Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980
25
Ltyamyndir Kristinn.
V. ólaíur Björnsson hefur sloppið úr gæslu og skotið að marki.
nötturinn skoppar að marki ÍBV og ólafur fylgir fast á eftir. Og
rk Ólafs í 1. deild.
til þessa
an sigur á Val
FH:
Valur
Vals, lék nær og renndi knettinum
fram hjá úthlaupandi markverð-
inum. Helgi Ragnarsson átti
þrumuskot rétt yfir Valsmarkið,
aðeins mínútu síðar.
Valsmenn reyndu nú að hrista
af sér slenið og Volker Hofferberg
setti inn á þá Magnús Bergs og
Jón Einarsson fyrir Hermann
Gunnarsson og Guðmund Þor-
björnsson. Hresstust Valsmenn
dálítið, þó ekki nógu mikið. Á 57.
og 58. mínútu gerðu þeir þó harða
hríð að marki FH. Friðrik mark-
vörður varði fyrst meistaralega
þrumuskot Sævars Jónssonar úr
aukaspyrnu, en síðan fóru föst
skot Matthíasar og Alberts
naumlega fram hjá. Sókn Vals
þyngdist er líða tók að leikslokum.
Færi gáfust þó fá eða engin þar til
að Dýri Guðmundsson skoraði
9
eina mark Vals 5 mínútum fyrir
leikslok, skallaði þá laglega í netið
eftir hornspyrnu Jóns Einarsson-
ar. Var darraðardans í teig FH
síðustu mínúturnar, en Vals-
mönnum tókst ekki að jafna.
Sigur FH var sigur sterkrar
liðsheildar frekar en sigur nokk-
urra afburðamanna. Friðrik var
góður í markinu og þeir Valþór,
Viðar og félagar voru grimmir í
vörninni. Ásgeir Elíasson sýndi
gamla góða takta, einkum í síðari
hálfleik, Magnús Teitsson var
mjög góður og þeir Helgi Ragn-
arsson, Pálmi Jónsson og Valur
Valsson áttu allir mjög góða
spretti. Það var færra um fína
drætti hjá Val. Sævar stóð fyrir
sínu, einnig Dýri og Magni. En
flestir eða allir léku undir getu.
í stuttu máli:
íslandsmótið í 1. deild, Kapla-
krikavöllur. FH — Valur 2—1
(1-0).
Mörk FH: Pálmi Jónsson (36),
Magnús Teitsson (52).
Mark Vals: Dýri Guðmundsson
(85).
Gul spjöld: Ásgeir Elíasson og
Viðar Halldórsson FH.
Áhorfendur: 520.
— KK
Ljósm. kristinn.
• FH-ingar fagna innilega öðru marki sínu sem Magnús Teitsson skoraði.
Einkennileg er staðsetning knattarins.
Leikur KR og Þróttar
var sannkallað núll
Það var lítil reisn yfir leik KR og
Þróttar i 1. deild íslandsmótsins i
knattspyrnu um helgina. Lofað
var með mikilli háreysti knatt-
spyrnu i efsta gæðaflokki og
siðan fallhlifarstökksýningu i
hálfleik. Var hvort tveggja svik-
ið. Það var aldrei leikin góð
knattspyrna í leiknum og ein-
hverra hluta vegna, sennilega
vegna skipulagsgalla, varð ekk-
ert úr fallhlifarstökkinu. Skildu
einhverjir hafa komið gagngert
til þess að sjá fallhlifarstökkið?
Lokatölur þessa leiks segja flest
sem segja þarf um leikinn.
ekkert mark var skorað. Er þetta
aðcins annar leikurinn sem
þannig fer á yfirstandandi
Islandsmóti.
Bæði liðin fengu þó tækifæri til
þess að skora. Einkum voru það
KR-ingar sem færin fengu, enda
voru þeir snöggtum skárri aðilinn
á vellinum. Þeir hæfðu t.d. tvíveg-
is marksúlurnar. Sverrir Her-
bertsson reyndi glæsilega hjól-
hestaspyrnu í síðari hálfleik og
KR: n n
Þróttur w ■ W
spyrnti þá í þverslá og fimm
mínútum fyrir leikslok skallaði
Börkur Ingvarsson knöttinn í
slána á nýjan leik. Fleiri færi
fengu KR-ingar, t.d. hitti Sverrir
ekki knöttinn í opnu færi á 20.
mínútu leiksins og á 25. mínútu
varði Jón Þorbjörnsson glæsilegt
hörkuskot Sæbjörns Guðmunds-
sonar.
Þróttarar fengu aðeins tvö um-
talsverð færi í leiknum. Það fyrra
fékk Halldór Arason strax á 5.
mínútu. Stóð þá Halldór einn á
markteig KR, en skaut beint í
markvörðinn, sem kominn var úr
jafnvægi. Og 2 mínútum fyrir
leikslok mátti engu muna að
Þróttur stæli báðum stigunum.
Páll Ólafsson brunaði þá inn í
vítateig KR og skaut þrumuskoti í
stöng og út. Greip Páil um höfuðið
í örvæntingu sinni og lái honum
það enginn.
Sæbjörn var góður á köflum hjá
KR og Sigurður Pétursson kom
einnig vel frá leiknum, hafði mikla
yfirferð og tók mikinn þátt í
sóknarleiknum. Jón Þorbjörnsson
var öruggur í marki Þróttar og
bakvörðurinn Ottó Hreinsson var
sterkur, en yfir höfuð var flatn-
eskjan í liðinu sem yfirborð Dan-
merkur.
I stuttu máli:
íslandsmótið í 1. deild,
KR—Þróttur 0—0
Gul spjöld: Sverrir Herbertsson
Áhorfendur: 580 — gg
isiandsmðUl 1. delld