Morgunblaðið - 22.07.1980, Síða 15

Morgunblaðið - 22.07.1980, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 15 Þeir tóku ekki virkan þátt í þremur fyrstu leikunum og komu fyrst fram á leikunum 1908 í London. Þeir náðu tak- mörkuðum árangri bæði í Lon- don og Stokkhólmi 1912. Eftir byltinguna sleit Sovétstjórnin öllu sambandi við ólympíu- hreyfinguna og hundsaði leikana og öll önnur alþjóðleg íþrótta- mót fram að síðari heimsstyrj- öldinni. Ólympíunefnd Sovétríkjanna var stofnuð vorið 1951 og hlaut opinbera viðurkenningu Alþjóða ólympíunefndarinnar sama ár. Sovétríkin komu fyrst fram á Ólympíuleikum í Helsinki 1951, þegar Rússar kepptu i öllum greinum nema einni og unnu næstum því eins mörg verðlaun og Bandaríkjamenn. Verðlaunaðir Eftir velgengni Sovétríkjanna á Ólympíuleikunum 1956 og 1972 var mikill fjöldi sovézkra íþróttamanna, þjálfara og íþróttafrömuða sæmdur helztu heiðursmerkjum landsins, þar á meðal Lenínorðunni. Flokks- átt að upphefja vissar þjóðir með árangri sem næst, í stað þess að skilningur ríki á því, að grundvallarmarkmið Ólympíu- leikanna sé, að allir taki þátt í vinsamlegri keppni. Beiðni Rússa um að halda sumarleikana 1976 var synjað, en í kjölfar þeirrar beiðni ákvað Alþjóða ólympíunefndin 1974, að sumarleikarnir 1980 skyldu fara fram í Moskvu. Undirbúningur hefur síðan farið fram í höfuð- borg Sovétríkjanna og að því hefur verið unnið, að þeir heppn- ist vel og að gera þá að meiri- háttar áróðursviðburði, sem auglýsi sovézkan kommúnisma. Pólitískt verkfæri Sovétríkin hafa notað íþróttir fyrir pólitískt verkfæri á tvenn- an annan hátt — til þess að tengja önnur kommúnistalönd Sovétríkjunum nánari böndum og til að hafa áhrif á löndin í þriðja heiminum. I Austur- Evrópu voru íþróttir skipulagðar eftir sovézkri fyrirmynd og sov- Uppdráttur af leiksvæði Olympíuleikanna og verndar- dýrið Misha. blaðið „Pravda" sagði um árang- ur Rússa 1971: „Hinir miklu sigrar Sovétríkjanna og bræðra- ríkja þeirra sýna áþreifanlega, að sósíalismi færir mönnum beztu tækifærin til að ná líkam- legri og andlegri fullkomnun." Mánaðarrit sovézku íþrótta- nefndarinnar sagði 1973, að „vaxandi áhrif sósíalista-íþrótta í íþróttahreyfingu heimsins væri bezta og skiljanlegasta leiðin til að skýra fyrir fólki hvarvetna í heiminum þá kosti, sem kerfi sósialismans hefði fram yfir kapítalismann". Slíkar þjóðernislegar og hug- sjónafræðilegar staðhæfingar ganga í berhögg við ákvæði stofnskrár ólympíuhreyfingar- innar um pólitíska beitingu íþrótta. Þar segir, að olympíu- nefndin telji það hættulegt ólympíuhugsjóninni, að fyrir hendi séu vissar tilhneigingar sem stefni fyrst og fremst í þá ézkir þjálfarar og leiðbeinendur voru útvegaðir. Frá því laust eftir 1960 hafa Rússar lagt mikla áherzlu á að útvega Afríku- og Asíuríkjum íþróttaþjálfara, nýj- an íþróttabúnað og æfingaað- stöðu í Sovétríkjunum. Tvíhliða íþróttasamningar hafa verið gerðir við nokkur Afríkuríki og þeir hafa leitt til keppnisferða og íþróttasýninga sovézkra íþróttamanna, og haldnar hafa verið „íþróttavikur", sem hafa borið sterkan pólitískan keim. Meðal landa, sem hafa gert iþróttasamvinnusamninga við Sovétríkin, eru Nígería (1970), Súdan (1970), Alsír (1972), írak (1972), Sýrland (1972) og Líban- on (1973). í íþróttamálum hafa Rússar reynt með tilvísun til endurtekinna sigra sinna á al- þjóðlegum íþróttamótum að sýna þróunarlöndunum kosti „sósíalisma", og þessar tilraunir hafa eflt svipaðar tilraunir þeirra í efnahagsmálum og á fleiri sviðum. VERÐLÆKKUN! Höfum náð fram verðlækkun Fiat 127 Sport Fiat Ritmo á ’80 árgerðum «/ Fiat 131 Fiat 132 Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar. Ifiat-umbodidI / Smiðjuvegi 4 - Simi 77200/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.