- ars vegar stafa af verulegri hækkun á innflutningsverði, sem stafar af gengisbreytingum á alþjóðagjald- eyrismörkuðum og hækkandi verð- lagi í viðskiptalöndum okkar og hins vegar hefur verð á frystiafurðum á Bandaríkjamarkaði lækkað að meðaltali frá því í fyrra. í þessari spá er ekki gert ráð fyrir meiri lækkun það sem eftir er ársins. Reiknað er með svipaðri gengis- stefnu og verið hefur. Vísitala framfærslukostnaðar verður að meðaltali 58% hærri en hún var á síðasta ári, að því er Þjóðhagsstofnun spáir. A tímabil- inu maí—ágúst er reiknað með að vísitala framfærslukostnaðar hækki um 10—11%, en ágúst—nóv. er gert ráð fyrir að hún hækki um 11 — 13%. Við spá um verðlagsmál er tekið mið af niðurtalningamörkum ríkis- stjórnarinnar. Gróf ránstilraun mistókst: Veitti manninuin högg og ætlaði að stela tösku með milljónum BÍRÆFIN ránstilraun var gcrð í Reykjavik i gær. Ungur maður réihit að starfsmanni Oliufélagsins Ein stórvirkjun og stóriðjufyrirtæki í smíðum á hverju 3—5 ára tímabili - sagði Geir Hallgrímsson í Varðarferð „LÁGMARK er að eitt fyrirtæki í orkufrekum iðnaði og ein stórvirkjun séu í framkvæmd á hverju 3—5 ára timabili til aldamóta. Við eigum að ganga til samstarfs við erlenda aðila og nýta fjármagn þeirra með opnum huga og mati hverju sinni og stefna að því að íslendingar eignist fyrirtækin síðan smám saman“, sagði Geir Hallgrimsson í ræðu í sumarferð Varðar í fyrradag. í ræðu sinni sagði formaður Sjálfstæðisflokksins ennfremur, að 10—15 starfsár færustu manna okkar þyrfti til að gera eins tæmandi úttekt og frekast væri unnt á möguleikum okkar í orkufrekum iðnaði. Hann hvatti til þess, að slíkri úttekt yrði lokið innan tveggja ára. Hún mundi ef til vill kosta nokkur hundruð milljónir króna en mundi fást vel endurgreidd við fyrstu framkvæmd. í ræðu sinni í Varðarferðinni benti Geir Hallgrímsson á, að nú væri enginn undirbúningur í gangi undir framkvæmdir í orkufrekum iðnaði. Stöðnun og aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar liggur eins og mara, þar sem ryðja ætti vaxtarbroddi almenns iðnaðar og stóriðju braut, sagði Geir Hallgrímsson. Hann vakti ennfremur athygli á því, að stefna ríkisstjórnarinnar virtist vera sú, að koma bæði Lands- virkjun og Hitaveitu Reykjavík- ur í greiðsluþrot, enda væru þau vanmegnug að takast á við nauðsynlegar framkvæmdir. Geir Hallgrímsson minnti á, að bæði Alþýðubandalag og Fram- sóknarflokkur hefðu greitt at- kvæði gegn álsamningnum. Ef stefna þeirra flokka hefði ráðið fyrir 15 árum hefði leið smá- virkjana verið farin og lands- menn mundu búa við mun hærra rafmagnsverð og færri og fábreyttari atvinnutækifæri. Sjá ræðu Geirs Hallgrimssonar í Varðarferð á bls. 16. Skeljungs hf, barði hann í höfuðið með skrúflykli og reyndi að hrifsa af honum tösku með miklum fjár- munum. nærri 20 milljónum sam- kva'mt þeim upplýsingum sem Mbl. fékk í gær. Það tókst ekki og gat maðurinn snúið árásarmanninn af sér og flúði hann eins og fætur toguðu. Er hans nú ákaft leitað af lögreglunni. Maður sá sem fyrir árásinni varð hefur þann starfa hjá Skeljungi að aka milli bensínstöðva fyrirtækisins og safna saman þeim peningum sem inn koma. Er hann var staddur við bensínstöðina í Árbæjarhverfi á þriðja tímanum síðdegis í gær kom til hans ungur maður og bað um far niður í bæ. Var það auðsótt mál. Þegar bifreiðin var stödd við Afurðasölu Sambandsins á Kirkju- sandi tók ungi maðurinn upp skrúf- lykil og veitti bifreiðarstjóranum þungt högg í höfuðið. Honum tókst að snúa árásarmanninn af sér og koma í veg fyrir að hann næði peningatöskunni. Þegar árásarmaðurinn var flúinn kom fólk að til hjálpar. Boðum var komið til lögreglunnar og barst útkallið klukkan 14,46. Sjúkralið var einnig kallað á staöinn og flutti það manninn á slysadeildina. r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.