Morgunblaðið - 22.07.1980, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 22.07.1980, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 1980 Ingi R. Helgason: Að missa glæpinn Ég verð að leita á náðir þolin- mæði lesenda Morgunblaðsins með fáein orð vegna skrifa Davíðs Oddssonar síðastliðinn sunnudag. Nokkrar athugasemdir nægja. 1. Allt, sem ég sagði um borg- arráðsfundinn 1. júlí sl., þegar mér var neitað um að mæta þar til að skýra málefni Sinfóníuhljóm- sveitarinnar, stendur óhaggað, þótt Davíð Oddsson reyni að véfengja það. 2. Davíð Oddsson birtir myndir af Sigurjóni Péturssyni og Björg- vin Guðmundssyni með grein sinni. Undir myndunum er furðu- legur texti: Hvar var Ingi R. þegar þessir tveir sýndu menningarvið- leitni sína 20. janúar 1977? Það er ekki fyrr en 12. sept. 1978, (eftir að íhaldið missti meirihluta sinn í borgarstjórn Reykjavíkur) að ég er skipaður af borgarráði til að vera í stjórn Sinfóníuhljómsveit- arinnar. Þennan örlagadag, 20. janúar 1977, var Ólafur B. Thors fulltrúi Reykjavíkur í stjórn hljómsveitarinnar. Hafi Björgvin Guðmundsson þennan dag lagt til í borgarstjórninni, að niður yrði fellt fjárframlag'Reykjavíkur til hljómsveitarinnar og hafi Sigur- jón Pétursson stutt þá tillögu, er það enn ein sönnun þess, sem ég rakti skilmerkilega í grein minni í Morgunblaðinu, að afstaðan til Sinfóníuhljómsveitarinnar fer ekki eftir flokkspólitík. Það verður að reyna á þessa tvo herramenn í haust og raunar alla borgar- fulltrúa, hvaða hlut þeir ætla Reykjavík að Sinfóníuhljómsveit- inni við afgreiðslu fjárhagsáætl- unar 1981 og við næstu tilraun á Alþingi til að renna lagastoðum undir þau verkefni, sem Sinfóníu- hljómsveitinni eru ætluð í ís- lensku tónlistarlífi. 3. I grein sinni gefur Davíð Oddsson erindi mínu um 2,6 millj. kr. ferðastyrk til hljómsveitarinn- ar eftirfarandi umsögn: „Ekki þarf að deila um ágæti þess málefnis.“ Þegar þessi umsögn er borin saman við uppákomuna á borgarráðsfundinum 8. júlí sl., er ljóst að Davíð hefur áttað sig á hlutunum. En Davíð Oddsson er stjórn- málamaður og lítt gefinn fyrir að éta ofan í sig. Þess vegna segir hann, að hið ágæta erindi eigi heima við gerð fjárhagsáætlunar um áramótin vegna ársins 1981 og bætir við af mikilli rausn: „Ekki mun vefjast fyrir borgarstjórn að afgreiða svo hógværa beiðni þá.“ Það er nú gott og blesað út af fyrir sig, en þetta er alröng uppsetning málavaxta, og einmitt hér liggur þungamiðja þessa litla máls, sem hefur þó svo stóra skírskotun. Þátttókutiikynning hljómsveit- arinnar i listahátíðunum gat ekki beðið til áramóta. Það var einmitt þetta, sem ég vildi skýra Ingi R. Heigason. út fyrir borgarráði 1. júlí sl. Það var einmitt þetta, sem ég skrifaði í bréfinu, sem lá fyrir borgarráði 8. júlí sl. Mjög góðan fyrirvara og langan aðdraganda þarf við undir- búning listahátiða og þeirra, sem hér um ræðir. Davíð átti að skilja þetta öðrum borgarráðsmönnum fremur sakir reynslu sinnar við skipulagningu listahátíðar í Reykjavík, en hann hefur eflaust ekki lesið bréfið. Hinir rekstrarað- ilarnir voru búnir að taka jákvætt undir málið og ég þurfti að fá vilyrði í borgarráði, svo hægt væri að tilkynna þátttöku, þótt slíkt kæmi svo að sjálfsögðu inn á fjárhagsáætlun 1981. 