Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.07.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ1980 31 Sements- verksmiðjan hyggurá kolanotkun Sementsverksmiðjur ríkisins hafa fest kaup á takjuni sem Kera kleift að breytt verði úr svartoliunotkun í kolanotkun við sementsframleiðslu, en að sögn Guðmundar Guðmundssonar framkvæmdastjóra er nú verið að undirhúa að slík breytint? verði gerð. Búist er við að hún komi til framkvæmda eftir ár ef af henni verður. Guðmundur Guðmundsson sagði að nú væri „verið að leita eftir kaupum á kolum og er við það miðað að þau komi fyrst til landsins eftir ár. Kvað Guðmund- ur enn eftir að byggja yfir tæki og fá ýmislegt til að af framkvæmd- inni gæti orðið, en hér er um að ræða 500—600 milljón króna fjár- festingu. Er talið að breytingin geti borgað sig á 2—3 árum. Gert er ráð fyrir að kolin verði flutt að Grundartanga og þeim ekið þaðan tii verksmiðjunnar. Tækin, sem keypt hafa verið nú þegar eru frá Svíþjóð og verða senn flutt til landsins og eru nú í hönnun ýmis fleiri tæki sem þarf til breytingar- innar. Eftir að breytingin hefur verið gerð verður samt áfram hægt að notast við olíu ef nauðsyn krefur. Atriði úr óskarsverðlaunamyndinni „Flug kondórsins frá Gossamer“. sem fjallar um tilraunir manna til að fljúga fyrir eigin afli. Leikstjóri myndarinnar, Ben Shedd, verður gestur Amerísku kvikmyndavikunnar og er „Flug kondórsins ...“ fyrsta myndin sem sýnd verður á henni. Amerískar Óskarsverðlauna- myndir á kvikmyndahátíð AMERÍSK kvikmyndavika hefst í Regnboganum um næstu helgi. nánar tiltekið laugardaginn 26. júli. Það er íslensk—Ameriska félagið sem stendur að kvikmyndavikunni, i samvinnu við Sigurjón Sighvatsson, en Sigurjón stundar nám i kvikmyndagerð i Los Angeles og hefur hann að mestu séð um útvegun myndanna sem sýndar verða ,og undirbúning vikunnar, ásamt Páli Baldvinssyni. Á dagskrá hátíðarinnar eru þrettán nýlegar heimildamyndir sumar í fullri lengd, aðrar styttri, og kennir þar ýmissa grasa, enda er mikil gróska í gerð heimilda- mynda í Bandaríkjunum um þess- ar mundir og höfuðtilgangur há- tíðarinnar, að sögn aðstandenda hennar, að veita innsýn í aðrar greinar amerískrar kvikmynda- gerðar en þær sem almenningur hefur hingað til átt kost á að virða fyrir sér í kvikmyndahúsum hér- lendis, þ.e. leiknar stórmyndir, framleiddar af stóru kvikmynda- fyrirtækjunum í Bandaríkjunum. Búið er að ganga frá dagskrá fyrir fyrstu daga hátíðarinnar, en hún mun verða birt síðar í heild sinr.i. Gestir amerísku kvikmyndahá- tíðarinnar eru tveir bandarískir leikstjórar, sem báðir eiga verð- launamyndir á hátíðinni. Eru það Ben Shedd, leikstjóri myndarinn- ar „The flight of the Gossamer Condor“, en sú mynd hlaut Óskarsverðlaun sem besta heimildamyndin árið 1978 og Witchell Block, sem hlaut Emmy- verðlaunin fyrir „No lies“ árið 1974. Shedd er eigandi eins stærsta kvikmyndadreifingar- fyrirtækis Los Angeles og hefur hann verið aðstandendum hátíð- arinnar mjög innan handar við útvegun mynda. Báðar myndirnar verða sýndar fyrsta dag hátíðar- innar, laugardaginn 