Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 Elio Amorim var ekki á prógramminu, sem verzlunarfulltrúi Portúgala í Osló og frum- kvöðull að för minni til Portúgals Joao de Sousa Machado, hafði útbúið. Það var tilviljun að leiðir okkar Elios lágu saman. Eitt kvöldið í Oporto var ég að leggja drög að því að taka stefnu á hótelið mitt, eftir að hafa snætt dægilegan kvöldverð með kollegum mínum við helztu blöðin í Oporto. Við höfðum borðað á stað, sem heitir Limosine og klukkan var farin að halla í háttatíma. Þá svipti sér á staðinn hávaxinn hvíthærður og skeggjaður öldungur og varð mér starsýnt á hann. Það var Elio Amorim. í Oporto þekkja hann allir. Hann rekur textilfyrirtæki og hann hefur sérstaka púrtvínsverk- smiðju, sem merkir honum göfugt vín. En umfram allt: hann safnar Rolls Royce-um og á þá sex og svo einn Bentley. Manuel Dias, starfsbróðir minn hjá „0 Primeiro de Janeiro" sagði mér nokkur deili á manninum og býðst til að reyna að fáleyfi hans til að ég fái að sjá bílana hans. Elio tekur því ljúfmannlega, en hann er afar upptekinn maður, það verður að bíða í nokkra daga og helzt ekki fyrr en síðla kvölds, hann hefur í mörg horn að líta, segir hann. Á þjóðhátíðardaginn kemur Manuel og sækir mig um það bil sem venjulegt fólk hugsar sér að ganga til náða. Manuel segir á leiðinni þangað sem Elio geymir gripi sína, að það kunni svo að fara að Elio komi ekki sjálfur. Hann gæti hafa gleymt þessu, ef hann hefði til dæmis hitt einhverja mjög sæta píu. Og auk þess er hann nú kominn á áttræðisaldurinn. En við erum ekki nema rétt komin á staðinn, þegar hann er einnig kominn á vettvang. Þetta eru glansandi farkostir og allir eru þeir í ökufæri ástandi og Elio segist stöðugt vera að taka þátt í röllum. Viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku í þessum röllum. bikarar, lúðrar, eldgömul dekk og hvaðeina upp um alla veggi. í þessum mánuði fer hann til Ítalíu að taka þátt í kappakstri þar, samtals hefur hann tekið þátt í 300 keppnum. Hann keyrir alltaf sjálfur en hefur með sér aðstoðarmann, eins og vera ber. Elzti bílinn er Silfurvofan frá 1914. Og Elío þykir einna vænst um hann. Einn þessara bíla átti Farouk sem var eitt sinn kóngur í Egyptalandi. Þegar fór að halla undan fæti hjá Farouk, varð hann að selja; Elio keypti gripinn, flutti hann til Portúgals og lét færa hann til sinnar upprunalegu gjörðar. — Ég byrjaði hægt, blessuð vertu, segir hann hægverskiega og býður upp á púrtvín og sætar kökur. — En ég hef alltaf verið veikur fyrir Rolls Roycum. Þegar ég var ungur maður og allt var utan seilingar, sem eitthvað kostaði, hugsaði ég með mér, að kæmist ég í efni, skyldi ég láta eftir mér að uppfylla þær óskir mínar að eignast Rolls Royce. Svo hefur þetta hlaðið svona utan á sig smátt og smátt. Ég hef haldið uppi spurnum hér og hvar um gamla og merkilega bíla og get ekki neitað því, að mér er sérstök nautn að eiga þá og keyra þá. Stundum bregð ég mér í ökuferð á einhverjum þeirra, til Lissabon, stundum yfir til Spánar. En yfirleitt geymi ég þá hér, nema þegar ég þarf að taka þátt í keppni. Hann er í röndóttum fötum, angar af kölnarvatni, hann hefur kvikar hreyfingar og ung augu. Hann segist ekki hleypa hverjum sem er þarna inn til að skoða, honum er annt um bílana sína, enda hefur hann mann í fullu starfi við að pússa þá og fylgjast með þeim. Hann baðar út öllum öngum, þegar ég spyr hann hvað hann haldi að þessir bílar séu mikils virði í peningum. Það eru einhverjar tölur, sem hann vill ekki nefna og veit kannski ekki. En nefna mætti Silfurvofuna. Hann keypti hann í Englandi og hafði þrefað um málið lengi. Hann keypti á sem svaraði 8 milljónir. Nú mun bíllinn metinn á um 50 milljónir íslenzkar, ef ekki meira. Þegar Anna Bretaprinsessa og maður hennar komu í heimsókn til Portúgals fyrir fáeinum árum, þótti enginn bíll þar í landi við hæfi hávelborinheitanna, nema einn af Rolls Roycum Elios. Hann dróst á að ( Sextugur: Pálmi Eyjólfsson ! sýslufulltriu Hvolsvelli I Á þessum heiðursdegi míns i gamla góða vinar og félaga vil ég | minnast hans nokkrum orðum. Pálmi er fæddur í Reykjavík 22. júlí 1920. Foreldrar hans voru Eyjólfur Gíslason innheimtumað- ur, og kona hans Guðríður Magn- úsdóttir. Bæði voru þau af traust- um bændaættum, Eyjólfur úr Árnesþingi en Guðríður Borgar- firði syðra. Fyrstu ár sín ólst Pálmi upp í foreldrahúsum í hópi margra systkina. En skjótt brá sól sumri er móðir þeirra féll frá langt um aldur fram. 7 ára gamall