4. En nú hafa skipast veður í lofti. Hugurinn leitar til Jóns Hreggviðssonar, þegar menn missa glæpinn. Það þarf ekkert að „vefjast" fyrir Davíð Oddssyni, eða borgarfulltrúum við gerð fjár- hagsáætlunar 1981 að afgreiða beiðni mína um þessar 2,6 millj. kr. Við Davíð þurfum ekki að skrifast á lengur um þetta mál í Morgunblaðinu. Hinir erlendu aðilar, sem ekki gátu beðið lengur eftir svari, hafa nú ákveðið að stórhækka sínar greiðslur, svo að séð er fyrfh öllum kostnaði, auk þess sem von er á styrk úr menningarmálasjóði Norðurlandaráðs. Getur því stjórn hljómsveitarinnar nú staðfest þátttöku. Framkvæmdastjóri hljómsveit- arinnar, Sigurður Björnsson óperusöngvari, hefur haft veg og vanda af öllum undirbúningi þátttökunnar með starfsfólki hljómsveitarinnar. Sigurður hefur unnið að því að afla hagstæðra kjara um flutning á starfsfólki og hljóðfærum með flugvélum og hann hefur staðið í samningum við forráðamenn listahátíðanna um þátttöku þeirra í kostnaðinum. Hin hógværa beiðni mín til borgarráðs um 2,6 millj. kr. var byggð á þyí, að listahátíð í Wies- baden bauð í upphafi að greiða helming alls kostnaðarins. Nú hefur listahátiðin í Wiesbaden að beiðni Sigurðar hækkað kostnað- argreiðslur sínar stórlega og til- kynnt okkur það. Af framangreindum ástæðum er því ekki lengur þörf fyrir sérstök fjárframlög rekstursaðila Sinfóníuhljómsveitarinnar í því skyni að hún geti tekið þátt í hinum fyrirhuguðu listahátíðum í Austuríki og Þýzkalandi. Ég hef þegar í bréfi til borgarráðs í dag skýrt ráðinu frá þessu. Nú óskum við þess öll, að hljómsveitinni takist undirbún- ingurinn vel og hún standi sig með sóma ytra í maí 1981. Með þökk fyrir birtinguna. Reykjavík, 21. júlí 1980. Ingi R. Helgason. Brúðubíllinn hefur að undanförnu ekið milli leikvalla Reykjavíkurborgar og skemmt yngstu borgurunum. Sigríður Ilannesdóttir og Ilelga Steffensen fylgja bilnum og sjá um brúðurnar. Myndin er tekin á leikvelli við Ljósheima. Ljósm. Kristinn. Samningar við flugmenn: í flugmálum er þegn- skapur allra nauðsyn EFTIRFARANDI barst Mbl. frá kynningardeild Flugleiða: í tveim fréttatilkynningum um samninga við flugmannafélögin tvö að undanförnu hefur verið gerð nokkur grein fyrir sjónar- miðum Flugleiða. Daglega berast félaginu fyrirspurnir um þetta mál og er þá eðlilegt að staðan sé skýrð á hlutlægan hátt. Viðurkennt er að samgöngur í lofti skipta okkur Islendinga höfuðmáli, fyrst og fremst vegna okkar eigin ferðamöguleika og einnig vegna hinna mörgu sem byggja afkomu sína á móttöku og fyrirgreiðslu við erlenda ferða- menn. I fréttabréfum Flugleiða hefur verið gerð grein fyrir þeim mis- muni áhafnakostnaðar sem er milli Flugleiða annars vegar og hins vegar aðal keppinautanna á Norður Atlantshafsleiðinni, Cap- itol og Transamerica. Svo og milli Flugleiða og dótturfélagsins Air Bahama. í svari formanns FÍA eru þessar staðreyndir ekki hrakt- ar heldur er þar staðfest ýmislegt af því sem fram kom í fréttabréf- um Flugleiða. T.d. að hámarksor- lof flugmanna á árinu séu 43 virkir dagar meðan Air Bahama menn hafa að hámarki 24 virka daga. I fréttabréfum Flugleiða var einnig tekið fram að nokkur hluti hins mikla mismunar sem er á nýtingu flugliðs hjá Flugleiðum og samkeppnisfélögum væri til kom- inn vegna annarrar uppbyggingar flugleiðanna. Megin vandinn lægi hins vegar í samningum félagsins við flugliðið og þá fyrst og fremst við tvö félög flugmanna. í fréttabréfum Flugleiða 9. og 11. júlí var mismunur nýtingar rakinn og gerð grein fyrir því sjónarmiði félagsins að í þeim samningum sem nú starda yfir við flugmannafélögin væri bráðnauð- synlegt að ná fram ákvæðum um betri nýtingu flugliðsins. Nýtingu til jafns við samkeppnisfélögin Capitol og Transamerica. Það er mikill misskilningur sem fram kemur í svari stjórnar Fé- lags Loftleiðaflugmanna að þarna sé um leigufélög að ræða. Capitol flýgur m.a. í beinni samkeppni við Flugleiðir áætlunarflug