26. júlí, en auk þeirra verður sýnd myndin „Poto and Cabengo" eftir J.P. Gorin, fyrrum samstarfsmann Godards. Fjallar hún um Kenne- dy-tvíburana, sem frægar urðu fyrir að tjá sig á máli sem enginn skildi utan þær sjálfar og þykir myndin athyglisverð fyrir margra hluta sakir, m.a. efnismeðferð leikstjórans. En hann tekur ekki aðeins á tilfellinu sem slíku, held- ur færir það út í víðara samhengi. Þá verður sýnd Óskarsverðlaun- amyndin „Harlan County USA“, sem hlaut Óskarsverðlaunin árið 1977, gerð af Barböru Kopple og er þar tekið fyrir líf og barátta námuverkamanna. Þess má geta að efni þessarar myndar er sótt í sömu atburði og umhverfi og „Norma Rae“ Oskarsverðlauna- myndin í Bandaríkjunum frá því í fyrra, sem Nýja bíó mun bráðlega hefja sýningar á. Þá verður sýnd tónlistarmyndin „The last of the Blue Devils" og ætti hún að vera hvalreki á fjörur jazzunnenda, því iSnrgiWfN- í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI í umsögnum segir að þessi mynd sé ein besta heimildamynd um jazz sem gerð hafi verið og í henni koma m.a. fram Count Basie, Jay McShann, Joe Turner og Jesse Price. Sunnudaginn 27. júlí verða svo eingöngu sýndar tónlistarmyndir: „The Wizard of Waukesha", sem fjallar um litríkan feril tónlist- armannsins Les Paul og „Hertog- inn á túr“, eða „On the Road with Duke“, auk „Bláu djöflanna". Mánudagurinn 28. júlí verður síðan helgaður þjóðfélagslegum vandamálum. Þá verða sýndar, auk „Harlan héraðsins" myndirn- ar „The Wobblies" eða „Orðagems- ar“, eins og hún er kölluð hér, sem fjallar um baráttu félaga í IWW, verkalýðssamtaka sem störfuðu á Vesturströnd Bandaríkjanna á tveim fyrstu áratugum aldarinn- ar, og „America lost and found", unnin úr myndefni frá áratugun- um milli kreppunnar í Ameríku um 1930 og fram að upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar. Á þriðjudeginum þ. 29. júlí mun svo gefa að líta rithöfundinn Norman Mailer kljást við kven- réttindakonur, m.a. Germaine Greer, á fundi sem mikla athygli vakti á sínum tíma og var kvik- myndaður. Heitir myndin á ís- lensku „Slagurinn í bæjarhúsinu“. Þá verður sýnd myndin „Low, Low in Los Angeles" eða Langt niðri í Los Angeles, aúk annarra mynda, sem greint hefur verið frá að framan. Eins og áður segir, verður dagskrá hátíðarinnar birt í heild innan skamms, en hátíðinni lýkur 1. ágúst. Leiðrétting í FRÉTT í Morgunblaðinu á sunnudaginn um fund í Röst á Hellissandi um áfengismál slædd- ust villur, sem nauðsynlegt er að leiðrétta. í fyrsta lagi var mis- hermt að AA samtökin hafi staðið að fundinum, sérstök undirbún- ingsnefnd skipulagði fundinn. í öðru lagi mun heimilið á Hellis- sandi taka á móti sjúklingum frá Vífilstöðum og Sogni. Loks er þess að geta, að stjórnendur heimilis- ins hafa ekki verið ráðnir. AUGLÝSING A ST OFA MYNDAMÓTA Aóalstræti 6 simi 25810 MEÐ VIÐSÝN UM VERÖLD ALLA MIÐ-EVRÓPUFERÐ 31. JÚLÍ RiiEÚ ÍSRAELSFERÐ 16. ÁGÚST GRIKKLANDSFERÐ 19. AgÚst MEXICOFERÐ 20. ágúst GRIKKLAND - EGYPTALAND 23. ÁGÚST FERÐASKRIFSTOFA AUSTURSTRÆTI 3 SÍMI 27090

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.