eignaðist Pálmi sitt annað heimili að Neðra Dal undir Eyjafjöllum hjá ágætu fólki og bjó þar við bezta atlæti. Hefur Pálmi jafnan rómað þá umönnun, sem hann naut á viðkvæmu æviskeiði. Vann hann að sjálfsögðu að öllum venjulegum sveitastörfum, svo sem aldri hæfði. í orði og verki hefur hann sýnt fósturfólki sínu tryggð og þakklátan hug. Um 17 ára aldur hóf Pálmi nám í Laugarvatnsskóla og lauk þaðan prófi tveim árum síðar. Eigi þarf getum að því að leiða, að námið og vistin þar við holl uppeldisáhrif viðurkenndra skólamanna hafi orðið honum drjúgt veganesti á langri braut margvíslegra og vandasamra starfa. Um tíma stundaði Plmi sjó- mennsku og jók sú vinna honum afl og áræði til átaka. Síðar fékkst hann við verzlunarstörf hjá Kaup- félagi Hallgeirseyjar (nú Kf. Rangæinga), sem þá nokkrum árum fyrr hafði skipt um aðsetur og flutzt upp að Stórólfshvoli (nú Hvolsvöllur). Mun það starf hafa átt talsvert vel við hann og líklega hefði hann orðið nokkuð slyngur og vinsæll í þeirri grein en atvikin sveigðu leið hans til annarrar áttar. Á árinu 1946 hafði sýslumaður Rangæinga fengið leyfi til þess að ráða fastan aðstoðarrnann við embættið. Svo giftusamlega tókst til, að einmitt Pálmi réðist til starfans og honum gegnir hann enn í dag. Hélzt samstarf okkar síðan brotalaust í full 30 ár eða þar til ég lét af embætti í árslok 1977. Verður lítils eins getið frá samstarfi okkar annars en örfárra atriða, sem mér koma í hug um leið og greinarkorn þetta er hrip- að. Má með nokkrum sanni segja, að starfssaga Pálma sem sýslu- fulltrúa tengist að vissu leyti nokkrum þáttum héraðssögu Rangæinga á nefndu tímabili þróttmikilla athafna sýslubúa og framfara á flestum sviðum. Eins þáttar skal hér minnzt. Á upp- hafsárum byggðar í Hvolsvelli tók Pálmi sér þar bólfestu, varð einn landnámsmanna þar ef svo má segja. Allar götur síðan hefur hann átt ásamt öðrum sinn þátt, beint og óbeint, í vexti og viðgangi þorpsins. T.d. hafði hann mörg fyrstu árin á hendi framkvæmdir um úthlutun lóða og greiddi fyrir hinum nýkomnu fyrstu sporin. Pálmi var í flokki þeirra, sem hvöttu unga og aldna, sem annars hugðu á brottför úr héraði ein- hverra orsaka vegna, að hasla sér fremur völl í nýbyggðinni í Hvols- velli. Þeir frumherjarnir sáu glöggt, að í byggðarkjarna innan héraðs væri fólgin framtíðar þjón- ustumiðstöð til hagsbóta og nauð- synlegrar fyrirgreiðslu, bændum og búaliði. Hefur þetta vissulega reynzt rétt ályktað svo sem dæmin sanna. Svo vel hefur til tekizt, að Hvolsvöllur er í dag gróskumikill umsvifastaður, Rangæingum til sóma og nytsemdar á marga lund. Snemma náði Pálmi fullum tök- um á flestum málum, sem til afgreiðslu komu á sýsluskrifstof- unni að undanskildum dómsmál- um, sem hann kynnti sér þó nokkuð. Meðan við vorum aðeins tveir einir í starfi kom æði oft í hans hlut að sinna margvíslegustu erindum sýslubúa er sneru að embættinu. Fór honum slíkt vel úr hendi og jafnan fengust málalok, sem efni stóðu til. Auk þessa var ósjaldan leitað til Pálma um persónuleg vandamál, reyndist hann þar bæði hjálpfús og ráð- hollur. Málefni sýslunnar voru þá og sjálfsagt enn fyrirferðarmikill málaflokkur. Þar að vann hann af elju og árvekni. Oddvitum sýsl- unnar og hreppstjórum var hann innan handar um leiðbeiningar og nauðsynlega fyrirgreiðslu, þegar viðkvæm eða meiri háttar mál í stjórnsýslu var um að ræða og kröfðust úrlausnar. Að því er við kom ríkinu, m.a. innheimtu opin- berra gjalda og málefnum á veg- um ýmissa stofnana þess, gætti Pálmi ýtrustu samvizkusemi í hvívetna. í rauninni var það fátt eitt, sem einhver veigur var í og horfði til framkvæmda eða einhverskonar aðgerða, að eigi kæmi til kasta sýsluskrifstofunnar í einhverri mynd. Lengi fram eftir árum þurfti Plmi að taka á móti klögumálum, sem bárust auðvitað af og til, ekki ætíð af merku efni svo séð yrði, en þeim mun mikilsverðara að áliti þeirra, sem deildu. Kom snemma í ljós hve laginn sáttamaður Pálmi er. Þeir, sem áður deildu hart, fóru af fundi hans hinir glöðustu í bragði svo sem ekkert hefði í skorizt. Við slík málalok varð kostnaður enginn en hefði álitleg- ur orðið ef lengra hefði ágreining- ur haldið. Þar sem Pálmi var hittu menn fyrir einstakan mannkostamann, velviljaðan og viðræðuléttan, glaðbeittan og gamansaman, ef því var að skipta. Hjá því fór ekki að hann nyti velvildar sýslubúa og vinsælda, sem oft var mikils virði, þegar mál erfið viðfangs voru til meðferðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.