milli New York og Brussels, sem eins og allir vita er aöeins steinsnar frá Lux- embourg. Engum ætti að vera ljósara en einmitt flugmönnum að þarna er um hina harðvítugustu samkeppni að ræða enda bjóða Capitol nú lægri fargjöld en Flug- leiðir á Atlantshafsleiðinni. Svip- aða sögu er að segja um félagið Transamerica. Það félag flýgur áætlunarflug milli Bandaríkjanna og Amsterdam í beinni samkeppni við Flugleiðir. Auglýsingaherferð- ir þessa fjársterka félags hafa nú þegar reynst þungar í skauti. Svör FÍ A og FLF Við lestur greina formanns Fé- lags íslenskra Atvinnuflugmanna og stjórnar Félaga Loftleiðaflug- manna vekur það furðu hve heitt mönnum virðist í hamsi. Það er einkar athyglisvert að forráða- menn þessara félaga skuli ekki geta rætt málin hlutlægt og án þess að taka upp persónulegt hnútukast þegar gerð er á hlut- lægan hátt og áreitnislaust, grein fyrir stöðu mála í þeim samning- um sem varða þjóðina svo miklu. Alkunna er að íslenskir flugmenn eru yfirleitt góðir fagmenn og að Flugleiðir sjá flugliðum sínum MEWYBRKTI: BMISSELS >239" FMNKFURT 249” LOSAMGElfS 149 Það sem stjórn FLF vill ekki taka gildan samanburð á nýt- ingartíma flugliðs hjá Flugleiðum og Capitol og Transamerica skal hér upplýst um mismuninn á kostnaði flugliðsins hjá Flugleið- um annars vegar og hjá dótturfé- laginu Air Bahama hins vegar. Ahafnakostnaður DC-8 áhafna á flugstund hjá Flugleiðum og Air Bahama á árinu 1979. Flugleiðir Air Bahama Mismunur 1. Laun $ 275.18 $ 178.06 54.5% 2. Dagpen.. hótelkostn. o.fl. $ 69.23 $ 54.87 26.2% 3. Launatengdur kostnaður $ 53.79 $20.20 166.3% 4. Launaskattur $ 9.63 $ 5.07 89.9% 5. Annað $ 2.28 $ 1.81 41.6% 6. Samtals á flugstund $ 410.11 $ 259.81 57.9% fyrir mikilli þjálfun sem gerir þá hæfa í starfi. Þessa hæfni flug- manna hefur blaðafulltrúi Flug- leiða og þar áður Loftleiða og Flugfélags íslands látið á þrykk út ganga í áratugi. Þegar forystu- sveitír flugmannafélaganna hins vegar grípa til stórskaðlegra að- gerða, og er þá skemmst að minnast verkfallsboðana nú í júlí- mánuði, verður ekki hjá því kom- ist að vara við og upplýsa hversu hættulegar slíkar aðgerðir eru. Þótt ekki komi til verkfalla hefir verkfallsboðunin ein og sér, skað- leg áhrif á farþegaflutninga og sölu farmiða með flugvélum fé- lagsins. Fyrir því er hér algjörlega vísað á bug þeirri staðhæfingu formanns FIA og stjórnar FLF að með upplýsingum um stöðu samn- inga sé verið að níða niður flug- menn og annað fluglið. Við það lið allt, sem og aðra hópa starfs- manna vill félagið að sjálfsögðu hafa gott samstarf. í fréttatil- kynningum Flugleiða hefur á mál- efnalegan hátt verið skýrt frá staðreyndum. Svo mun einnig verða hér eftir. Góður fólagrsandi nauðsynleRur í svargreinum flugmanna er þess getið að þeir vilji góða samvinnu við félag sitt og vinnu- veitanda. Þessu ber að fagna því oft er þörf en nú er nauðsyn að flugmenn standi ásamt öðru starfsfólki Flugleiða vörð um fé- lag sitt. Það framtak og um leið félags- andi, sem gerði íslenskt flug að stórri og gjaldeyrisskapandi at- vinnugrein ásamt því að tryggja landsmönnum góðar samgöngur innanlands og milli landi, þarf á ný að ríkja í röðum þeirra sem að flugmálum vinna. Þeir erfiðleikar sem nú blasa hvarvetna við í flugheiminum ættu að verða öll- um hlutaðeigandi hvatning til sameiginlegra átaka, en ekki sundurlyndis. En til þess að sigur vinnist á yfirstandandi örðugleik- um verða allir viðkomandi að sýna góða samvinnu og þegnskap í hvívetna. Frá Kynningardeild Flugleiða Reykjavíkurflugvelli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.