Morgunblaðið - 22.07.1980, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 1980
11
skiptist í þrennt, — leikjasal,
samkomusal og hópálmu. I
leikjasal eru ýmis leiktæki og
aðstaða til leikja. í samkomusal
eru haldnir dansleikir, fundir og
skemmtisamkomur. Þar verður
einnig rekin veitingasala. Hóp-
álman er 3 herbergi, þar af eitt
með fullkominni fundaraðstöðu.
Þar er aðstaða fyrir hverskonar
tómstundavinnu.
Félög í hverfinu geta fengið
inni í Þróttheimum fyrir starf-
semi sína. Opið hús er á þriðju-
dagskvöldum og diskótek á
fimmtudagskvöldum. Forstöðu-
maður er Skúli J. Björnsson.
Reiðskólinn
í Saltvík
Æskulýðsráð starfrækir
reiðskóla í Saltvík fyrir 8—14
ára börn í samvinnu við Hesta-
mannafélagið Fák. Starfar skól-
inn mánuðina júní, júlí og ágúst.
Stendur hvert námskeið í 2 vikur
og eru 60 þátttakendur í hverju
námskeiði. Börnin eru allan dag-
inn í Saltvík, — farið er frá
Reykjavík á morgnana og komið
aftur síðdegis. Ekki getur allur
hópurinn stundað hestamennsku
í einu og eru börnin við tóm-
stundastörf og útivist á staðnum
nokkurn hluta tímans. Á laugar-
dögum í júlimánuði er starfrækt
hestaleiga í Saltvík og er þá
hægt að fá leigða hesta og fara í
stuttar reiðferðir. Forstöðumað-
ur reiðskólans í Saltvík er Krist-
ín Arnardóttir.
Fríkirkjuvegur 11
Lokaútsala
allt á að seljast
Að Fríkirkjuvegi 11, þar sem
Æskulýðsráð Reykjavíkur er til
húsa, er aðstaða til fundarhalda
og námskeiða fyrir æskulýðsfé-
lög og samtök. Leikbrúðuland
hefur aðstöðu í kjallara hússins
á veturna en í sumar er Ferða:
leikhúsið með sýningar þar. í
ráði er að efla starfsemina á
Fríkirkjuvegi 11, t.d. koma þar
upp upplýsingamiðstöð sem ungt
fólk gæti leitað til með vanda-
mál sín og fengið leiðbeiningar.
Að sögn forráðamanna Æsku-
lýðsráðs er mikil þörf fyrir slíka
stofnun.
Nýbreytni í starfsemi Æsku-
lýðsráðs eru kynnisferðir sem
það stendur fyrir í samvinnu við
Samband sunnlenskra kvenna.
Dvelja þátttakendur þrjá daga á
sveitaheimili á Suðurlandi og er
dvölin ókeypis en þátttakendur
skuldbinda sig til að veita jafn-
öldrum úr sveitinni fyrirgreiðslu
í Reykjavík.
bó.
Fatnaður og vefnaðarvara á stórlækkuðu verði
Dömu og herrabuxur frá kr. 8.900-
Barnabuxur frá kr. 4.900.-
Sumarjakkar
á dömur, herra og börn frá kr. 6.900,-
Efni: Flauel, denim, poplín, flannel, fóöur o.fl., o.fl.
Komið snemma og náið því besta.
Verksmiðjusala
Skipholti 7.
Á útivistarsvæðinu við Bústaðakirkju fara krakkarnir i alls konar
leiki. Þar var mikið um að vera þegar okkur bar að og létu
krakkarnir það ekki á sig fá, þótt kalt vsri i veðri.
Frá Saltvik. Þessi hnáta var önnum kafin við að taka ofan reiðverin
og gaf sér ekki tima til að skrafa við blaðamann.
Jk1# %á þ l t* t M
Max sportfatnaður fyrir minnsta fólkið Léttir sportgallar og anorakar fyrir börn á aldrinum 2ja til 12 ára. Margir litir. gr v> / .. V t I I / ■■■ ■■■ ■■ ■■ ■■ f/EST 1 HELSTU / / WSPORTVOSUVERZLUMUM J ItflJlV uu■ ■ mKmmm wL ármúla 5 — símar 86020 og 82833